Dagur - 30.05.2000, Qupperneq 1
Þriðjudagur 30. maí 2000
Verð ílausasölu 150 kr.
Halda eitfin kristni-
hátíð
augarvatni
Tvær kristnihátíðir á
sama tíma. Kirkjan
sögð mismima þeim
sem ekki eru í þjóð-
kirkjimni. Biskup vís-
ar því á bug.
Hópur manna hefur ákveðið að
hunsa kristnihátíðina á Þingvöll-
um 17. júní nk. og halda eigin
kristnihátíð að Laugarvatni.
Astæðan er óánægja með fram-
kvæmd hátíðarinnar á Þingvöll-
um. Arni Björn Guðjónsson, 2.
maður í Reykjavík á lista Krist-
lega lýðræðisflokksins sem bauð
fram fyrir síðustu alþingiskosn-
ingar, segir kirkjuna mismuna
þeim sem standi utan þjóðkirkj-
unnar. Hann segir hringingum
varla linna til sín eftir að þug-
myndin kom upp og á von á tölu-
verðu fjölmenni á Laugarvatn.
Um verði að ræða sannkristna
samkomu, þar sem allir séu vel-
komnir, ólfkt Þingvallahátíðinni
fyrirhuguðu.
„Það virðist sem þjóðkirkjan
ein fái að vera með dagskrá á
Þingvöllum. Þeir hafa gefið út þá
tilskipun að fríkirkjur og önnur
félagasamtök svo
sem hommar og
lesbíur eigi að dúsa
í Hestagjá og ég er
sammála Gunnari í
Krossinum um að
þarna standi menn
fyrir andlegri að-
skilnaðarstefnu.
Þetta er bara órétt-
látt. Mér finnst að
átt hefði að undir-
búa hátíðina með
aðild allra trúfé-
laga. Kristnar kirkj-
ur eru jú um 20 í
landinu og það
hefði mátt auka lit-
rófið. Hver hefur sinn andblæ í
því að boða fagnaðarerindið,“
segir Árni Björn.
Meinloka
Hann segir um greinilega mis-
munun að ræða. Sjálfur sé hann
í söfnuði sem nefnist „Samfélag
Karl Sigurbjörnsson biskup:
„Hryggir mig.“
trúaðra" og þeir geti ekki orðið
aðilar að kristnihátíðinni nema
dúsa í Hestagjá. Þeir eru í raun
að segja okkur að við eigum að
vera með okkar eig-
ið prógram í Hesta-
gjá meðan hátíðin
sé fyrir aðra gesti.
Þetta hlýtur að vera
einhver meinloka
hjá þessum mönn-
um. Eg trúi ekki að
sá góði vinur minn,
biskup, hafi tekið
þessar ákvarðanir."
Árni Björn segir
að Þingvallahátíðin
sé að snúast upp í
andhverfu sína. I
stað þess að verða
hátíð samhygðar og
bræðralags valdi
hún sundrungu. Þetta sé bara
hátíð þjóðkirkjunnar sem stofn-
unar.
Fagnar nærveru
Karl Sigurbjörnsson vísar því á
bug að staðið sé fyrir andlegri
aðskilnaðarstefnu á Þingvöllum:
„I vetur sendi ég forystumönn-
um hinna ýmsu kristnu trúfélaga
og hópa bréf og óskaði eftir nær-
veru þeirra á kristnihátíð. Eg
sagði orðrétt í niðurlagi bréfsins:
„Eg fagna virkri nærveru safnað-
ar þíns. Eg vona einlæglega að
hið kristna samfélag sameinist
þar í orðinu, þakkargjörðinni,
lofsöng og sakramenti. Guði sé
lof fyrir 1000 ára kristni á ís-
landi.““
Ósmekklegt
Biskup segist einnig hafa bent á
möguleika fyrir margvíslegt sam-
komuhald á Þingvöllum undr
merkjum hinna mismunandi trú-
félaga í Hestagjá. „Þar var hinum
ýmsu trúfélögum og þjóðkirkju-
söfnuðum reyndar líka, boðin
aðstaða til vitnisburðar og lof-
gjörðar og gert ráð fyrir að þar
færi fram stanslaust samkomu-
hald alla hátíðina. Það hryggir
mig að menn skuli svara þessu
svona og velja þessu ósmekkleg
heiti eins og „andleg aðskilnað-
arstefna". Ég bið mína kristnu
bræður að gæta orða sinna.“ - BÞ
GAMEBOY
RðDIOnlallST A\ö\Ö^
Gelslagötu 14 • Slmi 462 1300 *
Dæmi eru um að síður vanti í
símaskrána eða sömu síðurnar séu
tviprentaðar. Dreifing er ekki kom-
in það langt á veg að hægt sé að
segja tii um umfang gallanna.
Gölluð
símaskrá
Einhver hluti nýja upplagsins af
símaskránni árið 2000 hefur
reynst gallaður. Erfitt er að meta
hve mikill skaðinn er, enda skrá-
in ennþá í dreifingu. Olafur
Stephensen, upplýsingafulltrúi
Landssímans, segir málið baga-
Iegt en ekkert einsdæmi. Líkur
séu á að þegar um jafn stórt
verkefni og prentun símaskráar-
innar sé að ræða, fari eitthvað
úrskeiðis. Skráin er prentuð í
220.000 prentuðum eintökum.
Sumt vantar - annað
tvíprentað
Einhverjar blaðsíður vantar í
sumar skrár og eins má á köflum
finna einhverja tugi blaðsíðna
tvíprentaða. Ólafur segir að þeir
neytendur sem hafa fengið göll-
uð eintök í hendur, geti einfald-
lega snúið sér til næsta sölustað-
ar, skipt út gallaða eintakinu og
fengið nýtt í staðinn. „Auðvitað
er þetta bagalegt en það er erfitt
að komast hjá einhverjum mis-
tökum í svona risavöxnu verk-
efni. Algengast er að 2 arkir tolli
saman eða eina örk vanti. Lík-
indareikningurinn segir okkur að
það verði alltaf einhverjar skekkj-
ur í svona risavöxnu upplagi en
auðvitað er þetta bagalegt," segir
Ólafur. Hann segir nánast árviss-
an viðburð að einhverjar skekkj-
ur komi fram í skránni.
Erfitt að mcta strax
Oddi sér um prentun bókarinnar
og segir Magnús Guðfinnsson
hjá Odda að erfitt sé að meta það
á þessu stigi hve mörg eintök séu
gölluð. Ennfremur sé ómögulegt
að segja til um hvar gölluðu
skrárnar hafi lent, stutt sé síðan
dreifingin hófst. „Sem stendur
vitum við ekki nákvæmlega hve
alvarlegt þetta er, en við teljum
að þetta sé minniháttar. Við
erum alltaf að reyna að bæta
tæknina til að koma í veg fyrir
mistök af þessu tagi,“ segir
Magnús. - BÞ
Gnuiur imi
voðaverk
Karlmaður á þrítugsaldri situr í
gæsluvarðhaldi, grunaður um
aðild að andláti tvítugrar stúlku
sem fannst látin á laugardags-
morgun fyrir utan fjölbýlishús í
Kópavogi, Engihjalla 9. Maður-
inn var handtekinn í fjölbýlis-
húsinu, skömmu eftir að stúlkan
fannst, þar sem hann dvaldi hjá
ættingjum. Hvorki hann né
stúlkan voru búsett í Engihjall-
anum en þau virðast hafa komið
saman að húsinu.
Engin vitni hafa fundist að
atvikinu sem leiddi til dauða
stúlkunnar en mjög sterkur
grunur leikur á að hún hafi fall-
ið til bana frá efstu hæðum
hússins.
Maðurinn hefur verið úr-
skurðaður í gæsluvarðhald til 9.
júnf og hafði ekki kært þann úr-
skurð í gær. Hann er 25 ára
gamall og hefur áður komið við
sögu lögreglu. - BÞ
Hringtorg Mosfellsbæjar heyra nú brátt sögunni til, enda hafa stórvirkar vinnuvélar unnið á þeim með skipulegum
hætti síðustu daga. Ástæðan tengist kristnihátíðinni 17. júní nk. Vegakerfið þarfað þola öfluga umferð og verða
blómin á torgunum að gjalda fyrir það.