Dagur - 03.11.2000, Blaðsíða 17

Dagur - 03.11.2000, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2 000 - 17 BÆKUR m Þögn á bók Iðunn hefur gefið út skáldsöguna Þögnin eftir Vig- dísi Grímsdóttur og er þetta sjö- unda skáldsaga hennar. í bókinni, segir útgefandi, að í sögunni stilli höfundur ást og auðsveipni andspænis kúgun og vitfirringu og spyr hver sé fórnarlamb og hver böðull. Hugarheimnr hinna minnstu bræðra Bróðir Lúsífer er heiti á nýjustu bók Friðriks Er- lingssonar og Ijórða skáldsagan hans sem út kem- ur. í sögunni skyggnist höf- undur inn í hugarheim þeirra sem minnst mega sín. Ung hjón sem búa suður með sjó líta á það sem köll- un, að veita drengjum sem eiga erfitt uppdráttar sama- stað og aðhald. Þar grípur hver og einn til sinna ráða og sem víðar hefur hver sinn djöful að draga. Iðunn gefur út. 7] Vægðarlaus veröld Iðunn Steinsdóttir hefur samið fyrstu skáldsögu sína fyrir full- orðna og nefnist hún Haustgríma. Efniviðurinn er sóttur aftur til Víkingaaldar. Þetta er miskunnarlaus Ijölskyldusaga þar sem allir berjast í vægðarlausri veröld. Byltingin étux bömin Skáldsagan Bylt- ingarbörn eftir Björn Th. Björns- son er komin út hjá Iðunni. Hún Ijallar um þau áhrif sem trúar- byltingin sem Marteinn Lúter stóð að, hafði á Islandi. Afleiðingarnar urðu mikl- ar og hór er rakið hverjar þær voru helstar í Skálholti, þar sem ungir kennimenn undirbjuggu byltingu sína með leynd. Höfundurinn hefur áður skrifað margar sögulegar skáldsögur þar sem mannleg örlög og tíðar- andi eru tengd sögulegum atburðum. Risaeðlur Bókin um risaeðlur eftir Dav- id Lambert vekur þessar fornu skepnur til lífsins, það er að segja á síðum bókar- innar, sem Mál og menning gefur út. Bókin er stór í sniðum og í henni er íjöldi mynda sem skýrir útlit og lifnaðarhætti löngu útdauðra dýra ekki síð- ur en margorður texti. Höf- undurinn er sérfræðingur í fræðum sem íjalla um hvern- ig risaeðlur og aðrar forn- sögulegar skepnur þrifust og dóu í háskalegri náttúru. Ungir höfundar og gleymdrr snillingar Bókaforlagið Bjartur sendirm.a.frá sér þrjár íslenskar skáld- sögur, ásamtþriðju bókinni um Harry Potter. Hjá bókaforlaginu Bjarti koma út þrjár íslenskar skáldsögur nú fyrir jólin. „Það er bók eftir Sigurjón Magnússon, sem var með bókina Góða nótt Silja fyrir tveim árum. Hann vakti mikla athygli á sínum tíma, byrjaði að skrifa rosalega seint og gekk undir nafninu tryggingasalinn,“ segir Snæbjörn Arngrímsson. „Hann er að senda frá sér aðra bók núna og hún heitir „Hér hlustar aldrei neinn“, afskap- lega uppörvandi titill." „Svo er það Guðrún Eva Mínervudóttir, með bók sem heitir Fyrirlestur um hamingj- una. Það er svona íjölskyldu- saga, segir frá íjölskyldu í þrjá ættliði. Byrjar á ungum Haraldi og endar á honum sem afa. Fókusinn flyst alltaf á milli kyn- slóða, þegar nýtt barn kemur flyst fókusinn þangað," segir Guðrún Eva Mínervudóttir. Snæbjörn. „Steinar Bragi er svo með sína fyrstu skáldsögu sem heitir Turninn. Hann var með ljóða- bók í fyrra sem vakti dálitla at- hygli. Þetta er kannski sá af yngri höfundunum sem einna mest er vænst af núna,“ segir Snæbjörn. Gleynidir sniHingar Gyrðir Elíasson er einnig með eina bók hjá Bjarti, en alls koma út frá Gyrði þrjár bækur í ár. „Við erum með ritgerðasafn eftir hann um bókmenntir og rithöfunda, sérstaklega gleymda snillinga sem honum finnst hafa lent utangarðs. Hún kemur út í neonbókaflokknum,'1 segir Snæbjörn. „Svo er eitt trompið enn, og það er bók Þorvaldar Þorsteins- sonar, sem fyrir nokkrum árum skrifaði bók sem heitir Blíðfinn- ur. Ilann er með nýja bók sem heitir „Ert þú Blíðfinnur? Ég er með mikilvæg skilaboð". Þarna segir aftur af Blíðíinni, þetta er sami heimur. Þetta er algjör kilja þessi bók,“ segir Snæ- björn. Þá nefnir Snæbjörn nýja barnabók eftir eftir Janosch, „sem er mjög vinsæll og ótrú- lega margir sem bíða spenntir eftir þessari bók. Guðrún Hann- esdóltir, sem var hjá Forlaginu, er núna komin yfir til okkar með barnabók sem heitir Ein- hyrningurinn." „Þá er nú íslenska deildin upptalin. En svo erum við auð- vitað með Harry Potter, þriðja bókin um hann kemur núna íjórða nóvember,“ segir Snæ- björn. „Það eru víst nokkuð margir sem bíða spenntir eftir henni.“ -GB Sitt af hverju tagifrá Forlaginu Forlagið sendirfrá sér nokkrar vandaðar bæk- ur í ár. Dagur kynnti sérmálið. Kristján B. Jónasson, útgáfu- stjóri Forlagsins, nefnir fyrst til bókina Dís, sem sem er rétt ný- komin út og er eftir þrjár ungar konur, þær Birnu Onnu Björns- dóttur, Oddný Sturludóttur og Silju Hauksdóttur. „Þetta er bókin sem aldurs- hópurinn urn og í kringum tví- tugt vantaði, bók unt ungt fólk sem skrifuð er um það sem er að gerast hér og nú. Eg beld að fæstir á þeim aldri hafi mjög gaman af þessum hefðbundnu sögulegu skáldsögum, fólk er að spá í sitt nánasta umbvcrfi og þá verða hlutirnir að vera bein- skeyttir og skemmtilegir," segir Kristján. „Þetta er fyndin bók og því er hún líka kjörin fyrir alla þá sem hafa gaman af fyndnum bókum.“ Frá Forlaginu kemur einnig ný skáldsaga eftir Birgi Sigurðsson, hans fyrsta skáldsaga frá því Hengiflugið kom út 1993. „Þetta er mjög mögnuð bók, lýs- ing á manni sem er kominn að þrotum í lífi sínu en er nú að taka nýjan kúrs. Hann hefur gengist undir erfiða krabba- meinsmeðferð, konan skilur \dð hann og hann á í raun engan lengur að en þá verður óvæntur atburður til þess að líf hans tek- ur nýja stefnu. Þetta er bjartsýn saga um fólk sem þorir að breyta Iífi sínu til hins betra og gangast við tilfinningum sínum," segir Kristján. „Þarna er líka verið að korna inn á efni eins og um- hverfisbaráttuna, sem Birgir hefur tekið þátt virkan þátt í.“ Kristján nefnir einnig til þýdda bók, Ströndina eftir Alex Garland, sem nýleg bíómynd var gerð eftir með Leonardo di Caprio í aðalhlutverki. „Því mið- Birgi Sigurðsson. ur var myndin ekki alls kostar nógu góð, en bókin er mjög sterk og er ein af lykilbókum tí- unda áratugarins. Hún ljallar um þessa Ieiðindatilfinningu sem svo margt ungt fólk hefur. Öllum finnst eins það sé búið að gera allt sem hægt er að gera og öll ævintýrin séu búin. Aðalper- sóna sögunnar fær hins vegar skyndilega tækifæri til að breyta því,“ segir Kristján. Fyrir þá sem nenna ekki að lesa „Sfðan erum við að gefa út bók fyrir fólk sem hefur gaman af að blaða í bókum, en nennir ekki að lesa þær. Það er Bókin um svörin, sem er mikil tískubók. Þetta er 750 blaðsíðna bók sem er ekkert nema svör. Menn hugsa sér einhverja spurningu og flctta svo upp á einhverri blaðsíðu í bókinni, en á hverri Sigfús Daðason. hægrisíðu er bara eitt svar. Höf- undurinn er bandarísk lista- kona, Carole Bolt, scm upphaf- lega bjó þetta til sem konsept- verk en þetta hefur algerlega slegið í gegn á almennum mark- aði.“ Loks nefnir Kristján tvö rit- söfn eftir íslenska höfunda. „Það er afar ánægjulegt að senda frá sér þessar stóru og fal- legu bækur, Ský fyrir ský, heild- arsafn ljóða Isaks Harðarsonar og Ritgerðir og pistlar eftir Sig- fús Daðason, þar sem komið er saman megnið af því sem Sigfús skrifaði. ísak er mikið skáld og sýn hans á samtímann er ekkert minna en spámannleg. Hvað varðar bók Sigfúsar þá sýnir hún vel hvílíkur afburðahöfundur hann var á laust mál. Hér má sjá ritmennsku og Inigsun í hæsta gæðaflokki," scgir Kristján B. Jónasson. -GB

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.