Dagur


Dagur - 30.05.2000, Qupperneq 4

Dagur - 30.05.2000, Qupperneq 4
4t — ÞRIDJUDAGUR 30. MAÍ 2000 Oa^ur FRÉTTIR Frá afhendingu verðlauna í smásagnasamkeppninni góðu sl. laugardag. Frá vinstri talið, Stefán Þorláksson formaður dómnefndar, Valgerður Jónsdóttur sem tók við verðlaunum fyrir hönd Eysteins Björnssonar, Margrét Björgvinsdóttir sem sæti átti i dómnefnd, Þórunn Sólveig Ólafsdóttir sem átti söguna sem sigraði í keppninni og lengst til hægri er Sigurður Steingrímsson fjármálastjóri Dagsprents sem afhenti verðlaunin fyrir hönd blaðsins. - mynd: brink Aldrei fleiri smásogur Um áttatíu sögur bárust í smásagnasamkeppni Menor og Dags. 52 höfundar. Veg- ur smásögunnar að vaxa. Sigursagan frá Manhattan. Ágæt þátttaka var í smásagnasamkeppni Menningarsarntaka Norðlendinga, MENOR, og Dags. AIIs bárust hartnær áttatíu handrit eftir 52 höfunda og hefur þátttakan aldrei verið meiri í smásagna- keppnum þeim sem þessir aðilar hafa staðið fyrir á undanfömum árum. „Vegur smásögunnar er að vaxa, enda tel ég að hún sé eitt skemmtilegasta formið sem til er innan ritlistarinnar," sagði sr. Ólafur Þ. Hallgrímsson, formaður MENOR, við athöfn sl. laugardag þegar úrslit voru kunngerð. Vandi á höndum og veglegar bækur Keppnin var fyrst kynnt í byijun febrúar, en skilafrestur handrita var til 1. maí. Þá tók dómnefnd til starfa en hana skipuðu þau Stefán Þorláksson fyrrverandi menntaskólakennari á Akureyri, Margrét Rjörgvinsdóttir bókavörður við Háskól- ann á Akureyri og Birgir Guðmundsson, aðstoðarritstjóri Dags. Sagði Stefán Þor- láksson þegar útslit voru kynnt að dóm- nefnd hefði vissulega verið vandi á hönd- um. Á endanum hefði nefndin þó komist að sameiginlegri niðurstöðu, en erfitt hefði verið að velja úr Ijölda góðra sagna. 1 lyrsta sæti setti dómnefndin söguna Kross eftir Þórunni Sólveigu Ólafsdóttur, í annað sætið valdist sagan Bænheyrður eftir Ágúst Borgþór Sverrisson, og sagan Bjargið eftir Eystein Björnsson lenti í þriðja sætinu. „Dómnefndin var í nokkrum vafa með sögurnar sem lentu í öðru og þriðja sæti, þessar sögur voru mjög jafnar og sú sem lenti í þriðja sæti hefði vel getað Ient í öðru sæti - og aftur öfugt. Þetta verður að viðurkennast," sagði Stefán Þorláksson. - Vinningshafar voru leystir út með veglegum bókum sem Mái og menning lagði til, en þess má svo geta að til stendur að birta verðlaunasög- umar f Degi á næstunni. MinningaT frá Manhattan Umgjörð sögunnar sem Ienti í fyrsta sæti keppninnar er Manhattan í New York, þar sem segir í fyrstu persónu frá ís- Ienskri konu sem á björtum sumardegi fer í verslunarleiðangur um stræti þeírrar mögnuðu stórborgar. Á veitingahúsi verður konan vitni að samtali tveggja manna sem veldur henni verulegum óhug. Á endanum verður konan vitni að vofveiflegum atburði þar sem kemur fram það sem hún heyrði f samtalinu. „Sagan á að vekja upp spurningar um hvernær okkur ber að Ieggja náunganum Iið og einnig fjallar hún um skuggahliðar stórborgarinnar," segir Þórunn Sólveig Ólafsdóttir, sem viðurkennir að sagan sé að vissu leyti byggð á persónulegri reynslu sinni af því að hafa í tvígang búið í New York. Þórunn Sólveig Ólafsdóttir er fædd á Akureyri og alin upp á Norðurlandi. Hún hefur lengi fengist við listsköpun af ýms- um toga, var meðal annars söngkona lengi og söng í söngleiknum Nyt house sem færður var á sviðið í Samkomuhús- inu á Akureyri árið 1965 undir leikstjórn Jónasar Jónassonar, útvarpsmanns. - Á síðustu árum hefur Þórunn svo einbeitt sér að sagnagerð og meðal annars numið sitthvað í bókmenntum bæði við Háskóla Islands og Kaupmannahafnarháskóla. I tengslum við nám sitt hefur Þórunn skrifað ekki færri en þrettán smásögur og er verðlaunasagan góða úr þeim sarpi, skrifuð lýrir tveimur árum. — SBS FRÉTTAVIDTALIÐ Þjóðmenningarhúsið. Pottverjar eru að sjálf- sögðu á kafi í mennlng- unnl eins og vera ber á þessu ári. Stundum er erfitt að njóta menningar viðburða. Einn pottverja sá þessa skondnu lýsingu á vefsíðu frelsis-maima á Ijóðakvöldi sem fram fór í glæsilegum sal í Þjóð- menningarhúsinu svo- kallaða: „Ljóst var að þeir voldugu stólar, sem þama vom fyrir, vom ekki nærri nógu margir fyrir þá sem komu til að hlýða á upplesturinn. Reyndar vora þeir furðu fáir eða u.þ.b. 25 talsins. Og þegar fundarstjór- inn reyndi að fá starfsfólk safnsins til að leyfa sér að fjölga stólum var það ekki hægt - hætta var á að dúkurinn, já dúkurinn, gæti rispast! Þvl urðu margir að standa á gljáfína dúknum á milli borða með tilgerðarlegum skreytingum og hilla með uppstilltum bókum. Og auðvitað má ekki bjóða uppá kaffi í svo fínum sal. Fundarstjóri benti þó gestum góðfúslega á að það mætti klappa í Þjóðmenningarhúsinu!" í umræðumú um skóla- gjöld á háskólastigi hefur það vakið athygli pott- verja að mikil aðsókn er að þeim skóla sem fram til þessa hefur hæstu skólagjöldin - Samvhmu- háskólanum á Bifröst. Þar borga nemendur mn 140 þúsund krónur íyr- ir skólaárið, en samt er ekkert lát á aðsókninni. Og þau eiga víst að hækka enn meira á næsta skólaári. Bifröst er sem sagt bæði dýr og vinsæl. Kristján Þorvaldsson kvaddi útvarpshlustendur, í bili a.m.k., þegar síðasti sunnudagsspjallþátt- urinn rann sitt skeið á enda um helgina. Eflaust verður þátturinn aftur á dagskrá næsta vetur, enda margt gott um spjallið að segja. Það fór hins vegar lítillega fyrir brjóstið á útvarpshlust- endum þegar Kristján afkynnti þáttinn sem þann síðasta þennan vetur. Almanakið segir nefnilega þrátt fyiir kulda og trekk aó komin sé 6. vika sumars. Samvinnuskólinn á Bifröst. Sverrir Haukur Gunnlaugsson ráðuneytisstjóri ísland verðureitt afl 78 ríkjum sem taka þátt í heimssýningunni Expo 2000 en sýningin verðurformlega opnuð íÞýskalandi 1. júní. ísland tekur nú þátt í heims- sýningunni íjjórða skipti. Expo styrkir ímyndina - Hvað bjóðtmi við íslendingar upp ú í skdl- anunt okkar? „Mynd um islenskan sjávarútveg verður sýnd á risatjaldi þar sem kjörorðið er hrein- leiki, náttúran og gæði íslenska fisksins. Margmiðlunarstöðvar, 20 talsins, verða á staðnum þar sem hægt er að hlusta á fræðsluefni um ísland á ensku og þýsku. Þetta eru 35 flokkar fræðsluefnis en yfir- skriftin er maður, náttúra og tækni. Efnið verður síðan gefið út á geisladiskum og selt á lágmarksverði. I skálanum verða einnig and- lit 80 þúsund Islendinga sýnd viðstöðulaust á stórum skjá og segja má að þarna sé þriðji hver íslendingur samankominn. Við verðum með verslun á staðnum þar sem verða kynnt- ir og seldir fimm mismunandi vöruflokkar, þar á meðal íslenskur bjór, ýmislegt unnið úr fiskroði og bækur um Island. Við væntum einnig góðra tekna af diskinum sem hefur að geyma alla þá margmiðlun sem er að finna í tölvunum." - Verður þetla viðamikil sýtiing? „Já, 30 íslensk fýrirtæki taka þátt í sýning- unni, fyrirtæki úr öllum helstu greinum ís- lensks atvinnulífs." - Hvaða gildi hefur þessi srýning fyrir ís- lendinga. „Að kynna okkur á jákvæðan máta. Við vilj- um sýna jákvæðar hliðar íslensks þjóðfélags með það fyrir augum að efla sölu á okkar út- flutningi og ])jónustu, t.d. til ferðamanna. Við erum að kynna ímynd Islands út á við, hvernig við viljum að útlendingar horfi á okkar þjóð. Við einblínum á okkar atvinnu- vegi eins og sjávarútveg. Einnig hreinleika, gæði og hina sérstöku þætti íslenskrar nátt- úru. Við erum líka að sýna þróttmikla þjóð, unga og duglega æsku. Skilaboðin eru þau að við erum hér á hjara veraldar með 280 þúsu d manns og okkur tekst að halda full- komnu þjóðfélagi í gangi þrátt fyrir fjarlægð- ir og miklu meiri kostnað en myndi gerast vestan hafs eða austan." - Er eitthvað eitl umfram annað sem þið leggið dherslu ú? „Við leggjum áherslu á möguleikana sem Island býður upp á og hvernig við nýtum okkar orku. Fyrst og fremst erum við að kynna ímynd Islands.11 - Hvemig er íslenski skúlinn? „Skálinn er 500 fm, og 20 m hár og tekur um 300 manns. Hann er ldæddur plasti og er umflotinn vatni. I miðjum skálanum er tjörn þar sem sýnd verður mynd um nátt- úruperlur Islands með áherslu á ljósið og birtuna. Ýmsir aðilar hafa veitt okkur viður- kenningu fyrir skálann." - Hvað búist þið við miklum fjölda ú sýn- inguna? „Búist er við að 40 milljónir manna komi á sýninguna og gerum við ráð fyrir að 10% þeirra komi í fslenska skálann." - Hvað kostar þútttaka okkar í sýning- unni? „Sýningin kostar á bilinu 281 til 285 millj- ónir. 200 milljónir koma af fjárlögum og við höfum loforð upp á 55 milljónir frá fyrir- tækjum. Síðan er gert ráð fyrir að eitthvað fáist fyrir sölu skálans." - ELJ

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.