Dagur - 26.08.2000, Blaðsíða 18
I
34 - LAUGARDAGUR 26. ÁGÚST 2000
D&gut-
Snillingurinn
Charlie Chaplin átti
skrautlegan feril í
kvennamálum og
lenti í alls kyns
klandri í samskipt-
um sínum við hitt
kynið, þar til hann fann loks
hamingjuna hjá Oonu sinni.
Charlie Chaplin var mikill kvennamaður
og taldi sig sérlega vel til þess fallinn að
gagnast konum enda kallaði hann sjálfan
sig áttunda undur heims og taldi sig vera
mannlega kynlífsvél. Fyrsta ástin í lífi
hans var fimmtán ára dansmær Hetty
sem hann kynntist þegar hann var nítján
ára. Hún giftist seinna enskum hermanni
og lést einungis tuttugu og fimm ára
gömul.
I HoIIywood varð Chaplin ástfanginn af
mótleikkonu sinni Ednu Purviance en
hún lék á móti honum í þrjátíu og fimm
kvikmyndum. Þar sem Chaplin hreifst
mjög auðveldlega af fögrum konum átti
Edna í mesta basli við að halda athygli
hans en hrá ætíð á það ráð að falla í yfir-
lið veitti hann öðrum konum áberandi at-
hygli. Þegar Edna átti í stuttu ástarævin-
týri með giftum manni sleit Chaplin sam-
bandi þeirra. Edna giftist aldrei.
Chaplin hreifst ekki af neinum konum
eins og unglingsstúlkum. Mildred Harris
var fjórtán ára þegar þau Chaplin hittust,
hann var þrettán árum eldri. Hún hafði
unnið fyrir sér sem kvikmyndaleíkkona
frá tíu ára aldri. Móðir Mildredar hvatti
dóttur sína mjög til að gerast ástkona
Chaplins og þegar Mildred var sextán ára
lilkynnti móðir hennar Chaplin að dóttir
sín væri ólétt eftir hann. Chaplin sá ekki
annan kost en að giftist henni en
skömmu eftir giftinguna komst Mildred
að því að hún átti ekki von á barni. Hjón-
unum samdi ekki sérlega vel og Chaplin
kvartaði undan því við vin sinn að
Mildred væri engin andleg þungavigtar-
kona. Eftir tveggja ára hjónaband fæddi
Mildred son sem var svo vanskapaður að
hann minnti mest á skrimsli. Drengurinn
lifði einungis í þrjá daga. Hjónin skildu
nokkrum mánuðum síðar.
Þvingaður í hjónaband
Um tíma hélt Chaplin sig við konur sem
voru á svipuðum .■ ic!r< en hann, þar á
meðal Polu Negri en svo varð hann ást-
langinn af Lillitu Murray, sem tók sér
nafnið Lita Grey. Chaplin hafði fyrst séð
hana þegar hún var sjö ára gömul. Hún
var engill í mynd hans The Kid og þjón-
ustustúlka í Idle C siss, I iún var fimmtán
ára þegar hún gerðíst ástkona Chaplins
og ekki leið langur tími þar til móðir Litu
sagði Chapiin að hann hefði barnað Litu.
Chaplin stakk upp á þvi að hún færi í
fóstureyðingu. Hún neitaði því. Afi henn-
ar kom á fund Chaplins með byssu og
hafði í hótunum við hann. Chaplin bauð
henni offjár ef hún giftist einhverjum
öðrum en hún sagðist ekki vilja neinn
nema hann. Frændi Litu blandaði sér þá
í málið. flann var lögfræðingur og sagði
að Lita myndi fara ' barnsfaðernismál
gegn Chaplin en það myndi aftur lciða til
fangelsisdóms þar sem saknæmt var að
eiga mök við stúlku undir átján ára aldri.
Chaplin átti engan annan kost en að gift-
ast henni. „Jæja, strákar, þetta er betra en
fangelsisvist en þetta mun ekki endast,“
Oona O'Neil var siðasta eiginkona Chaplins. „Ef
ég hefði kynnst Oonu eða konu eins og henni
fyrir iöngu þá hefði ég aldrei átt i neinum vand-
ræðum með konur, “ sagði Chaplin.
sagði Chaplin við vini sína eftir brúð-
kaupið.
Lita fæddi Chaplin tvo syni með
tæplega árs milíibili. En hcimili
Chaplins var ekki lengur hans eigið
heimili. Ættingjar Litu troðfylltu heim-
Lita Grey ásamt sonum þeirra Chaplins. „Jæja, strákar, ilið og héldu þar villt partý hvenær
þetta er betra en fangelsisvist en þetta mun ekki end- scm færi gafst. Kvöld eitl kom Chaplin
ast “saaði Chaplin við vini sína eftir brúðkaupið. heim eftir erfiðan vinnudag og fann
’--------------------— " húsið fullt af fyllibyttum. Hann reifst
við konu sína sem yfirgaf heimilið ásamt
ungum börnum sínum og fyllibyttunum.
Lita sótti um skilnað og Chaplin fékk
taugaáfall. Kona hans fóðraði slúðurblöð
á sögum af hjónabandi sínu. Þar kom
fram að Chaplin hafði lesið úr „siðlaus-
um“ bókum fyrir Litu, eins og Elskhuga
Lady Chatterleys sem þá var bönnuð. Við
réttarhöklin sagði hún að Chaplin hefði
stungið upp á því að ung stúlka kæmi
með þeim hjónum í rúmið. Hún sagði að
þegar hún hefði neitað boðinu hefði
Chaplin æpt að sér: „Bíddu bara, ég missi
stjórn á mér einn daginn og drep þig.“
Lögfræðingar Litu hótuðu að opinbera
nöfn fimm leikkvenna sem þeir sögðu að
Chaplin hefði haft náin kynni af meðan
hann var í hjónabandi, en í hópi þeirra
var Marion Davies ástkona blaðakóngsins
Rudolph Hearst. Chaplin samþykkti að
greiða Litu háa fjárupphæð og gengið var
frá skilnaðarmálinu án þess að fjölmiðl-
um væri frekar blandað í málið. Málið
hafði fengið svo á Chaplin að hár hans
varð hvítt á skömmum tíma og hann varð
að lita það svart til að geta haldið áfram
leik í mynd sinni Sirkusinn.
Málsókn og hamingja
Næsta eiginkona Chaplins var leikkonan
Paulette Goddard sem var mörgum árum
yngri en hann en samt engin táningur.
Þau skildu eftir sex ára hjónaband.
Skömmu síðar var Chaplin enn í
kvennaklandri. Hann hafði ráðið til starfa
íyrir sig unga konu, Joan Barry en var óá-
nægður með hana og lækkaði við hana
kaupið. Joan mætti heim til hans á að-
fangadag og veifaði skammbyssu en sam-
skiptin enduðu í ástarleikjum á hjarnar-
skinni lyrir framan arineld. En þegar
Joan mætti heim til leikarans nokkrum
dögum síðar lét Chaplin lögguna hirða
hana. Nokkrum mánuðum eftir það var
komið að henni þar sem hún var að klifra
inn um glugga á heimili Chapiins. Henni
var stungið í fangelsi í mánuð. Þegar hún
Iosnaði fann hún annað ráð til að koma
sér á framfæri. Hún kom þjótandi inn á
skrifstofu slúðurdrottningarinnar Heddu
Hopper og sagðist ganga með barn
Chaplins. Hedda sem leit á Chaplin sem
kommúnista og landráðamann setti frétt-
ina á forsíðu. Chaplin frestaði hrúðkaupi
sínu og hinnar sautján ára gömlu Oonu
O’Neill. Joan fór í barnfaðernismá).
Chaplin neitaði að vera faðir að barninu
en samþykkti að fara í blóðprufu. Joan
fæddi stúlkubarn en blóðpufur sönnuðu
að Chaplin var ekki faðirinn. Þess má
geta að á þessum tíma var Chaplin á
kvikmyndahátið sem haldin var í Moskvu.
Bússar hófu hátíðina með því að kenna
Trostkýislum um vandræði Chaplins.
Sennilega er það í eina skiptið sem
Kremlarveldið hefur skipt sér að kynlífs-
hneyksli í Hollywood.
Chaplin giftist Oonu sinni. Þau sett-
ust að f Sviss og eignuðust átta hörn.
„Ef ég hefði kynnst Oonu eða konu eins
og henni fyrir liingu þá hefði ég aldrei
átt í neinum vandræðum með konur,“
sagði Chaplin. „Alla ævi beið ég eftir
henni án þess að gera mér grein fyrir
því.“
Gamanleikarinn Stan Laurel sagði að
Chaplin hefði alltaf verið að leita að
ævintýraprinsessum. „Takið eftir því,“
sagði Laurel, „að hann giftist aldrei
þroskuðum konum sem hefðu raun-
verulega getað hjálpað honum og heföu
hæft honum. En í Oonu O’Neil fann
hann loks ævintýraprinsessuna sfna og
þau lifðu hamingjusöm til æviloka. Mér
finnst samband þeirra ein mesta ástar-
saga sögunnar."