Dagur - 27.06.1998, Síða 6

Dagur - 27.06.1998, Síða 6
X^tr < * •-> v r í / ' • • , ' < i M 22 — LAUGARDAGUR 27. JÚNÍ 1998 LÍFIÐ í LANDINU Hákon og Snæfríður mega vera stolt af árangri sínum. Hér er Hákon með Gallowaygripina i bakgrunni. Blésu á hrakspámar Enginn smá boli! Gallowaynautið Sólmundur vegur á milli 800-900 kg. Þrátt fyrir ógn- arstærð er Sólmundur afar spakur og gerir ekki flugu mein. Hann hins vegar neitaði alfarið að brosa framan í Ijósmyndarann! myndir: mrink. ÞcLU hafcL verið saman frá 16 ára aldri. Um tvítugtáttu þau þrjú böm. Fáirhöfðu trú á þeim enHákonog Snæfríðurhafa breytt Árbót í stórbýli og reka þarjafnframt meðferð- arheimili. Leiðir Hákonar Gunnarssonar og Snæfríðar Njálsdóttur lágu snemma saman. Þau kynntust 16 ára að aldri á Húsavík og í dag, 33 árum síðar, búa þau að Arbót í Aðaldal og reka þar helj- armikið bú og meðferðarheimili fyrir unglinga. Tvð börn með þrjú börn „Við bytjuðum á að kaupa okkur hálfbyggða íbúð í tvíbýlishúsi á Húsavík 1969. Við áttum fyrir húsinu fokheldu en okkur vant- aði fé til innréttingar. Eg leitaði því til Landsbankastjórans á Húsavík. I stresskasti mínu gleymdi ég að segja honum að ég ætti fyrir húsinu en vantaði bara fé fyrir innréttingunum og spurði hann hvort ég gæti fengið lán til að ldára húsið. Banka- stjórinn svaraði mér si svona: Ég lána ekki tveimur börnum sem eiga þrjú börn,“ segir Hákon. Snæfríður og Hákon voru rétt liðlega tvítug á þessum tíma og áttu þijú börn. Og Hákon held- ur áfram: „Eg fór því næst f Samvinnubankann og talaði við Einar Njálsson, bankastjóra þar og hann sagði: Hveijir þurfa ekki lán ef ekld einmitt tvö börn með þrjú börn. Báðum banka- stjórunum á ég mikið að þakka. Ferðin í Landsbankann herti mig bara og Einari Njálssyni á ég mikið að þakka og ég virði hans traust mjög mikið.“ Þau Snæfríður og Hákon fluttu svo í nýja húsið í ársbyijun 1970. Snæfríður og Hákon bjuggu á Húsavík í fjögur ár en þá var þeim boðin jörðin Árbót í Aðal- dal til prufu. Jörðinni fylgdu 138 kindur, eitt hross og nokkrir nautgripir. „Við keyptum í raun vélar og bústofn en Ieigðum jörðina," segir Hákon. Jörðina leigðu hjónin til 1982 en þá keyptu þau hálfa jörðina. Bú- stofninn hafði þá stækkað mikið og var orðinn mjög stór. Arið 1989 kaupa þau svo jörðina al- farið. „Jörðin var svo dýr að þetta var óhugsandi fyrir ungt fólk á þeim tíma svo við keypt- um jörðina í tveimur áföngum. Við Ieadum því hérna alveg fyrir tilviljun. Okkur er boðin jörðin og við förum hingað til að prófa búskap," segir Hákon. í meðferðina fyrii tilviljun Frá árinu 1992 hefur verið starfrækt meðferðarheimili fyrir unglinga í Árbót. „Þetta byrjar í raun árið 1986 en þá fengum við krakka frá félagsmálastofnun Kópavogsbæjar og Reykjavíkur. Vinafólk okkar hafði gert þetta og benti á okkur. I þá daga var þetta gert. Það var hringt út á bæi og þeir spurðir hvort þeir gætu tekið að sér einhverja ein- staklinga. Það var svo haft eftir- lit með heimilunum. Síðan þá höfum við nánast alltaf haft einn til fjóra krakka þangað til meðferðarheimilið byrjaði 1992. Það hafði gengið vel með krakk- ana og við höfðum áhuga á þessu sjálf og ákváðum að slá til. Þörfin var einnig mikil og er

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.