Dagur - 01.11.2000, Blaðsíða 24
24- MIDVIKUD AGU H 1. NÓVEMBER 2000
VIKUlOrlB^ÐIÐ
■ Ðuyir
100 ára afmælis-
fagnaður LH
Leikfélag Húsavíkur
fagnaði 100 ára af-
mæli sínu með veg-
legu afmælishófi að
Breiðumýri s.l. laug-
ardagskvöld.
Vel var rrtætt til vinafundar og
komu margir langan veg til að
gleðjast mcð gömlum félögum úr
leiklistinni. Steinunni Askels-
dóttir formaður LH bauð gesti
velkomna og síðan tóku við
veislustjórarnir Grímur Leifsson
og Anna Jeppesen sem stjórnuðu
framvindu kvöldsins af röggsemi
og lét Grímur m.a. Iljóta í kvið-
lingum og var gerður góður róm-
ur að.
Nestorar leiklistar á Húsavík,
þeir Sigurður Hallmarsson og
Ingimundur Jónsson stjórnuðu
fjöldasöng eins og þeim einum er
lagið og spiluðu undir á nikku og
gítar og Ingimundur settist við
flygilinn þegar svo bar undir.
Hallmar Sigurðsson flutti mergj-
aða hátíðarræðu um leiklistina
og vitnaði í meistara á borð við
Laxness og Shakespeare. Leyni-
gestur ávarpaði viðstadda og
reyndist vera Bryndís Torfadóttír
og María Sigurðardóttir þakkaði
þingeysku leikhúsfólki fyrir góð
kynni og leiklistaruppeldi. Þá
1
B
Þorgeir Tryggvason rifjaði upp gömul kynni við Gúmmí-Tarzan.
Jón Friðrik Benónýsson færði Steinunni formanni blómvönd frá leikdeild
Eflingar. Og öflugan koss í kaupbæti.
Dóra Ármannsdóttir og Sigurður lllugason fluttu atriði úr Þrek og tár.
flutti Jón Friðrik Benónýsson LH
kveðjur og góðar óskir frá leik-
deild Eflingar í Reykjadal.
Stiklað var á stóru í sögu Leik-
félagsins og flutt atriði úr ýmsum
nafntoguðum verkum. Hjónin
Sigurður Hallmarsson og Herdís
Birgisdóttir léku atriði úr Galdra
- Lofti, atriði sem þau léku fyrst
saman á sviði hjá LH árið 1949,
þegar Sigurður þreytti frumraun
sína sem leikstjóri hjá félaginu. Og
hann er enn að og vinnur nú að
uppsetningu á Nitouche sem
frumsýnt verður á næstunni. Ingi-
mundur Jónsson brá sér í gervi
góða dátans Svejk og fór ekki á
síðri kostum en um árið í þessu
sama hlutverki og tók síðan lagið
með Bjarna Sigurjónssyni. Guðný
Þorgeirsdóttir flutti prólógus úr
Puntila og Matta, Hrefna Jóns-
dóttir söng lag úr Gísl og Sigurður
lllugason og Dóra Armanns-
dóttur fluttu tvö lög er Þrek og
Tár. Þá söng ÞorgeirTryggvason
lag úr Gúmmí-Tarzan sem hann
Ingimundur Jónsson, ógleymanlegur Svejk, ásamt Bjarna Sigurjónssyni.
Veislustjórarnir Grímur Leifsson og Anna Jeppesen kynna dagskrána.
lék hjá LH árið 1984.
Minningarnar streymdu framá
sviðinu og í hugum viðstaddra,
minningar um glæsilegar sýningar,
stórkostlegan leik, sorg og gleði í
Samkomuhúsinu. Og Leikfélagi
Húsavíkur bárust góðar óskir víða
að með von um að næstu 100 ár
yrði jafnfarsæl og þau sem nú eru
að baki.
JS