Alþýðublaðið - 11.02.1967, Page 3
Skrifstofu FÍ í London bárust á 1 mán.:
7 bús. fyrirspurnir
um íslandsferðir
Benóný efstur í
meistaraflokki
Á skákþingi Reykjavíkur standa
leikar þannig eítir 3 umferðir
í úrslitariðli meistaraflokks, að
Benóny Benediktsson er efstur
með 3 vinninga. Benony vann
Jón Þ. Þór ví 20 leikjum i sögu-
legri skák, sem tefld var á þriðju
dagskvöld. í 2. sæti er Gylfi
Magnússon með 2 vinninga og 1
biðskák, en í 3. sæti Björn Þor-
steinsson með 1 einning og 2 bið
skákir í b-riðli meistaraflokks er
Bragi Björnsson efstur með 3
vinninga, en í þeim riðli pr mik
Framhald á 14. síðu.
Hann var að taka próf í fagot-leik.
„ísland er á sterling-svæðinu,
brezkir íerðamenn sem velja það
í sumarieyfinu þurfa ekki að sæta
fimmtíu sterlingspunda hámarks
ferðagjaldeyri“. Þannig liljóða
Eysteinn á fundi
hjá stúdentum
Stúdentafélag Háskóla íslands
efnir til almenns stúdentafundar
í 1. kennslustofu Háskólans mið-
vikudaginn 15. febrúar og hefst
fundurinn klukkan 20,30. Fundar-
efni er „Hin leiðin“. Frummæl-
andi er Eysteinn Jónsson, formað-
ur Framsóknarflokksins. Að fram
söguræðu lokinni verða almenn-
ar umræður. Fundurinn er fyrir
háskólastúdenta einvörðungu.
Stúdentafélag Háskóla íslands.
auglýsingar Flugfélags íslands í
Bretlandi og margra brezkra ferða
skrifstofa um þessar mudir.
Þótt enginn geti sagt fyrir um
hve marga brezka ferðamenn ís-
land laði til sín næsta sumar, þá
er hitt staðreynd að íslandsferðir
eru nú meira á dagskrá í Bret-
landi en nokkru sinni fyrr. S.l.
mánudag birti hið virta dagblað,
The Guardian þrjár síður um ís-
land. Þar eru margar greinar á-
samt myndum af landslagi og úr
atvinnulífinu. Greinarhöfundar
eru Davíð Ólafssonar fiskimála-
stjóri, hjónin Derrick og Joy
Booth, Sylvie Nichels og Leo
Heaps. Þess er vert að geta að
BBC vakti athygli á þessum grein-
um í útsendingum kl. 7:45 og
8:45 sl. mánudagsmorgun.
Þá birtist í The Sunday Times,
sunnudaginn 5. febrúar mjög vin-
Framhald á 14. síðu.
18 Ijúka prófum
í Háskólauum
Sigmundur Guðmundsson var að bíða eftir að röðin kærni að honum/
í lok haustmisseris luku eftir-
taldir stúdentar prófum við Há-
skóla íslands:
Embættispróf í læknisfræði:
Ólafur Mixa, Páll B. Helgason.
Embættispróf í lögfræði:
Erlingur Bertelsen, Helgi Guð-
mundsson. Ingimundur Sigfússon,
Jóhann J. Ólafsson, Birgir Már
Pétúrsson, Ólafur Stefánsson, Sig
urður Gizurarson, Þorfinnur Eg-
ilsson.
Kandidatspróf í viðskiptafræð-
um:
Eiður H. Einarsson, Lúðvíg B.
Albertsson, Ólafur Ivarlsson, Sig-
fús K. Erlingsson, Steinar Beng,
Björnssón.
B. A.-próf:
Eysteinn Björnsson, Gunnar
Jónsson, Sigríður P. Erlingsdótt-
ir.
-------------------.---------------4
Undanfarna viku'hafa staðið
yfir miðsvétrarpróf í Tónlist-
arskólanum. Blaðamaður og
ljósmyndari Alþýðublaðsins
litu þangað í gær, en þá var
einmitt verið að prófa nemend-
ur í blásturshljóðfæraleik.
Hver nemandi lék sitt próf-
verkefni fyrir prófdómendurna
en þeir eru allir kennararnir,
sem kenna á blásturshljóðfæri.
Meðan við stóðum við, luku
þrír sínu prófverkefni, tveir
léku á fagot og einn á básúnu.
Við tókum öinn nemandann
tali, Sigmund Guðmundsson.
Hann sagðist vera í 1. bekk
Réttarholtsskóla og þetta væri
annar veturinn sinn í Tónlist-
arskólanum. Þegar við spurð-
um, hvernig honum hefði geng
ið- í prófinu, svaraði hann því
til, að sér hefði gengið ágæt-
lega. Sigmundur sagðist aðeins
læra 'á fagot í Tónlistarskólan-
um, en hann spilaði líka á píanó
og melodiku.
Inni í einni kennslustofunni
var hópur nemenda að æfa sig.
Þau voru að bíða eftir að röð-
in kæmi að þeim og nota síð-
ustu mínúturnar fyrir prófið
til að æfa sem bezt prófverk-
efnin. Við birtum hér með
nokkrar myndir af þessari
heimsókn í Tónlistarskólann.
11. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3