Dagur - 03.11.2000, Page 11
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 2000 - 11
T>Mptr.
ERLENDAR FRÉTTIR
Landnámsmenn
úti í geimnum
Þrír geimfarar voru í
gær að búa sér til
heimili úti í geimniim
og eru ekki væntan-
legir til baka næstu
mánuðina.
Tveir Rússar og Bandaríkjamað-
ur hófu í gær að búa sér heimili
inni í hinni Alþjóðlegu geimstöð
sem hringsólar á braut um jörðu.
Þeir komu úr löngu ferðalagi frá
jörðinni fyrr um daginn og voru
búnir að ganga frá geimhylkinu
sem þeir komu í á þar til gerðum
stað við geimstöðina. Geimstöð-
in er hugsuð sem áfangastaður
til frekari geimferða, jafnvel til
annarra hnatta og yrði hún þá
fyrsti áfangastaðurinn eins kon-
ar sæluhús í lengri ferðum.
Það var mikið um fagnaðarlæti
í jarðstöðinni rétt utan við
Moskvu þegar stöðvarstjórinn
sem sér um að fvlgjast með og
hafa samband við geimfaranna
tilkynnti að hylkið hefði komið
heilu og höldnu að stöðinni og
allt hefði gengið vel við sam-
tenginguna. Geimfararnir þrír,
Yuri Gid/enko og Sergei Krika-
lyov frá Rússlandi og Bandaríkja-
maðurinn William Shepherd
gengu um borð í geimstöðina
þegar klukkuna vantaði 10 mín-
útur í 11:00 í gærmorgun og
skömmu síðar sendu þeir fyrstu
myndirnar til jarðar. Það var
greinilegt að allir voru ánægðir
með þennan áfanga og á mynd-
unum mátti sjá að það átti ekki
hvað síst við um geimfarana þrjá
sem búnir eru að eyða mörgum
árum ævi sinnar í að þjálfa sig
fyrir þessa ferð. Nú hefst hins
vegar mikið verk hjá þeim við að
koma geimstöðinni í nothæft
ástand. I gær voru þeir einungis
með súrefnisbirgðir til tveggja
daga og höfðu ekkert nema
pakkamat til að borða, en á
næstu vikunni felst starf þeirra í
því að koma í gang alls kyns vél-
um og kerfurn geimstöðvarinnar
sem munu gera mönnunt kleift
að búa þar í sem eðlilegustu um-
hverfi. Þessir þrír eru heldur ekki
á förum úr stöðinni á næstunni
því þeir munu verða þar í 118
daga eða tæpa fjóra mánuði!
Mðrgæsimar
Detta mörgæsir aftur f\rir sig
þcgar þær horfa á flugvélar
fljúga yfir? Þetta er spurning
sem tveir breskir vísindamenn
hafa verið að velta fyrir sér en
þeir eru nú að fara til Suður-Ge-
orgíu til að finna svar við þessari
og fleiri spurningum með ítar-
lcgri rannsókn á 400.000 kónga-
mörgæsum. Yfirleitt hafa vís-
indamenn verið frekar efins um
fullyrðingar um að mörgæsirnar
dyttu aftur fyrir sig þegar flug-
vélar fljúga yfir en háttsettur yf-
irmaður á breska herskipinu
Endurance, sem er að fara með
vísindamennina til Suður-Ge-
orgíu kveðst trúa þessu, í það
minnsta hvað varðar þyrlur. Þá
horfi mörgæsirnar á vélarnar þar
detta!
til þær detti aftur fyrir sig.
Astæðan lyrir því að menn hafa
áhyggjur af þessu er sú að þetta
er talið benda til mikillar tauga-
spennu hjá mörgæsunum og
hún gæti haft skaðleg áhrif á
þennan tiltölulega litla fugla-
stofn.
Banvæn sprenging 1 Jerúsalem
Skömmu áður en tilkynna átti um
vopnahléssamninga sem þeir Ara-
fat og Barak hafa staðið að, varð
mikil sprenging í þröngu stræti í
miðborg Jerúsalem. Tveir menn
létust í sprengingunni en í íyrstu
bar fréttum ekki saman um hvort
það voru ísraelar eða palestínskir
tilræðismenn sem sem lágu í valn-
um.
Þegar eftir sprenginguna var
frestað að tilkynna um vopnahlés-
skilmálana. í fyrradag hélt Peres
fyrrverandi forsætisráðherra til
viðræðna við Arafat í Gaza til að
freista þess að koma á vopnahléi,
en síðustu fimm vikurnar hafa
blóðug átök átt sér stað milli Isra-
ela og Palestínumanna. Þeir Peres
og Arafat fengu á sínum tíma frið-
arverðlaun Nobels fyrir friðarvið-
leitni, en glámskyggni norsku Nóbelsnefndarinnar eru Iítil takmörk
sett. En með einhverjum hætti tókst gömlu verðlaunahöfunum að
komast að einhv'erns konar vopnahléssamkomulagi, sem sýnist ætla
að koma fyrir • lítið. Hispollaskæruliðar scgjast ekki munu virða
vopnahléið og meirihluti stjórnarinnar í ísraelska þinginu er fallinn.
Nýja geimstöðin möimuð
Tvæir rússneskir og einn bandarískur geimfari eru komnir um borð í
alþjóðlegu geimstöðina, sem brjóta mun blaö í könnun og ferðalög-
um utan jarðarinnar. Geimstöðin verður dýrasta einstaka mannvirk-
ið sem ráðist hefur verið í.
Enn á eftir að bæta miklu við geimbygginguna en smíði hennar og
samsetning tekur mörg ár. Gcimstöðin er í um 380 km fjarlægð frá
jörðu og munu menn búa í henni um mörg ókomin ár. Frá henni
verður farið í lengri ferðalög út í geiminn og í stöðinni á að stunda
margs konar rannsóknir, sem ekki er hægt að gera á jörðu niðri.
Palestínskur hermaður reynir að fá
ungan samlanda sinn til að hætta
grjótkasti á ísraelskan hermann
eftir að tilkynnt var um viðræður
um vopnahléssamninga.
AlríWslögreglu meiuaður aðgangur
Yfirvöld í Jemen gera oandarískum lögreglumönnum erfitt tyrir að
rannsaka hverjir stóðu að spengingunni sem laskaði herskipið Cole í
höfninni í Aden. Auðsjánlega er um skemmdarverk að ræða og fórust
17 sjóliðar í spengingunni og á fjórða tug særðust.
Stjórnin í Jemen hét Bandaríkjamönnum fullri samvinnu við að
rannsaka málið og taldi ekkert því til fyrirstöðu að menn frá alríkis-
lögreglunni FBl fengju að athafna sig í landinu. En nú þykir amer-
ísku lögreglumönnunum að þeir fái ekki allar upplýsingar sem þeir
þarfnast og er samvinna lögreglusveitanna frá Jemen og Bandaríkj-
unum stirð.
Aðstandendur krefjast svara
Aðstandendur þeirra sem fórust eða slösuðust er flugvél frá Singa-
pore Airlines hlekktist á í flugtaki á flugvelli á Tapei krefja flugfélag-
ið svara um hvað olli slysinu.
Mikil reiði rikir meðal þeirra sem eiga harma að hefna. Spurt er
hvers vegna flugtak hafi verið reynt í ofsaroki og rigningu og hvort
flugvélin hafi verið á rangri og ónothæfri flugbraut og hvort hún hafi
rekist á vélskóflu í flugtakinu. En óvarkárni er kcnnt um hvernig fór.
■ FRÁ DEGI
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER
308. dagur ársins, 58 dagar eftir.
Sólris kl. 9.18, sólarlag kl. 17.04.
Þau fæddust 3. nóvember
• 1801 Vincenzo Bellini, ítalskt óperu-
tónskáld.
• 1901 André Malraux, franskur rithöf-
undur og stjórnmálamaður.
• 1922 Charles Bronson, bandarískur
leikari.
• 1933 Amartya Sen, indverskur hag-
fræðingur sem hlaut Nóbelsverðlaunin
í hagfræði árið 1998.
1951 Birgir Svan Símonarson skáld.
Þetta gerðist 3. nóvember
• 1660 hófst Kötlugos, sem stóð fram á
vetur.
• 1903 lýsti Panama yfir sjálfstæði,
• 1942 laulv, orrustu Breta og Þjóðverja
við E1 Alamein í eyðimörkinni í Norður-
Afríku, þar sem þeir Montgomery' og
Rommel voru í forustu herjanna. Orr-
ustan markaði viss þáttaskil í seinni
heimstyrjöldinni.
TIL DAGS
• 1957 sendu Sovétmenn fyrsta dýrið út
í geiminn í lítilli dós sem þeir kölluðu
Sputnik 2. Fórnarlambið var hundur að
nafni Laika, sem Iifði í sjö daga úti í
geimnum en var þá svæfður, eins og
það heitir víst.
• 1968 var Alþýðubandalagið stofnað
sem stjórnmálaflokkur.
• 1978 hélt Megas fræga tónleika í
Menntaskólanum við Hamrahlíð undir
heitinu Drög að sjálfsmorði.
• 1986 skýrði tímarit í Líbanon frá því að
Bandaríkin hefðu selt Irönurn vopn í
þeirri von að með því mætti fá lausa
bandaríska gfsla sem stuðningsmcnn
Irana höfðu í haldi í Líbanon. Ronald
Reagan skýrði skömmu síðar frá því að
bann hafi vitað um þessa vopnasölu.
Vísa dagsins
Slokknaði faguii lista Ijós.
Snjókólgudaga hríðir hctrðar
til heljar draga blómann jarðar.
Fyrst deyr í haga rauðusl rós.
Jónas Hallgrímsson
Afmælisbam dagsins
Vilhjálmur Stefánsson mannfræðing-
ur og landkönnuður var fæddur í
Kanada þann 3. nóvember árið 1879.
Nánar tiltekið fæddist hann í Arnesi í
Manitóba, en bjó reyndar lengst af í
Bandaríkjunum. Hann er þekktastur
fyrir rannsóknarleiðangra sína á
Norðurheimskautssvæðið og ritaði
Ijölmargar greinar og bækur um ferð-
ir sínar og íbúa á norðurslóðum. Nú
á síðustu áruin hefur komið í ljós að
hann á all nokkra afkomendur meðal
Irumbyggja í Kanada, sem hann hafði
ekki hátt um á sinni tíð. Vilhjáhuur
Iést árið 1962.
Hefðin er það sem menn grípa til þegar
þeir hafa hvorki tíma né peninga til þess
að hlutina rétt.
Kurt Hcrbcrt Aldcr
Heilabrot
Hvaða dýr gengur á fjórum fótum um
morguninn, tveimur yfir daginn og þremur
þegar kvölda tekur?
Lausn á síðustu gátu: Tanngarðurinn.
Veffang dagsins
Jón Örn Giiobjartsson heitir nýútskrifaður
magistcr í íslenskum bókmcnntum við Há-
skóla Islands, sem lét sér ekki nægja að
skrifa lokaritgerð sína á pappír cins og
tíðkast hefur til þessa heldur setti upp
glæsilegan vef um etni hennar, sem er
„ópið f óreiðu listarinnar":
www.velja.is/master
•(llirji % f.þyK ibri'<m fifttn! go ugnOgatðár.
gu nilo .muKijyjUíito mufan-dflrti 6u iial i I
.jjlfjfa tifrfntllilrf 0£ I 6i;