Dagur - 01.11.2000, Blaðsíða 10
10- MIDVIKUDAGUR 1. N Ó V E MII E R 2000
FRÉTTASKÝRING
Undan feldi með
norska fósturvísa
„Það var eins og blessuð skepnan skildi, “ segir í Ijóðinu Skúlaskeið. Það er engu líkara en kýrin á myndinni sé að
hlusta á ræðu Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra til þess að forvitnast um örlög sín og kynsystra sinna, nú
þegar leyfi hefur verið veitt fyrir fósturvísum úr norskum kúm. -uósm A.þ.
í miðjuin fóðurgangi
fjóssins á tilraimabú-
inu að Stóra-Ármóti
tilkynnti landbúnað-
arráðherra að liaim
væri kominn undan
feldi með leyfi til inn-
fLutnings fósturvísa
úr norskum kúm.
Guðni Agústsson landbúnaðar-
ráðherra hefur sagt í allt sumar
og haust þegar hann hefur verið
spurður um hvort hann ætli að
leyfa innflutning á fósturvísum
úr norskum kúm að hann sé
undir feldi að hugsa málið og
muni tilkynna ákvörðunina á
haustdögum. Hann hefur meira
að segja sagt að jieir haustdagar
gætu náð alveg til jóla. En svo
fór þó ekki því í gær kom Guðni
undan feldinum. Og eins og
Dagur skýrði frá í gær, hefur
hann ákveðið að leyfa afmark-
aða tilraun með innflutning á
fósturvísum úr NRF kúastofnin-
um norska. Þessi tilraun getur
leitt í ljós hvort hagkvæmt sé að
taka kýr af þeim stofni eða
blendingsgripi af íslenskum og
norskum stofni til notkunar við
mjólkurframleiðslu á Islandi.
Landbúnaðarráðherra boðaði
til fréttamannafundar í gær þar
sem hann tilkynnti um þessa
ákvörðun sína. Og fundarstaður-
inn var einstakur, Ijósið á til-
raunabúinu á Stóra-Ármóti, sem
er annað búið sem mun annast
um tilraunina eftir að einangrun
í Hrísey líkur en hún tekur tvö
ár. Og ræðustól ráðherra var
komið fyrir í miðjum fóðurgangi
fjóssins að Stóra-Armóti. Þar
stóðu líka fréttamenn og gestir
en kýrnar átu sína tuggu, eða
jórtruðu, sitt hvorum megin við
fréttamenn og ráðherra í sinni
frægu stóísku ró. Ohætt mun að
fullyrða að þetta sé fyrsti frétta-
mannafundur íslandssögunnar
sem haldinn er í miðjum fóður-
gangi í stóru fjósi.
Undan feldinu
Guðni Agústsson bauð gesti vel-
komna og tók fram að hér væri
hann í sinni æskusveit, Hraun-
gerðishreppi. A hans æskudög-
um hafi búið að Stóra-Armóti
þrjú systkini, sem síðar gáfu
jörðina Búnaðarsambandi Suð-
urlands undir tilraunastarfsemi
og nú sé þar rckið myndarlegt
tilraunabú.
„Þetta er draumajörðin í mín-
um huga. Þegar ég var ungur
ætlaði ég að cignast þcssa jörð
og búa hér en hafði aldrei auð
né afl til þess að fara fram á
það, en jörðin er 650 hektarar
að stærð. Glæsilegt land og mik-
il kostajörð," sagði Guðni
Agústsson.
Hann sagðist í dag ætla að
fagna því að hafa átt sína síð-
ustu nótt undir feldinum og
hann hafi sofið vel. Nú ætlaði
hann að efna loforðið við kúa-
bændur um að taka ákvörðun í
hinu umdeilda og erfiða máli
eftir að hafa fengið umsögn allra
helstu stofnana og sérfræðinga
sem málið varðar.
„Eftir ítarlega athugun og um-
hugsun hef ég ákveðið að leyfa
afmarkaða tilraun með innflutn-
ing á fósturvísum úr NRL kúa-
stofninum norska, sem leitt gæti
í Ijós hvort hagkvæmt sé taka til
notkunar gripi af þeim stofni,"
sagði Guðni.
flann tilkynnti Iíka um sér-
stakt ræktunarverkefni með ís-
lenska kúastofninn. Það á að
standa yfir þetta 8 til 10 ára
tímabil sem tiiraunin með
norsku fósturvísana á að standa.
Ríkisstjórn hefur samþykkt að
veita 5 milljónum króna árlega
til þessa tilraunaverkefnis með-
an það stendur.
Tekur 8-10 ár
Tilraunin með norsku fósturvís-
ana fer þannig að fram að eftir
val á sæðis- og eggjagjöfum og
annað sem lýtur að töku erfða-
efnis, sæðingum og fósturvísa-
flutningum, aðstöðu til einangr-
unar, framkvæmd hennar og eft-
irlit með einangrun í sóttvarnar-
stöðinni í Hrísey, skal fara eftir
þeim skilyrðum sem yfirdýra-
Iæknir setur og eru mjög strang-
ar. Einangrunin í Hrísey stendur
yfir í 2 ár.
„Allir vísiudaineim
sem ég hef rætt við og
komið hafa að þessum
málum, hvort sem þeir
vildu styðja tilraimina
eða voru andstæðingar
hennar, hafa tjáð mér
það að með innflutn-
ingi á fósturvísum eigi
að vera lítil sem engin
áhætta um að menn
heri sjúkdóma inn í
þettaland.“
Eftir það verða fósturvísar af
hinum erlenda stofni fluttir á
tilraunabúin að Stóra-Armóti og
MöðruvöIIum, þar sem tilraunir
með framræktun jreirra og
blöndum þeirra við íslenska kúa-
kynið fer fram undir gríðarlega
ströngu eftirliti. Það verður ekki
fyrr en eftir 8 til 10 ár frá byrjun
tilraunarinnar sem niðurstaða
getur legið fyrir. Þá verður tekin
ákvörðun um framhaldið.
Erfitt að standa gegn
Guðni Ágústsson sagði í gær að
beiðni kúabænda hafi aldrei
staðið að því að flytja inn beint
norska kú til þess að verða af-
urðagripur á Islandi. Kúabænd-
ur vildu gera hér markvissa til-
raun í þremur liðum. Þeir vildu
bera saman norska kú, hrein-
ræktaða íslenska kú og síðan
blendingskú 50/50.
„Eg gerði mér strax grein fyrir
j)vf að erfitt yrði að standa gegn
Jressari tilraun og í raun ástæðu
laust. En það sem ég vildi kanna
fyrst og frcmst voru þær fullvrð-
ingar að við værum, upp á fram-
tíðina að gera, að taka áhættu út
af þcim þætti sem neytcndum
þykir vænst um. Það er að þeir
trúa því að íslenska mjólkin sé
góð og hafa talið hana vörn gegn
sykursýki. Nú liggur það fyrir,
eftir að nefnd skilaði til mín áliti
í ágúst, að hægt er að velja fóst-
urvísana með það í huga að við
röskum ekki þessari stöðu, sé
horft til framtíðar. Það vafðist
ekki fyrir mér hvort það væri
áhætta með innflutningi fóstur-
vísa, eftir að allir vísindamenn
sem ég hef rætt við og komið
hafa að þessum málum, hvort
sem þeir vildu styðja tilraunina
eða voru andstæðingar hennar,
hafa tjáð mér jrað að með inn-
flutningi á fósturvísum eigi að
vera lítil sem engin áhætta um
að menn beri sjúkdóma inn í
þetta land. Þess vegna iiggur
Jrað nú fyrir að ég samþykki að
þessi tilraun verði framkvæmd,"
sagði Guðni.
Kálfiun smyglað til landsins
Hann benti líka á að kúabændur
hafi í gegnum árin fengiö að
flytja inn gripi til kjötframleiðslu
af nokkrum kvnstofnum. Því sé
erfitt að standa gegn því að kúa-
bændur fái að gera þessa sam-
anburðartilraun.
„Eg hugsa stundum til |ress að
kannski sé landsnámskýrin okkar
ekki alveg hreinræktuð frá upp-
hafi. Eg minnist j)ess að besti
kúabóndinn hér í minni sveit,
Olafur heitinn í Hjálmholti,
sagði gjarnan að sínar kýr væru
ættaðar úr Viðey frá Eggert
Briem, sem þar bjó. Hann hafði
danskan ráðsmann og sá danski
hafi leikið sér að því að smygla til
landsins kálfum til að kynbæta
íslenska kúakynið. Ekki skíil ég
neitt um þctta fullyrða en stað-
reyndin var að kýrnar í Hjálm-
holti voru stærri og betri en þá
gerðist. Þetta voru afar fallegar
kýr sem mjólkuðu meira en aðr-
ar,“ sagði Guðni Ágústsson.
Sátt nauðsynleg
Landbúnaðarráðherra aflienti
jrví næst þeim Þórólfi Sveins-
syni, formanni kúabænda og Ara
Teitssyni, formanni Bændasam-
taka Islands, bréf upp á það að
tilraunin væri heimil.
Þórólfur Sveinsson sagði í gær
að í landinu væru fjögur kúakyn.
Það er hið íslenska, sem er smá-
vaxið mjólkurkúakyn og síðan
hafi verið llutt inn þrjú holda-
nautakyn, Galloway, Angus og
Limosin. Nú væri komið til-
raunaleyfi fyrir fimmta kynið,
norska NRL mjólkurkúakynið.
Líða muni mörg ár þar til
ákvörðun verður tekin um það
hvort umrætt kyn verði notað
eða ekki. Hann lýsti síðan þeim
áherslum sem lagðar vcrða í
ræktunina og skýrði frá því sem
menn ætluðu að leita eftir.
„Við erum ekki að leggja ofur-
áherslu á það eitt að fá meiri
mjólk. Við viljum fá hrausta gripi,
sem gott cr að umgangast og eru
góðir í framleiðslu," sagði Þórólfur
Sveinsson og fagnaði þeim áfanga
sem náðst hefði og sagöist vonast
til að sátt næðist í málinu sem
nauðsynlegt er að náist. -S.DÓR