Dagur - 01.11.2000, Side 18
8- MIDVIKUDAGUR 1. NÓVEMBER 2000
■ SMÁTT OG STÚRT
UMSJÓN:
Jóhannes
Sigurjónsson
johannes@simnet.is
„Það er gríðarlega
mikil breyting fyr-
ir íslenska þjóð og
íslenska menn-
ingu að fá ])etta
mikla kristniboðs-
starf seni er í
gangi á Omega
inn á sín heimili.
Það er enginn
vafi að það er
bylting í gangi“.
- Guðlaugur Laul-
dal Aðalsteinsson, í
viðtali við Dag.
Kristilegar auglýsingar
Auglýsingamennska hvurs konar er mjög í umræðunni þessa dagana, ekki
síst eftir að fréttir bárust af tilvonandi samstarfi þjóðkirkjunnar og Sam-
taka verslunarinnar á auglýsingamiðum fyrir jólin. Þannig skrifaði séra
Svavar A. Jónsson á Akureyri gagnmerka grein á dögunum í Dag, grein
sem menn ættu að kynna sér, þar sem hann m.a. vakti athygli á því hve
margar auglýsingar væru nú þegar með lúmsku trúarlegu fvafi.
And-auglýsingar
Auglýsingar gegna eingöngu því hlutverki að kynna og selja vöru eða þjón-
ustu með öllum tiltækum ráðum. En þetta er reyndar ekki algilt. Því til
eru örfá dæmi um auglýsingar sem miða að hinu gagnstæða og eru svo
heiðarlegar og sannar að furðu vekur. Þetta á meðal annars við um stór-
merkilegar auglýsingar frá Apótekinu á Húsavík sem hirtust í leikskrám
Leikfélags Húsavíkur fyrir nokkrum áratugum, þegar Apótekinu stýrði lyf-
sali að nafni Helgi Hálldanarson.
Arið 1950 birtist þessi auglýsing í leikskránni: „Húsavíkur Apótek óskar
öllum Þingeyingum gleðilegra jóla, góðrar heilsu á nýja árinu og sem
minnstra viðskipta við Húsavíkur Apótek."
Eliki til sölu!
Og 1959 þegar Lcikfclag Húsavíkur setti upp Delerium Bubonis, birtist
eftirfarandi auglýsing í Ieikskránni: „Hið langþráða undralyf sem læknar
fljótt og að fullu kvef, höfuðverk, hálsbólgu, gigt, umferðarveiki, hvers
konar meltingarkvilla, slen og annað heilsuleysi, er því miður ekki til sölu
í Húsavíkurapóteki."
Þessi dæmi eru auðvitað einsdæmi. En óskaplega væri nú ánægjulegt ef
auglýsingagerðarmenn nútímans hefðu til að bera svo frumlcgan heiðar-
leika eins og þann sem birtist í þessum gömlu auglýsingum. Og hver veit
nema auglýsingar af þessari tegund skiluðu ekkert síðri árangri en hin
hefðbundna flóðbylgja falskra gylliboða sem fyrir dyrum er og skjám.
FÍNA OG FRÆGA FÓLKIÐ
Árið 1997 setti Díana nokkra kjóia sinna á uppboð og gaf ágóðann til líknarmála. Þessa dagana stendur
yfir í Kensington höll sýning á kjólum Diönu.
Priiisessiikj ólar
Þeir sem leggja leið sína til Walker sem var einn af ef’tir- mörgu sem heimsækja Kens-
London þessa dagana ættu að
bregða sér í Kensington höll
þar sem verið er að halda sýn-
ingu á kjólum Díönu heitinn-
ar prinsessu. Kjólarnir eru
allir hannaðir af Catherine
lætis fatahönnuðum
prinsessunnar og góð vinkona
hennar og hefur skrifað bók
um samskipti þeirra. Sýning-
in er sett á laggirnar vegna
sérstakra óska þeirra fjöl-
ington höll árlega og hafa
skrifað í gestabók hallarinnar
og sagst vilja fá að sjá kjóla
prinsessunnar.
Kristín Rós Hákonardóttir var fánaberi íslands á iokaathöfninni.
Ölyntpíufaramir væntanlegir heim í dag
Islensku képpendurnir á ólympíuleikum fatlaðra í Sydnev eru vænt-
anlegir heim frá Astralíu í dag og er áætlaður komutími til landsins
klukkan 16:00. Tekið verður á móti hópnum með viðcigandi hætti í
Leifshöfn, þar sem stjórn IF mun standa fyrir móttökuathöfn og
verður Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðisráðherra, m.a. viðstödd at-
höfnina auk fulltrúa ISL
Olympíuleikum fatlaðra lauk með glæsilegri lokaathöfn á sunnu-
daginn, þar sem um það bil hundrað þúsund áhorfendur voru mætt-
ir til að fylgjast með á troðfullum áhorfendasvæðunum. Sunddrottn-
ingin, Kristín Rós Hákonardóttir, var fánaberi fslands á lokaathöfn-
inni og var það vel við hæfi eftir frábæran árangur hennar á leikun-
um, þar sem hún vann til tjögurra verðlauna (2 gull og 2 brons) í
fimm keppnisgreinum. Þeir Bjarki Birgisson og Gunnar Orn Olafs-
son settu einnig ný Islandsmet á Ieikunum, en Bjarki tvíbætti eigið
met í 100 m bringusundi og Gunnar Örn bætti eigið met í 50 m flug-
sundi.
ÍSÍ óskar eftir tilboðuin í vátiyggiiigar
Iþrótta- og ólympíusamband íslands hefur sent öllunt tryggingafélög-
um landsins erindi þar sent óskað er eftir tilboðum í vátryggingar. Er
það gert f kjölfar samþykktrar ályktunar Irá því á íþróttaþingi í mars
s.l. þar sem framkvæmdastjórn ÍSI var falið að vinna áfram að samn-
ingunt um hópslysatryggingu fyrir íþróttahrevfinguna.
A vefsíðu ÍSl segir að í erindinu til tryggingafélaganna sé óskað eft-
ir tilboðum í tvenns konar tryggingar, annars vegar slysatryggingu,
sem nái til slysatjóns við íþróttaiðkun, eða athafnir tengdar henni og
hins vegar frjálsa ábyrgðartryggingu sem nær til skaðabótaskyldu fé-
lagsmanna eða félaganna sjálfra, gagnvart öðruin einstaklingum eða
lögaðilum.
„Vátryggingunni er ætlað að vátryggja hina vátryggðu við æfingar,
keppni, mótahald og keppnisferðalög sem eru á vegum hreyfingar-
innar, innan lands sem erlendis. Vátryggðir skulu vera allir félags-
menn aðildarfélaga ISI hvort sem þeir eru virkir eða óvirkir, allir
starfsmenn félaganna, þjálfarar, dómarar, aðstoðarfólk á mótum og
hver sá annar sem formlega kemur að starfsemi tryggingataka hvort
sem viðkomandi þiggur laun eða ekki,“ segir á vefsíðunni.
Tryggingafélögin skulu skila tilboðum sínum fyrir 20. nóvember, n.k.
og er gert ráð fyrir að tryggingin taki gildi frá og með 1. janúar 2001.
Níu þjálfarar fá afhenta þjálfara-
styrkiíSÍ
Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, afhenti nýlega níu þjálfurum styrk til
að sækja námskeið, eða kynna sér þjálfun, erlendis og þetta er í ann-
að sinn sem ISI afhendir slíka styrki á þessu ári. Umsóknum um
þjálfarastyrki hefur fjölgað ár frá ári og að þessu sinni sóttu 32 aðil-
ar um styrk, 21 karlmaður og 1 1 konur. Við úthlutun hefur verið leit-
ast við að styrkja sem flestar íþróttagreinar og óháð því hvort viðkom-
andi umsækjandi er að þjálfá börn og unglinga eða afreksfólk. Eftir-
taldir aðilar hlutu 50.000 kr.styrk að þessu sinni:
Einar G. Einarsson: Hefur þjálfað yngri flokka í körfuknattleik frá
1987. Hefur þjálfað meistaraflokka hjá Haukum og Grindavík. Hlýt-
ur stvrk til að kynna sér æfingar og undirbúning atvinnumannaliðs
fyrir keppni, í Bandaríkjunum.
Guðmundur Jakobsson: Hefur starfað við skíðaþjálfun sl. 20 ár og
verið yfirþjálfari skíðadeildar KR s.l. 3 ár. I ilýtur styrk til að geta lyl-
gst með æfingum sænska skíðalandsliðsins.
Hildigunnur Hilmarsdóttir: Hefur starfað við yngri flokka þjálfun í
handknattleik frá 1986. Hlýtur styrk til að sækja þjálfaranámskeið í
handknattleik.
Johannes K. Jia: Hefur starfað sem landsliðsþjálfari í blaki síðan
1993. Þjálfari hjá Blakdeild Víkings frá 1985-1987 og blakdeild
Þróttar frá 1988-1992. Illvtur styrk til að sækja námskeið á veguin
FIVB.
Jónína Ómarsdóttir: Hefur starfað sem frjálsíþróttaþjálfari hjá
Fjölni í Grafarvogi frá 1996. Hlýtur styrk til að sækja námskeið í
Noregi í byrjun nóvember.
Ólafur Hreinsson: Hefur starfað sem þjálfari hjá Karatefélagi
Reykjvíkur sl. 10 ár. Hlýtur styrk til að sækja námskeið í Danmörku
24.-26. nóv. n.k.
Omar Jóhannsson: Hefur starfað við knattspyrnuþjálfun frá því
1980. Hlýtur styrk til að kynna sér þjálfun hjá Arsenal.
25.000 kr. styrk hlutu:
Ragnheiður Runólfsdóttir: Hefur starfað sem sundþjálfari frá
1992, m.a. hjá Sundfélagi Akraness, f Mosfellsbæ, á Akureyri og í
Keflavík. Hlýtur styrk til að sækja þjálfaranámskeið í Danmörku
Ingibjörg Magnúsdóttir: Hefur starfað við ungbarnasundskennslu
á Akureyri frá 1996 ásamt sundkennslu yngstu barna og við sund-
leikfimi. Hlýtur styrk vegna þjálfunarnámskeiðs sem hún sótti til Sví-
þjóðar í september.