Dagur - 11.03.1998, Qupperneq 11
MIDVIKUDAGUR 11. MARS 1998 -"11
ERLENDAR FRÉTTIR
Feliur danska
stjómin í dag?
Vinstri
Hægri
Úthlutun þingsæta á danska þinginumiðad við könnun: Sósialdemókratar 56,
Radikale 9, Sósíal. alþfl. 13, Einingarlisti 5, samtals: 83. - Venstre 45, íhalds. 21,
Miödemó. 8, Danski alþfl. 13, Kristil. 5, samtals: 92
Danir ganga að kjör-
borðinu í dag og kjósa
í almeimum þing-
kosnmgum.
Kosningarnar stefna í að verða
óvenju tvísýnar og síðustu daga
hafa skoðanakannanir bent til að
borgaraflokkarnir gætu steypt
sósíaldemokratískri ríkisstjórn
Pauls Nyrup Rasmussen.
Alls verða kosnir 175 þing-
menn í 14 kjördæmun, en auk
þessara þingmanna eiga sæti á
danska þinginu tveir grænlenskir
þingmenn og tveir færeyskir,
þannig að meirihluti í þinginu
fæst nái önnur hvor blokkin í
dönskum stjórnmálum - sú borg-
aralega eða sú sósíaldemókrat-
íska - rúmlega 90 þingsætum.
Áfram velmegim?
Þegar Poul Nyrup Rasmussen
forsætisráðherra tilkynnti um
þingrof og kosningar fyrir þrem-
ur vikum, var stjórnmálaútlitið
almennt talið gott fyrir ríkis-
stjórnarflokkana, sósíalde-
mókrata og Radikale venstre.
Efnahagsástandið er gott, at-
vinnuleysi það minnsta í 17 ár og
engin alvarleg vandamál hafa
hijáð ríkisstjórnina. Enda hafa
sósíaldemókratar byggt
kosningabaráttuna á þessum
grunni og stillt upp tveimur
valkostum - áframhaldandi
velmegun annars vegar eða
ábyrgðalausar skattalækkan-
ir hjá hinum velmegandi og
óvissa með borgaraflokkun-
um hins vegar.
Kosningabandalag til
hægri
Hægriflokkurinn Venstre,
sem Uffe Elleman-Jensen
leiðir og íhaldsflokkurinn
(Konservatívir) undir forystu
Per Stig Mullers ganga til
kosninganna í kosninga-
bandalagi þar sem grunn-
tónninn snýst um skatta-
lækkanir og aukið frelsi ein-
staklinganna. „Sambland af frel-
si og tryggingu," eins og Uffe
Elleman orðaði það í lokaum-
ræðum í danska ríkissjónvarpinu
í fyrrakvöld. Málefnaágreiningur
stærri flokkanna hefur verið
heldur fátældegur og snúist um
áherslur og útfærslur frekar en
grundvallaratriði. Þó er greini-
legt að sósíaldemókratarnir stan-
da uppi sem verjendur hins hefð-
bundna danska velferðarkerfis
en borgaraflokkarnir vilja endur-
bætt velferðarkerfi - tala um að
fjármagnið þurfi að fylgja sjúk-
lingum, börnum eða eldri borg-
urum í gegnum velferðarkerfið.
Skólamál umdeild
Onnur einstök mál sem hafa
orðið áberandi í umræðunni eru
skólamál, dýravernd og innflytj-
endamál. Núverandi stjórnar-
andstaða hefur gagnrýnt grunn-
skólann fyrir að vera dýr og léleg-
ur og að nemendur komi illa út
úr alþjóðlegum samanburði.
Kunnugleg umræða frá Islandi.
Dýravernd hefur komið óvænt
inn f umræðuna í tengslum við
ólíkar aðferðir við slátrun hús-
dýra, ekki síst slátrun sem fram-
kvæmd er undir trúarlegum for-
merkjum. Ymsir smáflokkar úr
borgaralegu blokkinni hafa reynt
að vinna fylgi út á þetta.
Flóttamenn og innflytjendur
Flóttamanna- og innflytjenda-
mál hins vegar hafa verið áber-
andi, enda tilfinningalegt hita-
mál. Það er fyrst og fremst
Danski alþýðuflokkurinn (Dansk
Folkeparti), undir forystu Piu
Kjærsgaard, sem er klofnings-
flokkur út úr Framfaraflokknum
(Glistrup) sem sett hefur inn-
flytjendamálin á dagskrá. Pia
Kjærsgaard hefur verið órög við
að lýsa yfir að senda eigi flótta-
menn aftur til sinna heimahaga
um leið og þeim sé óhætt þar.
Það er hins vegar kaldhæðnislegt
að það skuli einmitt vera hún,
sami aðili og sýnir mesta hörku
gagnvart flóttafólki, sem hefur
gert háværar athugasemdir \áð
hvernig dýrum er slátrað undir
trúarlegum formerkjum. Þessi
sjónarmið hafa tryggt henni og
flokknum á milli 8-10% í skoð-
anakönnunum, þannig að flokk-
urinn er mikilvægur í umræð-
unni um borgaralega samsteypu-
stjórn.
Foringjaslagur
Það sem öðru fremur hefur þó
einkennt kosningabaráttuna er
athyglin sem beinst hefur að for-
ingjunum og hafa danskir frétta-
skýrendur skilgreint þetta sem
foringjabaráttu, jafnvel einvigi
milli hugsanlegra forsætisráð-
herra, Nyrups Rasmussen ann-
ars vegar og Elleman-Jensens
hins vegar. Elleman-Jensen er af
flestum talinn Iíklegasta forsæt-
isráðherraefni borgaraflokkanna,
enda er flokkur hans sá lang
stærsti þeim megin í flokkakerf-
inu. Formlega hins vegar hefur
ekki verið frá því gegnið
milli Ihaldsflokksins og Ven-
stre hvort Elleman-Jensen
eða Per Stig Muller, íhalds-
formaður verði forsætisráð-
herraefni kosningabanda-
Iagsins. Slíkt segja þeir að
muni einfaldlega ráðast í
kosningunum. Hugsanlegir
samstarfsflokkar þeirra hafa
ekki gert upp á milli þeirra
foringjanna og telja að það
sé mál Venstre og Ihaíds-
flokksins að ákveða hver
verður forsætisráðherra ef til
kemur.
Miðdemókratar með
lykilinn
Þó hefur einn borgaraflokk-
anna, Miðdemókratar, haldið því
opnu hvorn formannanna flokk-
urinn kunni að styðja. Mið-
demókratar eru í algjörri lykilað-
stöðu í þessum kosningum og
væntanlegum ríkisstjórnarþreif-
ingum. Formaður flokksins,
Mimi Jakobsen, hefur gert hvað
hún getur til að halda dyrum
opnum þó flokkurinn hafi þegar
gefið út þá yfirlýsingu að hann
muni frekar styðja borgaralega
ríkisstjórn en sósíaldemókrat-
íska. Hún hefur sett þrjú grund-
vallarskilyrði fyrir þátttöku í
slíkri ríkisstjórn, sem lúta að já-
kvæðri afstöðu gagnvart Evrópu-
sambandinu, að innflytjenda-
málin verði látin óhreyfð og að
atvinnuleysisbætur og ellilífeyrir
verði ekki skertur með neinum
hætti.
Niðurstöður skoðanakaunana
Berlinske Tidende (%):
kos. - könnun
>94 - 8/3 ’98
Sósíaldemókratar 34,6 - 32,1
Radikale venstre 4,6 4,9
Ihaldsflokkurinn 15,0 - 1L1
Miðdemókratar 2,8 4,1
Sósíalíski alþfl. 7,3 7,3
Danski alþýðufl. — 7,3
Kristilegir 1,9 2,7
Venstre 23,3 - 25,4
Framfarafl. 6,4 1,8
Einingarlistinn 3,1 2,6
Aðrir 1,0 0,7
Stríðsglæpadómstóllinn rannsakar
Kosovoárásir
KOSOVO - Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna í Haag er þeg-
ar farinn að safna gögnum um árásir serbnesku lögreglunnar á Albani
í Kosovo-héraði. Dómstóllinn hefur einnig um nokkurra ára skeið
safnað gögnum um Milosevic forseta Serbíu, án þess þó að það hafi
leitt til þess að ákæra hafi verið lögð fram.
Suharto áfram forseti
INDONESIA - Suharto forseti Indónesíu hefur setið á valdastóli í sex
kjörtímabil samfleytt, eða 30 ár, og í gær staðfesti þingið að hann yrði
áfram í forsetaembættinu næstu fimm árin, en hann er nú 76 ára
gamall. Þjóðþing iandsins hefur fyrst og fremst stöðu ráðgjafarþings,
en er formlega æðsta stjórnstofnun landsins. Þrátt fyrir mikla efna-
hagsörðugleika lék aldrei vafi á að þingið myndi staðfesta kjör hans
og enginn mótframbjóðandi var í kjöri.
Blóðugir bardagar í austurhluta
Tyrklauds
TYRKLAND - í héraðinu Bingöl í Austur-Tyrklandi létu 42 manns líf-
ið í bardögum tyrkneskra öryggissveita gegn Kúrdum. Meirihluti
þeirra sem Iétust voru kúrdneskir aðskilnaðarsinnar og sögðu tyrkn-
esk stjórnvöld að í bækistöðvum þeirra hefði fundist mikið af vopn-
um, skotfærum og matvælum.
Blair ætlar að hitta
Gerry Adams
BRETLAND - Gerry Adams, ieiðtogi Sinn
Fein, gengur á fimmtudag á fund Tonys Blair,
forsætisráðherra Bretlands, og sagðist tals-
maður Sinn Fein vonast til þess að fundur
þeirra verði til þess að flokkurinn geti innan
tíðar sest aftur að samningaborðinu á Norður- Tony Blair, forsætisráð-
Irlandi. herra Bretlands.
Evrópuþiugið krefst lengri
vöruáhyrgðar
FRAKKLAND - Evrópuþingið í Strassborg samþykkti í gær að vernda
beri neytendur frekar en nú er gert með því að lengja ábyrgðartíma-
bil á keyptum vörum úr sex mánuðum í tvö ár. Þá samþykkti þingið
að ef tæki bilar eigi neytendur rétt á því að framleiðandinn veiti
ókeypis viðgerð eða nýtt tæki.
Erfðagögn kynferðisglæpamanna
geymd
ÞYSKALAND - Stjórnvöld í Þýskalandi staðfestu í gær að framvegis
verði erfðaupplýsingar úr munnvatni, sæði eða hárum kynferðis-
glæpamanna geymdar í sérstökum gagnabanka. Með þessu verði auð-
veldara að bera kennsl á þá sem brjóta ítrekað af sér.
Danir grunaðir um olíusvik
DANMÖRK - Tveir danskir kaupsýslumenn eru grunaðir um stór-
felld fjársvik í tengslum við olíuviðskipti og sæta rannsókn hjá sér-
stakri fjárglæpadeild dönsku lögreglunnar. Mennirnir tveir eru grun-
aðir um að hafa ginnt fjölmarga Dani til þess að fjárfesta í vafasöm-
um bandarískum olíulindum. Telur lögreglan að fjársvikin nemi
hundruð milljónum danskra króna.
Fann sprengju undir bílnum
SVIÞJÓÐ - Rússneskur kaupsýslumaður, sem býr í Malmö í Svíþjóð,
fann á mánudag sprengju undir bílnum sínum. Sprengjan var það öfl-
ug að hún hefði valdið miklu tjóni ef hún hefði sprungið, en bíllinn
stóð á bílastæði f}TÍr utan stórmarkað í borginni. I ágúst síðastliðnum
lét annar rússneskur kaupsýslumaður lífTð utan \ið annan stórmark-
að í Malmö, og segir lögreglan að tengsl séu milli þessara tveggja
Rússa.
Natóæfiug eflir smokkasölu
NOREGUR -1 Bodö í Norður-Noregi hefur sala á smokkum stórauk-
ist í kjölfar þess að hermenn Nató komu þangað til þess að taka þátt
í heræfingunni Strong Resolve. I tengslum við æfinguna var sett á
markað ný smokkategund - fyrir varnir í ná\'ígi eins og það heitir í
auglýsingum - og hrifust hermennirnir svo mjög að salan hefur þegar
slegið öll met, að sögn lyfjaverslana þar á slóðum.