Dagur - 03.11.2000, Blaðsíða 16

Dagur - 03.11.2000, Blaðsíða 16
16- FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 2000 (AKDlWM r Verslumrmiðstöðin Glerártorg opmði ígær- morgun. Vansvefta iðn- aðarmenn á harða- sprettifram á síðustu stundu. Sálfræðileg þýðing, segirkaupfé- lagsstjórinn. Vansvefna smiðirnir voru að slá síðustu tónana í hamrasin- fóníu sinni þegar tíðindamenn Dags komu á vettvang á Gler- ártorgi í gærmorgun. Ys og þys var á svæðinu enda örstutt í opnun. Mikið fór fyrir hrein- gerningafólki sem var að skrúbba gólf og bóna. Þegar klukkuna vantaði fjórtán mín- útur í ellefu byrjaði Lúðrasveit Akureyrar að leika opnunar- mars, en í hinum enda hússins heyrðist borvélarsöngur. Hann íjaraði út þegar klukkan sló ellefu og Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Glerártorgi, steig á stokk og kynnti dagskrá há- tíðarinnar. Rúm, dýnur og rómantísk kerti Fólk af ýmsu sauðarhúsi sprangaði um ganga Glerár- torgs í gærmorgun ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni bæjar- stjóra sem hlotnaðist sá heiður að klippa á borðann mikla til marks um að verslunarmið- stöðin væri opnuð. Sagði Krist- ján í stuttri tölu að vísast myndi Glerártorg styrkja verslun á Akureyri, ekki að- eins inn á við heldur líka í samkeppni við Reykjavíkur- svæðið og útlönd. - A líkum nótum talaði Eiríkur Jóhanns- son kaupfélagsstjóri KEA í samtali við blaðamann. „í mínum huga hefur þetta mikla sálræna þýðingu, gefur Norð- lendingum trú á framtíðina. Með þessu treystum við einnig stöðu og ímynd verslunar KEA hér á svæðinu." Það er Jákob Jakobsson eig- andi Rúmfatalagersins og Smáratorgs sem byggir, á og rekur Glerártorg - og húsnæð- ið leigir hann svo út. í tölu sem Jákob flutti við opnunina sagði hann að mikilvægt væri að íbúum á Norðurlandi fjölg- aði. í þeim efnum ætlaði hans fyrirtæki að leggja sitt af mörkum, með því að selja rúin, dýnur, kodda og róman- tísk kerti. Þetta rósamál Ják- obs kunnu gestir vol að meta og klappaði fyrir því. Búin að vera mikil töm Á lokasprettinum í' gærmorgun mátti víða sjá vansvefta fólk með bauga undir augum. Flísa- lagningamenn að sunnan hitt- um við sem, höfðu þá verið í vinnu stanslaust í 38 tíma. Síð- ustu daga á undan höfðu þeir yfirleitt soíið þrjá til fimm tíma á sólarhring. „Við lendum stundum í svona törnum, síðast í fyrra þegar Kringlan var opn- uð,“ sagði Þorlákur Pétursson, einn þeirra. — „Gefur Norðlendingum trú á framtíðina,"segir Eiríkur Jóhannsson, kaupfélagsstjóri KEA, sem hérséstmeð Sigmundi E Ófeigssyni, framkvæmdastjóra Matbæjar. Unnið stanslaust í 36 tíma. Dúkalagningamennirnir Þorlákur Pétursson, Þór Guðnason og Ari Oddsson Allt á fullu. Iðnaðarmaður á elleftu stundu. Þá var Pálmi Björnsson kaupmaður í versluninni Djásn- inu á fullu í sinni verslun á ell- efta tímanum. „Þetta er búin að vera mikil törn,“ sagði Pálmi. Það varð ekki ljóst fyrr en fyrir um mánuði síðan að hann fengi inni á Glerártorgi og þá tók við að teikna, innrétta og koma öllu í gegn. Dyrnar fyrir verslunina komu ekki fyrr en um klukkan sjö í gærmorgun og þá tóku iðn- aðarmenn við að setja þær upp. Það rétt tókst á ellefta tímanum í gærmorgun. „Þá áttum við að fá hingað fullt af nýjum vörum með vörubíl sem síðan valt í Ilúnavatnssýslu á leiðinni norð- ur. Því varð ég að bjarga mál- um með vörum sem ég átti á lager,“ sagði Pálmi Sairnar sig á fyrsta degi? Hryssingslegt veður var á Akur- eyri í gærmorgun, norðanþræs- ingur og skítakuldi. Því má ef til vill segja að strax á fyrsta degi hafi Glerártorg sannað gildi sitt, þar sem viðskiptavinir spókuðu sig í þægilegum húskynnum; hlýjum, björtum og rúmgóðum. „Þetta breytir kannski ekki öllu, við vitum að veðrið á Akureyri er gott,“ sagði Sigmundur E. Ófeigs- son, framkvæmdastjóri matvöru- deildar KEA. „í mínum huga er mikilvægast að þetta mun styrkja verslun á Norðurlandi auka vöruúi'val og skapa fólki ný tækifæri í verslun og þjónustu." -SBS. Allt á aflurfótunum en tókst á endan- um. Pálmi Björns- son kaupmaður í Djásninu.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.