Dagur - 03.11.2000, Blaðsíða 9

Dagur - 03.11.2000, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 3 . NÚVEMBER 2 0 00 - 9 IÞROTTIR Meistarar Lakers töpuðu gegn Utah Agúst Guðmundsson, þjálfari úrvalsdeildar- liðs Þdrs í körfuknatt- leik, telur að lið Los Angeles Lakers muiii verja meistaratitilinn frá síðustu leiktið. NBA-deildin í körfuknattleik byrjar vel og má búast við spenn- andi keppni í vetur sem oft áður. Meistarar Los Angeles Lakers léku gegn Utah Jazz á útivelli sl. miðvikudag og lágu 97-92. Karl Malone kemur sterkur til leiks hjá Utah Jazz í upphafi vertíðar og var stigahæstur með 26 stig og tók 1 1 fráköst. John Stockton skoraði 21 stig og gaf 14 stoðsendingar og Bryon Bussell skoraði 18 stig. Lið Lakers var eitthvað miður sín í leiknum og aðeins Shaquille O'Neal og Kohe Bryant léku af eðlilegri getu. Shaquille O'Neal skoraði 34 stig og tók 1 5 fráköst og Kohe Brvant skoraði 31 stig. Onnur úrslit í NBA urðu þau að Boston Celtics vann Detroit Pistons 103-83 þar sem Antoine Walker var stigahæstur með 33 stig og Paul Pierce með 28 stig í liði Celtics en Jerry Stackhouse í liði Pistons með 20 stig. Philadelphia 76ers vann Toronto Raptors 104-98. Allen Iverson var stigahæstur heima- manna með 24 stig en í liði TorontoYs var Vince Carter stiga- hæstur með 25 stig. Charlotte Hornets steinlá á heimavelli gegn stormsveipunum í Washington Wizards, 77-95. Richard Hamilton var stigahæst- ur gestanna með 23 stig en James Masburn var stigahæstur leikmanna Hornets með 13 stig. Önnur úrslit urðu m.a. þau að Cleveland Cavaliers vann naum- an sigur á Sacramento Kings, 102-100, Miami Heat vann Or- lando Magic, 105-79 og Seattle Supersonics vann lið Denver Nuggets, 112-99, svo ekki hefur varnarleikurinn verið þar í há- vegum. Á þriðjudag urðu úrslit þessi: Vancouver : Seattle 94-88 Portland : L.A. Lakers 86-96 Golden State : Phoenix 96-94 Utah Jazz : LA Clippers 107-94 Atlanta : Charlotte 82-106 New Jersey : Cleveland 82-86 Orlando : Washington 97-93 San Antonio : Indiana 98-85 Houston : Minnesota 98-196 NewYork : Philadelphia 72-101 Toronto : Detroit 05-104 Chicago : Sacramento 81-100 „Ég er bjartsýnn á það að Lakers verji titilinn. Þeir eru með sterkt lið og eru jafnvel heil- steyptari í ár en þeir voru í fyrra, liðsheildin betri. Þeir eru ekki með miklar breytingar á liðinu, en það sem skiptir máli er að þeir eru allir heilir. Þeir unnu Portland en ég tel samt að Portland gæti helst ógnað stöðu þeirra," segir Agúst Guðmunds- son, þjálfari úrvalsdeildarliðs Þórs í körfuknattleik. Ágúst sagðist vera ánægður með að mæta Stjörnunni í bikarkeppn- inni, en þó lið Stjörnunnar léki í 1. deild væru þeir sýnd veiði en ekki gefin, ckki síst vegna þess að Stjarnan fengi heimaleik. Svo væru þeir með mjög góðan þjálf- ara, Jón Kr. Gíslason. - GG Shaquille O'Neal var bestur í liði Lakers i tapleiknum gegn Utah Jazz. Robbie Fowler skoraði eitt marka Liverpool í deildarbikarkeppninni og er kominn á blað markaskorara eftir árs fjarveru vegna meiðsla. Liverpool minnir á sig á toppi úrvalsdeildarinnar Manchester Unitcd og Arsenal eru í efstu sætum ensku úrvals- deildarinnar eftir I I umferðir, bæði með 24 stig, en markamis- munur United er hagstæðari. Liverpool kemur svo í 3. sæti með 21 stig og Lecestcr í því fjórða með 19 stig. I þrcmur neðstu sæt- um deildarinnar eru Sout- hampton, Bradford og lið Derby sent virðist heillum horfið í haust. Manchester United sækir Coventry heini á Iaugardaginn, en liðið er í 16. sæti með 1 1 stig, og Arseíial leikur einnig útileik, gegn Middlesbrough. Liverpool leikur útileik gegn Leeds sem ekk: hef’ur byrjað leiktíðina vel, er með 15 stig í 10. sæti deildarinnar. Hasselbaink, Chclsea, er markahæstur leikmanna úrvals- deildarinnar með 10 mörk, en næstir koma Sheringham, Manchester United, nteð 9 mörk; Henry, Arsenal, mcð 8 rnörk; Owen, Liverpool, með 7 mörk; Heskey, Liverpool; Pahars, Sout- hampton; Smith, Leeds; allir með 6 mörk; Beckham, Manchester United; Boksic, Middlesbrough; Cole, Manchester United; Di Canio, West Ham; Jeffers, Ev- erton; Rebrov, Tottenham; Stewart, lpswich; Viduka, Leeds, allir með 5 ntörk, og 4 mörk hafa skorað Christie, Derby; Llunt, Charlton; Johansson, Charlton; Phillips, Suriderland og Strupar, Derby. - gg Liðsheild Vík- ingsliðsins stöougt betri Kvennalið Víkings í úrvalsdeild kvenna í handknattleik heldur sínu striki í deildinni. Víkings- stúlkur völtuðu yfir lið Vals á miðvikudagskvöld og hefði sigur þeirra getað orðið stærri ef ein- beitingin hefði haldist, en það er oft erfitt þegar andstæðingurinn er ekki ntjög burðugur. Víkingur vann leikinn 21-15 og verður gaman að sjá þær mæta Haukum á Ásvöllum eftir áramót, en leik- menn þessara liða hafa sýnt í haust að þar eru á ferðinni tvö bestu liðin í deildinni. Víkings- stúlkur keyrðu upp hraðann í leiknum sem og í fyrri leikjum liðsins og er það orðið einn aðall liðsins. Við þennan hraða réðu Valsstúlkur engan veginn. Valur situr áfram í 9. sæti deildarinnar en Víkingur í því fjórða. Stjarnaii vann FH Það voru fremur daprar FH- stúlkur sem gengu af velli í Garðahæ eftir fjögurra marka ósigur FH gegn Stjörnunni, 26- 22 eftir að staðan í hálfleik var jöfn, 12-12. FH-ingar misstu af öHum möguleikum í leiknum með þvf að gera ýmiss byrjenda- mistök f handbolta. Liðið sem var svo efnilegt í fyrra og hafði alla möguleika á titlum þá hefur á brattann að sækja nú. En það cr ckki öll nótt úti fyrir FH-stúlk- ur, síður en svo. En þá þurfa leikmenn að sýna meiri einheit- ingu og vilja til þess að vinna leiki. Stjörnustúlkur voru á hæl- unum í fyrri hálfleik en strax í seinni hálfleik lyftu þær sér upp á tábergið og sigldu fram úr FH. Stelpurnar í Víkingi til alls líklegar i handboltanum. Stjarnan er í 2. sæti deildarinnar en FH í 5. sæti. Grótta/KR vann sætan sigur áFram Það var hart harist á Seltjarnar- nesi þegar Grótta/KR fékk Fram í heimsókn. Stúlkurnar í Gróttu/KR, sem höfðu átt í mikl- um vandræðum lcngst af leiks- ins, náðu að jafna í lok venjulegs leiktíma, 20-20. Þeir höfðu svo hetur í framlengingunni og unnu leikinn 26-25. Baráttan var til staðar hjá Gróttu/KR þegar á leið Ieiks, og það færðu þeim öll stig- in. Leik IR gegn KA/Þór var frestað þar sem veturinn minnti á sig á Norðurlandi. - GG

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.