Dagur - 11.03.1998, Blaðsíða 5
I
FRETTIR
MIÐVIKUDAGUR ll.MARS 1998 - S
Laxtnn í skoðun
Sverrir Hermannsson Landsbankastjóri með vænan iax úr Hrútafjarðará, en þar er
fjölskyldufyrirtæki hans leigutaki og hefur selt Landsbankanum veiðileyfi.
Sverrir Hermannsson
viU úttekt á „meint-
um“ laxveiðLkaupum.
Áttum kannski að
hafa framkvæðið, seg-
ir Ríkisendurskoð-
andi.
Sverrir Hermannsson Lands-
bankastjóri hefur sent frá sér yf-
irlýsingu um að hann ætli að
óska eftir því að Ríkisendurskoð-
un geri úttekt á „meintum" lax-
veiðikaupum Landsbankans á
laxveiðuleyfum af Bálki ehf.,
sem er fjölskyldufyrirtæki Sverr-
is. Jóhanna Sigurðardóttir þing-
maður lagði í gær fram ítarlegar
framhaldsfyrirspurnir um mál-
efni Sverris, eins og greint var
frá í blaðinu í gær.
Yfirlýsing Sverris er svohljóð-
andi: „Vegna þeirrar umræðu
sem orðið hefur síðustu daga um
meint kaup Landsbanka Islands
á veiðileyfum af leigutaka Hrúta-
fjarðarár [innskot Dags: Bálki
ehf., fjölskyldufyrirtæki Sverris]
hef ég ákveðið að óska eftir að
rfkisendurskoðun geri úttekt á
þessum málum og skili, ef stofn-
unin telur efni til þess, skýrslu
um málið til bankaráðs Lands-
banka Islands hf. Eg minni á að
ríkisendurskoðandi er jafnframt
endurskoðandi bankans.
Ég tek það fram að þessi ósk er
ekki síst sett fram í ljósi ummæla
formanns bankaráðs Lands-
banka íslands hf. [innskot Dags:
Helga S. Guðmundssonar] á op-
Ragnar Stefánsson.
Skjálftar £rá
Langjökli út
á Reykjanes
íbúar í Hafnarfirði og Krýsuvík
urðu varir við jarðskjálfta í fyrr-
inótt. „Það var einna mest á Vig-
dísarvöllum á Reykjanesskagan-
um og var mest um sex leytið í
morgun," sagði Ragnar Stefáns-
son jarðskjálftafræðingur Veður-
stofunnar. Stærsti skjálftinn var
um 3 á Richter. Það má segja að
þetta hafi verið samfelld hrina á
svæði frá Langjökli og út á
Reykjanes
Ragnar segir að hrinan hafi
byrjað á Hengilssvæðinu rétt fyr-
ir kl. tíu í fyrrakvöld. A fjórða
tímanum hafi jörð farið að skjál-
fa í Geitlandsjökli i suð-vestur-
horni Langjökuls og klukkan sex
í gærmorgun urðu svo skjálftarn-
ir á Vigdísarvöllum.
Frá því um hádegi í gær hafði
verið frekar rólegt á meginhluta
vestara gosbeltisins.
-OHR
inberum vettvangi. Ég tel eðli-
legra að umræður um þessi mál
fari fram á grundvelli trúverð-
ugra upplýsinga, heldur en get-
sagna.“
Ríkisenduxskoðun ekkert að
vanbúnaði
Ekki náðist í Sverri í gær og þeg-
ar blaðið ræddi við Sigurð Þórð-
arson ríkisendurskoðanda hafði
hann ekki fengið beiðni Sverris.
Sigurður taldi þó að embættið
væri hæft til að taka málið að sér.
Einar K. Gudfiimsson
segir meirihluta fyrir
því á Alþiugi að hefja
aftur hvalveiðar og
viU uú láta reyna á
hvort Alþingi sam-
þykkir að leyfa hval-
veiðar hér við land á
nýjan leik
„Við vitum að það er yfirgnæf-
andi meirihluti meðal almenn-
ings í landinu fyrir því að hefja
aftur hvalveiðar. Það hefur líka
„Það koma reyndar upp tvær
skyldur í þessu sambandi. Ann-
ars vegar komum við að þessum
sem endurskoðendur ríkisstofn-
unarinnar og ég eftir einkavæð-
inguna sem skipaður fulltrúi
þingsins. Hins vegar er Ríkisend-
urskoðun eftirlitsaðili eiganda
bankans, sem er viðbótarhlut-
verk okkar sem stjórnsýsluend-
urskoðenda. Það er ekkert að
vanbúnaði fyrir okkur að gera
svona úttekt og frekar mætti
gagnrýna okkur fyrir að hafa ekki
oft komið fram í umræðum á Al-
þingi að meirihluti er fyrir því
meðal þingmanna að hefja aftur
hvalveiðar. Því er það bara spurn-
ing hvort menn þora að sýna það
í atkvæðagreiðslu," sagði Einar
K. Guðfinnsson alþingismaður
en þeir Guðjón Guðmundsson
flytja tillögu á Alþingi um að
leyfa hvalveiðar aftur hér við
land.
Áhugi í Japan
„Við Guðjón vorum að vonast til
að þetta yrði lagt fram sem
stjórnartillaga. Nú sýnist okkur
ljóst að svo verður ekki. Þess
vegna ákváðum við að flytja
þingsályktunartillöguna," sagði
haft frumkvæðið," segir Sigurð-
ur. Þess skal getið að aðalendur-
skoðandi Landsbankans er Arni
Tómasson, fulltrúi viðskiptaráð-
herra.
Forráðameim dótturfélag-
auna svara ekki
Bæði Sigurður Þórðarson og
Garðar Valdimarsson ríkisskatt-
stjóri staðfesta að fullkomlega
eðlilegt telst að draga kostnað
vegna laxveiðiferða frá skatt-
skyldum tekjum bankanna ef
ferðirnar teljast sannanlega vera
vegna öflunar viðskipta. „Ef í Ijós
kemur að svo er ekki, t.d. að ein-
göngu starfsmenn bankans taki
þátt, þá er komið upp vanda-
mál,“ segir Sigurður.
Hömlur, Reginn, Rekstrarfé-
lagið
I nýjum fyrirspurnum Jóhönnu
Sigurðardóttur er sérstaklega
spurt um laxveiðileyfakaup dótt-
urfélaga Landsbankans, en félög
sem eru að öllu eða nær öllu leyti
í eigu bankans eru Landsbréf,
Hömlur, Reginn og Rekstrarfé-
lagið. Ekki náðist í forráðamenn
þessara félaga í gær, þá Gunnar
Helga Hálfdánarson og Jakob
Bjarnason.
Þá má geta þess að í fréttum
Sjónvarps í gærkvöld kom fram
að tveir Landsbankastjórar, þeir
Sverrir Hermannsson og
Björgvin Vilmundarson eru
meðal fjölmargra hluthafa í
Laxárfélaginu, sem hefur með að
gera kaup og sölu veiðileyfa í
Laxá í Aðaldal, en þar hefur
bankinn keypt veiðileyfi.
- FÞG /-SBS.
Einar. „Við lítum svo á að það sé
mál framleiðenda hvort hægt er
að selja afurðirnar. Þeir verða að
bera fjárhagslega ábyrgð og sjá
um að selja vöruna. Okkar er að
reyna að fá til þess leyfi handa
þeim.“
Hann bendir á að vitað sé að
eftirspurn sé eftir hvalkjöti í Jap-
an og áhugi kaupenda þar fyrir
málinu.
Hann segir að það hafi verið ít-
rekað á þingsflokksfundi hjá
sjálfstæðismönnum að það væri
yfirlýst stefna ríkisstjómarinnar
að heíja aftur hvalveiðar enda
þótt ljóst sé að hún mun ekki leg-
gja það til á þessu þingi. -S.DÓR
INNLENT
Helmingi minni
hagnaður
Hagnaður af rek-
stri Skeljungs í
fyrra var rúmar
hundrað milljón-
ir króna en var
rúmar 200 millj-
ónir króna árið
1996. Eigið fé
fyrirtækisins var
rúmir 2,8 milljarðar króna í árs-
lok og eiginfjárhlutfallið 42% en
það var 44% í árslok 1996.
I frétt frá Skeljungi segir að
þessi niðurstaða sé viðunandi að
mati stjórnenda fyrirtækisins.
Þegar hafi verið gripið til marg-
víslegra aðgerða til þess að bæta
afkomuna, hagræða og draga úr
rekstrarkostnaði.
Lakari afkoma
Lyfjarverslunar
Lyfjaverslun Islands hagnaðist
um 26,5 milljónir króna á síð-
asta ári og er það lakari árangur
en gert var ráð fyrir í rekstrará-
ætlunum fyrirtækisins. Sala
þess jókst þó í fyrra um nærri
13% en rekstrargöld hækkuðu
meira en tekjurnar, m.a. vegna
lækkunar heildsöluálagningar á
Iyf að því er fram kemur í frétt
frá fyrirækinu.
Stjórn fyrirtækisins leggur til
að greiddur verði 5% arður til
hluthafa á þessu ári og að aðal-
fundur verði haldinn 25. apríl.
Sosialistar ræða
málin
Sósíalistafélagið
boðar til mál-
þings á laugar-
daginn kemur til
að minnast þess
að 150 ár eru lið-
in frá því Komm-
únistaávarp
Karls Marx kom fyrst út. Meðal
framsögumanna á málþingi
verður Pétur Gunnarsson rithöf-
undur. l)m kvöldið verður síðan
árshátíð sósíalistafélagsins hald-
in í fyrsta sinn. Þar verður Og-
mundur Jónasson, alþingismað-
ur, heiðursgestur og ávarpar
samkomuna.
Breyting á lögum
um leigubílstjóra
Samgönguráðherra hefur lagt
fram á Alþingi frumvarp til laga
um breytingar á lögum um
leigubifreiðar. Tilgangur frum-
varpsins er fyrst og fremst að
setja reglur um sendi- og vöru-
bifreiðastjóra, sem stunda leigu-
akstur með vörur. Lagt er til að
þeir hafi tilskilin leyfi og uppfylli
hæfnisskilyrði Ieigubifreiðalag-
anna á sama hátt og þeir sem
stunda leiguakstur á fólki.
Heimkoma
Keikós
Siv Friðleifsdóttir hefur beint
fyrirspurn til sjávarútvegsráð-
herra um heimkomu háhyrn-
ingsins Keikós. Hún spyr hver sé
afstaða ráðherra til þess að leyfa
heimkomu háhyrningsins og
hvort málið hafi verið til skoð-
unar í sjávarútvegsráðuneytinu.
/ Hvalstöðinni i Hvalfirði fyrr á tíð. Nú te/ja menn að hugsanlega sé meirihluti fyrir þvi að hefja hvalveiðar að nýju og vill Einar
Kr. Guðfinnson láta reyna á það. Verði það samþykkt mun aftur lifna yfir Hvalstöðinni.
Þora þiitgmeim í hvaliim?
Kristinn Björns-
son, forstjóri
Skeljungs.
Ögmundur
Jónasson.