Dagur - 03.11.2000, Blaðsíða 2
2 - FÖSTVDAGUR 3. NÓVEMBER 2000
Ðggur
FRÉTTIR
Ráðuneytm á
Amarhvolstorfu
Frá blaðamannafundi miðborgarstjórnar í gær þar sem áformin voru kynnt
Uppbygging miðborg-
ar. „Randbyggingar“
fyrir stjómarráð. Ný-
byggingar Eimskipa í
Skuggahverfi. Lista-
og menniiigarhús.
Stjórnvöld áforma að koma allri
starfsemi ráðuneyta á svokali-
aðra Arnarhvolstorfu í miðborg-
inni að utanríkisráðuneytinu
undanskildu. I þessum cfnum
verður bæði horft til endurbóta á
þcim húsum sem fyrir séu og til
nýbygginga. Meðal annars er
þegar hafin undirbúningur að
því að breyta Landssimahúsinu
og Landssmiðjuhúsinu vegna
þessa og er stefnt að því að þau
verði tekin í notkun undir stjórn-
sýslu ríkisins áður en langt um
líður. Þetta er iiður m.a. liður í
uppbyggingu miðborgarinnar
sem miðstöðvar stjórnsýslu, við-
skipta og menningar.
„Randbyggingar“
Þetta kom m.a. fram á blaða-
mannafundi í gær þar sem mið-
borgarstjórnin kynnti samstarfs-
verkefni um skipuiag og upp-
byggingu í miðborginni. Af hálfu
stjórnvalda er þegar hafin
vinnsla við gerð deiliskipulags á
svokölluðum stjórnarráðsreit
sem er á milli Ingólfsstrætis og
Klapparstígs annars vegar og
Skúlagötu og Lindargötu hins
vegar. Vestan á reitnum er gert
ráð fyrir þriggja hæða stjórnar-
ráðsbyggingum, svoköiluðum
„randbyggingum", görðum í
miðjunni með gróðri og göngu-
stígum sem eiga að nýtast jafnt
starfsfólki og almenningi. Suð-
austan á reitnum er hins vegar
áfram gert ráð fyrir lágreistri
byggð. Á þann hátt er stefnt að
því að viðhaida þeim byggingar-
stíl sem fyrir er jafnframt scm
fyllt verður í þau skörð sem þar
eru. Þá cr fyrirhugað að flest
bílastæði fyrir stjórnarráðsbygg-
ingarnar verði neðanjarðar.
Nýbyggingar Eimskipa
Þá er Eimskip að vinna að
deiliskipulagi fyrir íbúðabyggð á
lóðum félagsins við Skúlagötu, á
milli Frakkastígs og Klapparstígs.
I tengslum við það verkefni hef-
ur náðast samkomulag á milli fé-
lagsins og borgarinnar um að
þróa nýtt deiliskipulag fyrir allt
Skuggahverfið. Ráðgert er að ný-
byggingar þar geti orðið að
minnsta kosti um 50 þúsund fer-
metrar. Miðað er við að þarna
verði blönduð byggð með 250
íbúðum í hæsta gæðaflokki. Á
svæðinu verða einnig verslanir
og skrifstofuhúsnæði. Áhersla
verður lögð á einyrkja og lítil og
meðalstór fyrirtæld f þekkingar-
iðnaði.
Gler gegn norðanátt
Þessutan er vilji til þess að Lista-
háskólinn fái aðsetur í Tollhús-
inu og húsin þar í vestur eins t.d.
Hafnarhúsið verði nýtt undir
ýmis konar listastarfsemi. Meðal
annars hcfur Bolli Kristinsson
kaupmaður fengið arkitekta til
að móta tillögu að menningar-
og listahúsum norðan megin við
Tryggvagötu. Þau yrðu m.a.
tengd saman með glerbyggingum
sem mundu skýla miðbænum
fyrir norðanáttinni. I tillögunni
er gert ráð fyrir listmuna- og
bókaverslunum, sýningarbásum
og vinnuaðstöðu fyrir Iistamenn.
Þá hefur Bolli einnigviðrað hug-
myndir um sjávarútvegssafn á
Miðbakka. -GRH
Gyrði afhent verðlaunin í gær.
Gyrðiro^
Giila husið
Gyrði Elíassyni rithöfundi voru í
gær afhent Bókmenntavcrðlaun
Halldórs Laxness. Verðlaunin fékk
hann fyrir bókina Gula húsið. Það
er Vaka -Helgafell sem stendur að
verðlaununum í samráði við fj'öl-
skyldu skáldsins. Var Gyrði, við at-
höfn, afhent fyrsta eintakið af bók
sinni, auk 500 þúsund króna sem
eru verðlaunafé.
Það var Olafur Ragnarsson
stjórnarformaður Eddu sem
kynnti niðurstöðu dómnefndar,
sem sagði um verðlaunabókina
að hún væri safn fjölbreyttra og
vel skrifaðra smásagna. I sum-
um þeirra rynni saman draumur
og veruleiki með áhrifamiklum
hætti . þannig að allt virðist
mögulegt og í sumum vinnur
höfundur eftirminnilega úr ís-
lenskri þjóðtrú. Á stundum
vekja sögurnar óhugnað með
lesandanum, meðan aðrar ein-
kennast af lágstemmdri kímni,"
segir dómnefndin sem skipuðu
Pétur Már Ólafsson, Ármann
Jakobsson og Kolbrún Bergþórs-
dóttir.
Vantar vmnuafL á
höfuðborgarsvæði
Vmnuaflsskortiir hef-
ur aldrei mælst meiri
á höfuðhorgarsvæð-
inu, um 1.000 manns
- og aldrei minni á
landsbyggðinni þar
sem 400 maims er of-
aukið.
Atvinnurekendur á Reykjavíkur-
svæðinu vantaði yfir 1.000
starfsmenn í september og hefur
eftirspurnin þar aldrei mælst
meiri á þessum árstíma ( sem
svarar 1,6% vinnuaflsins). Hins
vegar töldu atvinnurekendur á
landsbyggðinni æskilegt að
fækka fólki um nær 400 manns
(1,1% vinnuaflsins). Þar hefur
eftirspurn eftir vinnualli aldrei
mælst minni frá þvf Þjóðhags-
stofnunar hóf reglulegar mæling-
ar sínar á atvinnuástandi þrisvar
áárifrál985. Samkvæmt yfirliti
frá 1996 hóf að draga sundur
með höfuðstaðnum og lands-
byggðinni í janúar í fyrra og sá
munur hefur síðan farið vaxandi,
þó aldrei líkt og nú. Áætlað er að
í höfuðstaðnum aukist eftirspurn
eftir fólki aukist enn um 3%
næsta árið.
Suðurland og Akureyri und-
antekningar
Á landsbyggðinni mældist vilji til
fækkunar starfsmanna í flestum
eða öllum atvinnugreinum, en
þó áberandi mestur í bygginga-
vinnu og þjónustustarfsemi, um
140 manns í hvorri grein, en ein-
nig töluvert í iðnaði og fiskiðn-
aði, sem taldi um 40 manns
(0,7% fiskvinnslufólks) ofaukið.
Að sögn Þjóðhagsstofnunar á
þetta almennt við á landsbyggð-
inni með fáum undantekningum
s.s. Suðurlandi, Suðurnesjum og
Akureyri.
Þenslan gríðarleg syðra
I höfuðstaðnum er myndin öll
önnur, sem áður segir, þar sem
vantar um 400 manns í ýmiss
þjónustustörf, einkum í greinum
tengdum tölvunar-, tækni- og
verkfræði ásamt viðskiptafræð-
um. I höfuðstaðnum vantar Iíka
310 manns í byggingaiðnað og
160 manns í aðrar iðngreinar,
einkum trjávöru- og matvælaiðn-
að. Þá vantar um 120 manns til
starfa við verslunar- og veitinga-
rekstur og samgöngufyrirtæki
vantar nokkra tugi. Og ekkert lát
virðist á þeirri þenslu sem þetta
ástand lýsir. Vinnuveitendur
voru m.a. spurðir um núverandi
starfsmannafjölda og síðan beðn-
ir að áætla fjölda starfsmanna í
desember og síðan apríl og sept-
ember 2001. Af svörum þeirra er
ráðið að eftirspurn eftir vinnuafli
muni vaxa um 3% fram á næsta
haust, eða hátt í 2.000 manns, á
höfuðborgarsvæðinu, en verði
óbreytt á landsbyggðinni, þ.e.
eftir þá 400 manna fækkun sem
þeir óskuðu eftir í september.
-HEI
Styðja forsvarsmenn Grundar
Heimilisfólk á Grund og að-
standendur eru kvíðafullir vegna
málshöfðunar íslenska ríkisins
gegn heimilinu og þykir sem ör-
yggi sínu sínu sé ógnað með
stefnu heilbrigöisráðherra fyrir
hönd ríkisstjórnar Islands gegn
heimilinu til ógildingar úrskurði
gerðadóms um ákvörðun dag-
gjalda til Grundar.
Þetta kom glöggt fram á fundi
sem haldinn var í Hátíðarsal
Grundar í gær. 180 manns sóttu
fundinn og einn fundarmanna
bar fram eftirfarandi ályktun
sem var samþykkt einróma:
„Afar fjölmennur fundur með
hcimilisfólki Grundar, aðstand-
endum og starfsfólki, lýsti full-
um stuðningi við forsvarsmenn
Grundar í daggjaldabaráttu þeir-
ra við heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytið. Jafnframt skor-
ar fundurinn á ráðuneytið að
falla frá málssókn og setjast að
samningaboröi með forsvars-
mönnum Grundar".
INNLENT
Lokanir á leikskólum spara milljónir.
Lokun leikskóladeilda sparar 35
milljónir
Áætlaður sparnaður af því að þrír leikskólar Reykjavíkur hafa ckki
verið í fullum rekstri og opnun nýs leikskóla var frestað íram yfir ára-
mót nemur um 35 milljónum króna. „Forsendur þess að heildarút-
gjöld Leikskóla Reykjavíkur haldist innan fjárhagsáætlunar er að of-
angreinda kostnaðarlækkun megi nýta til að mæta útgjaldaaukan-
um,“ segir í greinargerð fjármáladeildar borgarinnar um reksturinn
eftir fyrstu níu mánuði ársins. Sérkennsla stefnir nefnilega 27 millj-
ónir fram úr áætlun þrátt fyrir hagræðingarátak. Enda Ijölgar bæði
þeim börnum sem þurfa sérkennslu og þau koma yngri inn í skólana.
„Barnsburðar- og námsleyfapotturinn" stefnir líka 25 milljónir fram-
úr áætlun. -HEl
Mikill samdráttur í laxveiði
Alls veiddust hér á Iandi á liðnu sumri um 26.700 laxar sem er um
I 5% minni veiði en í fyrra og fjórðungi minna en meðaltal áranna
1974 til 1999. Þetta kemur fram í tölum sem Veiðimálastofnun
kynnt í gær. Þar segir að mest hafi veiðin dregist saman á Vestur-
Iandi, Vestfjörðum og Norðurlandi vestra, en hins vegar aukist fyrir
sunnan og austan. Afli í net var 4.000 laxar, eða 2.600 fiskum rninna
en í fyrra. -SBS.