Dagur - 11.03.1998, Page 1
T
BLAÐ
Verð í lausasölu 150 kr.
81. og 82. árgangur - 48. tölublað
Himdruð hrossa hafa
veikst á höfuðborgar-
svæðinu og þar af
margir verðlaunaðir
stólpagripir úr hópi
stóðhesta. AUt gert
sem hægt er til að
verja hrossaræktarbú-
in ut um land þar sem
íylfullar hryssur eru.
„Það hafa hundruð hrossa veikst
og í þeim hópi eru margverð-
launaðir stólpagripir. Það hefur
ekkert verið hægt að verja þá
frekar en önnur hross. Það eina
sem menn geta gert er að hugsa
vel um skepnurnar. Gefa þeim
vítamín og pnnur bætiefni og
hugsa vel um fóðrunina. Þá þarf
að fylgjast vel með hitanum og ef
menn verða varir við hita þá hef-
ur það reynst mér vel að gefa
þeimAB mjólk. Gerlarnir virðast
hafa góð áhrif á hrossin," sagði
Sigurbjörn Bárðarson: „Þaö er upp á líf og blóð hjá okkur núna að verja lands-
byggðina". Hesthúsið er lokað ölllum óviðkomandi. - mvnd: gva
sá kunni hestamaður Sigurbjörn
Bárðarson í samtali við Dag.
Eins og skýrt var frá í Degi í
gær er hætta á því að fylfullar
hryssur sem veikjast missi fóstur
og stóðhestar sem veikjast geti
orðið ófrjóir. Það kemur hins
vegar ekki í ljós fyrr en löngu eft-
ir að veikin er gengin yfir hvort
fóstur hefur drepist eða foli verði
ófrjór.
Lán í óláni
Sigurbjörn Bárðarson sagði það
lán í óláni, varðandi hryssurnar,
að lang flestar verðlaunahryssur
landsins, sem notaðar eru til
undaneldis, væru á búum út um
Kostnaði
haldið
leyndum
Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og
viðtöl Dags við fjöldamarga
starfsmenn hjá hjálparsveitun-
um, vildi enginn gefa upp undir
nafni Iíklega kostnaðartölu í
sambandi við björgun Dalvíking-
anna á hálendinu. Kunnugir
segja þó að fyrir utan vinnutap sé
um milljónakostnað að ræða.
Björn Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar, segir
að dæmi séu þess að menn hafi
veigrað sér við því að kalla til að-
stoð í nauðum eftir að umræða
um kostnað við björgunarað-
gerðir hafi farið fram. „Þessir
strákar hafa margir hverjir tekið
þátt í að bjarga öðrum, sem
hjálparsveitarmenn, og það var í
þágu hjálparstarfs sem för þeirra
var farin. I neyð er ekki hugsað
um peninga og þótt ljóst sé að
eitthvað hefur ldikkað, viljum við
ekki fella dóm um það núna. Við
eigum eftir að fara yfir stöðuna,"
segir Björn. — Bt>
Sjá bls. 8-9 og
Ltfið í landinu, bls.22.
—
land. Þangað hefði veikin ekki
borist enn. Hún hefur að lang
mestu Ieyti verið á höfuðborgar-
svæðinu. Hann sagði allt gert til
að koma í veg fyrir að smit berist
til ræktunarbúanna. Þess vegna
hefðu afar fáar fylfullar hryssur
veikst enn sem komið er.
„Það er upp á líf og blóð hjá
okkur núna að verja landsbyggð-
ina og þau ræktunarvígi, það er
býlin, sem geyma verðlauna-
hryssur sem notaðar eru til rækt-
unar stofnsins," sagði Sigur-
björn.
Alvarlegra með stóðhestana
Hann segir að íjöldi frægra og
verðlaunaðra stóðhesta sé hýstur
á höfuðborgarsvæðinu og margir
þeirra hafa veikst.
„Það útheimtir aftur, að ef
nota á þessa stóðhesta í vor,
verður að fara fram nákvæm
greining á sæði þeirra og gæði
þess kannað áður en farið verður
að nota hestana vegna þess að
hætta er á að þeir séu ófrjóir,"
sagði Sigurbjörn Bárðarson.
- S.DÓR
Fjárfestinga-
banktnn
ekkií lax
„Laxveiði? Nei, það eru ekki uppi
neinar ráðagerðir um að fara í
laxveiði á vegum bankans í sum-
ar, en þetta hefur að öðru leyti
ekki verið rætt,“ segir Bjarni Ár-
mannsson, bankastjóri Fjárfest-
ingabanka atvinnulífsins í sam-
tali við Dag.
Það hefur því ekki verið mótuð
framtíðarstefna um hvort lax-
veiðin henti í viðskiptarvildar-
veiði FBA í framtíðinni. Bjarni
vildi að öðru leyti ekki tjá sig um
laxveiðimáiin. — FÞG
Sjá einnig bls. 5
„Sverrir pantar úttekt".
Tryggvi Harðarson vill uppgjör I
Hafnarfirði.
Tryjfgvi viil
í 1. sætið
Komnir af fjöllum með félaga heila á húfi. Nærri 100 manns tóku þátt í leitinni að björgunarsveitarmönnunum sem grófu
sig í fönn. - mynd: bös
Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi
Alþýðuflokksins í Hafnafirði
sækist eftir því að fá að leiða
flokkinn í kosningum í vor og
stefnir að því að velta Ingvari
Viktorssyni bæjarstjóra úr fyrsta
sætinu í prófkjöri sem haldið
verður um miðjan mánuðinn.
Tryggvi gagnrýnir forystu A-
flokkanna í Hafnarfirði sem
hann segir að hafi verið „of
sundurleit og ómarkviss til þess
að ná saman þrátt fyrir einlægan
vilja fjöldamargra um samfylk-
ingu þessara afla.“
Sjá Þjóðmál á bls. 7
Bjarni Ármannsson - ætlar ekki að fjár-
festa í laxi - enn.
HHBSBI
w
Nv11 símanúmer 1
z í 6 0 2 5 0 ( 3
SPARISJÓÐUR NORÐLENDINGA
Premium
mióiarar
Alfa Laval
Varmaskiptar
BORGARTÚNI 31 • SÍMI 562 7222 • BRÉFASÍMI 562 1024
Stólpagripir sjúMr