Dagur - 03.11.2000, Blaðsíða 20
20 - FÖ STUDAGUR 3. NÓVEMBER 20 00
Hærra til þín
Sýningin Hærra til þín - kristin minni í norrænni myndlist verður
opnuð 5. nóvember á tveimur stöðum. í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar klukkan 15:00 og í Ásmundarsafni klukkan 16:00.
Sýningin er haldin í tilefni þess að liðin eru þúsund ár frá kristni-
tökunni. Par eru verk eftir norræna myndlistarmenn tuttugustu
aldar, bæði málara og myndhöggvara. Sérstaklega verður horft
til þeirra listamanna sem hafa ekki fengist við hefðbundna
kirkjulist en sem engu að síður hafa fjallað um kristin og trúarleg
minni í verkum
sínum. Listasafn
Sigurjóns Ólafs-
sonar er opið alla
daga nema
mánudaga 13-
16. Ásmundar-
safn er opið dag-
lega 13-16
Glens og gaman
Danskir fjöllistamenn ætla að bregða á leik við Norræna hús-
ið sunnudaginn 5. nóvember kl. 18.00 og mánudag 6. nóv-
ember kl. 19.00. Aðgangur er ókeypis.
í hópnum sem heitir Limelight of Fire og kemur til að
skemmta íslendingum í skammdeginu, eru 8 félagar sem
hafa allir starfað mikið á sirkus- og skemmtisviðinu í Dan-
mörku. Sýning þeirra heitir WHAT - vetrarævintýri og hún
byggist á gamanfimleikum, logandi sverðum, áhættusömum
fjölleik, magadansi, handbrúðum og eldtækni.
Limelight of Fire hlaut styrk frá Dönsku menningarstofnuninni
(Det danske Kulturinstitut) til ferðarinnar. Ljósahátíðin LJÓS-
IN í NORÐRI er samstarfsverkefni norrænu menningarborg-
anna Helsinki, Bergen og Reykjavíkur á árinu 2000.
Pennateiknlngar í Lóuhreiðri
Brynja Árnadóttir
myndlistarkona og
gangavörður sýnir
myndir sínar þessa
dagana í veitingahúsinu
Lóuhreiðri, Kjörgarði að
Laugavegi 59. Mynd-
irnar eru allar penna-
teikningar í litum.
Brynja hefur lært
myndlist, meðal annars
hjá Ragnari Kjartans-
syni og Jóni Gunnars-
syni og þetta er 13.
einkasýning hennar
síðan 1989. Sýningin í
Lóuhreiðri er opin frá
9.00- 18.00ávikum
dögum og laugardaga
frá 10.00-16.00.
ÞAB ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlar þú að
gera?
Bryndís
Hlöðversdóttir.
Andri Snær
Magnason.
Jólabasar
og flokksstjómarfimdur
„Dagurinn í dag fer í vinnu eins og títt er um
föstudaga," segir Bryndís Hlöðversdóttir alþing-
ismaður. „Laugardagurinn byrjar snemma mcð
undirbúningi undir jólabasar á leikskolanum
Höfrt. Tvíburadrengirnir mínir, þriggja ára, eru
á þeim leikskóla og þetta er árlegt tyrirbæri að
undirbúa basarinn. Morgunstundin fer í það
með öðrum foreldrum. Svo fer ég á fyrsta
flokksstjórnarfund Samfylkingarinnar. Það er
fundur með öllum helstu fulltrúum flokksins,
bæði í sveitarstjórnum, í félögunum og víðar.
Hann stendur fram eftir degi. A sunnudaginn
ætla ég að eiga frí með Ijölskyldunni og njóta
lífsins.“
Draugafyriilestui
o g fertugsafmæli
„Á Iaugardag ætla ég að halda einn draugafyrir-
lestur," segir Bjarni Harðarson blaðamaður.
„Eg lendi aðeins í því af því ég hef verið að
grúska í draugum og forynjum Suðurlands. Ég
verð með fjölbrautaskólakennurum á Suður-
landi á Alviðru í Grímsnesi að fræða þá um
helstu drauga í Grímsnesi og Olfusi. Svo er ég
nú að vonast til að hafa einhvern tíma með
strákunum mínum þremur. Tveir þeirra eru að
innrétta herbergin sín, eða laga til í þeim og ég
ætla að hjálpa þeim aðeins. Á laugardagskvöld
lendi ég í fertugsafmæli hjá Ólafi Einarssyni
bankamanni og gömlum skólabróður. Svo er ég
að vonast til að geta átt sunnudaginn rólcgan
eftir allstrangan laugardag."
Skapandi námskeið og teiti
„Eg ætla að fara með þriggja ára son minn í
Ktamarhúsið á laugardagsmorgun,'1 segir Andri
Snær Magnason. „Þetta er námskeið fyrir börn.
Eitthvað skapandi býst ég við. Svo fcr ég á aðal-
fund Bandalags íslenskra listamanna. Það er
ekki mjög skapandi. En samt. Svo ætla ég að
hitta nokkra félaga mína á Iaugardagskvöldið,
það cru tveir sálfræðingar og tveir hagfræðing-
ar. Við hittumst heima hjá öðrum hagfræðingn-
um og hann er mikill sælkerakokkur svo ég á
von á góðum mat. Kannski tek ég eitthvað af
þessu Fríhafnarvíni með mér sem ég hef sank-
að að mér síðustu mánuði. Á sunnudaginn
ætla ég bara að slappa af.“
HVAB ER A SEYBI?
HOFUÐBORGARSVÆÐIÐ
A dagskrá Menninga-
borgar um helgina
Ljósin í norðri er síðasta stóra sam-
starfsverkeíni norrænu mennmgarborg-
anna á dagskrá menningarársins. Hátíð-
in á rætur sínar að rekja til Helsinki þar
sem haldin hefur verið hátíð ljóssins um
nokkurra ára skeið. Tilgangur hátíðar-
innar er að \irkja kulda og mvrkur vetr-
armánuðanna á norðurslóðum í list-
sköpun á jákvæðan hátt. Hátíðin verður
sett föstudaginn 3.11 kl. 17:30 í gömlu
rafstöðinni \ið Elliðaár. Kl. 18:00 mun
Anna Jóa fremja gjörninginn Straumur í
Elliðaánum. Kl. 18.00 kviknar jafnframt
Ijós á öllum þeim verkum sem standa út
hátíðina.
ÝI salnum í Norræna húsinu. Stjörnu-
fræðifélagið URSA í Finnlandi k\Tinir
Stjörnuverið þar scm boðið er upp á
gcimferð undir leiðsögn Stjörnuskoðun-
arfélags Seltjarnarness.
*Tjömin \ið Norræna húsið eftir myrk-
ur. I verkinu Vatn birtist tjörnin \ið Nor-
ræna húsið okkur í nýju Ijósi.
*Lækjartorg. Listamaðurinn Anna Jóa
fjallar um Ijós og ylrækt í þessu verki.
Gróðurhúsaþ\Tping mun rísa á Lækjar-
orgi.
*GalIerí i8 og Norræna Húsið. Eldur er
aðallistmiðill finnska listamannsins Jyrki
Parantainen. Myndimar eru heimildir
um listræna brennufíkn hans.
* A Vínbamum, Súfistanum Rvk., Prik-
inu og Ara í Ögri. Sonný Þorbjörnsdóttir
sýnir m\Tidir úr mwkrinu á veitingastöð-
um í borginni.
*HalIgrímskirkjuturn, eftir sólsctur.
Kaisa Salmi frá Einnlandi varpar sólnk-
um sumardegi á veggi Hallgrímskirkju.
*Hverfisgata 3. Þreyttum borgarbúum
gefst færi á að h\ila sig á ys og þys borg-
arinnar á Ijósahóteli Susan EIo, Tuula
Pöyhönen og Tuija Jánenpáá frá Finn-
landi.
*Á milli Njarðargötu og Norræna húss-
ins. Nemendur á lokaári í Listaháskóla
Islands bjóða gestum hátíðarinnar að
sóla sig í skammdeginu.
*Á Hafnarsvæðinu fyrir framan Kola-
porlið kl. 19:00 og 21:00. Litfríð og Ijós-
hærð sænsk vampíra mun birtast þar
sem lítið Ijós er fyrir.
*Kaffi Thomsen frá kl. 23:00. Sam-
starfsverkefni mynd- og tónlistar-
manna frá norrænu menningarborgun-
um
*Portið Listasafn Reykjavíkur - Hafnar-
húsi. Innsetning Aðalsteins Stefánsson-
ar.
*HIjómskálagarðurinn kl. 18:30. Barna-
kórinn Heimsljósin er fjölmenningarleg-
ur bamakór sem kemur fram í fyrsta
sinn í tilefni hátíðarinnar.
*UngIist 2000 í Reykjarík, Akureyri,
Austurlandi og Vestfjörðum. Setning í
Ráðhúsi Reykjavíkur -Ijarnarsal kl.
20.00.
Laugardagur 04.11
*Listasafn Reykjaríkur - Hafnarhúsi. Is-
land öðrum augum litið, sams\Tiing inn-
lendra og erlendra listamanna.
*BorgarhoIt í Grafanogi, kl. 19:00 -
22:00. Axel Sundbotten og BOB færa
okkur ljósa\iðburð þar sem tónlist og
Ijós ráða ríkjum.
*Hljómskálagarðurinn kl. 18:00. Barna-
kórinn Heimsljósin.
*UngIist í Reykjarík: Ráðbúsið - Tjarn-
arsalur kl. 20:00. Sundhöll Reykjavíkur
kl. 21.00-22.30.
Sunnudagur 05.11
*Á hlaði Norræna hússins kl. 18:00.
Danski fiöllistahópurinn Limelight of
Fire. Sýningin byggist á gamanfimleik-
uiri, logandi sverðum, magadansi, eld-
tækni o.m.fl.
*Framhlið Háskóla íslands kl. 19:00 og
21:00. Dans- og leiksýning undir berum
himni með þátttöku dansara \ið tónlist
Jósefs Gíslasonar.
TÓNLIST
Musica Antiqua
- Norðurljós 2000
Aðrir tónleikar tónlistarhátíðarinnar
Norðurljós verða haldnir laugardaginn
4. nóv. nk. í Fríkirkjunni í Reykjarík, kl.
17.00. f>á munu Sigurður Halldórsson
sellóleikari og Helga Ingólfsdóttir semb-
alleikari leika 3 sónötur eftir Johann
Sebastian Bach.
Alafosskórinn 20 ára
Álafosskórinn í Mosfellsbæ á 20 ára af-
mæli um þessar mundir og heldur í til-
efni af því tónleika í Salnum, Kópavogi,
laugardaginn 4. nóvember kl. 17:00.
Kórinn var stofnaður 5. október 1980 af
starfsmönnum ullanerksiniðjunnar Ála-
foss hf. Þátttaka í Álafosskórnum er ekki
lengur bundin sérstöku f)TÍrlæki en
kjarni kórsins er ennþá fólk sem slóst í
hópinn á fyrstu starfsárunum. Kórinn er
mjög víðförull og hefur haldið tónleika
erlcndis, m.a. í Bandaríkjunum, F:inn-
Iandi, Rússlandi, Þýskalandi, Fære>jum,
Danmörku og S\iþjóð. Næsta utanferð
kórsins er fyrirhuguð til Kanada sumarið
2001. Kórinn söng inn á og gaf út
hljómplötu árið 1986 og geisladisk árið
1999. Á tónleikunum verða flutt bæði
innlend og erlend lög, þekkt og óþekkt.
Má þar m.a. nefna lög eftir f)Tr\erandi
söngstjóra, Pál Ilclgason og núverandi
stjórnanda og Ijóð eftir kórfélaga, Viklor
A. Guðlaugsson. Söngstjóri er Helgi R.
Einarsson og raddþjálfari og undirleikari
Ilrönn Helgadóttir.
Agon Orchestra og Caput
Laugardagskvöldið 4. nóvem-
*ber heldur tékkneska kammersveitin
Agon Orchestra tónleika í Salnum í
Tónlistarhúsi Kópavogs og heíjast þcir
kl. 20:00. Jónleikarnir eru samvinnu-
verkefni Tónskáldafélags Islands og
Reykjavíkur menningarborgar. Flytjend-
ur er alls 14 talsins og leika þeir á hin
ýmsustu hljóðfæri, margar gerðir af
flautum auk munnhörpu og melódíku,
rafmagnsgítar, rafmagnsbassa og banjó,
tenór-, alt- og bassasaxófóna, trompet og
franskt horn, fiðlur, selló, píanó og fjöl-
breytt slag\erk. Meðlimir úr CAPUT-
hópnum munu einnig taka þátt í flutn-
ingi á einu verkanna. Á efnisskránni er
verk eftir Hauk Tómasson, auk verka
eftir danskt tónskáld og tékkneska höf-
unda. Stjórnandi hópsins er tékkneska
tónskáldið Pctr Kofron. Miðasalan er
opin alla \irka daga frá kl. 13:00 - 18:00
og tónleikakvöld til kl. 20:00. Um helgar
er miðasalan opnuð klukkustund fyrir
tónleikii.
The London
Mozart Players
Mánudagskvöldið 6. nóvember heldur
ein af bestu kammersveitum E\TÓpu,
The London Mozart Players, tónleikii í
Salnum í Tónlistarhúsi Kópa\ogs og
hefjast þeir kl. 20:00. Tónleikarnir eru
samrínnuverkefni Brezka sendiráðsins
og Reykja\ íkur menningarborgar Evrópu
árið 2000. Kíimmersveitin er skipuð
fiðluleikurunum Da\id Jurtiz og Mayu
Magub, víóluleikurunum Judith Bus-
bridge og Juliu Knight og sellóleikurun-
um Sebastian Comberti og Juliu Des-
bruslais. Fyrsti hornleikari Sinfóníu-
hljómsveitar Islands, Joseph Ognibene,
mun einnig Icika með kammersveitinni
á tónleikunum. Á efnisskrá eru verk eftir
Benjamin Britten, Richard Strauss,
Mozart og Brahms.
Dagskrá um Mexikó
Eistaklúbbur Leikhússkjallarans efnir til
fræðslu og skemmtidagskrár um Mex-
ikó, mánudaginn 6. nóvember kl. 20.30.
Ástæðan er sú að í Mexikó hefur skapast
sérslök hefð til að halda hátíðlega „E1
día de los muertos" eða allrasálnamessu,
eins og hún hcitir á íslensku. Meðal efn-
is cr erindi Ellenar Gunnarsdóttur sagn-
fræðings sem ber titilinn Konur og kaþ-
ólskan í barrokk Mexikó, Ilutt verður
mexikönsk tónlist og Sigurður Hjartar-
son mun útskýra mcnningarsögulegt
gildi hátíðarhaldanna. I lok dagskrár
fara mexikanskar konur, búettar á Is-
landi, með gesti í „lautarferð“ út í kirkju-
garð til fundar við ættingja og \ini í til-
efni dagsins.
SÝNINGAR
Kvikmyndir Rósku
í Nýlistasafninu
Um helgina verður haldin k\ikmyndahá-
tíð í Nýlistasafninu tileinkuð Rósku.
Sýndar verða myndirnar: LYimpossi-
bilita di resitare Elettra Oggi, Sjö heim-
ildaþættir um Island, Ballaðan um Ólaf
Láljurós og Sóley. Myndimar verða sýnd-
ar á nýju kaffihúsi Nýlistasafnsins á
föstudags- og laugardagskvöld. Föstu-
dagur kl. 21.00 Sóley og valdir þættir úr
heimildaþáttaröðinni um Island. Laug-
ardagur 4. nóv. kl. 21.00 Ballaðan um
ÓLaf Liljurós og Elettra. Auk þess verða