Dagur


Dagur - 03.11.2000, Qupperneq 1

Dagur - 03.11.2000, Qupperneq 1
Má eyða fostrí án vitundar foreldra Læknir má ávísa á „pillima“ fyrir 14 ára og eldri og fram- kvæma fóstiireydingu hjá 16 ára og eldri áu vitneskju foreldra, að mati Umboðsmanns bama. Stúlkur 14 ára og eldri eiga að geta leitað læknis og fengið til- vísun á getnaðarvarnarpillu, án samráðs við foreldra eða aðra forsjáraðila, að mati Umboðs- manns barna, samkvæmt svari til læknis í Reykjavík. Ekki þurfi heldur að samráð við foreldra vegna fóstureyðingar hjá stúlku sem orðin sé 16 ára. Læknir leitaði lögfræðiálits uinboösmaniis Viðkomandi læknir sendi erindi til umboðsmanns, varðandi getnaðar- varnir og fóstureyð- ingar ungra stúlkna. Læknirinn fór fram á lögfræði- legt álit umboðs- manns á réttar- stöðu sinni sem læknis í þeim tilvik- um sem ósjálfráða stúlka leitaði til hans og óskaði eftir getnaðarvarnarpillu og/eða fóstureyð- ingu, en taki jafn- framt fram að hún vilji ekki að samráð verði haft við foreldra sína hvað þetta varðar. 14 ára á föstu 1 svari til læknisins vísar um- boðsmaður til 202 gr. Iaga nr. 19/1940 um refsingu við kyn- ferðisafbrotum gegn Sörnum og ungmennum og segir að af henni verði væntanlega dregin sú al- menna ályktun að hafi barn náð 14 ára aldri ráði það því sjálft hvort það hafi kynmök enda sé það gert af fús- um og frjálsum vilja þess. „Með hliðsjón af þessu er það skoðun mín að ósjálfráða 14 ára stúlka eða eldri geti leitaö læknis og óskað eftir að fá tilvísun á „pilluna" til að koma í veg fyrir ótímabæran getnað - án samráðs við for- sjáraðila ef svo ber undir.“ Varðandi fóstureyðingu vísar umboðsmaður til 13. gr. laga nr. 25/1975 um ráðgjöf og fræðslu m.a. um fóstureyðingar. Með gagnályktun frá þessu ákvæði segir umboðsmaður það niður- stöðu sína að óski ósjálfráða stúlka 16 ára eða eldri eftir því við lækni að framkvæmd verði hjá henni fóstureyðing þurfi hann ekki að hafa samráð við forsjáraðila stúlkunnar áður en slíkt sé gert. Tilfinningalif vemdað í stjómarskrá „Almennt er talið að foreldrar hafi rétt til að ákveða hvers kon- ar uppeldi þeir veita börnum sín- um en of mikil íhlutun í málefni þeirra geti verið andstæð grund- vallarreglum um sjálfsákvörðun- arrétt einstaklings og friðhelgi einkalífsins, sbr. 71. gr. stjórnar- skrárinnar," segir umboðsmaður. Svo sé litið á að tilfinningalíf og tilfinningasambönd við aðra njóti verndar samkvæmt stjórnarskrár- ákvæði þessu. Aðurgreind rétt- indi barna ganga því framar rétti foreldra/forsjáraðila til að ráða yfir persónulegum högum þeir- ra,“ segir Þórhildur Líndal í árs- skýrslu umboðsmanns barna fyr- ir árið 1999. -HEI Umboðsmaður barna segir að stúlkur sem orðnar séu 74 ára þurfi ekki að hafa samráð við foreldra varðandi pillu- notkun. Erfitt hjá Kísiliðju Gunnar Orn Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Kísiliðjunnar, er ánægður með niðurstöðu um- hverfisráðherra en mörgu er þó ósvarað enn. Tekist er á um kostnaðinn af eftirliti og segir Gunnar Örn að ef uppfy'lla ætti öll skilyröi skipulagsstjóra sam- kvæmt túlkun Gísla Más Gísla- sonar prófessors, gæti verksmiðj- an eins lokað strax. Tap verður á rekstri Kísiliðj- unnar í ár eins og í fyrra og segir Gunnar Örn að rekstrarumhverfi Kísiliðjunnar líkt og margra ann- arra sé mjög bágborið um þessar mundir. ,,Eg hendi líka á að þetta fyrirtæki hefur verið í algjörri herkví að undanförnu. Við höf- um ekki getað einbeitt okkur að því að reyna að minnka rekstrar- kostnað fyrirtækisins með tækni- breytingum. Það hefurekki verið réttlætanlegt að taka stór tækni- skref vegna þess að menn hafa ekki vitað um líftímann," segir Gunnar Örn. -BÞ Sjábls. 12-13 Glerártorg, hin nýja verslunarmiðstöð á Akureyri, var i gær opnuð formlega þegar Kristján Þór Júlíusson bæjar- stjóri klippti á borða sem markaði formlega opnun. Menn vænta þess að Glerártorg muni styrkja verslun og þjónustu á Norðurlandi - og jafnframt stöðu landshlutans í heild. Sjá einnig bls. 17 mynd: -brink. Eldingu laust niður í Flugleiðavél i Ameríkuflugi í fyrradag. Eldingí Flugleioavél Eldingu laust niður í Flugleiða- vél þegar hún var að koma inn til lendingar á flugvellinum í Minn- eapolis í Bandaríkjunum í fyrra- dag. Þá átti hún eftir um 20 mín- útna flug, eða 50-60 mílur. Þeg- ar vélin varð fyrir eldingunni kom högg, hvellur og glampi sem farþegar urðu varir við. Þetta hafði þó engin áhrif á stjórntæki hennar því vélin er með eldinga- vara. Röskun varð á áætlunar- flugi Flugleiða í gær þar sem vél- inni verður ekki flogið til Islands fyrr en lokinni skoðun ytra. A annað hundrað farþegar voru um borð í vélinni og er ekki vitað að neinum hafi orðið meint af þessari lífreynslu. Gerist annað slagið Guðjón Arn- grímsson hlaðafulltrúi Flugleiða segir að það gerist annað slagið að flugvélar verði fyrir eld- ingu og m.a. hafði flugstjóri vélarinnar áður orðið fyrir _ ... . , . v C' i.i Guðjon Arn- þvi ao ra eld- , ! , n ,, qnmsson ingu í rlugvel a___ sem hann flaug. Hann segir að það hefði verið slærnt veður á smá kaíla á fiugieið vél- arinnar sem menn hefðu séð fyr- ir á radar en ágætis veður í Icnd- ingu. Þegar flogið var inn í þetta veður sló eldingu niður í vélina. I gær var ekki vitað hvort eitt- hvert tjón hefði orðið á húk vél- arinnar en hún var þá í skoðun sem er framkvæmd alltaf þcgar Ilugvélar verða fy'rir eldingu. Þeir farþegar sem ætluðu til Evrópu var komið í önnur fiug þangað en margir þeirra sem ætluðu til Islands þáðu boð Flugleiða að gista á hóteli. Guðjón segir að allir farþegar hefðu því fengið lausn sinna mála. -GRH o inDesu Það voru hinir blóðheitu ítalir sem hönnuðu Indesit kæliskápana enda veitir þeim oft ekki af því að kæla sig aðeins niður. En Indesit er ekki fyrir alla, nei, nei blessaður vertu. Indesit er bara fyrir þá sem vilja töff hluti í eldhúsið og kjósa að borga sem minnst fyrir þá. B R Æ Ð U R N I R ORMSSON Lágmúla 8 • Slmi 530 2800 www.ormsson.is I

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.