Dagur - 30.05.1998, Page 6
22 - LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998
ro^tr
LÍFIÐ t LANDINU
Er hægt að kaupa ímynd?
Er hægt að kaupa ímynd fyrir kosningar?
Ingibjörg
Sólrún
vann borg-
ina en ekki
auglýs-
ingastof-
an. Ekki réttað tala
um að sjálfstæðis-
menn hafi beitt ófræg-
ingarherferð.
Auglýsingar og ímynd R-Iista og
D-lista í Reykjavík hafa orðið
landsmönnum að umhugsunar-
efni að undanförnu. Sjálfstæðis-
menn halda því margir fram, þ.
á m. Arni Sigfússon og Davíð
Oddsson, að sigur R-listans hafi
verið sigur auglýsingastofu
þeirra. Aðeins hafði verið keyrt á
einni konu, Ingibjörgu Sólrúnu,
og málefnafátæktin hafi með því
verið falin. Einnig hafa menn
rætt um auglýsingar gegn
Hrannari B. Arnarsyni og mis-
heppnaðar málfarsauglýsingar
D-Iista. Dagur tók tvo ímyndar-
sérfræðinga tali og spurði vitt og
breitt um þeirra skoðun á aug-
lýsingaherferðum stjórnmálaafl-
anna tveggja. I ljós kom að þeir
telja R-Iistamenn hafa staðið sig
betur en máttur auglýsinganna
er ofmetinn.
Atli Rúnar Halldórsson
hjá Athygli:
- Vann auglýs-
ingastofa R-lista
sigurinn sjólf en
ekki aflið sem
slíkt?
„Nei því fer
fjarri. Olafur
Ragnar Gríms-
son hefði orðið
forseti og Ingibjörg Sólrún borg-
arstjóri þótt engri einustu krónu
hefði verið eytt í auglýsingar.
Þau þurftu engar auglýsinga-
stofur til að komast þangað sem
þau eru. Eg tók eftir því varð-
andi D-listann, sem virtist aug-
lýsa miklu meira en R-listinn, að
fyrrihluti auglýsingabaráttunnar
virtist meira og minna mis-
heppnaður og út í bláinn. Ymsar
auglýsingar kölluðu á allt öðru-
vísi umræðu en ætlunin var og
má þar nefna samlíkingu Geld-
inganess við Kólaskaga og mál-
villuumræðu í auglýsingu Júlíus-
ar Vífils. Hins vegar fannst mér
útvarpsauglýsingarnar í síðari
hluta baráttunnar miklu betri.
Það var beitt hjá þeim að snúa
út úr slagorði Reykjavíkulistans,
„Til hamingju“.“
- Fannst þér breiddin í auglýs-
ingaherferð R-listans oflítil?
„Nei. Það er fullkomlega eðli-
legt ,að keyra langmest á Ingi-
björgu Sólrúnu. Sérstaklega í
þeim erfiðleikum sem listinn
lenti í vegna Hrannarsmálsins.
Allir vita að Ingibjörg Sólrún er
með miklu meira fylgi en R-list-
inn sjálfur og því er fullkomlega
lógískt að nota hana sem mest.“
Enginn leðjuslagur
- Ertu sammála því að blað hafi
verið brotið í kosningabaráttunni
nú hvað varðar persónuleg mál
frambjóðenda. Sérstaklega hvað
varðar Hrannar?
„Nei, alls ekki. Eg er alveg
ósammála stóryrðum eins og
„leðjuslag" og „ófrægingarher-
ferð“ í tengslum við þá umræðu.
Auðvitað er ekki allt mjög
smekklegt í orrahríðinni en mál-
ið sjálft var nokkuð alvarlegt og
ef talað er um ófrægingarher-
ferð og persónuníð þá mætti
frekar nefna það sem gerðist á
Akureyri með Samheija og bæj-
arstjórann. Eins gætum við
nefnt sveitarfélag úti á landi þar
sem frambjóðandi var sagður illa
haldinn af alkóhólisma. En ekki
í Reykjavík.11
Skil ekki þátt Guðrúiiar F.
- Hvað með þátt Guðrúnar Pét-
ursdóttur í a ug lýsi nga herfe rð
Sjálfstæðisflokks. Nú var engin
leið fyrir hana að ná kosningu
þar sem hún var i 9. sætinu. Var
rétt taktík að keyra svona mikið á
henni?
„Þáttur hennar í þessari kosn-
ingabaráttu var mér mikil ráð-
gáta alveg frá upphafi til enda.
Mér finnst óskiljanlegt hve mik-
ið var keyrt á henni. Hvort sem
um ræðir auglýsingar eða bara
yfirleitt. Hún var notuð langt
umfram efni. Þetta er t.d. mjög
skrýtið þegar maður hugsar til
Ingu Jónu sem var framarlega á
listanum og hafði barist um for-
ystusæti þessa lista. Eg skildi
þetta ekki þá og skil ekki enn.“
FéUu á prófinu
- Unnu þeir sem sáu um auglýs-
inga- og ímyndarhlið aflanna
tveggja í Re)’kjavík fyrir kaupinu
st'nu?
„Ef maður talar um Sjálfstæð-
isflokkinn get ég ekki séð að þar
hafi menn unnið fyrir kaupinu
sínu. Það er miklu erfiðara að
meta hlið mála hjá Reykjavíkur-
Iistanum vegna þess sem ég
sagði í upphafi. Ingibjörg Sólrún
þarf enga ímyndahönnuði, hún
er það sterk á svellinu. Sjálf-
stæðisflokkurinn þurfti hins veg-
ar á ímyndarsköpun að halda.
Þeir lentu í vandræðum með
það og þá vantaði jafnsterkan
foringja og Ingibjörgu.“
- Skipta auglýsingar yfir höfuð
miklu máli þegar þessi mál eru
annars vegar?
„Það er oft þannig að þegar
andstæðingurinn fer að auglýsa
finnst mótframbjóðendum eins
og það sé skylda að svara því á
einhvern hátt. Það á sér stað
eins konar múgsefjun, en nei.
Þegar upp er staðið veit ég ekki
mörg dæmi þess að auglýsingar
hafi skipt miklu máli í þessu
samhengi.
Ilallur HaUsson hjá
Mönniun og málefnum:
- Vann auglýs-
ingastofa sigur R-
listans?
„Nei, ég myndi
ekki taka svo til
orða. Þetta er
persónulegur
sigur Ingibjargar
Sólrúnar Gísla-
dóttur, sem sýndi þarna mikinn
styrk sem stjórnmálamaður.
Hún dró vagninn og gerði það
nánast ein og óstudd.“
- Hve mikil áhrif hafa auglýs-
ingar á afstöðu kjósenda?
„Minni en margur heldur."
- Eru islenskir kjósendur meðvit-
aðri en t.d. í Bandaríkjunum.
Grípa þeir síður slagorð á lofti en
kjósa eftir eigin sannfæringu?
„Nei, það held ég ekki. Mönn-
um hættir bara almennt til að
oftúlka mátt auglýsinga í þessu
tilliti.“
- Ef þú lítur yfir sviðið. Hvað
finnst þér um það áróðurs- og
ímyndarstrið sem R-listi og D-
listi háðu í baráttunni um borg-
ina?
„Mér fannst auglýsinga-
mennska R-Iistans markvissari
og betri.“
Geldinganessauglýsmgin fór
yfir strikið
- Á hverju klikkuðu sjálfstæðis-
menn?
„Ég vil ekki segja að þeir hafi
beinlínis klikkað en þeir stóðu
t.d. vitlaust að málum í auglýs-
ingunni um Geldinganesið. Þótt
ég sé í sjálfu sér sammála mál-
flutningi þeirra tel ég að svona
eigi ekki að auglýsa."
- Að þeir hafi farið yfir strikið i
Kólaskagasamlikingunni?
„Já, ég tel að það hafi ekki ver-
ið rétt að gera það. Hins vegar
verður að athuga að sjálfstæðis-
menn áttu erfitt með að koma
sínum málefnum á framfæri í
skugga Ingibjargar Sólrúnar."
Hrannar skaðaði
sjálfan sig og aðra
Hluti kosningabaráttunnar
beindist einkum gegn Hrannari
B. Arnarsyni. Eru nýir tímar
framundan hvað varðar persónu-
leg mál einstaklinga?
„Ég er ekki sammála þvi að
stór hluti kosningabaráttunnar
hafi farið í vafasama fortíð
Hrannars í fjármálum. Menn
voru að benda á staðreyndir. Við
þurfum ekki að líta á annað en
útstrikanir til að sjá að dóm-
greindarbrestur réði þvi að
Hrannar fór fram. Hann átti
ekki að gera það vegna þess að
hann skaðaði sjálfan sig, fjöl-
skyldu sina, félaga í R-lista og
póltíkina í heild í Reykja\ik.“
- Þér finnst þá ekki sem barátt-
an hafi lyktað af hörkunnni vest-
an hafs?
„Nei, það finnst mér ekki.
Staðreyndir geta aldrei verið
rógur. Frambjóðandi á ekki að
fara fram undir þessum kring-
umstæðum. Það gera menn ekki
á meðan þeir eiga í vanskilum
við skattayfirvöld eða sæta rann-
sókn og geta átt yfir höfði sér
ákæru.
Umtu ekki viiinuna sína
- Hefði breytt auglýsingataktík
getað fært sjálfstæðismönnum
borgina á ný?
„Nei. D-Iistinn tapaði einkum
á tvennu. I fyrsta lagi vegna þess
hve Ingibjörg Sólrún er sterkur
leiðtogi. I öðru lagi vegna þess
að Sjálfstæðisflokkurinn var ekki
að vinna vinnuna sína sl. 4 ár.“
Kostnaður ekki gefiiui upp
Tómas Þór Tómasson, rekstr-
arstjóri R-Iistans, segist ekki
geta gefið upplýsingar um
heildarkostnað Reykjavíkurlist-
ans. Hann liggi ekki fyrir enn-
þá og auk þess segist Tómas
ekki hafa fengið heimild til að
gefa upp heildarkostnað.
Hjá Sjálfstæðisflokki fengust
ekki heldur upplýsingar um
auglýsingakostnað en heimildir
Dags segja að Sjálfstæðisflokk-
urinn hafi að líkindum eytt um
60 milljónum króna í auglýs-
ingar en R-listinn 30-40 millj-
ónum. Varast ber þó að taka
þessar tölur sem staðreynd.
Fljótt að fara
Það tekur ekki langan tíma að
eyða tugum milljóna í auglýs-
ingar af þessu tagi. Þannig
kostar sekúndan hjá Sjónvarp-
inu kl. 20.30 2.577 kr. með
vaski. Stjórnmálaflokkar fá
20% afslátt þannig að flokkur-
inn borgar 2.062 kr. á sekúndu
sem þýðir 123.720 á mínútu.
Og þá er kostnaðurinn við gerð
auglýsingarinnar að sjálfsögðu
ótalinn. Auglýsingar í dagblöð-
um og öðrum miðlum kosta
einnig sitt. Heilsíða í Moggan-
um kostar á þriðja hundrað
þúsund en afsláttur er tölu-
verður. Þannig fá auglýsinga-
stofur um 30% afslátt.
Ofmat
Niðurstaðan er hins vegar sú
að þessum peningum, ef við
gefum okkur að 100 milljónir
króna hafi samanlagt farið í
baráttuna, sé ekki vel varið.
Áhrifamaður sem þekkir vel til
í þessum geira segir að fyTÍr 15
milljónir á hvort afl, væri hægt
að reka mjög skipulagða og
markvissa baráttu.