Dagur - 01.11.2000, Qupperneq 1
(
Leyndyfír kostn-
aði Sj onvarpsins
HvorM fæst gefid upp
hjá Sjónvarpinu né
Páli BenediMssyni
hver kostnaður RIJV
er vegna sjávarútvegs-
þáttanna.
Forseti Farmanna- og fiski-
mannasambandsins sakar Pál
Benediktsson frcttamann um
óvönduð vinnubrögð og hags-
munagæslu í sjónvarpsþáttunum
„Aldahvörf - sjávarútvegur á
tímamótum". Ekki fæst uppgefið
hverjir kosta þáttinn og hve mik-
ið framlag hvers og eins er.
Framkvæmdastjóri Ríkisútvarps-
ins segist ekki geta upplýst hve
mikill kostnaður RÚV sé vegna
þessara þátta.
Búið er að sýna 3 þætti af 8 í
Sjónvarpinu og hafa þeir vakið
umtal og athygli. Grétar Mar
kallar dagskrárgerðina „hroða-
Iega“ og kallar eftir rödd sjó-
manna, sem hann segir nánast
alveg vanta. Hann veltir upp
spurningum um trúverðugleika
Páls: „Það sem stendur í mér er
að fá upplýsingar um hverjir
kosti þessa þætti. Það er sagt að
SÍF, LÍÚ, Sölumið-
stöðin, sjávarútvegs-
ráðuneytið, Ríkissjóður
og Sjónvarpið greiði
þetta en ég fæ ekki
sundurliðun á þessum
kostnaði og það finnst
mér alvarlegt. Mér
finnst skrýtið að Sjón-
varpið beri því við að
þetta sé trúnaðarmál,"
segir Grétar Mar.
Er að borga til baka
Forseti farmanna- og
fiskimannasambands-
ins telur að Páll dragi
mjög taum útgerðarinnar og að
auki sé hann illa að sér í sögu ís-
Iensks sjávarútvegs. Hann segir
að ncikvæðu hliðarnar við kvóta-
kerfið komi hvergi fram sbr.
byggðamálin. „Páll er að borga til
baka fjárstuðninginn við gerð
þáttanna,“ segir Grétar Mar.
Hörður Vilhjálmsson, fram-
kvæmdastjóri Sjónvarpsins, sagð-
ist ekki geta svarað Degi neinum
spurningum um kostn-
að RÚV við verkefnið.
„Mér var tjáð að geng-
ið væri þannig frá því
við Pál að við gætum
ekki gefið þetta upp,“
segir Hörður. En er
Sjónvarpið sem opin-
ber stofnun ekki skyl-
dug til að gefa þessar
upplýsingar? „Mér er
ekki alveg kunnugt um
það, ég vil a.m.k. ekki
taka þá persónulegu
ábyrgð að gefa þetta
upp þar scm þessi fyr-
irvari er fyrir hendi,“
segir Hörður en ítrekar þó að
þáttur Sjónvarpsins sé lítill mið-
að við heildarkostnað.
Páll Benediktsson vísar á hinn
hóginn á Sjónvarpið, spurður
sömu spurninga og Hörður: „Ég
vil helst ekkert tala um hvernig
þessi fjármögnun skiptist. Það er
Sjónvarpsins að gefa upp þeirra
framlag,“ segir Páll.
Algjörlega hlutlaus
En það skýtur skökku við að þið
vísið háðir hvor á annan?
„Já, já en ég hef margoft sagt
að þessir þættir séu kostaðir af
stórum fS'rirtækjum og samtök-
um í sjávarútvegi með sérstökum
styrk frá ríkisstjórn og greiðslu
Sjónvarpsins fyrir sýningarrétt.
Þetta er nokkuð jöfn skipting,"
segir Páll og getur þess sérstak-
lega að hlutur LIU sé innan við
10%. Hvað gagnrýni Grétars
Mars á cfnistökin varðar segir
Páll: „Eg tek ákaflega lítið mark á
henni. Það liggur fyrir skrifleg yf-
irlýsing frá öllum þeim sem
styrktu þættina um að þeir hafi
engin áhrif á efnistökin.... Eg
vísa þessu til föðurhúsanna og
kæri mig ekkert um að munn-
höggvast frekar við Grétar Mar.“
- BÞ
Páll Benediktsson:
„Ég vil helst ekkert
tala um hvernig
þessi fjármögnun
skiptist.
Aukablað-
Glerártorg
Dagur
cr venju
fremur
stór í
dag
vegna
þess að
blaðinu
fylgir
auka-
hlað um
Glerár-
tog,
nýju verslunarmiðstöðina sem á
morgun verður opnuð á Akur-
eyri. Þessi verslunarmiðstöð
markar ákveðin þáttaskil í
verslunarmálum á landsbyggð-
inni, en hún er sú stærsta sinn-
ar tegundar utan höfuðhorgar-
svæðisins. I tengslum við út-
komu aukahlaðsins er heimilum
á Norður- og Austurlandi kynnl
útgáfa Dags með sérstakri dreif-
ingu á svæðið.
OPNUNARHATIÐI
oí Olmrártargi 2. nAt/mmbmr
1—1 "±^2 ISP- hnfl .
Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra tilkynnti í gær þá ákvörðun sína að heimila innflutning á norskum kúafóst-
urvísum með ákveðnum skilyrðum. Ráðherrann kynnti málið í fjósinu á Stóra- Ármóti í Flóa og hér heilsast
ráðherrann og Þórólfur Sveinsson, formaður Landssambands kúabænda. mynd: áþ
Horfur eru á að talsverðar breyt-
ingar verði á þessari húsaröð ef
efsta húsinu, Alþýðuhúsinu verður
breytt í Hótel.
Alþýðu-
húsið
stoMtar
upp
Stjórn Alþýðuhússins við Hverf-
isgötu í Reykjavík hefur sagt upp
öllum lcigusamningum við þá
scm leigt hafa aðstöðu f húsinu.
Ottar Yngvason stjórnarformað-
ur Alþýðuhúss Reykjavfkur ehf
segir að verið sé að losa þessa
leigusamninga fyrir komandi
vor. Það sé gert til að hafa meiri
„sveigjanleika" fyrir ráðstöfun á
húsinu og hugsanlega sölu á því.
Húsið er um 2 þúsund fermetr-
ar að stærð og var byggt í upp-
hafi fjórða áratugarins af reyk-
vískum stéttarfélögum og er
samofið sögu þeirra. Miðað við
að söluverð á fermetra í skrif-
stofuhúsnæði sé um 100 þús-
und krónur má gera ráð fyrir að
húsið seljist á 200 milljónir
króna cf ekki meir vcgna stað-
setningar þess við miðbæinn.
Kannski breytt í hótel
Óttar segir að hugmyndin um
hugsanlega siilu á húsinu sé
búin að vera við Iýði í mörg ár,
enda hafa margir lýst yfir áhuga
að kaupa það á síðustu tveimur
árum. Í það minnsta séu alltaf
að koma einhver tilhoð í það.
Hann segir að ýmsar hugmyndir
hafi komið fram um framtíðar-
notkun á því og m.a. að breyta
því í hótel. Hins vegar hafa eng-
ar ákvarðanir verið teknar í þeim
efnum. Um 70 - 80 einstakling-
ar eru hluthafar f hlutafélaginu
sem á Alþýðuhúsið auk þess scm
nokkur verkalýðsfélög eiga smá
hlut í því. Það er mikil hrcyting
frá því sem áður var þegar Dags-
brún, Sjómannafélag Rcykjavík-
ur og Verkakvennafélagið Fram-
sókn áttu stóra hluti í Alþýðu-
húsi Reykjavíkur þangað til þau
fengu útskipt sínum eignum
fyrir áratug eða svo. - GRH
GAME BOY CoL R
RðDIOWAUST AlötÖ^
Geislagötu 14 • Sími 462 1300 # 1
www.ormsson.il