Dagur - 30.05.1998, Qupperneq 5
LAVGARDAGUR 30. MAÍ 1998 - 21
LÍFIÐ í LANDINU
Safnasafnið varopnað í nýjum
húsakynnum ígamlaÞinghúsinu á
Svalbarðsströnd á dögunum. Þar
um sal verður skipt reglulega um sýningar í sumar
og um hvítasunnuhelgina verður þar opnuð sýning
á skúlptúrum eftir Dalamanninn Helga Þorgils
Friðjónsson og fleiri munu síðan verða sporgöngu-
menn hans þarna.
fær alþýðulist afýmsum toga veg-
legan sess í safni sem öðlaststerka
ímynd úti í dreifbýlinu.
Á dögunum var opnað alþýðulistasafn í gamla
Þinghúsinu á Svalbarðaströnd, Safnasafnið, hið
eina sinnar tegundar á Islandi. Þar er að finna
margvísleg verk og sérsöfn alþýðulistamanna. Það
eru Níels Hafstein myndhöggvari og kona hans,
Magnhildur Sig-
urðardóttir, hjúkr-
unarfræðingur,
sem standa að
þessu safni, en
þau hafa um Iangt
skeið lagt áherslu
á söfnun alþýðu-
listar og voru með
fjölmörg verk til
sýnis á heimili
sínu við Freyju-
götu í Reykjavík,
sem var áður en
þau fluttu norður.
Alþýðulist er
stór þáttur
„Við vorum búin
að Ieita lengi að
hentugra hús-
næði; fyrst á
Hvammstanga en
síðan í Reykjavík
en á hvorugum
staðnum gekk
þetta upp. En
þegar við sáum
svo Þinghúsið á
Svalbarðsströnd
auglýst til sölu
vissum við strax
að þetta væri
staðurinn og slóg-
um til,“ segir Ní-
els Hafstein.
Hann átti frum-
kvæði að stofnun
Nýlistasafnsins í
Reykjavík og
starfrækti það um
tólf ára skeið, og
hefur á listferli
sínum tekið þátt í
Ijölmörgum sýn-
ingum, síðast í
Listasafni Islands í byrjun þessa árs.
Níels segir að alþýðulist sé stór þáttur í listalífi
þjóðarinnar. Stundum áberandi en oftar falin und-
ir yfirborði stundarfrægðar en brjótist alltaf í gegn
að lokum. Víða séu í heimaranni listamenn sem
hafi sitthvað fram að færa sem veiti skoðendum
gleði. Hinsvegar séu fáir sem tekið hafi alþýðulist-
ina uppá arma sína, en þó megi nefna Björn Th.
Björnsson, Aðalstein Ingólfsson, Hafnarborg og
Nýlistasfnið. „Alþýðulistamenn byrja oft seint á
ævinni að fást við listsköpun, en þá hefur þráin til
þess að búa til og skapa blundað lengi með þeim,“
segir Níels.
Sitthvaö forvitnilegt
Sitthvað forvitnilegt má sjá í Safnasafninu. Á hlað-
inu fyrir utan húsið eru fjórar steinsteyptar styttur
eftir alþýðulistamanninn Ragnar Bjarnason frá
Ondverðanesi í Grímsnesi, en þær eru £ eigu
Listasafns Árnesinga á Selfossi og eru lánaðar
Safnasafninu til lengri tíma. I anddyri hússins eru
málverk eftir Eggert Magnússon í Reykjavík og
Stefán frá Möðrudal. - Þá er á jarðhæð hússins
sýning á þjóðbúningadúkkum og sömuleiðis verk
eftir Gunnar heitinn Kárason á Sólheimum í
Grímsnesi, sem alla ævi fékkst við Iistsköpun af
ýmsu tagi.
I suðursal er sýning á hlutum og minningum
tengdum baráttudegi verkalýðsins 1. maí. I þess-
/ safninu má meðal annars fínna mikið safn þjóðbúninga-
dúkka víða að úr heiminum.
Skírskotun í villt hugarflug
í aðalsal safnsins á annarri hæð eru fjölmörg for-
vitnileg verk framandlegra Iistamanna, sem koma
víða að og eru ekki alla jafna tíundaðir í lista- og
menningarumQöllun samfélagsins. Má í þessum
hópi nefna Guðrúnu Níelssen í Kópavogi og Hjört
Guðmundsson í Reykjavík. Vekur athygli úr hverju
verk þeirra eru unnin, til dæmis tré, steinum, rót-
arhnyðjum, beini, hvaltönn, gleri, kuðungum, kýr-
honum, málmi og plasti.
Þá sýnir Níels Hafstein í safni sínu ýmis verk-
færi, efni og smáhluti sem tengjast hannyrðum og
þá er í Safna-
safninu
einnig bóka-
safn með
sitthvað um
listir og
menningu.
I hornstofu
er að finna
nokkra tugi
mynda eftir
Ingvar Ellert
Óskarsson,
sem ungur
missti heils-
una og dvaldi
eftir það á
sjúkrahúsum.
„Ingvar
fékkst við
myndsköpun
hvern dag
sem gafst frá
erfiðum sjúk-
dómi. Ilann
var um margt
afar sérstak-
ur maður,
broshýr og
allra hugljúfi,
Myndirnar
lýsa sálará-
standi hans,
þær eru
stundum
þéttsetnar
verum sem
vefjast hver
um aðra
einsog þær
séu að leita
huggunar og
athvarfs. I
annan stað
eru þær
dramatískar með beina skfrskotun í villt hugarflug.
Hann tengir sig við fjarlæga stjörnu og geimskipið
á þessari mynd er farkostur hans í heimsókn til
jarðar, hlaðinn vistum og búnaði,“ segir Níels.
Innan um kýrnar
„Það skapar Safnasafninu miklu sterkari ímynd að
vera staðsett utan við þéttbýli, en þó í alfaraleið.
Viðtökur hafa verið ákaflega góðar - þær blása
okkur kapp í kinn og vekja vonir um að starfsemin
muni blómgast hér í sveitinni, innan um kýrnar,"
segir Níels. -sbs.
„Alþýðulistamenn byrja oft seint á ævinni að fást við listsköpun, en þá hefur
þráin til þess að búa til og skapa blundað lengi með þeim,“ segir Níels
Hafstein. myndir: bös.
Gamla þinghúsið á Svalbarðsströnd hefur nú fengið nýtt hlutverk, sem safn
alþýðulistar. Níels Hafstein segir að safnið fái sterkari ímynd í dreifbýli en borg
og sé það vel.
Velkomin í
Villta vestrið
AUKASÝNINGAR
- athyglisverðasta áhuga-
mannasýningin '98
valin í Þjáðleikhúsið.
Nýtt ísl. leikrit
eftir
Ingihjörgu Hjartardáttur.
Leikstjári
Helga E. Jánsdáttir.
TónL stj.
Ingálfur Jáhannsson
20. sýning
Miðvikudaginn 3. júni kl. 20:30
Allra allra
síðasta sýning
Miðapantanir í síma
463 1195 irá kl. 17.00. - 19.00.
VISA - EURO
Gisting og matur fyrir
hópa að Öngulsstöðum í
Eyjafjarðarsveit.
HLAÐAN er opin eftir
sýningar upplýsingar í
síma 463 1380
freyvangs-
leikhúsið
Leikfélag
Akureyrar
„Saltið er gott, cn ef saltið tnissir sclt•
una. með hvcrju vitjið þér þá krydda
það? Hafið salt í sjálfum yður, og hald-
ið frið yðar á rnillL “ 9. 50.
Markúsar-
guðspjall
Einleikur Aðalsteins Bergdal.
í Bústaðakirkju í Reykjavík
Lcikstjóm: lYausti Ólafsson.
Sýningar
31. maíkl. 20.00
l.júníkl. 20.00
'Vartánleikar
fídldíúókáráiiM
uerðafeMudagintv
5. júni kl. 20.30
í Samkanmíui&ituL.
'Kórinn syngur lág úr
&angleilyum, ápereUum
ag áperum.
Stjámandí:
‘f\car %aam
'(Atidivleikari:
'Kjcftard S inim
‘Miðaimð 'íQr. 1.000
landsbanki íslands veitir
handhöfum gull-debetkorta
25% afslíítt.
Miðasalan er opin þriöjud.-finimtud.
kl. 13-17, föstud.-sunnud.
lram að sýningu.
Sítnsvari allan sólarhringinn.
Sími 462 1400
—nin—ýápi..........
er styrktaraðili Leikfélags Akurcyrar