Dagur - 30.05.2000, Qupperneq 19
ÞRIBJUDAGUR 30. MAÍ 2 0 0 0-19
AKUREYRI NORÐURLAND
Fjarvmnsla í heil-
brigðisgeiraninn?
MiMir möguleikar á
Norðurlandi. Heil-
brigðisgeirinn talinn
hafa einna mestu
möguleikana. Tungu-
málakunnáttu á Eyja-
íjarðarsvæðiim er hins
vegar áfátt.
Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar
(AFE) hefur gefið út skýrslu sem
ber yfirskriftina „Úttekt á mögu-
Ieikum Eyjaíjarðar í fjar- og gagna-
vinnslu". Höfundar skýrslunnar
eru Bjami Þór Þórólfsson, for-
stöðumaður nýsköpunar- og mark-
aðssviðs AFE, og Einar Askelsson,
ráðgjafi hjá Rekstri & Ráðgjöf
Norðurlandi og er Eyjafjarðar-
svæðið fyrsta atvinnusvæðið á
landsbyggðinni til að ráðast £ gerð
heildstæðrar skýrslu um þessi mál.
í skýrslunni segir m.a. að tækni-
legar og þekkingarlegar forsendur
fyrir atvinnumöguleikum í Eyja-
firði á þessum sviðum hafi marg-
faldast á allra síðustu árum.
Tölvueign á heimilum sé hraðvax-
andi, sem og notkun almenns hug-
búnaðar og viðskiptahugbúnaðar.
Tilkoma Háskólans á Akureyri hafi
einnig aukið sérfræðilega þekk-
ingu á svæðinu og sama sé að
segja um tilurð fyrirtækja sem sér-
hæfi sig í tölvu- og hugbúnaðar-
þjónustu.
Plúsar og niímisar
Styrkur svæðisins felst skv. skýrsl-
unni í almennt góðri þekkingu
fólks í tölvunotkun, sem er grund-
vallaratriði gagnvart möguleikum
til uppbyggingar Ijar- og gagna-
vinnslu í framtíðinni. Eyjaljarðar-
svæðið er sterkast í þáttum eins og
í samgöngum, samfélagslegri þjón-
ustu og framboði á húsnæði en til-
tölulega veikt hvað varðar sér-
Frá særðum ref
INGÓLFUR
w... ARMANNS
SON
MENNINGARFULLTRÚI AKUREYRARBÆJAR
SKRIFAR
í grein í Dagi 20. maí sl. dregur
Óli G. Jóhannsson, myndlistar-
maður, mjög í efa sannleiksgildi
leiðréttinga sem undirritaður
sendi frá sér vegna fyrri skrifa Óla
G. og Ragnars Lár. um starfsemi
Listasafnsins á Akureyri og segir
raunar á einum stað „Allar stað-
hæfingar Ingólfs menningarfull-
trúa eru því rangar". Ljótt er ef
satt er. Þar sem Óli G. er áfram
með fullyrðingar sem ekki eru að
öllu Ieyti réttar, þá verð ég að ít-
reka að fyrri leiðréttingar frá und-
irrituðum eru réttar enda byggðar
á þeim gögnum sem fyrir Iiggja frá
Listasafninu.
ÓIi G. vísar í sýningar sem verði
síðar á þessu ári og séu settar upp
í samvinnu við art.is í Reykjavík.
Þetta er rétt, en samningar um
þær sýningar voru gerðir í tíð fyrr-
verandi forstöðumanns enda yfir-
leitt nauðsynlegt að vinna upp
sýningaáætlanir fyrir Listasöfn
með löngum fyrirvara.
Hvað varðar kaup á vegum
Listasafnsins á listaverkum, þá
liggur það fyrir í bókhaldi bæjarins
að engar greiðslur hafa ennþá ver-
ið bókaðar vegna slíkra kaupa frá
því að núverandi forstöðumaður
tók til starfa um mitt sl. ár.
Ég get alveg tekið undir þær
skoðanir sem fram koma hjá Óla
G. að ástæða sé til að gera greinar-
mun á myndlistarmönnum frá Ak-
ureyri og myndlistarmönnum á
Akureyri. Þó er ljóst að stundum
eru þessi mörk ekki mjög skýr, t.d.
hjá listamönnum með lögheimili
hér á Akureyri sem eru þó Iang-
dvölum annars staðar við sína Iist-
sköpun. I upptalningunni í leið-
réttingum mínum voru því þessir
listamenn teknir saman. Þá er það
staðhæfingin í leiðréttingunum
urn „að engin málverk hafi verið
flutt úr geymslum Listasafnsins".
Óli G. segir að í Ketilhúsinu séu
listaverk úr geymslum Listasafns-
ins. Verkin sem hann vísar til í
Ketilshúsi eru væntanlega 3 stórar
Ijósmyndir sem voru á Lostasýn-
ingunni og viðkomandi listamaður
bað um að yrðu geymdar fyrir sig
nokkurn tíma þar til hann tæki
þær til sín. Þær myndir voru því
ekki fluttar úr geymslum safnsins
því að þangað höfðu þær aldrei
komið.
Ég vona að þessar viðbótar skýr-
ingar séu nægjanlegar til að stað-
festa að ekki var farið með rangt
mál í fyrri leiðréttingum mínum.
Ef einhverjir óska nánari skýringa
eða upplýsinga um þcssi mál
bendi ég viðkomandi á að hafa
samband við undirritaðan eða for-
stöðumann Listasafnsins.
fræðiþekkingu, ekki sfst sérfræði-
lega tungumálaþekkingu. Tækni-
legir þættir sem snúa að gagna-
flutningum eru svæðinu einnig
(jötur um fót en þar er um að ræða
háa verðlagningu þessarar þjón-
ustu almennt á landsbyggðinni.
Heilbrigðisgeirinn
Rannsóknarverkefnið að baki
skýrslunni skilaði banka af verk-
efnahugmyndum, sem mögulegt
er að vinna frekar með og fram-
kvæma í framtíðinni, sum í allra
nánustu framtíð. Verkefnin eru
alls 45 og eru þau talin upp í
skýrslunni en 16 komu best út úr
mati en þijú verkefni voru valin til
umijöllunar í skýrslunni. Verkefii-
unum þremur er lýst ítarlegar í
skýrslunni en berlega má sjá af
hugmyndalistanum í henni að
möguleikar virðast miklir hvað
snertir verkefni á heilbrigðissvið-
Stvrkir hugmyndir um
flutning verkefna
Matið á stöðu Eyjaljarðarsvæðis-
ins var meðal annars framkvæmt
með ítarlegum viðtölum við fjölda
valinkunnra einstaklinga á svæð-
inu, auk þess sem leitað var til
fjölda aðila með svokallaðar opnar
spurningar. Það er mat skýrslu-
höfunda að með skýrslunni hafi
verið settar fram upplýsingar sem
styrki rökin fyrir því að ríkisstofn-
anir og aðrir aðilar skoði af fullri
alvöru að flytja verkefni frá höfuð-
borgarsvæðinu til Eyjaljarðar. Rétt
er einnig að nota skýrsluna til að
vinna ítarlegri greiningu á þvf
hvernig Eyjafjarðarsvæðið geti
byggt upp atvinnugreinar sem nýti
möguleika upplýsingatækninnar
til að skapa sér forskot í sam-
keppni, ekki aðeins á Islandi hcld-
ur á alþjóðlegum vettvangi. — BÞ
Selló - og píanó
Föstudaginn 26. maí efndi selló-
leikarinn Nicole Vala Cariglia til
tónleika í Safnaðarheimili Akur-
eyarkirkju. Meðleikari hennar á
flygil í seinni hluta tónleikanna
var Arni Heimir Ingólfsson.
Nicole Vala Cariglia hefur lokið
B-Mus námi frá New England
Conservatory of Music og er við
nám til masters-
gráðu við sama
tónlistarskóla.
Ami Heimir Ing-
ólfsson hefur
lokið B-Mus
gráðu við Tón-
listarháskólann í
Oberlin en er í
doktorsnámi við
Harvard háskól-
ann.
Efnisskrá tón-
leika Nicole
Völu Cariglia
hófst á Einleiks-
svftu nr. 4 íEs-dúr eftir Jóhann
Sebastian Bach. Verkið allt Iék
Nicole Vala af öryggi og hina sex
kafla þess á viðeigandi hraða.
Sérlega var ánægjuleg frammi-
staða hennar í hinum hröðu
Iokaköflum verksins, númer
fimm og sex, Bourrée I-II og
Gigue, þar sem til dæmis trillur
voru fallega útfærðar og víða fal-
lega unnið í túlkun. I fyrstu köfl-
um verksins, Prélude og AUem-
ande, var tónn nokkuð mikið
grófur og flatur; einkum í hinum
fyrri, og var sem spenna væri í
flutningi, sem olli því að hið
söngræna skorti í blæ leiksins.
Annað verkið á efnisskrá var
Svíta fyrir einleiksselló eftir
Caspar Cassadó. Þetta er nú-
tímalegt verk byggt á spönskum
dönsum. Verkið er verulega for-
Nicole Vala Cariglia og Árni
Heimir Ingólfsson.
vitnilegt. í því bregður fyrir í því
ýmsum skemmtilegum hrifum
svo sem blæ sígaunatónlistar og
jafnvel brag sekkjapípunnar.
Nicole Vala Cariglia lék fyrsta
kafla verksins, Prelude-Fantasfa,
afverulegum hita og innlifun.
Annar kaflinn Sardana (Danza)
fór að mestu vel úr hendi, en í
honum komu þó fram nokkrir
gallar einkum í tóntaki. Þriðji og
síðasti kaflinn, Intermezzo e
Danza finale, var hins vegar fag-
urlega fluttur, blæbrigðaríkur og
hrífandi, og þá ekki síst síðasti
hluti hans, þar sem leikur Nicole
Völu var sem næst glæsilegur.
Eftir hlé flutti
Nicole Vala
Cariglia hina
miklu Sónötu
fyrir selló og pí-
anó í F-Dúr eftir
Johannes
Brahms. I flutn-
ingi þessa verks
naut húntrausts
atfylgis Árna
Heimis Ingólfs-
sonar, píanóleik-
ara. Samleikur-
hljóðfæraleikar-
anna tveggja var
afar náinn, nákvæmur og fagur-
lega útfærður.Hinir fjórir kaflar
verksins, fórust þeim mjög vel úr
hendi og má segja, að þau Nicole
Vala og Árni Heimir hafi eflt
hvert annað í því að ná fram hrif-
um þess og tekist það mjög vel.
Leikur Nicole Völu einkenndist
af miklu öryggi, fallegum blæ-
brigðum og þróttugum en þó
hvergi grófum leik. Árni Heimir
býr að þeim þrótti og næmni,
sem hæfði verkinu. Leikur hans
var ákveðinn, öruggur og ætíð í
góðu samræmi við sellóið.
Nicole Vala Cariglia og Árni
Heimir Ingólfsson eru greinilega
upprennandi tónlistarmenn,
sem vert er að veita fulla eftir-
tekt. Um þetta báru tónleikarnir
í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju glöggt vitni.
Útskrift hjá VMA
Þessi friöi hópur nemenda útskrifaðist nýlega frá Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Nokkur orð vegna skrlfa Öla G.
SIGURÐUR JÓNSSON
SKRIFAR
Óli G. Jóhansson hefur í tveimur
blaðagreinum, þann 31. Mars og
20. Maí, borið Gilfélagið sökum,
vænt það um metnaðarleysi og
subbuskap og látið að því liggja að
misferli hafi átt sér stað með 13
milljónir kr. af almannafé, við
framkvæmdir í Ketilhúsinu. Af
þessu tilefni skal eftirfarandi kom-
ið á framfæri.
Bókhald Gilfélagsins er endur-
skoðað af fyrirtækinu PriceWater-
houseCoopers ehf. og ársreikning-
ar þess lagðir fyrir Akureyrarbæ á
hverju ári. Ekki hefur fundist neitt
tilefni til athugasemda um fjár-
reiður félagsins, en endurskoðand-
inn lét þess getið við lok síðustu
endurskoðunar að Gilfélagið væri
vel rekið félag.
Akureyrarbær lét, að frumkvæði
Gilfélagsins, gera úttekt á fram-
kvæmdum í Ketilhúsinu og með-
ferð fjármuna í því sambandi.
Magnús Garðarsson, tæknifræð-
ingur hjá bænum, gerði þessa at-
hugun og fann ekkert sem gaf til-
efni til athugasemda. Nákvæm
sundurliðun kostnaðar við hvern
verkþátt framkvæmdanna liggur
fyrir, þar sem gerð er ítarleg grein
fyrir notkun þeirra Ijármuna sem
Gilfélagið hefur fengið frá Akur-
eyrarbæ til uppbyggingar Ketil-
hússins.
Útigangsfólk hefur aldrei hreiðr-
að um sig í Ketilhúsinu og aldrei
átt greiðan aðgang að því eins og
Óli heldur fram, enda ekki vitað til
að útigangsfólk hafist við á Akur-
eyri.
Óli Iýsir sóðaskapnum í Ketil-
húsinu á ákveðnum degi snemma
árs 1999, sem dæmi um metnað-
arleysi Gilfélagsins. Hið sanna er,
og það vissi Óli þegar þá, að brot-
ist var inn í Ketilhúsið og salurinn
svínaður út af innbrotsmönnum.
Listaverk úr geymslum Lista-
safnsins á Akureyri hafa aldrei ver-
ið geymd í Ketilhúsinu, né heldur
önnur verk í eigu safnsins eða Ak-
ureyrarbæjar.
Greinaskrif Óla G. Jóhannsson-
ar og viðbrögð þeirra sem hann
veitist að, vekja fyrst og fremst
spurningar um trúverðugleika.
Hverjum ber að trúa? Óla G.
eða þeim sem treyst hefur verið til
að veita Listasafninu á Akureyri
forstöðu?
Óla G. eða safnráði Listasafns-
ins á Akureyri?
Óla G. eða Gilfélaginu, sem er
treyst til að reka menningarmið-
stöð í Listagili?
Óla G. eða löggildum endur-
skoðurum PriceWaterhouseCoop-
ers ehf?
Óla G. eða Magnúsi Garðars-
syni?
Óla G. eða Ingólfi Armanns-
syni?