Dagur - 10.05.2000, Side 11

Dagur - 10.05.2000, Side 11
Xfc^ir MIÐVIKUDAGU R 10. MAÍ 2000 - 11 ERLENDAR FRÉTTIR Friðargæslu- starf í uppnámi Breskur hermadur kælir fæturna í hótelsundlaug daginn eftir komuna til Sierra Leone. Sameinuðu þjóöirnar ætla að halda íriöar gæslustarfi síuu áfram í Sierra Leone þrátt fyr- ir nsvífni uppreisnar- sveitauua. Uppreisnarmennirnir í Sierra Leo- ne, sem hafa tekið um 500 friðar- gæsluliða Sameinuðu þjóðanna í gíslingu, virðast ekki hafa neitt markmið annað en að komast til valda og næla sér í auðæfi. Foday Sankoh, leiðtogi þeirra, á að baki langa sögu spillingar og ofbcldis- verka, og sveitir hans hafa nú í nærri áratug farið um landið með oflældi, myrt og nauðgað og lim- lest. I gær kom til átaka utan við heimili Sankohs í Freetown, höf- uðborg Iandsins, þegar um 5000 manns söfnuðust saman þar fyrir utan til þess að lýsa andúð sinni á Sankoh og uppreisnarstarfi hans. Friðargæslusveit frá Sameinuðu þjóðunum stóð vörð umhverfis hús hans, en eftir að mannfjöldinn fór að kasta steinum og krefjast þess að Sankoh verði Iíflátinn hófu uppreisnarmenn að baki friðar- gæslusveitunum skothríð á mann- Ijöldann og létu a.m.k. þ'órir lífið af völdum skotsára. 500 friðargæsluliðar í gíslingu Samkvæmt friðarsamkomulagi sem gert var á síðasta ári var San- koh og sveitum hans veitt sakar- uppgjöf ásamt hlutdeild í dem- antanámum og aðild að stjórn landsins. I staðinn höfðu upp- reisnarmennirnir Iofað að afhenda Sameinuðu þjóðunum vopn sín og taka þátt í frjálsum kosningum sem meiningin er að verði haldnar á næsta ári. Sankoh gerir sig hins vegar ekki alveg ánægðan með þessa skil- mála, og virðist krefjast frekari fríðinda íyrir menn sína, svo sem stöður til handa foringjum sínum í sendiráðum erlendis. I byrjun maí dró svo til tíðinda þegar uppreisnarmennirnir gerðu árás á friðargæsluliða í norður- hluta landsins og náðu 95 þeirra á sitt vald. Nú er svo komið að um það bil 500 friðargæsluliða er saknað og talið er að Sankoh og menn hans séu með þá í gíslingu. Sankoh þvertekur þó fyrir það. Flestir þessara friðargæsluliða eru frá Kenía, Indlandi, Nígeríu og Sambíu. Fríðargæslustarf áfram Sameinuðu þjóðirnar skýrðu frá því í gær að ákveðið sé að Ieggja ekki niður friðargæslustarf í Sierra Leone. Þvert á móti verður það eflt frá því sem verið hefur. A mánudaginn hófu Sameinuðu þjóðirnar engu að síður að flytja á brott frá Sierra Leone 266 af starfsmönnum sínum, en 55 verða áfram í Freetown, höfuðborg landsins. Hundruð breskra ríkisborgara og annarra útlendinga hafa safnast saman á tveimur stærstu hótelum höfuðborgarinnar og bíða þess að flýja land ef ástæða þykir til. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, ftrekaði í gær kröfu sína um að vel útbúið herlið á vegum S.Þ. verði sent til Sierra Leone. Hópur breskra hermanna kom þangað á mánudag og Bandaríkin sögðust í gær vera reiðubúin til að flytja um 700-800 manna herlið til landsins á næstu dögum til að sinna friðargæslustörfum. — GB Landtökur liafnar í Kenía KENIA - Hunduð manna í Kenía hafa sest að á tveimur bændabýl- um í eigu hvítra bænda. Fyrirmynd þessa er greinilega fengin frá Simbabve, þar sem fyrrverandi hermenn hafa tekið eignarnámi u.þ.b. þúsund jarðeignir á síðustu vikum. Tveir þingmenn í Kenfa hvöttu svarta fbúa landsins til þess að fara að dæmi Simbabve og leggja und- ir sig jarðir hvítra bænda. Hætt viö mótmæli JÚGOSLAVIA - Stjórnarandstöðuhóparnir í Júgóslavíu aflýstu í gær mótmælaaðgerðum sem halda átti í Pozarevac, fæðingarbæ Slobod- ans Milosevic forseta. Stjórnvöld og lögregla höfðu beitt stjórnarand- stæðinga gífurlegum þrýstingi til þess að koma í veg fyrir mótmælin og m.a. handtekið fjölda manns. Fjölmennt lögreglulið hafði lokað öllum vegum til Pozarevac. Agreiningur var innan stjórnarandstöð- unnar um hvort aflýsa ætti mótmælaaðgerðunum, sem áttu að fara friðsamlega fram. Stasi-skjöl ekki notuð ÞYSKALAND - Formenn þingflokka á þýska þjóðþinginu ákváðu í gær að skjöl frá Stasí, leyniþjónustu Austur-Þýskalands, verði ekki notuð í rannsókn á fjármálhneyksli þýska Kristilega demókrata- flokksins og Helmuts Kohls fyrrverandi kanslara. I skjölunum eru skráningar á hlerunum, sem meðal annars beindust að Helmut Kohl. Lögmenn Kohls höfðu hótað lögsókn ef Stasí-skjölin yrðu notuð. McCain styönr Bush BANDARÍKIN - John McCain, sem sóttist eftir útnefningu Repúblikanaflokksins í Bandaríkj- unum sem forsetaframbjóðandi flokksins, hefur nú ákveðið að veita George W. Bush ríkisstjóra stuðn- ing sinn í kosningabaráttunni. For- setakosningarnar verða haldnar í nóvember næstkomandi. Bush sagðist í gær ákaflega ánægður með stuðninginn frá McCain. Þeir sögðust þó enn vera ósammála um George W. Bush og John McCain. ýmislegt, en McCain sagði þá vera sammála um fleiri mál heldur en þeir væru ósammála um. Verður að mæta fyrir rétt LÍBANON - Ríkisstjórn Líbanons sagði í gær að Antoine Lahd, for- ingi vopnaðra sveita á hernámssvæði Israelsmanna syðst í Líbanon, verði að gefast upp og mæta fyrir rétt áður en hann geti farið fram á sakaruppgjöf fyrir hönd Iiðsmanna sinna. Hersveitirnar hafa aðstoð- að ísraelska hernámsliðið og notið til þess aðstoðar frá ísraelska rík- inu, bæði vopn og herþjálfun. Lahd fór fram á sakaruppgjöf fyrir hönd liðsmanna sinna eftir að ísraelska herliðið hverfur á brott, sem verður einhvern tíma á næstu vikum. Solana til Filipseyja FILIPSEYJAR - Javier Solana, utanríkismálafulltrúi Evrópusam- bandsins, hélt í gær til Filipseyja þar sem hann ræddi við ráðamenn um lausn á gíslatökumálinu. Mannræningjum gíslanna sem teknir voru í síðasta mánuði tókst í gær í annað sinn að brjótast í gegnum umsáturshring hersins og fluttu gíslana á annan stað. Talið var hugs- anlegt að einhverjir af gíslunum, sem alls eru 21, verði látnir lausir í dag. ■ FRÁ DEGI MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 131. dagur ársins, 235 dagar eftir. Sólris kl. 4.28, sólarlag kl. 22.22. Þau fæddust 10. mai • 1838 fæddist bandaríski leikarinn John Wilkes Booth, sem myrti Abraham Lincoln forseta. • 1899 fæddist bandaríski dansarinn, Ieikarinn og söngvarinn Fred Astaire. • 1955 fæddist teiknimyndapersónan Hómer Simpson, hinn eini og sanni. • 1957 fæddist breski pönkarinn Sid Vici- ous. • 1960 fæddist írski rokksöngvarinn Bono, leiðtogi hljómsveitarinnar U2. Þetta gerðist 10. maí • 1497 siglai Americo Vespucci til Nýja heimsins, sem síðar var nefndur eftir honum og kallaður Ameríka, jafnvel þótt Kristófer Kólumbus hefði verið á undan honum. Vespucci hafði þá verið duglegri en Kólumbus að skrifa um ferðir sínar. • 1924 tók J.Edgar Hoover við embætti forstjóra bandarísku alríkislögreglunnar TIL DAGS FBI, og gegndi því til dauðadags árið 1972. • 1940 réðst þýski herinn inn í Holland, Belgíu og Lúxemborg. • 1940 sagði Neville Chamberlain af sér sem forsætisráðherra Breta, og Winston Churchill tók við. • 1940 var Island hernumið af Bretum. • 1941 sveif þýski nasistaforinginn Rudolf Hess með fallhlíf niður til Skotlands þar sem hann sagðist ætla að reyna að koma á friði. • 1976 voru fjórir menn látnir lausir úr gæsluvarðhaldi, eftir að hafa setið inni, flestir í 105 daga, grunaðir um aðild að Geirfinnsmálinu. • 1994 sór Nelson Rolihlahla Mandela embættiseið sem forseti Suður-Afríku. Vísa dagsins Eins og sagir seinar á seigar rætur híta, allt eins rógur illra má ástir vina slíta. Jón Thoroddsen. Afmælisbam dagsins Guðmundur Jónsson óperusöngvari er áttræður í dag. Guðmundur er þjóð- kunnur fyrir söng sinn, en hann Iærði söng hjá Pétri Á. Jónssyni á árunum 1941-43 og eftir það bæði í Bandaríkj- unum og Svíþjóð. Hann hefur farið með stór hlutverk í ljölmörgum óper- um og komið fram sem einsöngvari, m.a. með ýmsum kórum og með Sin- fóníuhljómsveit Islands. Auk söngsins hefur hann kennt söng um árabil, við Söngskólann í Reykjavík frá 1979. Hann var framkvæmdastjóri Ríkisút- varpsins 1966-85. Að gera tvennt í einu er að gera hvorugt. Publilius Syrus Heilabrot Þrír ungir bræður sátu ráðþrota þegar úr- ræðagóður öldungur kom til þeirra, ríðandi á úlfalda sínum. Þeir sögðu föður sinn hafa arfleitt þá að 17 úlföldum, en þeir þyrftu að skipta þeim á milli sín þannig að sá elsti fengi helminginn, sá næstelsti fengi þijá fjórðu, en sá yngsti fengi einn níunda. Þeir gátu með engu móti fengið dæmið til að ganga upp, því ekki vildu þeir slátra einum úlfaldanum og skipta honum þannig niður. Oldungurinn sagðist kunna ráð við vanda þeirra, en að launum yrðu þeir að gefa hon- um einn úlfalda. Hver var Iausn öldungs- ins? Lausn á síðustu gátu: Gröf eða hola. Það sem tekið er úr henni gerir hana að því sem hún er. Veffang dagsins Borgarvefsjáin er nýjung á vefsíðum Reykjavíkurborgar. Þar er hægt að fá upp á skjáinn uppdrátt af götum og húsum í Reykjavík ásamt helstu lögnum og fram- kvæmdum eftir því sem notandi óskar: http://broke}'. bv. rvk. is/horgarvefsja/

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.