Dagur - 01.11.2000, Page 21

Dagur - 01.11.2000, Page 21
MIDVIKUDAGUR 1. N Ó V F. M B E R 2000 - 21 Ðíufir jjíb&L MENNINGAR LÍFIB íslensk list í Washington Prettán íslenskir Gunnþóra myndlistar-menn Gunnarsdóttir sýna nú verk sín sýningarsal Alþjóða gjald- eyrissjóðins í Washington, í tengslum við hátíðahöld vegna 1000 ára aimælis landa- fundanna. Meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni eru Bragi Asgeirsson, Daði Guðbjörnsson, Karólína Lárusdóttir og Þorgerður Sigurðardóttir. Sýningin stend- ur til loka nóvember. Mynd mánaöarins Fyrsta myndin í kynningar- átakinu Mynd mánaðarins í Reykjanesbæ verður afhjúp- uð í Kjarna, Hafnargötu 57, í dag, miðvikudaginn 1. nóv- ember kl. 17.00. Áhersla er lögð á að kynna myndlistar- menn Reykjanesbæjar og þann fyrsta hvers mánaðar verður hengd upp ný mynd eftir nýjan listamann og upplýsingar um hann liggja frammi. Listamenn geta skráð sig til þátttöku hjá menningarfulltrúa á bæjar- skrifstofunum í Kjarna. Séð til Öræfajökuls. íslensku íjöllin Kínverska listakonan Lu Hong er með sýningu sem hún nefn- ir fslensku fjöllin í baksalnum í Gallerí Fold, Rauðarárstíg 14. Lu Hong er búsett á ís- landi en hún notar eingöngu heíðbundin kínversk verkfæri og efni við listsköpun sína. Penslarnir eru handgerðir, úr geitarhári, liturinn kínverskt blek sem hún blandar sjálf eft- ir aldagömlum hcfðum og pappfrinn er handgerður og unninn úr bambus eftir 2000 gamalli hefð. V____________________________/ Getur allt mamikyii haft rangt fyrir sér? Þjóðverjinn Alfred Wegener setti þá kenningu fram íÞýskalandi 1912 að heims- álfurnar haft hugsanlega rekið sundur og heimshöfin myndast milli þeirra. Það er ekki liðin hálf öld síðan mannkynið skipti um skoð- un á máli sem allir höfðu verið sammála um eins langt aftur og elstu sögur ná. í fortíðinni voru allir sammmála um það að heimsálf- ur og úthöf hefðu alltaf verið kyrr á sínum stað. Árið tvö þúsund vita menn að jörðin er öðruvísi en menn héldu. Stjörnurykið sem gert er úr þyngstu frumefnunum sér til þess að jörðin okkar hegðar sér eins og barn hinna stóru sólna. Hún er sífellt á hreyfingu og hún er í sífelldri sköpun. Þetta er meðal annars eitt dæmi um það að allt mannkynið getur verið sammála um ákveðna hluti sem reynast rangir. Eftir að íleka- kenningin komst á flot skildu menn eldgos og jarðskjálfta bet- ur en áður. Skilningur okkar veitir okkur ekki vald yfir sköp- unaröflunum og eyðingunni þó að margir hlutir sóu nú fyrirsjá- anlegri en áður var. Þetta mætti flokka undir framtíðarfræði og verður það örugglega á þriðja árþúsundinu. Þetta er dæmi um það að framtíðarfræði geta verið nytsamleg þekking. Eldurinn í iðruni jarðar Flekakenningin snýst um það að jarðskorpan er í mörgum fiekum sem rekur örfáa sentimetra á ári hverju i láréttri, ójafnri hreyf- ingu, stundum meira, stundum minna. Flekarnir eru heldur ekki endalaust þeir sömu. Efni í nýja fleka rís úr djúpunum sem glóandi eimvrja, til dæmis á gos- hryggnum í miðju Atlantshafinu. Eldri ílekar hverfa niður í möttul jarðarinnar. Þetta gerist með miklum hamförum, til dæmis á þeim jarðskjálftasvæðum sem umlykja allt Kyrrahafið. Og or- sakavaldurinn er að sjálfsögðu eldurinn í iðrum jarðar. Það er fullmikið sagt að engan á fyrri hluta tuttugustu aldar og fyrri öldum hafi grunað eða jafnvel skilið flekakenninguna. Francis Bacon, enskur heimspekingur og mesti framtíðarfræðingur síns tíma, bendir á það í ritgerð snemma á sautjándu öld, eða 1620, að útlínur heimsálfanna beggja megin Atlantshafsins væru liinar sömu. Ilann nefnir að vísu ekki landrek en sú skýr- ing figgur í loftinu. Þjóðverjinn Alfred Wegener setti þá kenningu fram í Þýska- landi 1912 að heimsálfurnar hafi hugsanlega rekið sundur og heimshöfin myndast milli þeirra. Þetta var barið niður af flestum jarðfræðingum sem mjög óvís- indaleg tilgáta sem samræmdist ekki öðrum þekktum vísindum. Þeir sögðu að menn sem settu fram þvílíka endaleysu stefndu virðingu jarðfræðinga í voða. Þeir væru hklegir til að fá mann til að afskrifa jarðfræði sem vís- indagrein. I kjölfarið var Wegener afgreiddur sem venju- legur rugludallur. Þetta er raunar gott dæmi um óvísindaleg viðbrögð vísinda- manna sem finnst grundvaliar- kenningum sínum ógnað. Þetta breyttist ekki fyrr en árið 1963 að tveir breskir vísindamenn, Fred Vine og Drum Matthews, vísindamenn við Cambridge há- skóla, skrifuðu ritgerð um að það væru aflfræðileg rök fyrir því að flekakenningin væri rétt. Þetta var þá fremur þokukennd tilgáta en uppfrá þessu fóru frekari rannsóknir að breyta til- gátunni í staðreynd. Þegar Lakagígar gusu Um þetta er ekki deilt lengur árið 2000. Og kenningin sem upphafiega var kölluð hneyksl- anleg vitleysa er nú talið helsta afrek jarðfræðinnar frá byrjun. Öll eldijallafræði tengist beint flekakenningunni. Þegar fleka rekur sundur kemur kvikan djúpt úr iðrum jarðar rnilli lægri möttulsins og hins íljótandi kjarna jarðarinnar. Flekana rek- ur ekki aðeins í sundur, þá rekur einnig saman. Þar sem það ger- ist fer annar flekinn eða háðir aftur niður í jörðina, niður í möttulinn, þar sem hann bráðn- ar aftur, að minnsta kosti að hluta og þannig skapast ný kvika sem leiðir til eldgosa. Af þessari ætt eru flest eldgosin í kringum Kyrrahafið. Kvikan á Atlants- hafshryggnum stafar hins vegar af því að fleka er að reka í sund- ur. Þessi Atlantshafshryggur liggur eins og við vitum undir ís- landi miðju. Þetta hefur lengi verið ógnvaldur á íslandi. Iin gleymum því ekki að þessi eyð- ingaröfl eru sömu öflin og sköp- uðu ísland. Mestu tilþrifin voru í júm' 1783 þegar Lakagígar gusu. Mengunin af því gosi varð jafn- mikil og mengun af mannavöld- um um allan heim á heilu ári. Þetta skrifar jörðin sjálf í lög sín líkt og tré skráir ár sín í stofn- inn. Eitt besta heimildarit okkar í dag er Grænlandsjökull. Ilann segir okkur að Laki eigi metið í mengun á síðasta árþúsundi. MiMð línnnið Vegna hinnar nýju þekkingar skilja menn nú ekki aðeins eld- gos heldur einnig jarðskjálfta betui'. Flestir verða þeir á útjöðr- um flekanna þar sem þeir rekast saman. Þá jarðskjálfta er auð- veldara að skilja. En jarðskjálft- ar geta einnig orðið í flekanum sjálfum. Þeir eru sjaldgæfari og þá er erfiðara að skilja. Hér á þriðja árþúsundi er mikið verk óunnið sem felst ekki síst í því að geta sagt fyrir um j arðskj álfta. J arðskjálftafræðing- ar hafa birt |>að í skýi'slum sín- um að í Kína hafi á árunum 1949 til 1976 tuttugu og sjö milljónir manna látist af völdum jarðskjálfta og sjötíu og sex millj- ónir orðið fyrh' meiðslum. Á þessu tímabili urðu um hundrað jarðskjálftar í Kina. Hér hafa framtíðarfræðingar mikið verk að vinna við að bjarga mannslff- um. Krónur í bauk Um helgina efndi Rauði kross ís- lands til söfnunar og er ætlunin að nota þá peninga sem safnast til að berjast gegn alnæmi í Afr- íku. Sá skæði sjúkdómur er þar orðinn risastórt vandamál og samfólög riða til falls af þeim sökum. Vonandi hafa flestir látið eitthvað af hendi rakna, enda er málið mikilvægt. Góðu heilli eru flestir íslendingar nú farnir að líta svo á að vandamál Afríku- búa séu einnig okkar. Hnattvæð- ingin er ekki aðeins bundin við tölvur og tæki, heldur líka hugarfar. SjúMeLkamerki Stundum er sagt að vitnisburður um menningai'ástand í hverju landi sé hversu mikið sé betlað þar. Því má líta svo á að söfnunin um helgina sé fram- lag okkar fslendinga til að styrkja heil- brigðiskerfið í Afríku. Hér er þó rétt að minna á að mörgum þjóðþrifa- málum hér heima hefur ekki verið hrint í framkvæmd nema með ljársöfnunum, þar sem allir hafa þurft að láta sitt af hendi rakna. Má hér nefna tækjakaup til heilbrigðisstofnana, sem vita- skuld eru hlutverk hins opin- bera sé allt eðlilegt. En meðan almenningur þarf að annast tækjakaup sjúkra- húsanna gætir vissulega sjúk- leikamerkja í þjóðlífinu hér. Rétt eins og fólk tekur nú höndum saman og safnar fé til að hefta alnæm- isvandann í Afríku er það vitnisburður um að stjórnvöld þar eru ekki þess megnug að breyta neinu. Því er í raun ekki eðlismunur á því hvort við leggjum til fáeinar krónur til að berjast gegn al- næmi í Afríku, eða til að kaupa öndun- arvélar eða hjartalínuritstæki við Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri. MEIMIUiniGAR VAKTIN Sigurður Bogi Sævarsson skrifar / fjársöfnun Rauða krossins um helgina. Enginn eðlismunur er á því hvort við leggjum til krónur til að berjast gegn al- næmi íAfríku, eða til að kaupa öndunar- vélar við FSA, segir hér í greininni. Eitthvað iniui uiidaii láta Á íslandi er ekki um það deilt að allstór sé orðinn hópur þeirra manna sem eru orðnir svo kafloðnir um lófana að þeir hafi úr að spila hundruðum milljóna. En er þá ekki undarlegt - úr því fjölda manna hefur tekist að hagnast svo hressilega - að þjóðþrifamálum sé ekki komið í gegn nema með samskotum? Eru leikreglur skattkerfsins ekki óeðli- legar úr því íjöldi manna getur spilað með hundruð milljóna í einu stóru Mattadori á meðan heilbrigðiskerfið þarf oft að treysta á samskot? Vandamálin hér heima og í Afríku eru auðvitað sitt af hvoru tagi. En vax- andi misskipting á íslandi og alnæmi í Afríku eiga það þó sameiginlegt að vera mál sem snerta innviði samfélagsins. Verði ekkert að gert mun eitthvað á endanum undan láta. Og eigi einhverju að breyta þarf róttækari aðgerðir, en að ganga í hús og safna krónum í bauk. sigurdur@dagur. is

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.