Dagur - 26.08.2000, Síða 2
18
LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000
HELGARPOTTURINN
Rithöfundurinn og stórforsljórinn Ólafur Jó-
hann Ólafsson er nú kominn í landvinninga
hér á heimaslóð, og það í orósins fyllstu merk-
ingu, en á dögunum keypti hann jörðina Götu í
Hrunamannahreppi í Arnessýslu. Nú hefur
hann bætt um betur í þessari kaupsýslu sinni
og hefur brytjað jörðina niður í átta parta og selt
sjö hluti til vina sinna. Þess utan munu þeir svo
sameinast um vissa aðstöðu meðal annars til að
stunda hestaíþróttir. Meðal vina Ólafs sem eru
með honum í þessu dæmi eru meðal annars
Gunnar Steinn Pálsson almannatengil,
Valdimar Harðarson arkitekt og fleiri.
Annar forstjóri hefur einnig staðið í jarðakaupum
að undanfömu. Það er Sunnlendingurinn Jón
Sigurðarson forstjóri Össurar, sem nýlega
keypti jörðina Múla í Biskupstungum. Jörðin
Múli er allstór og fylgja henni meðal annars fjöll
sem sjást víða að á Suðurlandi. Þar fyrir utan
fylgir ýmislegt lausafé jörðinni í þessum kaupum,
til dæmis áttatíu hross - sem komin eru undan
ofurfolanum Kormáki frá Kjamholtum.
Þegar Björk Guðmundsdóttir gekk upp
rauða dregilinn í Cannes fvortil aðvera viðstödd
afhendingu Gullpálmans, var við hliðina á henni
Ijóshærð ung kona, sem hélt sig ávalt í hæfilegri
fjarlægð og gætti þess að skyggja ekki á
Björku. Konan unga .heitir Andrea Helga-
dóttir og hefur verið „besta vinkona" Bjarkar
um árabil. Reyndar er Andrea ekki bara vin-
kona, hún hefur starfað hjá Björku árum saman
og meðal annars verið tengiliður hennar við fjöl-
miðla á íslandi. Síðustu vikur hefur Andrea ver-
ið ein og Bjarkarlaus á opinberum samkomum í Reykjavík og herma áreið-
anlegar heimildir Helgarpottsins að hún sé hætt að vinna fyrir Björku.
Ástæður þessa eruókunnar, en heyrst hefur að hún sé búin að fá nóg af
því að vera aðstoðarkona Bjarkar og ætli að gera eitthvað sjálf.
Snemma í október verða teknir til sýninga í
Sjónvarpinu þættirnir Aldahvörf - sjávarútveg-
ur á tímamótum sem Páll Benediktsson
fréttamaður hefur gert um þessa undirstöðu
atvinnugrein þjóðarinnar. Þættirnir eru átta
talsins og tæpur klukkutími á lengd hver um
sig. Vinnsla þeirra hefur tekið alls þrjú ár og
mikið hefur verið lagt undir, myndefnis m.a.
verið aflað í tuttugu löndum - eða hvarvetna
þar sem íslenskur sjávarútvegur kemur við
sögu sem sýnir hve alþjóðleg þessi grein er. Á
vegum fýrirtækis síns Arcticfilm, framleiðir Páll þessa þætti, en hann fékk
á sínum tíma leyfi frá störfum sínum á fréttastofu Sjónvarps til að sinna
þáttagerðinni.
í næstu viku er væntanleg úr prentun ritið Lax
og silungur sem fjallar um „matargerðarlist og
veiðigleði” en sá er undirtitillinn. Það er Har-
aldur Ingi Haraldsson, sem lengi var for-
stöðumaður Listasafnsins á Akureyri, sem
setur ritið saman - en það prýðir fjölda mynda
eftir hann, meðal annars af veiðimönnum sem
leggja til uppskriftir - um hvernig best megi
matreiða lax og silung. Meóal þeirra eru
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri á Akur-
eyri, Öm Ámason leikari, Pálmi Gunnars-
son söngvari, söngkonan Diddú og Siv
Friðleifsdóttir umhverfisráðherra og eru þá aðeins nokkur nefnd.
Þegar þetta rit er komið úr prentvélinni mun Haraldur Ingi fara til Fær-
eyja þar sem hann ætlar að afla efnis í sambærilegt rit um lax, silung og
veiðiveröldina í eyjunum átján.
Um síðustu helgi var auglýsing í Morgunblaðinu
þar sem auglýst var eftir blaðamanni til starfa við
nýtt tímarit fyrir karlmenn. Pottverjar fóru á stúf-
ana og heyrðu því fleygt að þarna væri Þórar-
inn Jón Magnússon á ferðinni - og á hann
sér víst þann draum heitastan að endurvekja
gamla Samúel. Fyrir rekur hann karlablaðið
Heimsmynd - Menn - auk fleiri blaða af ýmsum
toga.
Mikið hefur verið að pera hjá gítarieikaranum
og stórsöngvaranum Áma Johnsen að undan-
fömu, sem hefur á hverri útisamkomunni á fæt-
ur annarri slegið gígjustrengina og sungið með
sinni einstöku rödd Göllavísurnar og nú slðast
tóóðsönginn I nýrri útsetningu sinni. Frægðarför
Ama Johnsens hófst á þjóðhátíð í Eyjum í
byrjun mánaðarins en eftir það hefur hann
sungið og leikið á Blómstrandi dögum í Hvera-
gerði, áTóðugjöldum á Hellu og Dönskum dög-
um í Stykkishólmi, Það er því Ijóst að vegur Árna
er stórum að aukast sem og vinsældirnar og ætti það að vera nokkur sára-
bót eftir að hafa verið í fyrra sá þingmaður sem fékk flestar útstrikanir.
Þórarinn Jón
Magnússon.
Páll Benediktsson.
Biörk Guðmundsdóttir.
Jón Sigurðarson.
Gerír hlutina
einfalda
Henriette rekur bókverkagallerí, það eina sinnar tegundar í heiminum ásamt
félögum sínum og er ein af prófessorum Dieter Roth Akademíunnar.
í dag verður opnuð myndlistarsýn-
ing í Kompunni á Akureyri á verk-
um Henriette Von Egten frá
Hollandi. Hettý, eins og hún er
kölluð, hefur undanfarin tuttugu ár
komið reglulega til Islands og haft
búsetu á Hjalteyri, þar sem hún
ásamt félaga sínum Jan Voss eiga
hús sem þau keyptu í sameiningu
fyrir jafnmörgum árum. Þetta er
þriðja sýning Hettý á Akureyri, en
fyrsta sýning hennar var samsýning
ásamt þeim Erlingi Ingvarssyni,
Kristjáni Guðmundssyni og Jan
Voss árið 1979, tveimur árum síðar
hélt hún einkasýningu í Rauða hús-
inu. Hettý segir Island óneitanlega
hafa haft áhrif á líf hennar og list
og kemur það glöggt fram í verkum
hennar sem sýnd eru í Kompunni.
Þar notar hún póstkort með mynd-
um af þekktum stöðum úr íslenskri
náttúru sem hún hefur safnað
gegnum tíðina. Póstkortin limir
hún á pappír með þó nokkru milli-
bili og málar svo í eyðurnar á milli
kortanna og tengir þannig kortin
saman svo myndin fær fallegan
heildrænan svip. Hettý segist vilja
sýna fram á að það er hægt að ein-
falda hlutina ennþá meira heldur
en gert er, lífið sé allt of flókið hvort
sem er.
Bókverkagallerfið
Síðastliðin fjórtán ár hefur Hettý
ásamt þeim Rúnu Þorkelsdóttur
og Jan Voss rekið bóksöluna,
bókaútgáfuna og bókverkagalleríið
Boekie Woekie í hjarta Amster-
damborgar og er það það eina
sinnar tegundar í veröldinn sem
vitað er um. Þar eru sýndar og
seldar bækur sem gerðar hafa ver-
ið af listamönnum um allan heim
ásamt þeim sjálfum, samtals yfir
þúsund verk, auk þess eru haldnar
reglulegar sýningar á verkum
listamanna. Þar má einnig finna
mikið úrval af póstkortum eftir
ýmsa listamanna. Hettý segir að
Boekie Woekie gangi vel, þau fari
árlega með kynningu á útgáfunni
á bókaráðstefnu f Frankfurt og
stöðugt bætist við viðskiptavinir
og nú eftir að netið kom til sög-
unnar séu möguleikarnir óendan-
legir.
Akademían
f maí síðastliðnum komu saman í
Basel í Sviss, fimmtán samstarfs-
menn og vinir svissneska lista-
mannsins og íslandsvinarins Dieter
Roth, þar af átta íslendingar, til að
stofna Akademíu Dieter Roth, en
hann lést árið 1998. Hettý er ein úr
hópi prófessoranna eins og þeir
kalla sig og segir að meiningin sé að
taka á móti áhugasömu fólki um
list og listamönnum og deila með
þeim visku sinni og reynslu og
kynna þau fyrir áhugaverðu fólki.
Nemendur fái diplómu frá Akadem-
íunni eftir að hafa heimsótt alla
prófessorana fímmtán. Það geti því
tekið nokkur ár að fá diplómuna,
þar sem prófessorarnir séu búsettir
út um allan heim. Nemendur geta
komið hvenær sem er j'fír árið, það
eru enginn tímatakmörk, einu skil-
yrðin eru þau að þau komi sér sjálf
á staðinn og útvegi sér samastað.
Kompan er staðsett í vinnustofu
Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur, lista-
konu í Listagili, Kaupvangsstræti
24 á Akureyri og verður sýningin
opnuð kl. 16.00. -w
Hörður Geirsson.
■J.M.III.lUIHIIJI.'MiUilJIIMJIIIMJAHSIII
Hörður Geirsson flugáhugamaður leitaði í 20 ár að
breskri flugvél sem fórst í seinni heimsstyrjöldinni í
jökli við Eyjafjörð. Hann fann hana í fýrra. í vikunni
kom síðan heilmikil sveit breskra hermanna til að
endurheimta líkamsleifar og dót þeirra sem fórust
með flugvélinni og Hörður fór með þá á staðinn. Fyrir
þrautseigju sína hefur hann uppskorið ævarandi
þakklæti Breta eins og áhugi bresku pressunnar
staðfestir, og fyrir þessa þrautseigju verðskuldar
hann að vera maður vikunnar.