Dagur - 11.03.1998, Page 3
MIÐVIKUDAGUR ll.MARS 1990 - 3
FRÉTTIR
Hart lagt að Pétrí
að vera á R-lista
Pétur Jónsson borgar-
fiilltrtíi segir menn í
fuUtrúaráði ílokksiiis
í borginni hafa við
orð að samþykkja
ekki R-listann vegna
þess að á honum séu
ekki kratar. - Við tök-
iiin ekki upp leiki,
segir Birgir Dýrfjörð.
„Það er vandaræðagangur í
þessu hjá flokknum. Menn segja
að þarna sé ekki um neina krata
að ræða og þá hrökkva kratar í
borginni við. Þeir eru hinir fúl-
ustu og tala nú um að samjrykkja
ekki Reykjavíkurlistann. Eg veit
svo sem ekki hvað mikil alvara er
að baki þessu tali manna. Það
hafa margir þetta við orð og ef
menn gera alvöru úr þessu tali
sínu þá er íjandinn laus. FuII-
trúaráð flokksins þarf á fundi í
vikulokin að samþykkja þá krata
sem settir verða á R-Iistann sem
ekki voru valdir í prófkjörinu.
Síðan þarf ráðið að samþykkja
listann í heild,“ segir Pétur Jóns-
son, borgarfulltrúi Alþýðuflokks-
ins, í samtali við Dag.
Hart er lagt að Pétri að taka
sæti á Reykjavíkurlistanum en
hann hefur ekki ljáð máls á því
ennþá. Talið er að ef hann ljáir
máls á því muni menn í Alþýðu-
flokknum í Reykjavík betur sætta
sig við Iistann.
„Aðkomumenn“
„Það er rétt, nú þrýsta menn á
mig að taka sæti á listanum en
ég hef engu svarað og er enn að
velta þessu fyrir mér. Persónu-
lega er ég andsnúinn því að gera
það. Eg gaf kost á mér í prófkjöri
og þar gafst fólki kostur á að
velja mig á listann en gerði það
ekki. Því ætti ég þá að vera að
eltast við þetta meira?“ sagði
Pétur.
Margir gamlir kratar í borginni
eru ekki mjög hressir með það að
„tveir aðkomumenn," eins og
þeir kalla þá Hrannar B. Arnars-
son og Helga Pétursson, komust
f örugg sæti á Reykjavíkurlistan-
um í prófkjörinu. Pétur viður-
kennir að þetta sé alveg rétt,
svona tali menn en geti þó eng-
um nema sjálfum sér um kennt.
Tökum ekki upp leiki
„Eg trúi því ekki að fulltrúaráðið
geri þetta jafnvel þótt maður viti
að fólk er miskátt með niður-
stöðu prófkjörsins. Fulltrúaráðið
valdi ákveðinn 7 manna hóp til
að fara og keppa í prófkjörinu og
niðurstaðan er ljós. Þeir sem nú
eru borgarfulltrúaefni flokksins
voru í þessum 7 manna hópi og
sigruðu í prófkjörinu. Það hefur
verið leildð í skákinni og kratar
taka ekki upp leiki,“ sagði Birgir
Dýrfjörð, sem sæti á í fulltrúa-
ráði Alþýðuflokksins.
Það kemur væntanlega í ljós á
föstudag eða laugardag hvort
kratar gera uppþot eða sam-
þykkja Reykjavíkurlistann.
-S.DÓR
Halldór Blöndal samgönguráðherra segist
vera þeirrar skoðunar að leita eigi eftir
einkafjánvögnun við framkvæmdir Sunda-
brautar en hann segir brautina langt í frá
komna á dagskrá.
Simdabraut
ekki á dagskrá
„Eg er þeirrar skoounar að við
eigum að leita eftir Ieiðum til
einkafjármögnunar fram-
kvæmda við Sundabrautina. Það
hefur verið talað um skugga-
gjöld en það liggur engin niður-
staða fyrir um það hvenær verð-
ur ráðist í þessa framkvæmd
enda er undirbúningi engan
veginn lokið og ekki komin nið-
urstaða á hvernig þessi braut
eigi að vera,“ sagði Halldór
Blöndal samgönguráðherra
aðspurður um byggingu Sunda-
brautar.
Frambjóðendur Sjálfstæðis-
flokksins til borgarstjórnar hafa
haldið á lofti þeim hugmyndum
að einkavæða og fjármagna
Sundabrautina, en kostnaður
við hana alla er sagður nema um
12 milljörðum króna.
Halldór sagði framkvæmdir
við Sundabraut svo viðamikla og
kostnaðarsama að óhugsandi
væri að ráðast í hana alla nema
samtímis liggi fyrir að komið sé
að því að næsta byggingasvæði
borgarinnar sé Alfsnesið. -S.DÓR
Niðurskurður á
spítölum
Spara á 120 milljónir hjá Ríkis-
spítölum með hagræðingu og
sparnaði á ýmsum sviðum. Til
dæmis er lagt til að 10% niður-
skurður verði á hjartaaðgerð-
um, spara á við lyflækningar og
einnig við geðsjúka. Minnka á
stjórnunarkostnað. Ekki á að
segja upp fólki, en nýráðningar
munu hætta. Þessi sparnaður mun ekki ráða bót á „fortíðarvanda"
spítalanna, hallarekstri síðustu ára. Guðmundur G. Þórarinsson
stjórnarformaður leggur til að ljárveitingarvaldið komi með framlög
vegna þessa.
Þessar hugmyndir voru kynntar á starfsmannafundi í gær, en þær
koma frá stjórnarnefnd Ríkisspítala.
Frá starfsmannafundi á Ríkisspitölum í gær.
Halldór Ásgríms-
Jjux vegna Kosovo
Halldór Asgrímsson, utanríkisráðherra, lýsir yfir
þungum áhyggjum vegna hins alvarlega ástands sem
skapast hefur i Kosovo. Hann fordæmir voðaverk
serbneskra stjórnvalda og tekur undir kröfu hins al-
þjóðlega samfélags um að binda tafarlaust endi á
blóðbaðið. Jafnframt að hafnar verði pólítískar við-
ræður hið fyrsta til að finna friðsamlega lausn á fram-
tíðarskipan Kosovo. -SBS.
A-flokkar eystra stofna
Fjarðarlistauu
Samþykkt var á félagsfundum Alþýðuflokks og Alþýðubandalags á
Eskifirði, í Neskaupstað og á Reyðarfirði í sl. viku að stofna nýtt bæj-
armálafélag, Fjarðarlistann, og jafnframt var Iýst yfir stuðningi við
væntanlegt framboð listans í sveitarstjórnarkosningum í vor. „Með
stofnun Fjarðarlistans verður framboðsmálum Alþýðubandalags, Al-
þýðuflokks og annars félagshyggjufólks í hinu nýja sveitarfélagi kom-
ið í farveg sameiginlegs framboðs á sama hátt og þróunin virðist ætla
að verða víðsvegar um landið," segir í frétt frá Fjarðarlistanum, en
stofnfundur hans verður á þriðjudagskvöld í næstu viku. -SBS.
Amór Karisson kaupmaður, til hægri, og Þorsteinn Gunnarsson rektor Háksólans á Akureyri við undirritun skipulagsskrár sjóðs sem Arnór
styrkir með 20 milljónum. Mynd: GS
Gefúr 20 milljónlr
I gær barst Háskólanum á Akur-
eyri rausnarlegasta gjöf frá ein-
staklingi sem skólanum hefur
verið færð til þessa. Það var Arn-
ór Karlsson, kaupmaður á Akur-
eyri, sem gaf skólanum tvær
eignir sínar, raðhúsíbúð við
Furulund og verslunarhúsnæði í
verslunarmiðstöðinni Sunnu-
hlíð. Auk þess ánafnaði Arnór
Háskólanum allt innbú sitt,
þ.ám. 30 málverk og bækur.
Gjöfin er að andvirði 20 milljón-
ir kr.
Arnór mun áfram búa í hús-
eigninni við Furulund en gjafirn-
ar eru að öðru leyti bundnar því
skilyrði að andvirði eignanna
verði varið til stofnunar gjafa-
sjóðs, Végeirssjóðsins, sem
stuðla eigi að uppbyggingu á
rannsóknarstarfi á Végeirsstöð-
um í Fnjóskadal. En Arnór og
ættingjar hans gáfu skólanum
jörðina í september 1995.
Tilgangur sjóðsins er að veitt
verði úr honum fé til skógrækt-
ar,- rannsókna- og ráðstefnu-
starfsemi á Végeirsstöðum. Lagt
verði fé til uppbyggingar rann-
sóknastarfs á vegum Háskólans á
Akureyri sem og annarra verk-
efna sem sjóðurinn telur brýnust
á hverjum tíma. Sjóðurinn mun
einnig taka váð framlögum frá
öðrum gefendum til hvers konar
framfaramála sem háskólinn
stendur fyrir.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor
Háskólans á Akureyri, segir gjöf-
ina frá Arnóri sína mikinn velvilja
hans til skólans. Hún þýði að Há-
skólinn á Akureyri fái tækifæri og
möguleika á að byggja upp ráð-
stefnu- og útivistarsetur á Vé-
geirsstöðum en einnig sé gjöfin
frekari hv'atning til að láta fé af
hendi rakna til skólans. — HBG