Alþýðublaðið - 11.02.1967, Síða 15
í París stendur yfir nýstárleg
málverkasýning. X einum af
sýningarsölum borgarinnar
sýna margir ungir listamenn
myndir af vinsælum vísna_
söngvurum og hljómsveitum.
Eingöngu eru sýndar myndir
af skemmtikröftum sem dáðir
eru nú á tímum. Fl^stir lista
mannanna sem sýna þarna eru
að mestu óþekktir, en svning
in hefur vakið feilcna athygli
og hækka myndir listamanna
í verði frá degi til dags, eftir
því sem frægð þeirra eykst.
Það er engin ný bóla að fransk
ir listamenn verða frægir af
að mála myndir úr skemmtana
lífinu Til dæmis eru flestar
mynda Toulouse-Lautrec úr
gleðihúsum Parísarborgar. og
þykja ekki verri fyrir því.
Vestur í Bandarikjunum er
önnur sýning svipaðs eðlis.
Eru sýndar þar myndir eftir
fjölda listamanna, og eru þær
allar af sama „mótívinu" John
son forseta.
Hér eru birtar tvær mynd
ir frá sýningunni í París. Fjór
menningana á þeirrl stærri
þarf vart að kynna, en þar
eru sjálfir Bítlarnir. Á hinni
myndinni er eitt af vinsælustu
vísnatríóum í Frakklandi, Les
Freres Jesques.
Framhald af 2. síðu.
reyni að gera Sinkiang að fanga
búðum þjóðarminnihluta og yfir
völd í Peking beiti hina uppruna
legu íbúa Sinkiang ýmis konar
misrétti.
í Peking var tilkynnt í hátalaraí
að fordæma hina öldnu
Chu Teh marskálk, en
var ekki getið hvort mar-
sem er 81 árs, yrði
viðstaddur Herstjórinn í Innri-
Mongólíu, Lu Chang, skipaði her
mönnum sínum á sunnudag að
skjóta á maosinnaða stúdenta,
sem gerðu hungurverkfall við
kennaraskóla liöfuðborgar fylkis-
ins, að því er veggblöð nerma.
Moskvuútvarpið segir, að efnt
hafi verið til margra mótmælaað
gerða gegn Kínverjum í Siberíu
og Sovézku Mið-Asíu í dag.
-fr RÓLEGT í MOSKVU.
í fyrsta skipti í fimm daga
voru engin mótmæli böfð í
frammi við kínverska sendiráðið
í Moskvu í dag, enda er talið
að leiðtogarnir í Kreml íhugi nú
næstu aðgerðir er grípa skuli til
í deilunni við Kínverja. En Ijóst
er, að þolinmæði Rússa er á þrot
um, og margir túlka kröfu sov-
étstjórnarinnar frá í gær þess
efnis, að mótmælaaðgerðum við
sovézka sendiráðið í Peking verði
hætt, á þá Iund að hér hafi ver-
ið um hótun um sambandsslit að
ræða.
Fréttir frá Tokíó herma að
herinn í Kína hafi tekið við
stjórn flugmála til þess að
trj'ggja eðlilegar flugsamgöngur
ef tiT styrjaldar skuli koma.
Hreinsanir á andstæðingum Maos
hafa breiðzt út til héraðanna
j Innri-Mongólíu, Sinkiang og Tí
bets.
j París var frá því skýrt í dag,
að viðskipti Frakka og Kínverja
hefðu haldið áfram að aukast i
fyrra Kínverjarar eru nú aðalvið
skiptaþjóð Frakka í Asíu. Vestur-
Þýzkaland er aðalviðskiptaland
Kínverja, Frakkland annað helzta
en síðan koma Bretland. Sovétrík
in, Japan og Indland. Útflutning
ur Frakka til Kína nam 433 millj.
franka í fyrra.
SSys
Fi'amhald af 2. síðu.
meiddist talsvert.
Var maðurinn á leið út úr bif-
reið sonar síns, er þetta gerðist
og ætlaði í Sundlaugarnar. Fljúg-
andi hálka var á götunni. Kom þá
leiigubifreið eftir Sundlaugaveg-
inum á 'hægri ferð og lenti á mann
inum. Mun maðurinn hafa lent á
vinstri framhlið bílsins og þaðan
upp á vélarhlífina, farið veltu og
að líkindum lent með höfuðið í
götuna, því hann hafði hlotið nokk
ur meiðsli á höfði. Var hann flutt
ur meðvitundarlaus á slysavarð-
stofuna og síðan á Landakot, þar
sem hann náði aftur meðvitund.
Ekki er hægt að segja nákvæm-
lega til um, hve mikil meiðslin
eru.
Aðspurður kvaðst ökumaður
ekki hafa séð manninn fyrr en
augnabliki áður en hann lenti á
honum. Nafn mannsins, aem varð
fyrir slysiuu er Jakob Jakobsscti,
Nökkvavogi 41.
11. febrúar 1967 ~ ALÞYDUBLAÐIÐ