Dagur - 11.03.1998, Page 13
XJ^ur
p--
M I D VIKUDAGUR 11. MARS 1998 - 13
ÍÞRÓTTIR
Erai hyggj ast
Framarar afrýj a
Enn geta Valsmenn fagnað bikarsigrinum.
Malone bestnr
Karl Malone
hjá Utah var
valinn leik-
maður febr-
úar í NBA
og fyigdi því
vel á eftir og
var valinn
leikmaður
fyrstu vik-
unnar í
mars. I síð-
ustu viku
spilaði liðið
Qóra leiki og skoraði Malone að
jafnaði 32 stig, tók 11.3 fráköst
og átti 3.3 stoðsendingar í leik.
Hann var alltaf efstur í stigum
og fráköstum hjá Iiði sfnu og er
þetta án efa einn besti kraft-
framherji NBA fyrr og síðar.
Þetta er í þriðja sinn á þessu
tímabili sem Malone er valinn
leikmaður vikunnar.
Malone byijaði vikuna með
24 stigum og 10 fráköstum í
auðveldum sigri á Toronto og
fylgdi því strax eftir með 32 stig-
um og 15 fráköstum í sigri á
Boston. Hann skoraði svo 32
stig og tók 12 fráköst í sigurleik
gegn New Jersey. Vikuna endaði
hann svo með stórleik í
Milwaukee, þar urðu stigin 40
og fráköstin 8. - JJ
Framarar lítt kátir
með niðurstöðu dóm-
stóls HKRR eu Vals-
menu fagua sigri.
Dómstóll HKRR hafn-
ar öUum kæruatriðum
Fram. DómstóU HSÍ
fær málið uú aftur tH
afgreiðslu.
Dómsorð: „Urslit í Ieik Fram og
Vals í bikarkeppni HSI í meist-
araflokki karla, sem leikinn var
sunnudaginn 7. febrúar, 1998,
skulu standa." Svo hljóðar niður-
staða dómstóls HKRR í kæru-
máli Fram vegna bikarúrsli-
taleiksins í handbolta.
Fram kærði upphaflega þessi
fjögur atriði við framkvæmd
leiksins:
1. Að lið Vals var skipað sjö úti-
leikmönnum á lokasekúndunum.
Það er ólöglegt.
2. Að Brynjar Harðarson, fyrr-
um formaður Handknattleiks-
deildar Vals, var á skiptisvæði
Vals sfðasta hluta venjulegs leik-
tíma. Hann var ekki skráður á
leikskýrslu og því var vera hans
þar ólögleg.
3. Einn leikmanna Vals stóð
innan við aukakastslínu við mark
Fram þegar aukakast var tekið
við lok venjulegs leiktíma. Það er
ólöglegt.
4. Tíminn var útrunninn þegar
Valur skoraði sitt 20. mark.
I niðurstöðu dómsins kemur
fram að í atriðum númer 1 og 3
telur dómurinn að ákvörðun
dómara sé endanleg samkvæmt
leikreglum HSI.
Um atriði númer 2 segir dóm-
urinn ósannað að hugsanleg vera
Brynjars Harðarsonar á skipti-
svæði Vals hafí haft áhrif á gang
leiksins og því ekki næg ástæða
til að ógilda úrslit leiksins.
Um tímamælinguna segir
dómurinn að mistökin virðist lig-
gja hjá mönnum við tímavarða-
borðið. Þeir hafi ekki stillt hið
opinbera tímatæki, leikklukkuna,
í samræmi við ákvörðun dómara.
Því telur dómurinn að í aðalat-
riðum hafí rétt verið farið eftir
leikreglum HSI varðandi Ieik-
tíma.
Framarar ekki kátir
Dómstóllinn tekur ekkert af
kæruatriðum Fram til greina.
Eðlilega eru forráðamenn liðsins
ekki sáttir við niðurstöðuna.
„Eg er bara búinn að heyra
niðurstöðuna en ekki búinn að
lesa dóminn og get því lítið sagt
um málið núna. En maður er
náttúrulega alltaf hissa þegar
tveir dómstólar Qalla um sama
mál og komast að sitt hvorri nið-
urstöðunni. Nú voru engar vitna-
leiðslur eins og var þegar málið
var flutt fyrir dómstóli HSI og því
veit ég ekkert hvað liggur til
grundvallar dómsorðinu. Ég geri
bara ráð fyrir að við munum áfrý-
ja málinu til dómstóls HSI. Þetta
mál þarf að fara alla leið til þess
að menn fái botn í það,“ sagði
Knútur G. Hauksson formaður
handknattleiksdeildar Fram.
Guðni Haraldsson, formaður
handknattleiksdeildar Vals var
öllu ánægðari með niðurstöðuna.
„Við erum náttúrulega algerlega
sammála þessum dómi og niður-
stöðu hans. Dómurinn er bara í
samræmi við fyrri dómsúrlausnir
dómstóls HSÍ. Frá árinu 1990
hefur dómstóll HSÍ verið að
dæma í svona málum og aldrei
hefur hann ógilt leikina einfald-
Iega af því að þegar svona mistök
eru gerð eru þau á ábyrgð dóm-
ara og verða ekki endurskoðuð.
Úrslit leiksins eiga að ráðast í
venjulegum Ieiktíma og innan
valllarins," sagði Guðni Haralds-
son. — GÞÖ
Þeir gerast ekki mikið
sterkari en Karl
Malone.
Utah á gódri
siglingu
Liö Utah Jazz er
sennUega þaö sterkas-
ta í VesturdeHdiimi
um þessar mimdir.
Liðið er rétt á eftir
Seattle í 2. sæti deUd-
arinnar og er stefnan
sett á úrslitin í vor.
Karl Maione var frábær þegar
Utah lagði Houston, 100:93.
Malone skoraði 29 stig og tók 21
frákast og Utah vann þar með
alla fjóra leikina sem það spilaði
við Houston í vetur. Það gerðu
þeir síðast árið 1983 eða fyrir 15
árum. Jeff Flornacek skoraði 15
stig og þetta var 14. sigur liðsins
í síðustu 1 5 leikjum og nú er lið-
ið 1 1/2 leik á eftir Seattle.
„Þeir spiluðu mjög vel en
karakterinn í liðinu okkar er frá-
bær, við hættum aldrei. Þetta er
sigur sem við getum verið stoltir
af,“ sagði Malone eftir leikinn.
Þijá lykilmenn vantaði í lið
Houston, þá Hakeem Olajuwon,
Mario Elie og Kevin Willis en
þeir tóku allir þátt í slagsmálum í
leik gegn Phoenix um síðustu
helgi.
Eddie Johnson var stigahæstur
hjá Houston með 37 stig en ein-
ungis 2 komu í 4. leikhluta.
Drexler skoraði 15 stig og
Charles Barkley setti 10 og tók
11 fráköst.
„Við settum ekki skotin niður
þegar við þurftum í lokin en það
var erfitt án þessara þriggja lykil-
manna,“ sagði Barkley eftir leik-
inn.
Skotsýning í Fhoenix
Það voru níu leikmenn Phoenix
Suns sem skoruðu 10 stig eða
meira í sigurleik gegn L.A. Clipp-
ers aðfaranótt þriðjudags.
Phoenix vann 134:105 og liðið
hefur ekki skorað fleiri 3-stiga
körfur í Ieik á þessu tímabili, 12
talsins. George McCloud tók sex
3-stiga skot og hitti úr þeim öll-
um og skoraði 21 stig í leiknum.
Liðið setti einnig met á þessu
tímabili með 40 stoðsendingum
og átti Jason Kidd 13 af þeim.
Liðið spilaði einnig án Antonio
McDyess, sem lenti í slagsmál-
um við Hakeem Olajuwon um
helgina. „Þegar maður spilar eldd
margar mínútur verður maður að
nýta þær vel og það gerði ég í
þessum leik,“ sagði McCloud
eftir leikinn.
Eric Piatkowski var með smá
skotsýningu sjálfur fyrir gestina
en hann setti niður sjö 3-stiga
körfur og alls 23 stig í leiknum.
Lamond Murray bætti við 20
stigum fyrir Clippers.
„Ef ég segði einhverjum að við
höfum skorað 105 stig en tapað
með 29 stiga mun þá myndu
flestir halda að \dð gætum ekki
stafað orðið vörn hvað þá spilað
vörn,“ sagði Bill Fitch, þjálfari
Clippers, eftir leikinn.
Golden State vann sjaldgæfan
sigur en mótheijarnir voru ekki í
sterkari kantinum, lið Sacra-
mento Kings, lokatölur 93:88.
Erick Dampier, sá leikmaður
sem spilaði með hinum um-
deilda Darryl Wilson sem var í
Grindavík í vetur, var stigahæst-
ur Golden State með 22 stig og
tók einnig 12 fráköst. „Við spil-
uðum góða vörn og áttum flest
fráköstin í leiknum og sigurinn
var góður,“ sagði Dampier eftir
leikinn. Clarence Weatherspoon
og Jason Caffey tóku báðir 13
fráköst í leiknum en liðið tók alls
62 fráköst.
Corliss Williamson skoraði 27
stig fyrir Sacramento og Mitch
Richmond setti niður 22.
Nick Anderson heldur sinni
frábærri spilamennsku áfram og
Orlando lagði Philadelphiu,
88:78. Anderson skoraði 22 stig,
tók 8 fráköst og átti 7 stoðsend-
ingar í leiknum. „Þetta var góður
útisigur hjá okkur og við erum
enn inni í myndinni hvað varðar
úrslitakeppnina," sagði Ander-
son.
Allan Iverson skoraði 19 stig
fyrir heimamenn og Joe Smith
setti 16 og tók 12 fráköst en lið-
ið lék án Derrick Coleman sem
er meiddur. - JJ