Dagur - 27.06.1998, Side 2
18-laugardagur 27. jVNl 199a
I^MT
LÍFID í LANDINV
Vanda Sigurgeirs-
dóttir.
Vanda Sigurgeirsdóttir, Iandsliðsþjálfari,
gengur í það heilaga í dag með sambýlis-
manni sínum til margra ára, Jakobi Frí-
manni Þorsteinssyni, en þau eiga einnig
von á erfingja með haustinu, svo eins
gott að drífa sig svo bamið fæðist ekki í
synd!! Vígslan fer fram í Bústaðakirkju í
dag kl 17 og hefur faðir Vöndu, Sigur-
geir Angantýsson sem er gamall poppari
frá Sauðárkróki, samið alla tónlist fyrir
brúðkaupið, nema brúðarvalsinn að sjálf-
sögðu. Hálfsystir brúðarinnar mun síðan
syngja Iögin fyrir systur sína.
Fjöllistahópurinn GusGus er að
vinna að nýrri plötu sem kemur
fyrir almenningssjónir í byijun
næsta árs. Þeim var boðið að vinna
tónlist fyrir HM í Frakklandi og
heimssýnguna í Lisabon fyrir Is-
lands bönd, en urðu að hafna því
sökum of mikils kostnaðar og
tímaskorts. Þau munu halda eina
tónleika í sumar þann 15. ágúst f
Köln í Þýskalandi, en síðan ætla
þau að eyða mestum sínum tíma í
að vinna nýju plötuna í 20 milljóna
stúdíóinu sínu og hljóðblöndun
fyrir þekkta tónlistamenn á borð við Depeche Mode. Þau
hafa einmitt nýlokið við hljóðblöndun af lagi Bjarkar
„Hunter" og sendi hún þeim blómvönd í þakkarskyni.
Sumarið er upptökutími kvikmynda og
sjónvarpsmynda og nú getur Egill Eð-
varðsson leikstjóri farið að anda léttar því
að tökum á hádramatísku sjónvarpsmynd-
inni „Blóðskömm" er nýlokið. Egill Eð-
varsson er leikstjóri en RÚV og Saga film
framleiða myndina og er þetta í fyrsta
sinn sem RÚV framleiðir í samstarfi við
óháð kvikmyndafyrirtæki. Myndin Blóð-
skömm fjallar um atburði sem áttu sér
stað fyrr á þessari öld, þegar hálfsystkin
sem ekki ólust upp saman urðu ástfangin
og eignuðust barn sem móðirin, Sólborg,
síðan myrti. Hún var kærð fyrir drápið en
svipti sig lífi áður en hún var dæmd. Einar Benediktsson
þjóðskáld var þá ungur lögfræðingur og var þetta eitt af
hans fyrstu málum. Það verður spennandi að sjá hvernig
þessi mynd kemur út.
Gamlir bílar eru til margra hluta
nytsamlegir! Úr Hafnarfirðinum
berast þær slúðurfregnir að hljóm-
sveitin Mary Poppins og Gunnar
Bjami Ragnarsson séu að undir-
búa kynningardisk fyrir erlendan
markað, sem líldegast verður
einnig seldur á íslandi. Diskurinn
er dýr í framleiðslu og þess vegna
hafa hljómsveitarmeðlimir tekið
upp sama ráð og flestir aðrir
popptónlistarmenn, að gera sem
flest sjálfir. Þeir tóku sig til nýlega
og fengu lánaðan gamlan Ford Si-
erra, sem amma Gunnars Bjarna á, fjárfestu f álpappír fyrir
fimm þúsund kall, notuðu gömul plaströr og pökkuðu öllu
saman inn í álpappír. Diskurinn er nefnilega geimdiskur,
hljómsveitin er í geimbúningum og bíllinn flýgur - á vídeó-
inu sem verður frumsýnt í haust.
Fjöllistahópurinn Gus Gus.
Háhyrningurinn Keikur er á leiðinni
„heim.“ Vestmannaeyingar fagna með
peningaglampa í augum en Eskfirðingar
gráta. Þeir halda þó í vonina því babb er
komið í bátinn. Sérfræðingar margir
hveijir efast um að sjókví Keiks þoli sjó-
ganginn í Klettsvíkinni. Hallur Hallsson,
sérlegur túlkur Keiks, blæs á slíkar efa-
semdarraddir og segir sjókvína færa í
flestan sjó. Enda hafi Keikur sagt honum
það sjálfur. Vonir Eskfirðinga felast nú í
því að þingmaður þeirra Vestmannaey-
inga, Ami Johnsen, taki upp gítarinn og
Hallur Hallsson.
Gjallarhornið á æfingu skömmu fyrir tónleikana í Deiglunni. mynd: brink.
Þjóðlagið í
spili og spj alli
Senn lýkurþjóðlaga-
dögum. Jón Hlöðver
ræddi um þjóðlögin en
Gjallarhomið spilaði
þau.
Þjóðlagadögum á Akureyri lýkur
á morgun. Innlendir sem er-
lendir listamenn hafa boðið upp
á fjölbreytta dagskrá og vel hef-
ur tekist til. I gær hófst málþing
um stöðu íslenska þjóðlagsins og
flytja margir kunnir kappar þar
erindi þ. á m. Jón Hlöðver As-
kelsson tónskáld og fýrrverandi
skólastjóri Tónlistarskólans á
Akureyri. Erindi Jóns nefnist:
Ahrif íslenska þjóðlagsins á tón-
smíðar.
Þjóðlögin á vefiim
„Nafn erindisins er eilítið vill-
andi því það gengur e.t.v. meira
út á það hvaða áhrif frá þjóðlög-
um íslensk tónskáld hafa ekki
notfært sér og ég tel að séu í
þeim.“ Jón Hlöðver segir Islend-
inga hafa vanrækt mjög rann-
sóknir á íslenskum þjóðlögum.
Þúsundir þjóðlaga sem alþýðu-
fólk hefur sungið og flutt séu til
1 upptökum en hafi ekki verið
sinnt. „Ég vil segja að það sé
þjóðarskömm að þessu. Því mið-
ur hefur allt of lítið verið safhað
af íslenskum þjóðlögum síðan
Bjarni Þorsteinsson, prestur á
Siglufirði, gerði það um og fyrir
síðustu aldamót. Safn hans út af
íyrir sig er eitthvað það merki-
legasta sem gert hefur verið í
okkar tónlistarmenningu að
mínu mati,“ segir Jón Hlöðver.
Jón Hlöðver segir áhrif þjóð-
lagsins á íslenskar tónsmíðar
mjög miklar. Tónskáld hafi not-
að t.d. samstígar fimmundir eins
og eru í íslenska tvísöngnum og
einnig gæti áhrifa úr rímum og
stemmum. Hins vegar kemur
fram í upptökum á þjóðlögum
fjölbreyttari notkun á tónbilum
en þekkist í hefðbundinni tón-
fræði og tónsmíðum. „I erindi
mínu fjalla ég einnig um breytt-
ar aðstæður. Ég tel að til að
halda okkar þjóðerni sé styrkur
okkar að geta miðlað alheimin-
um af menningarverðmætum
okkar. Ég er t.d. fylgjandi því að
koma sem mestu af íslenskum
þjóðlagaupptökum á veraldar-
vefinn og sem víðast og veita
öðrum hlutdeild í menningu
okkar.“
Tennltar í hljóðfæragerð!
Gjallarhorn er finnsk-sænsk
þjóðlagahljómsveit sem dregur
nafh sitt úr norrænni goðafræði.
Hljómsveitin kom á þjóðlagahá-
tíðina og hélt tónleika á fimmtu-
dagskvöldið í Deiglunni á Akur-
eyri. Hljómsveitin var stofnuð
árið 1994 og hefur spilað víða
um Evrópu og er á leið til Ástr-
alíu. Hún hefur gefið út geisla-
plötu sem hefur selst vel.
„Við höfðum spilað þjóð-
lagatónlist sitt í hverju lagi áður
en hljómsveitin var stofnuð svo
tónlistarsmekkurinn var svipað-
ur,“ segir Jenny Wilhelms söng-
kona. Jenny segir hljómsveitina
spila þjóðlög vegna þess hve
skemmtileg þau eru og þar sé að
finna sjaldgæfar og einkennileg-
ar laglínur. „í þjóðlagatónlist er
hægt að leika af fingrum fram,
þú getur gert það sem þú vilt.“
Hljómsveitin notar ýmis hljóð-
færi, eins og slagverk, fíðlu en
einnig didgeridoo sem er ástr-
alskt hljóðfæri. „Þetta er túba úr
viði. Termítar éta innviðið úr
stofninum og síðan höggva
frumbyggjarnir stofninn niður
og hreinsa hann að innan. Þá er
hljóðfærið tilbúið," segir Tommi
Mansikka-Aho sem spilar á
hljóðfærið. Fjórmenningunum í
hljómsveitinni líkaði dvölin á
Akureyri vel. „Við fórum upp á
Súlur,“ segir Jenny stolt. -JV
Helöa Soffla
erkonan
Nýi formaðurinn prestanna, séra Helga Sojfía Konráðsdóttir, er tví-
mælalaust kona vikunnar, fyrsti kvenmaðurinn sem velst til forystu i
Prestafélagi Islands. Helga Soffía náði kjöri íformennskuna eftir að
hafa tvívegis gefið kost á sér í stjórn félagsins og ekki náð kjöri. Dagur
segir: Gott hjá þér, kona, og til hamingju með afrekið. Það þaifsterk-
an formann t þennan hóp.