Dagur - 11.03.1998, Blaðsíða 12
12-MIÐVIKUDAGUR II.MASS 1998
ÍÞRÓTTIR
Knattspyrna er
engiii tilviljuii
PÁLL
HÖSKULDSSON,
skrifar frá Þórshöfn í Færeyjum.
Páll Guðlaugsson tek-
ur tvo færeyska knatt-
spymumenu með sér
til Ólafsfjarðar þegar
liaim byrjar að þjálfa
hjá Leiftri.
1998
FORVAL
Landssími íslands óskar eftir verktökum til að taka þátt í forvali
vegna lokaðs útboðs á lagningu Ijósleiðarastrengja. Um er að
ræða tvö verkefni á Snæfellsnesi, Gröf-Öxl, 46 km, og Stykkis-
hólmur-Grundarfjörður, 35 km, og eitt verkefni á Suðurlandi, lagn-
ingu strengs yfir Skeiðarársand og Steinavötn 45 km. Þetta eru
þrjú aðskilin verk og geta væntanlegir verktakar óskað eftir þátt-
töku í forvali vegna hvers verks eða allra. Áætlaður verktími er
næstkomandi vor til hausts ‘98.
Leitað er eftir verktökum sem geta tekið að sér m.a. nauðsynlega
jarðvinnu, lagningu Ijósleiðarastrengja með til þess gerðum tækj-
um og frágang jarðvegsyfirborðs í samræmi við ákvæði útboðs-
gagna sem verkkaupi gefur út.
Þeir er hafa áhuga á þátttöku í forvali þessu, sendi inn óskir um
forvalsgögn fyrir 16. mars 1998, merkt „Ljósleiðaralagnir, forval"
til Landssíma íslands, fjarskiptanet-langlínur, Landssímahúsi
v/Austurvöll, 150 Reykjavík eða með faxi í 550 6289.
Forvalsgögn verða síðan send þeim sem þess óska.
Landssími íslands.
Framkvæmdastjóri
menningarmiðstöðvar Gilfélagsins á Akureyri
Gilfélagið óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra í fullt starf sem
fyrst. Leitað er eftir einstaklingi með mikinn áhuga á lista- og
menningarmálum, sem hefur góða skipulagsgáfu, frumkvæði og
metnað til að ná árangri og á auðvelt með samskipti við fólk.
Reynsla af rekstri og stjórnun nauðsynleg. Umsækjandi þarf að
hafa góða tölvukunnáttu og hafa gott vald á ensku og a.m.k. einu
Norðurlandamáli.
Meðal verkefna framkvæmdastjóra er rekstur skrifstofu Gilfélags-
ins og að halda utan um þá þjónustu sem menningarmiðstöðin
veitir. Framkvæmdastjóri Gilfélagsins er jafnframt framkvæmda-
stjóri Listasumars sem er vettvangur lista- og menningarviðburða
á Akureyri á sumrin.
Umsóknum ásamt gögnum um menntun og fyrri störf skal skilað á
skrifstofu Gilfélagsins, Kaupvangsstræti 23, 600 Akureyri, merkt
„Framkvæmdastjórn", fyrir 23ja mars næstkomandi.
Nánari upplýsingar um starfið veitir: Þórgnýr Dýrfjörð í síma 461
2478 (á kvöldin)
Öllum umsóknum verður svarað.
„Mig hefur lengi langað til að fara heim og fara þjálfa, “ segir Páll Guðlaugsson, nýr þjálfari Leifturs. Hann telur sig hafa verið
heppinn að komast að hjá Leiftri þvi þar eigi sér miki! uppbygging stað og mikill hugur sé í forráðamönnum félagsins.
„Knattspyrna er ekki tilviljun,
það þarf að hafa fyrir hlutunum
og það aetlum við okkur í Leiftri
að gera,“ segir Páll Guðlaugsson
knattspyrnuþjálfari í viðtali við
fréttamann Dags í Færeyjum, en
Páll er á leið til íslands til að
þjálfa knattspyrnumenn hjá
Leiftri í Ólafsfirði.
Það hefur ekki farið fram hjá
neinum héma í Færeyjum að
Páll er á leið til Islands. Fær-
eysku blöðin töldu að ráðning
Páls til Leifturs væri rós í
hnappagatið fyrir færeyska knatt-
spyrnu.
Fæddur og uppalinn i Eyjum
Blaðamaður Dags heimsótti Pál
sem á og rekur íþróttavöruversl-
un í Götu. Þar var einnig lands-
Iiðsmarkvörður Færeyja, Jens
Martin Knudsen, en hann fer
með Páli til Islands ásamt
„stormsenternum" Uni Arge, en
Una muna Leiftursmenn vafa-
Iaust mjög vel því hann skoraði 3
mörk á móti Leiftri í fyrravor.
Páll hvar ertu fæddur og uppal-
inn?
“I Vestmannaeyjum og þar
komst ég í kynni við knattspyrnu
og lék þar með öllum yngri flokk-
um alveg upp í meistaraflokk.
Þetta voru góð ár í Eyjum og
þarna fékk ég áhuga á knatt-
spyrnuþjálfun og þjálfaði fjórða
flokk Týs. Meðal leikmanna hjá
Tý var Hlynur Stefánsson fyrir-
liði ÍBV og margir fleirri góðir
strákar. Sá sem hvatti mig og
veitti mér mörg góð ráð var
Snorri Rútsson.11
Markvörðurixui fékk sér í
stauptnu í miðjum leik.
Hver voru fyrstu kynni þín á
Færeyskri knattspymu?
„Á Olafsvöku sá ég minn fyrsta
leik í Færeyjum á milli HB og TB
og ég sá að okkar ágæti Iandsliðs-
markvörður þá, fékk sér í staup-
inu í miðjum leik.“
Með hvaða liði lékst þú í Fær-
eyjum?
„Eg byrjaði að leika með Götu
1981. Það kom þannig til að
konan mín er frá Götu og ég tel
mig hafa verið heppinn því líkja
má Götu við Akranes - slíkur er
áhuginn í bæjarfélaginu. Það má
segja að það sé nánast ekki talað
um annað en knattspyrnu. Við
höfum líka verið lánsamir með
þjálfara sem margir hafa verið Is-
lendingar eins og til dæmis Krist-
ján Hjartarson, Björn Arna,
Kjartan Másson og fleiri.“
Landsliðsþjálfari Færeyja
Páll var landsliðsþjálfari Færeyja
fyrir nokkrum árum og má segja
að hann hafi orðið næsta heims-
frægur þegar hann stjórnaði
Færeyingum til sigurs á móti
Austuríkismönnum í landsleik
sem fór fram í Landskrona í Sví-
þjóð.
Hvemig stóð á því að þið lékuð
þennan landsleik í Svíþjóð?
„Við áttum bara engan fram-
bærilegan völl og urðum því að
leita út fyrir færeyska Iandsteina
og leika okkar heimaleik í
Svítjóð. Við vildum frekar leika í
Svíþjóð en í Danmörku, það
hentaði okkur betur.“
Hvemig var að vera á hekknum
í Landskrona og vera að sigra
Austuríkismenn?
„Eg trúði því alltaf að við gæt-
um sigrað Austurríkismennina.
Við höfðum verið að spila vel í
æfingaleikjum á undan svo þetta
kom mér svo sem ekkert á óvart.
Það hjálpaði okkur einnig að
Austurríkismenn voru búnir að
vinna leikinn fyrirfram. Það kann
aldrei góðri lukku að stýra.“
Knattspyma er ekki tilviljim
Hvemig leggst það í þig að fara
heim og þjálfa Leiftur og taka
þátt í slagnum í 1. deildinni
næsta sumar?
“Mér líst mjög vel á það og hef
lengi langað til að fara heim og
fara þjálfa. Eg tel mig hafa verið
heppinn að komast að hjá Leiftri
því þar á sér mikil uppbygging
stað og mikill hugur í forráða-
mönnum félagsins. Eg vona að
ég vaidi ekki fólkinu og félaginu
vonbrigðum."
Nú koma tveir Færeyingar með
þér til Islands. Hvemig heldur þú
að þeir eigi eftir að standa sig?
„Eg er ekki í nokkrum vafa um
að Jens Martin ög Uni eiga eftir
að standa sig mjög vel enda góð-
ir knattspyrnumenn."
Hvað telur þú að sé raunhæft
markmið hjá Leiftri næsta sumar?
„Hver okkar markmið eru verð-
ur ekki gefið upp. Það munum
við hafa fyrir sjálfa okkur. Eg vil
aðeins benda á að knattspyma er
ekki tilviljun, það þarf að hafa
fyrir hlutunum og það ætlum við
okkur í Leiftri að gera.“ - ph