Dagur - 10.05.2000, Side 1
Tala um þenslu
i tvo ar 1 vxðbot
Allt að 1300 1400
nýjar íbúðir. Gríðar-
leg framkvæmdagleði.
Vinnuaflsskortnr.
Ásókn í atvinnuleyfl
íýrir útlendinga.
Gríðarleg framkvæmdla- og fjár-
festingargleði er í þjóðfélaginu í
ár. Samkvæmt spá Þjóðhagstofn-
unar er talið að fjárfestingar í
byggingum, mannvirkjagerð, vél-
um og tækjum verði fyrir rúma
f40 miljarða króna í ár. Það er
um 8,4% raunaukning frá fyrra
ári. Af heildarfjárfestingum er
talið að hlutur íbúða sé tæpir 24
miljarðar, eða um 5% aukning
frá fyrra ári. Talsmenn iðnaðar-
ins og iðnaðarmanna telja að
ekkert bendi til annars en að
ekkert lát verði á þenslunni á
byggingamarkaði næstu tvö árin
ef ekkert óvænt kemur uppá. Af-
leiðingar af þessari þenslu er
m.a. mikill vinnuaflskortur með-
Metan fær
starfsleyfl
„Framleiðslugetan verður fyrst
um sinn um eitt megavatt en
mun eftir svo sem tíu til tólf ár
hafa tvöfaldast," segir Ogmund-
ur Einarsson, framkvæmdastjóri
Sorpu. 1 dag mun iðnaðarráð-
herra afhenda forráðamönnum
Metans hf., dótturfyrirtækis
Sorpu og Aflavaka hf., starfsleyfi
til framleiðslu á orku úr því sorpi
sem urðað er í Alfsnesi við
Reykjavík.
Skrefin að þessum áfanga hafa
verið stigin jafnt og þétt á und-
anförnum árum, en endur-
vinnsla er skilyrt í starfsleyfi urð-
unarstaða af þessum toga. Segir
Ögmundur að innan skamms
verði svo farið að framleiða orku
sem nota megi sem eldsneyti á
bíla. Þetta sé alsiða í rekstri urð-
unarstaða til dæmis í Evrópu-
löndum og Bandaríkjunum. „Við
erum bjartsýn og það er mikil og
stöðug þróun í þessu,“ segir Ög-
mundur. — SBS.
al iðnaðar-
manna og því
mikil ásókn í at-
vinnuleyfi fyrir
útlendinga.
Vélamenn frá
Norðurlönd-
uiii
Af helstu fram-
kvæmdum í ár
má m.a. nefna
stækkun Flug-
stöðvar Leifs
Eiríkssonar,
Vatnsfelfsvirkj-
un og bygging risavaxinnar versl-
unarmiðstöðvar í Smáranum í
Kópavogi. Þá er talið að byggðar
verði 1300-1400 nýjar íbúðir,
eða sem nemur þremur nýjum
íbúðum á hverjum degi. Sveinn
H. Hannesson framkvæmda-
stjóri Samtaka iðnaðarins segir
að það sé áhyggjuefni að góðær-
ið sé knúið áfram með erlendri
skuldasöfnun. Hann telur hins-
vegar að fyrirtækin sýni meiri
fyrirhyggju en oft áður í sínum
fjárfestingum á
meðan einstakl-
ingar og heimil-
in safna skuld-
um. Þá sé mikill
skortur á iðn-
aðrmönnum
vegna þensl-
unnar og m.a.
séu jarðefnafyr-
irtæki að velta
fyrir sér að fá
vélamenn frá
Norðurlöndum.
Dæmi eru um
að vélar standi
ónotaðar vegna skorts á starfs-
mönnum.
Erfitt að fá borgað
Finnbjörn A. Hermannsson for-
maður Samiðnar segir að miðað
við verkefnastöðu fyrirtækja
bendir ekkert til annars en að
þessi þensla á byggingarmarkaði
geti varað í tvö ár til viðbótar.
Hann segir að eftirspurnin eftir
íbúðum á höfuðborgarsvæðinu
sé svo mikil að þær seljist nánast
á teikniborðinu. Hann telur þó
að varnarorð Seðlabanka vegna
viðskiptaahalla og þenslunnar
veki mönnum ugg í brjósti. Ef
eitthvað er þá telur hann helst
hættu á að lánamarkaðurinn geti
látið undan. Þá vekur hann at-
hygli á því að fyrirtæki á sviði
þjónustu- og viðhalds eigi jafn
erfitt með að fá borgað fyrir
vinnu sína eins og áður þrátt fyr-
ir þetta mikla góðæri.
Ásókn í atvinnuleyfi
Vegna vinnuaflsskorts err mikil
ásókn í atvinnuleyfi fyrir útlend-
inga utan EES-svæðisins. Einnig
er töluvert mikið um það að rík-
isborgarar innan EES-svæðisins
og á Norðurlöndum komi hingað
til vinnu vegna góðærisins. Þess-
ir einstaklingar koma bæði á eig-
in vegum og fyrirtækja. Jóhann
Jóhannsson hjá Útlendingaeftir-
litinu segir að innflutningur á er-
lendu vinnuafli hafi stóraukist í
framhaldi af þenslunni. — GRH
Sjá ítarlega umfjöllun
á bls 12 og 13.
Þensla er í byggingaiönaöi um þess-
ar mundir og sumum þykir nóg um.
Stóra fikniefnamáiiö sem svo hefur veriö kallað var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. í þessu gríðar-
lega umfangsmikla dómsmáli eru sakborningar 19 talsins. ítarlega er fjaiiað um þetta mál á biaðsiðu 5 i blaðinu í
dag, en á myndinni má sjá þegar einn sakborningurinn kemur fyrir dóminn i gær.
Ástþór Magnússon.
Aftur í forsetaframboð?
„Á ekki roð
í karliim“
„Ástþór gerir sér alveg grein fyrir
því að hann á ekki roð í karlinn
og við höfum þurft að ganga á
eftir honum til þess að gefa kost
á sér. Fyrst og fremst er Ástþór
að fara f framboð málefnanna
vegna og til þess að koma af stað
umræðu um friðarmálin, þau
mál sem honum eru kærust,“
segir Sverrir Stormsker, tónlist-
armaður, sem fer fyrir hópi fólks
sem nú . safnar undirskriftum
meðmælenda með hugsanlegu
forsetaframboði Ástþórs Magn-
ússonar. Sverrir telur á tæpasta
vaði sé að takist að safna nöfn-
um nægilega margra meðmæl-
enda, en þeim þarf að skila til
kjörstjórna nk. föstudag.
Engir þingmeim
Þeir sem nú skora á Ástþór að
gefa kost á sér í forsetaframboð
eru „ýmsir almúgamenn“ eins og
Sverrir Stomsker komst að orði.
„Það eru engir þingmenn, prest-
ar eða hæstaréttarlögmenn í
okkar hópi. Við erum einfaldlega
fólk sem viljurn nota okkur lýð-
ræðið og skapa umræðu um það
hvernig Ólafur Ragnar hefur
staðið sig sem forseti síðustu ár.
Til dæmis um það hvort það
samrýmist þessum friðarleiðtoga
sem Ólafur gaf sig út fyrir að
vera að vera nú að hengja orður
á allskonar hershöfðingja," scgir
Sverrir Stormsker.
Sverrir segir að framboð Ást-
þórs eigi í raun allt undir velvilja
fjölmiðlanna. „Ef umræðan fer
að snúast um það hvar hann hafi
aðgang að peningum og hvers
vegna hann sem friðarleiðtogi
gangi þá ekki um í hvítum kufli
einsog Ghandi þá finnst mér lfk-
legt að dragi framboð sitt til
baka. Og þó svo fari ekki þá mun
Ástþór bjóða sig aftur fram eftir
fjögur ár því það veist þú jafn vel
og ég að hann sigrar ekki Ólaf.“
Símstöðvar
MATRA N&RTEL
COMM JNICAIIONS
Mikið úrval símstöðva frá einum stærsta
framleiðanda símkerfa í heiminum.
Allt frá 4 uppí 12.000 innanhússnúmer.
Hafðu samband, við kynnum þér málið.
M,
BRÆÐURNIR
QdDIOnMÍsf
Glerárgötu 32 • Sími 462 3626
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson.is