Alþýðublaðið - 11.02.1967, Qupperneq 16
QHEtmtíD
MOKIÐ EKK| SNJÓ
sldan
Það eru heldur fréttirnar, sem
«kkur hafa borizt úr vesturálfu
þessa síðustu daga. Þaðan hafa
okkur ekki aðeins borizt válegar
íréttir heldur einnig veður með
Verra móti.
Fréttirnar válegu eru þær, að
tugir manna létust í Bandaríkj-
vnum við snjómokstur, en þar
snjóaði hérna um daginn. Ein-
hver kynni nú að freistast til að
halda, að þetta hafi verið verka-
tnenn eða vinnuvélastjórnendur,
sem ekki lifðu sjómoksturinn af,
fivo var þó ekki, heldur voru
þetta ósköp hversdagslegir skrif-
stofumenn og aðrir kyrrsetu-
menn, sem ætluðu að hressa sig
á snjómokstrinum, anda að sér
hreinu lofti stutta sund og stæla
slappa vöðva. En eins og Bjarni
hefur bent okkur á fyrir nokkru
síðan í Reykjavíkurbréfi Mogg-
ans, þá getur kalt loft verið
mönnum stórhættulegt, og skýrði
hann m.a. með því draugagangi í
Siglufjarðarskarði liér í eina tíð.
Það fer því ekki á milli mála, að
þeir fyrir vestan lesa ekki Reykja
víkurbréfin í Mogga og mundu
Friðjón Skarphéðinsson
Friðjón elskar orðsins mennt
og allskyns bókapésa,
sést hann oft með sölnað prent
hjá Sigga Ben. að lesa.
Og þegar á Herrans fund hann fer,
þótt flestu megi að dást þar,
illa mun hann una sér,
ef engar skræður sjást þar.
<»
<»:
<»
<»
I
(
<»
líklega ýmsir lifa nú af þeim sem
féllu við snjómoksturinn, ef þeir
hefðu lesið Mogga.
Þegar uppvíst varð fyrir vestan
liver óvættur kalt loft og snjó-
mokstur getur verið í sameiningu
byrjaði þegar mikil auglýsinga-
herferð í sjónvafrpi og útvarpi, þar
sem menn voru eindregið varað-
ir við því að svo mikið sem gera
tilraun til að moka snjóföl af
stéttinni hjá sér, því slíkt gæti
hreint og beint kostað þá líftór-
una. Hafa nú margir góðir eigin-
menn fengið haldgóða afsökun til
að liengja liatt sinn á, þegar ekta-
kvinnurnar hefja máls á snjó-
mokstri. Þá segja þeir bara: Það
er sjálfsagt, góða mín, ef þú vilt
að ég. . . Þá er búið með það.
Annars kemur þetta allt heim
og saman við kenningu, sem
einn kunningi okkar hefur haldið
fram í möi'g ár..Hann hefur ævin-
lega sagt að líkamleg vinna væi'i
óholl og manninum óeðlileg. Nú
hefur stoðum verið svo ærlega
i-ennt undir þessa kenningu hans,
að hann hefur búið sig undir að
gera ekki handtak það sem eftir
er ævinnar.
Þegar er nú búið að losa bless-
aða eiginmennina við snjómokst-
urinn í eitt skipti fyrir öll, þá er
ekki annað eftir að finna, að upp-
þvotturinn geti verið stórskaðleg-
ur og háskalegur fyrir líf og
heilsu eiginmannsins. Vafalaust
tekst Bandaríkjamönnum, að færa
sönnur á þetta áður en langt um
líður, en líklega verða allmargir
eiginmenn að hrökkva upp af með
viskustykkið í höndunum áður en
sá vísdómur vei'ður talinn vísinda-
lega sannaður.
— Hvað starfið þér?
— Hvar í ósköpumnn varstu, vörðurinn er búinn að fara tvisvar
framhjá ...?
Bíblía, 220 ára gömul í á_
gætu lagi til sölu.
Augl. í Vísi.
Ég lief stundum verið að
velta fyrir mér skopskyni ís-
lendinga og nú lief ég komizt
að þeirri niðurstöðu, að þá
fyrst komist íslendingar í
gott skap, þegar þeir hafa
komið öðrum í vont skap ...
Það hef ég séð kariinn orð-
lausastan, þegar Stúku-Stebbi
frændi sagði við hann; — í
góðra vina hópi er vatnið
líka góður drykkur. ..
Stundum lendir maður í því
að móðga fólk alveg óvart.
Eins og til dæmis, þegar ég
bauð hennl systur mlnni I
leikhús og leikritið hét;
„Syndir annarra“...