Dagur - 31.07.1998, Page 11
FÖSTUDAGUR 31. JÚLÍ 199 8 - 27
Vhyptr.
iilatar
UMSJÓN:
HALLA BÁRA
GESTSDÓTTIR
gaftid
Þeirsem vilja hafa
með sérglæsilegt nesti
íferðalagið eða útileg-
una um helgina ættu
að úíbúa danskt
„smörrebrauð“.
Danska smurbrauðið er
ekki bara brauðsneið með
áleggi, það er heil máltíð út
af fyrir sig. Að sögn Jakobs
Jakobssonar og Guðmundar
Guðjónssonar á Jómfrúnni,
sem sérhæfir sig í dönsku
smurbrauði, þá er áhuginn
mikill á þess háttar matar-
gerð enda þykir hún öðru-
vísi.
Danska smurbrauðið er
runnið undan rifjum gam-
allar hefðar og danskrar
nýtni þar sem matarmikil
brauðsneið var útbúin sem
hádegisverður úr afgöngum
kvöldsins áður. Yfirleitt var
þá um steik að ræða ofan á
brauðið ásamt ýmsu með-
læti en úr þessari hefð þró-
aðist með tímanum lúxus
matreiðsla á veitingahúsum.
Það eru Jakob og Guð-
mundur sem gefa lesendum
Matargatsins hugmyndir að
girnilegu dönsku smur-
brauði sem hægt er að hafa
með sér hvert á land sem er,
fyrir utan það að njóta þess
auðvitað bara heima í garði
með góðum drykk.
Kjúklingabringa á
ristnðn branði
alfa-alfa spírur
svartar ólífur
súrar smágúrkur
kryddmajones:
2 dl majones
1 dl sýrður rjómi
A tsk. svartur pipar
'á tsk. salt
1 tsk. HP sósa
1 tsk. ensk sósa
1 tsk. Maggi aroma sósa
'A-1 tsk. sterkt sinnep
túnfisk„dressing“:
kryddmajones
niðursoðinn túnfiskur í olíu
sítrónusafi
Notaðir eru tveir hlutar af tún-
fiski móti einum af majonesi,
Þær eru glæsilegar dönsku smurbrauðssneiðarnar hjá Jakobi Jakobssyni á Jómfrúnni. Ekki spillir fyrir að setja þær í
fallega og „elegant" nestiskörfu og skreppa í lautarferð. Hafa skal í huga að svona brauð er ekki stíft úr hnefa eins og
Jakob segir og þegar það er borðað má ekki gleyma köflótta dúknum, hnífapörum og diskum sem eru nauðsynlegir
fylgihlutir. Öl og snaps má ekki gleyma. mynd: e.ól.
sítrónusafi er eftir smekk. I stað
kryddmajones má nota kryddað-
an sýrðan rjóma. A brauðið fer
salatblað, þá skorin kjúklinga-
bringa í sneiðum sem raðað er á
jaðra brauðsins. Túnfisk,,dress-
ingin" fer á milli, síðan bauna-
spírurnar, ólífurnar og gúrkurn-
ar, allt eftir smekk hvers og eins.
Krabbasalat á rist-
uðu brauði
200 g kryddmajones
300-400 g niðursoðið
krabbakjöt, t.d. tælenskt
300 g fínt saxaðir súrimí
teningar (fást frosnir)
súrimí krabbaflögur
(fást frosnar)
'A dl koníak
50-100 g aspas
e.t.v. smá sítrónusafi
Allt hráefnið er hrært saman og
blandað eftir smekk. Salatið þarf
að vera fremur þykkt. Súrimí
krabbaflögunum er raðað til
skrauts á diskana, salatið í miðj-
una en annars skal hugmynda-
flugið ráða skreytingunni.
Sítróna og dill passar vel við.
„Bombey“-
kjúklingasalat
soðinn eða steiktur kjúklingur,
brytjaður
400-500 g kryddmajones
100 g soðin hrísgtjón
(í vatni og karrýi)
niðursoðinn aspas, í bitum
___________£gg__________
tómatur
ananas
reyktur Iax
kavíar
Öllu er blandað saman og salat-
ið haft fremur þykkt. Brauðið er
ristað og smurt. Salatblað lagt
yfir það og síðan salatið ofan á
þannig að það fylli alla brauð-
sneiðina. Tómat- og eggjabátum
raðað í eins konar stjörnur og
ananashringur Iagður ofan á.
Þar næst kemur laxarós og kaví-
ar ofan í ananasinn.
Beikon og camem-
bert á rúgbrauði
beikon
camambertostur
tómatar
paprikur
vínber
e.t.v. jarðarber, radísur, títtu-
berjasulta
4 beikonsneiðar eru lagðar á
smurt rúgbrauð, þ\'í næst ostur-
inn í bitum eða sneiðum.
Papriku, vínberjum, radísum og
tómötum er komið haganlega
fyrir og allt toppað með sult-
unni.
Jakob „smörrebrödsjomfru"
segir þetta að lokum. „Hættið
öllum áhyggjum að majonesið sé
fitandi. Olían er smurolía líkam-
ans og kólesterólíð í egginu sem
þykkir olíuna er eingöngu
vandamál þeirra sem eiga við
hjarta- og æðasjúkdóma að
stríða.“
Verði ykkur að góðu.