Dagur - 30.05.1998, Qupperneq 11
I
LÍFIÐ í LANDINU
|\/ I HfftsilF
I / I „1. 1 *, «. 1 I
UMSJÓN: 'j ! JSÉT
HALLA BÁRA ( , ifE' V- 1 I f j
iESTSDÓTTIR S I S l l| | V/
LAUGARDAGUR 30. MAÍ 1998 - 27
Siimarrcttir með ferskum
Eftirveðurblíðima í
síðustu viku erég
kominn í einstakt
sumarskap. Þess
vegna kemurekki
annað til greina en
gefa uppskriftir afsumarlegum
réttum og í þá alla ernauðsynlegt
að notaferskarkryddjurtir, sem
allir áhugasamir eru famirað
nota í meira og meira mæli, enda
úrvals hráefni sem kemurvel
fram í matargerðinni, bæði í
bragði og ilmi.
kryddjurtum
salt og pipar
2 tsk. hveiti
115 g smjör
450 ml eplacider
2 msk. calvados (má sleppa)
1 búnt dill
Skerið fiskinn í passlega stóra bita og
blandið honum saman við sveppina,
tómatana og steinselju, kryddið og setjið í
Qögur eldföst mót. Bræðið smjörið og
blandið hveitinu saman við og blandið vel
yfir hita eða þangað til þið fínnið vægan
möndluilm, blandið þá cidernum saman-
við ásamt calvadosinu og sjóðið við væg-
an hita þar til blandan er kekkjalaus og
farin að þykkna. Hellið ciderblöndunni
yfír fískinn og grænmetið, blandið Iétt
saman, setjið álfilmu yfír mótin og bakið í
ofni í hálfa klukkustund. Takið álfílmuna
af, skreytið með dillinu og berið fram
með hrísgrjónum og nýbökuðu brauði.
Rósmarinbrauð
1 bréf þurrger
320 g hveiti
2 msk. smjör
60 ml volgt vatn
2500 ml mjólk ( stofuheit)
1 msk. sykur
1 tsk. salt
1 msk. laukur (saxaður)
1 msk. sesamfræ
1 msk. rósmarinlauf
115 g maribo ostur (í teningum)
gróft salt
Blandið hveiti og geri vel saman í stóra
skál, bræðið smjörið og blandið saman
við mjólkina ásamt vatninu, sykri, sesam-
fræjum, lauk og rósmarinlaufum. Blandið
mjólkurblöndunni saman við hveitið og
hnoðið vel þar til deigið er orðið samfellt,
hnoðið þá ostbitunum saman við þannig
að þeir samlagist deiginu vel. Hnoðið
deigið í kúlu og setjið í hreina skál, úðið
með volgu vatni, setjið stykki yfir skálina
og komið henni fyrir í volgu vatni og látið
hefast í eina og hálfa klukkustund eða
þar til deigið hefur tvöfaldast að stærð.
Hnoðið deigið þá vel niður aftur og mótið
í Iengju sem sett er í smurt brauðform,
klúturinn settur yfir og brauðið hefað í
klukkustund áður en það er bakað í
190°C heitum ofni í u.þ.b. þrjátíu mínút-
ur. Gott er að hylja brauðið með álfilmu
síðustu tíu mínúturnar til þess að það
verði ekki of dökkt. Takið brauðið úr
ofninum, sláið það úr forminu, setjið á
grind og stráið salti yfir ásamt tveimur til
þremur rósmarinkvistum. Borðið brauðið
volgt með súpu, ostum eða bara með
smjöri út í garði.
Fiskréttur með
eplacider, steinseliu
og dilli
Fyrir fjóra
1 kg ýsa, þorskur, lúða eða steinbítur
1 msk. steinselja (söxuð)
220 g sveppir (litlir)
220 g tómatar (saxaðir)
Rósmarinbrauð.
Lambalærissneiðar með
sítrónu og mintu
Fyrir fjóra
4 lambalærissneiðar (220-250 g)
börkur og safi úr einni sítrónu
1 hvítlauksrif (saxað)
1 vorlaukur (saxaður)
1 tsk. mintulauf (söxuð)
4 msk. jómfrúarólífuolía
salt og svartur pipar
Blandið saman rifnum sítrónuberkinum,
sítrónusafanum, hvítlauk, vorlauk, mintu
og ólífuolíu. Skerið í fitulagið á læris-
sneiðunum með jöfnu millibili (til þess
að þær verpist ekki þegar grillað er) og
raðið þeim í djúpan bakka þannig að vel
fari um hveija sneið. Hellið marinering-
unni yfir kjötið, hyljið bakkann með
plastfilmu og geymið í kæliskáp yfír nótt.
Grillið sneiðarnar á útigrillinu eða í ofni
og kryddið til með salti og pipar og
saxaðri mintu. Berið fram með salati,
bökuðum kartöflum, ef til vill fylltum
lauk og berið marineringuna fram með í
stað sósu.
Fylltur laukur með hrís-
grjónum og steinselju
Fyrir fjóra
4 stórir laukar
4 msk. soðin hrfsgijón (basmati)
4 tsk. steinselja (söxuð)
4 msk. ferskur parmesan (rifínn)
salt og pipar
2 msk. ólífuolía
1 msk. hvítvín eða mysa
Flysjið laukana, skerið toppinn af og tak-
ið miðjuna innanúr. Saxið miðjuna úr
lauknum, mýkið í olíunni á pönnu, hellið
hvítvíninu út á smjörið í smástund áður
en hrísgrjónunum og hinu hráefninu er
blandað saman við og allt látið hitna vel í
gegn áður en við setjum fyllinguna inn í
laukana og bökum í 180°C heitum ofni í
45 mínútur. Einnig má grilla laukinn á
efri grindinni á grillinu.
Verði ykkur að góðu.