Alþýðublaðið - 11.02.1967, Qupperneq 11
Síðari leikur FH og Honvéd fer fram á morgun:
FH-ingar stefna að áttá marka
sigri,danskur dómari á morgun
Ungverialandsmeistararnir í
handknattleik Honvéd komu til
Reykjavíkur í gærkvöld og leika
síðari leikinn við FH í Evrópubik
arkeppuinni annað kvöld. Leik-
urinn fer fram í íþróttahöllinni
í Laugardal og hefst kl. 20,15.
Lið FH kom heim úr erfiðri
ferð til Búdapest í fyrrinótt, en
leiknum þar lauk með sigri Hon-
ved 20:13 í hörkuleik. Honved-
ttienn léku af mikilli hörku eins
og skýrt hefur verið frá í blöðum
og í viðtali við íþróttafréttamenn
í gær staðfestu FH-ingar, að ekk-
ert væri ofsagt í blöðum hér um
leikinn. Tveir af leikmönnum FH
voru með glóðarauga, einn rotaður
og fjórir eða fimm með blóðnasir
meðan á leiknum stóð. Vestur-
þýzki dómarinn, sem dæmdi leik-
inn virtist beinlínis leyfa hnefa-
leika án athugasemda. Danski
dómarinn Aage Armann sem
dæmir hér á morgun ver'ður von-
andi röggsamari. FH gefur út
vandaða leikskrá og upplýsingar
Þær, sem hér koma á eftir eru
teknar úr leikskránni.
★ Handknattleikur í Honvéd
Handknattleikur var tekinn á
stefnuskrá Honved 1957 og kom-
ust þeir þegar á fyrsta ári í 1.
deild og hafa fjórum sinnum orð-
ið ungverskir meistarar, en tvis-
var hefir Honved skipað 5. sætið
í meistarakeppninni. Honved hef-
ir einu sinni unnið imgversku bik-
arkeppnina, en sl. fjögur ár hef-
ir Honved verið í sérflokki um
meistaratitilinn í Iiandknattleik.
Honvecí tók fyrst þátt í Evr-
ópubikarkeppninni 1964, en voru
slegnir út af pólsku meisturun-
um Katowice, en í Evrópukeppn-
inni í fyrra náði Honved að leika
úrslitaleikinn gegn DHFK Leip-
zig, en töpuðu 16:14. Leikurinn
fór fram í París.
Þjálfari Honved sl. fimm ár
hefir verið Dékan Rezö og meðal
annarra árangra hans er unglinga-
meistarar Honved í handknattleik.
Sex af leikmönnum Honved
léku í landsliði Ungverja í Heims-
meistarakeppninni í Svíþjóð á
dögunum, en þar skipuðu Ung-
verjar 8. sætið. — Þessir sex leik
menn eru meginstoð liðsins: Szép
laki (21 árs), markmaður, 17
landsleiki, Adorján (29 ára), 59
landsleiki, Fenyö (25 ára), 54
landsleiki, Varga (23 ára), 4 Iands
leiki. — Auk þeirra er Braun-
steiner (26 ára), með 18 lands-
leiki.
★ Hið snjalla lið FH
íslandsmeistarar F.H. í inni-
handknattleik karla taka nú í
annað sinn þátt í Evrópubikar-
keppni meistaraliða í handknatt-
leik, en þátttaka íslandsmeistar-
anna er nú fyrirsjáanlega að
verða fastur liður í hinni eftir-
sóttu og mikilsvirtu keppni, —
Tvö íslenzk lið hafa tekið þátt í
þessari hörðu keppni. Fram var
með í keppninni 1962 og 1964, en
voru slegnir út í fyrstu umferð.
í fyrra skiptið af danska liðinu
Skovbakken og í hið síðara af
sænsku meisturunum. Fram stóð
sig eftir sem áður vel í báðum
leikjunum.
Þátttaka F.H. í Evrópubikar-
keppninni hófst í fyrra, en þá
hafði fyrirkomulagi keppninnar
verið breytt þannig, að nú er leik-
ið heima og heiman.
í 16 liða keppninni hlutu F.H.-
ingar sem mótherja norsku meist
arana Fredensborg. Tókst að
semja svo um að báðir leikirnir
færu fram hér á íslandi, nánar
tiltekið í hinni nýju og glæsilegu
IíONVED BUDAPEST: Mcðalaldur 25 ára, elzti leikmaður 29 ára og yngsti 19 ára. Efri röð frá hægri:
Kadarbek, Vitkay, Varga, Dékán, þjálfari, Adorjan, Juhász, Kovás. Neðri röð frá hægri: Braunsteiner,
Széplaki, markvörður, Rosenberszky, Tószegi, markvörður, Fenyö, Badó, Mocsár.
F.H.: Meðalaldur 25 ár, elzti leikmaður 31 árs, yngsti 18 ára. Fremsta röð frá vinstri: Ragnar Jónsson,
Kristófer Magnússon, Birgir Finnbogason. Önnur röð: Örn Hallsteinsson og Einar Sigurðsson. Þriðja
röð: Hallsteinn Hinriksson, Árni Guðjónsson, Geir Hallsteinsson, Páll Eiríksson, Jón Gestur Viggósson,
Auðunn Óskarsson, Rúnar Pálsson og Einar Þ. Matthiesen, form. Handknattleiksdeildar F.H. Efst fyrir
miðju: Birgir Björnsson, þjálfari og fyrirliði F.H.fiðsins.
András Fenyö, ein bezta skytta
IIonved_
íþróttahöll Reykjavíkur. Um
heimavöll var ekki að ræða, því
enn í dag, þrátt fyrir glæsilega
frammistöðu sl. ár, eru hafn-
firzkir handknattleiksmenn sem
sagt á götunni. Eina athvarf þeirra
heima fyrir er 46 ára gamalt í-
þróttahús, sem hvergi nærri upp-
fyllir þær kröfur, sem nútíma
handknattleikur krefst. — Með
æfingar verða hafnfirzkir hand-
knattleiksmenn því að mestu leyti
að leita út fyrir bæjartakmörkin
þ.e.a.s. til Reykjavíkur og Kefla-
vikurflugvallar.
Árangur F.H. liðsins undan far-
•in 11 ár er því að mörgu leyti
undraverður. Auk þess að hafa
borið ægishjálm yfir íslenzk hand
knattleikslið sem sagt óslitið þessi
11 ár hafa F.H. ingar marga hildi
háð við erlend handknattleikslið
bæði hér heima og á erlendri
grund, og ber taflan yfir leiki F,H.
gegn erlendum liðum, glögglega
vitni um frábæra og eftirtektar-
vreða frammistöðu. —
F.H. bar sigur úr bítum í báð-
um leikjunum við Norðmenn.
Fyrri leikinn unnu þeir með 19:
15 en síðari með 16:13. —
Með þessum árangri náði F.H.
að komast í 8 liða keppnina. Þar
hlutu þeir mótherja ekki af verri
endanum, því eftir að dregið hafði
Framhald á 10. síffu.
Unglingameist-
aramót íslands
í frjálsíþróttum
Unglingameistaramót íslands í
frjálsum íþróttum innanhúss verð
ur haldið í íþróttahúsi Háskóla
íslands sunnudaginn 19. febrúar
n.k. og hefst kl. 14.
Keppnisgreinar: Stangarstökk,
kúluvarp, hástökk með og án at-
rennu, langstökk án atrennu og
þrístökk án atrennu. Kepplni í
stangarstökki fer fram í samhandi
við Meistaramót íslands.
Þátttökutilkynningar sendisti
Þórði B. Sigurðssyni, c/o Land-
n-ámi ríkisins fyrir 16. febrúar.
FÍRR
11. febrúar 1967 - ALÞYÐUBLAÐIÐ JJj,