Dagur - 30.05.2000, Blaðsíða 9

Dagur - 30.05.2000, Blaðsíða 9
Tfgptrr ÞRIDJUDAGU R 30. MAÍ 2000 - 9 ÍÞRÓTTIR Úr leik Breidabliks og KR I fyrradag. Olga tryggði sigur KR-inga Ipswich Town í úrvalsdeildina Stjaman og KR eru taplaus í toppsætum Laudssímadeildar kvenna þegar tveimur umferðum er lokið í deildinui. ÍBV vauu óvæntau 0-2 útisigur á Val um helgina á meðau Olga Færset tryggði KR-iugum 1-2 útisigur á Breiða- hliki. Þór/KA og FH stigalaus á hotuiuum. Olga Færsetli var hetja KR-inga þegar hún tryggði liði sínu 2-1 sigur á Breiðabliki í leik liðanna á Kópavogsvelli í fyrradag. Olga hafði fiskað umdeilda vítaspyrnu á Ernu B. Sigurðardóttur, á 74. mínútu leiksins, en lét Þóru B. Helgadóttur, góðan markvörð Breiðabliks, verja frá sér skotið. Þóra hélt ekki boltanum og var Olga fljót að hirða frákastið og sendi boltann örugglega í netið í annari tilraun. Leikurinn var jafn og spenn- andi frá upphafi til enda og var mjög fjörugur á köflum. Liðin sóttu á víxl og mátti vart á milli sjá hvort væri Iíkiegra til sigurs. KR-stelpurnar voru þó fyrri til að skora, en markið gerði Asthildur Helgadóttir, fyrrum leikmaður Breiðabliks, þegar hún skallaði boltann í netið hjá Þóru systur sinni í Blikamarkinu, eftir góða fyrirgjöf frá Guðlaugu Jónsdótt- ur. Fimm mínútum áður hafði Rakel Ögmundsdóttir fengið sannkallað dauðafæri, þegar langt útspark Þóru, barst óvænt innfyrir KR-vörnina, þar sem Rakel komast á auðan sjó, en hitti ekki markið. Bæði liðin voru að leika mjög vel og stóð sterkur varnarleikur uppúr hjá báðum, þar sem þær Hjördís Þorsteinsdóttir, Breiða- bliki og Guðrún Gunnarsdóttir, KR, voru bestu menn vallarins. Enda létu mörkin á sér standa og ekki fyrr en á 67. mínútu sem Blikastúlkum tókst að jafna met- in. Þar var að verki Laufey Ólafs- dóttir, sem skoraði með föstu skoti úr teignum eftir góðan undirbúning Margrétar Ölafs- dóttur. Þetta var fyrsta mark Laufeyjar fyrir Breiðablik, síðan hún gekk í raðir félagsins frá Val. Eftir markið þyngdist sókn KR-inga, sem sóttu mjög stíft næstu mínúturnar þar til kom að áðurnefndri vítaspyrnu Olgu Færseth. Það sem eftir lifði leiksins sóttu Blikar stíft, en höfðu þó ekki árangur sem crfiði gegn sterkri vörn KR-inga. Óvæntur útisigur Eyjastúlkna Eyjastelpurnar halda áfram að koma á óvart í Landssímadeild kvenna og nú með öruggum 0-2 útisigri á Val að Hlíðarenda. Lið- ið kom virkilega á óvart í fyrsta leik gegn KR í Frostaskjólinu og sýndi þrátt fyrir tapið að það er til alls líklegt, eins og sannaðist gegn Val í fyrrakvöld. Valsstelp- urnar, sem unnu Þór/KA á Akur- eyri í fyrstu umferðinni byrjuðu betur í leiknum og voru nálægt því að skora strax á fjórðu mín- útu þegar boltinn small í slá Eyjamarksins. Eyjastelpurnar, drifnar áfram af Karen Burke, sem átti frábær- an leik á miðjunni, komu nú meira inn í leikinn og uppskáru þær mark strax á 7. mínútu. Það gerði besti maður vallarins, Bryndís Jóhannesdóttir, sem ásamt Kelly Shimmin var síógn- andi í fremstu víglínu. Eyjaliðið hélt áfram að sækja eftir markið og á 27. mínútu bætti Bryndís við öðru marki sem segja má að hafi legið í loftinu. I seinni hálfleiknum jafnaðist leikurinn nokkuð, þar sem Eyjaliðið lagði alla áherslu á að halda fengnum hlut á meðan Valsliðið herti sóknina án þess þó að skapa sér umtalsverð færi. Leikurinn fór að mestu fram á miðju vallarins, en það sem lak í gegnum IBV-vörnina hirti góður markvörður liðsins, Petra F. Bragadóttir. Valsliðið var alls ekki sannfær- andi í þessum leik og hefur oft- ast leikið betur. Baráttan og leik- gleðin var ekki fyrir hendi og því fór sem fór. Stórsigur Skagastúlkna Skagastelpurnar unnu 5-0 stór- sigur á nýliðum FH-inga, þegar liðin mættust á Skaganum í fyrradag. Allt annað var nú að sjá til Skagaliðsins heldur en í fyrstu umferðinni gegn Stjörnunni og auðséð að liðið er að styrkjast. Mikið bar á ungri og efnilegri stúlku úr Borgarnesi, Elínu Önnu Steinarsdóttur, en hún skoraði þrennu í fyrri hálfleik og átti sannkallaðan stórleik. Þar er mikið efni á ferðinni sem á ör- ugglega eftir að reynast Skaga- liðinu vel í sumar. Margrét Aka- dóttir, spilandi þjálfari liðsins, átti einnig góðan leik og stjórn- aði hún leik liðsins af mikilli festu. Hjá FH var Arna Steinsen langbest og ljóst að endurkoma hennar í liðið á eftir að styrkja það mikið í botnbaráttunni, sem virðist bíða liðsins í sumar. Stjaman á toppinn A Akureyri fór fram leikur Þórs/KA og Stjörnunnar, þar sem Stjarnan vann öruggan 0-3 sigur á Akureyrarliðinu. Stjarnan trónir þar með á toppi deildar- innar með sex stig, eða jafnmörg og KR, en með betra markahlut- fall. Sjá nánar um leikinn f Akur- eyrarblaði. Staðan: Stjarnan 2 2 0 0 8:0 6 KR 2 2 0 0 5:2 6 Breiðablik 2 1 0 1 9:3 3 Valur 2 1 0 1 3:2 3 ÍA 2 1 0 1 5:5 3 ÍBV 2 1 0 1 3:3 3 Þór/KA 2 0 0 2 0:6 0 FH 2 0 0 2 1:13 0 Markahæstar: Elfa Björk Erlingsd., Stjörn. 4 Elín Anna Steinarsdóttir, IA 3 Ásthildur Helgadóttir, KR 2 Bryndís Jóhannesdóttir, ÍBV 2 Erna B. Sigurðard., Breiðabl. 2 Hrefna Jóhannesd., Breiðabl. 2 Margrét Ólafsdóttir, Breiðabl. 2 Olga Færseth, KR 2 Ipswich tryggði sér í gær réttinn til að leika f ensku úrvalsdeild- inni í knattspyrnu á næsta leik- tímabili, þegar liðið vann 4-2 sig- ur á Barnsley í úrslitaleik á Wembley, sem jafnframt var síð- asti leikur félagsliða á vellinum áður en hann verður lagður nið- ur. Þar með er lokið fjögurra ára streði Ipswich við að komast í deildina, en þrjú sfðustu árin hefur liðið tekið þátt í auka- keppninni um laust sæti í deild- inni en alltaf niistekist. Liðið endaði f þriðja sæti deildarinnar í ár og háði harða baráttu um að ná öðru sætinu, sem gefur sæti í deildinni. Utlitið var ekki gott fyrir Ipswich í upphafi Ieiks í gær, því á 6. mínútu leiksins náði Craig Hignett forystunni fyrir Barnsley með hörkuskoti af um 30 m færi, sem small í slánni og þaðan í bakið á Richard Wright, mark- verði og í netið. Um 20 mínútum síðar tókst Tony Mowbray, varn- armanni Ipswich, þegar hann skallaði í netið af stuttu færi. Rétt fyrir leikhlé var síðan dæmd vítaspyrna á Ipswich, en Wright markvörður gerði sér lít- ið fyrir og varði spyrnuna frá Darren Barnard. Leikmenn Ipswich bættu sfð- Þegar tveimur umferðum er lok- ið í Landssímadeild kvenna hafa þær Elfa B. Erlingsdóttir, Stjörn- unni, Guðrún Gunnarsdóttir, KR, lris Sæmundsdóttir, IBV og Olga Færseth, KR oftast verið valdar í Dagsliðið, eða tvisvar. Alls hafa átján leikmenn verið valdir í liðið og þar af leikmenn IBV oftast, eða sex sinnum. Þar á eftir koma leikmenn Stjörnunnar og Breiðabliks, sem hafa verið valdar fjórum sinnum og þar næst KR-ingar, þrisvar sinnum. Dagslistian eftir tvær uinferðir: Elfa B. Erlingsdóttir, Stjörn. 2 Guðrún Gunnarsdóttir, KR 2 an við tveimur mörkum á sex mínútna kafla í seinni hálfleik og breyttu stöðunni í 3-1. Richard Naylor gerði það fyrra á 52. mín- útu og Marcus Stewart það sein- na. Lcikmenn Barnsley gáfust þó ekki upp og á 70. mín- útu var aft- ur dæmd vítaspyrna á Ipswich sem Hignett skoraði ör- ugglega úr og breytti stöðunni í 3-2. Eftir markið lagði George Burley, . stjóri Ipswich alla áherslu á vörnina til að halda fengnum hlut. Segja má að heppnin hafa nú loksins verið með liðinu því í tvígang bjargaði Wright mark- vörður á undraverðan hátt eftir að ieikmenn Barnsley höfðu komist í dauðafæri. Kevin Miller átti lokaorðið fyr- ir Ipswich, þcgar hann skoraði úr skyndisókn á lokamínútunni eft- ir að hafa vaðið upp allan völl mcð varnarmenn Barnsley á hælunum. íris Sæmundsdóttir, ÍBV 2 Olga Færseth, KR 2 Arna Steinsen, FH 1 Auður Skúladóttir, Stjörn. 1 Bryndís Jóhannesd., IBV 1 Elín A. Steinarsdóttir, IA 1 Elsa Hlín Einarsd., Þór/KA 1 Erna B. Sigurðard., Breiðabl. 1 Hjördís Þorsteinsd., Breiðabl. 1 Hrefna Jóhannesd., Breiðabl. 1 Justine Lorton, Stjörnunni 1 Karen Burke, ÍBV 1 Margrét Ólafsdóttir, Breiðabl. 1 Petra F. Bragadóttir, ÍBV 1 Rósa Steinþórsdóttir, Val 1 Sammy Britton, ÍBV 1 Dagsliðið 2. umferð Brvndís lóhannesdóttir Qlga Færseth ÍBV KR EJtH A. S.teinarsdóttir ÍA Elfa B. Erlingsdóttir Stjörnunni Tustine Lorton Stjömunni Karen Burke ÍBV íris Sæmundsdóttir ÍBV Arna S.tejnsen FH Guðrún Gunnarsdóttir KR Hiördís Þorsteinsdóttir Breiðabliki Petra F. Bragadóttir ÍBV EyjastiiLkur oftast í Dagsliðinu George Burley, framkvæmdastjóri Ipswich, fagnar sigrinum á Wembley.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.