Alþýðublaðið - 11.02.1967, Side 14
ÞÓTT GINA LOLLLOBRIGIDA
Iiafi verið ein dáðasta kvikmynda-
leikkona veraldar hátt á annan
áratug hefur minna borið á ástar-
ævintýrum hennar en flestra stall
systra hennar. Er það einfaldlega
vegna þess að hún hefur verið
gift einum og sama manninum,
júgóslavneska lækninum Milko
Skofic, þar til fyrir nokkrum mán-
úðum síðan að þau skildu. Allt
síðan hafa slúðurdálkar heimsblað
anna nefnt hana í sambandi við
fjölda manna og lofað brúðkaupi
innan tíðar. Sá, sem síðast er
nefndur í sambandi við leikkon-
una og hjónaband er mexikanski
kvikmyndastjórinn José Bolanos.
sem hefur meðal annars sér til
ágætis; að hafa verið náinn vinur
Mariiypar Monroe á sínum tíma.
Hann á að hafa lofað Ginu aðal-
hiutverki í næstu kvikmynd sinni.
Sunnudagstónleik-
ar Sinfóníunnar
Á sunnudaginn kemur, 12. feb.,
verða haldnir fjórðu sunnudags-
tónleikar Sinfóníuhljómsvej|tar-
innar í Háskólabíói kl. 15.00.
Stjórnandi verður Páll P. Pálsson,
en einleikari Halldór Haraldsson.
Halldór er þegar orðinn atkvæða
mikill píanóleikari í okkar tón-
listarlífi, þótt ekki sé nema rúmt
ár liðið frá því að hann sneri heim
frá framhaldsnámi í Englandi og
hélt sína fyrstu tónleika 'hér í
Reykjavík. Nú leikur Halldór
Pianókonsert nr. 1 í Es-dúr eftir
Liszt, en sá konsert hrífur fólk
ekki síður nú en hann gerði, er
hann heyrðist fyrst fyrir 112 ár-
um. Auk þessa verður á efnis-
skránni: Fjórar interlúdíur um
hafið úr óperunni Peter Grimes
eftir Britten, Svíta úr ballettin-
um Þríhyrndi hatturinn eftir Falla
og loks svíta úr Grímudansleikn-
um eftir Katsjatúrían.
Dregið í Happ-
drætti Háskólans
Föstudaginn 10. febrúar var
dregið í 2. flokki Happdrættis
Háskóla jslands. Dregnir voru
2,000 vinningar að fjárhæð kr.
5.500.000.
Hæsti vinningur, 500.000 kr.
kom á hálfmiða númer 11,814.
Tveir hálfmiðar voru seldir í um-
boðinu á Egilsstöðum, einn á
Vopnafirði og sá fjórði i Hnífs
dal.
100.000 krónur komu á hálf-
miða númer 6418. Tveir hálfmið
ar voru seldir í umboði Frí-
manns Frímannssonar í Hafnar-
húsinu, einn á Siglufirði og sá
fjórði í umboði Kaupfélags Hafn
firðinga.
Þessi númer hlutu 10.00 krón
ur:
218 507 879 10868 11813 11815
12860 14602 20399 20527 21768
23377 27433 30814 35835 36832
37615 40698 43851 46560 47063
48439 49144 49619 49626 54339
55883. (Birt án ábyrgðar).
Skák
Framhald af 3. síðu
ið um biðskákir.
Ingólfur Hjaltalín heldur foryst
unni í 1. flokki með 6V2 vinningi
af 8 tefldum, en í 2. sæti er Guð
mundur Vigfússon með 5V2 vinn
ing. í 2. flokki er Finnur Finns
son í 1. sæti með 6 vinninga, en
í unglingaflokki þeir Barði Þor-
kelsson og Jóhannes Ásgeirsson
með 5 vinninga hvor.
Næsta umferð verður telfd nk.
sunnudag að Freyjugötu 27.
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101
Svo sem kunnugt er, hefur orð-
ið að hætta við D-flokk skóla-
tónleikanna (fyrir skólafólk á aldr
inum 16—21 árs) vegna dræmrar
þátttöku. Sinfóníuhljómsveitin
býður því öllum, sem keypt hafa
ársskírteini á þessa skólatónleika
að koma í þess stað á alla sunnu-
dagstónleikana, sem eftir eru.
Skírteini D-flokks gilda sem að-
göngumiðar á sunnudagstónleik-
ana á 16,—24. bekk.
Kosygin
Framhald af 1. síðu.
Brown utanríkisráöherra fer í
heimsókn til Moskvu í maí.
Kosygin hefur lýst yfir stuðn-
ingi við þá yfirlýsingu Hanoi-
stjórnarinnar að stöðvun loftárása
og annarra árása Bandaríkjamanna
á Norður-Vietnam séu forsenda
þess að friðarviðræður geti haf-
izt. Brezkir sérfræðingar telja
þessa yfirlýsingu, sem er hálfs-
mánaðar gömul, fyrstu bending-
una um að Norður-Vietnamstjórn
sé nú fús að íhuga möguleika á
því, að deilan veðri leyst með
samningum en ekki vopnum.
Bandaríkjastjórn hefur alltaf
sagt, að hún sé hlynnt samninga-
viðræðum 'án fyrirfram skilyrða.
Stjórnin í Washington segir, að
Norður-Vietnamstjórn verði að
draga úr hernaðaraðgerðum, fyrst
og fremst liðsflutningum suður á
bóginn, ef Bandaríkjamenn eigi
að hætta loftárásum. Kosygin hef
ur ekkert um það sagt, hvort Ha-
noistjórnin sé fús að ganga að
þessu.
★ SKÝRARI AFSTAÐA
Viðræður Kosygins og Wilsons
hafa staðfest þá skoðun kunnugra,
að engin meiriháttar breyting hafi
orðið á sjónarmiðum Breta og
Rússa. í viðræðunum hafa þessi
sjónarmið þeirra komið í ljós:
□ 1. Bretar og Rússar eru sam-
mála um nauðsyn þess að gerður
verði samningur um bann við út-
breiðslu kjarnorkuvopna. Samn-
ingsuppkast verður lagt fyrir af-
vopnunarráðstefnuna í Genf, sem
kemur saman 21. febrúar. Rússar
taka ekki í mál að Vestur-Þjóð-
verjar fái umráð yfir kjarnorku-
vopnum.
□ '2. Bretar taka fálega þeirri til-
lögu kommúnista að baldin verði
ráðstefna um öryggi Evrópu án
þátttöku Bandaríkjanna. iSarka-
leg árás Kosygins á svokallaða end
urvakninigu nazisma í Vestur-
Þýzkalandi kom ekki flatt upp á
Breta, sem verja lýðræðislega
stefnu Bonnstjórnarinnar.
□ 3. Brezkir embættismenn hafa
hafið nákvæma rannsókn á tilboði
Kosygins um, að Bretar og Rúss-
ar geri með sér vináttu- og griða-
samning. Minnt ec á að það voru
Rússar sem sögðu upp bandalags-
samningnum við Breta frá 1942
fyrir 12 árum.
□ 4. Bretar hafa skorað á Rússa
að auka innflutning sinn á vörum
frá Bretlandi til að koma á jafn-
vægi í viðskiptum landanna. Bret-
ar kaupa þrisvar sinnum meira af
Rússum en Rússar kaupa af Bret-
um.
Vietnam
Framhald af 1. síðu.
þá skoðun, að sambandinu verði
slitið. í orðsendingunni var þess
einnig krafizt, að mótmælaaðgerð
um fyrir utan sovézka séndiráðið
í Peking yrði hætt.
Ef til sambandsslita kemur, má
telja víst að það sem gerist
verði þetta:
□ í fyrsta skipti í tvö ár fá
Rússar gott svigrúm í utanríkis-
málum, og gætu þeir beitt áhrif
um sínum til þess að binda enda
á Vietnamstríðið. Kínverjar
mundu stöðva vopnaflutninga
Rússa til Norður-Vietnam yfir
kínverskt land, og mundi það
auka friðarvilja Hanoistjórnarinn-
ar, ekki sízt þar sem við þetta
mundu bætast aðrir erfiðleikar
stjórnarinnar. Auk þess mundu
sambandsslit leiða til þess, að
sovétstjórnin gerði alvarlegar til
raunir til að bæta sambúðina við
vesturveldin.
□ Sambandsslit mundu auka
hættuna á vopnaviðskiptum á hin
um 6.500 km. löngu landamærum
Sovétríkjanna og Kína og senni
lega leiða til þess að Kínverjar
gerðu árásir á sovézkar landa-
mærastöðvar.
□ Telja má víst, að Bresjnev
flokksritari framfylgi ákvörðun-
inni um að efnt skuli til ráð-
stefnu allra kommúnistaflokka
heims á þessu ári í þeim tilgangi
að fylkja kommúnistalöndum og
flokkum á bak við Rússa gegn
Kínverjum.
□ Diplómatarnir telja, að
formleg sambandsslit mundu
liafa þau áhrif, að Rússar hefðu
frjálsar hendur í utanríkismálum
í fyrsta sinn síðan 1965 þegar
Bandaríkjamenn hófu loftárásir
sínar á Norður-Vietnam.
□ Minnkandi aðstoð sovét-
stjórnarinnar við Norður-Vietnam
mundi draga úr baráttuvilja Ha
noistjórnarinnar og sýna ráða-
mönnum í Hanoi fram á hvílíkt
glæfraspil það yrði að halda
styrjöldinni áfram á sama tíma
og lítillar -■ aðstoðar er að vænta
frá Kína meðan menningarbylt-
ingin stendur yfir. Diplómatar i
Moskvu eru almennt þeirrar skoð
unar, að Vietnamstríðið mundi
tæplega halda áfram langa hríð
eftir að stjórnirnar í Moskvu og
Peking slitu stjórnmálasambandi.
Hrapaði
Framhald af 1. síðu.
þverhnípt og töldu björgunar-
menn vonlaust að komast þar
niður. En þegar þeir komu í
fjöruna undir höfðanum fundu
þeir ekki drenginn.
Eftir fallið skreið Júlíus úr
ruslabingnum og norður fyrir
þann stað er halin féll niður,
og þar klifraði hann upp ham-
arinn við illan leik og hélt
heim til sín, og var þá orðinn
örmagna eins og áður er sagt.
Þá var liðin um hálf ldukku-
stund frá því hann féll fram a£
höfðanum.
Hann var þá mjög bólginn í
andliti og með sár og skrámur
víða um líkamann. í einu sári
á fæti voru glerbrot sem stung-
ust í drenginn þegar hann lenti
í bingnum. Fyrst í stað var
baldið að hann væri kjálka-
brotinn, en í gærmorgun var
bólgan í andliti hans hjöðnuð
að mestu. Fullnaðarrannsókn
á meiðslum hans fór ekki fram
fyrr en í gærdag. Virðist pilt-
urinn furðu lítið meiddur eft-
ir jafn slæma byltu og er hann
í fullkomlega andlegu ' jafn-
vægi.
íslandsferSir
1 Framhald af bls. 3
| samleg grein um ísland eftir Elisa
' beth Nicholas, sem er vel þekkt
og ritar um ferðamál.
Þótt ferðalög til íslands séu
nokkuð dýr, miðað við ýmislegt
annað, sem brezkir ferðamenn
eiga völ á, þá er áhugi fyrir þeim
sýnilega mjög vaxandi í Bretlandi.
Skrifstofu Flugfélags íslands í
London bárust t.d. um sjö þús.
bréflegar fyrirspurnir í janúar-
mánuði sl. auk annara sem svar-
að var í síma og í söluskrifstof-
unni.
Móðir mín
GEIRÞRÚÐUR ÞÓRÐARDÓTTIR
andaðist á heimili mínu Hringbraul 70 Hafnarfirðú 10. 1»,
m.
Fyrir liönd okkar systkinanna.
ÞÓRA ÞORVARÐARDÓTTIR.
Þökkum af alhug alla hjálp og auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og jarðarför
STEINUNNAR GUÐLAUGSDÓTTUR
Galtalæk í Biskupstungum.
BÖRN, TENGDABÖRN OG BARNABÖRN.
3,4 11. febrúar 1967 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ