Dagur - 10.11.2000, Qupperneq 4
4 — PRIÐJUDAGUR 10. NÓVF.MBER 2000
FRÉTTIR
Vil fá að hafa
hönd í hagga
Ólafur Jóhann Ólafsson: Ég kem ekki til með að skrifa handritið, en verð tiibúinn tii
skrafs og ráðagerða.
Slóð fiðrildanna kvik-
mynduð í Hollywood.
Bókin fær góða dóma
vestra.
„Aðalatriðið er að þetta verði vel gert.
Mín aðkoma að gerð kvikmyndarinnar
verður mestmegnis með óbeinum
hætti, en vissulega vil ég hafa hönd í
bagga varðandi túlkunina á sögunni,"
segir Olafur Jóhann Ólafsson rithöf-
undur og yfirmaður hjá Time-Warner,
en nú er að hefjast gerð kvikmyndar f
Bandaríkjunum eftir metsöluhók
Ólafs, Slóð fiðrildanna.
Ólafur Jóhann er búinn að semja við
Paloma Pictures í Hollywood um fram-
leiðslu á kvikmynd eftir bókinni Slóð
fiðrildanna, sem útleggst í enskri þýð-
ingu verksins The Journey Home og
kemur út vestra síðar í mánuðinum.
„Vitnisburður um hetjudáðir64
Söguefnið er ferð dauðvona konu heim
til Islands, eftir að hún hafði rekið
sveitahótel í Englandi um árabil.
Nokkrir ritdómar hafa þegar birst um
bókina í Bandaríkjunum. Library Jo-
urnal mælir eindregið með bókinni og
Booklist segir að sagan sé „geislandi“
og „vitnisburður um hetjudáðir lífs-
ins.“ A Islandi kom bókin út í fyrra og
varð söluhæsta bók ársins.
Aðaleigandi Paloma er gamall vinur
Ólafs, Siguijón Sighvatsson, en fram-
leiðslu myndarinnar mun stýra sam-
starfskona Sigurjóns, Anne-Marie
MacKay. En hver verður aðkoma Ólafs
Jóhanns umfram það að hafa samið
söguna? „Hér er maður svo lánsamur
að hafa umboðsmenn sem annast um
allt veraldarvafstrið. Umboðsmaður
minn, Gloria Loomis, vann með um-
boðsfyrirtækinu CAA í HoIIywood og
þau hafa séð um þetta allt - ég kom
ekki nálægt því. Eg er í sambandi við
FRÉTTA VIÐTALIÐ
Anne-Marie og vildi auðvitað vita um
hvers konar mynd ætlunin væri að búa
til. Næstu skref felast í því að skrifa
handrit eftir bókinni og byrja hugleiða
mönnunina; hverjir leika og hver Ieik-
stýrir."
- Mun Ólafur taka þátt í samningu
handritsins og valinu á leikurunum?
Ég verð í sambandi
„Ég verð f sambandi við þau og vil fá að
hafa eitthvað um þetta að segja. Eg
kem ekki til með að skrifa handritið,
en verð tilbúinn til skrafs og ráðagerða
og vil hafa hönd í bagga. Ég geri ráð
fyrir því að val á leikurum verði nokk-
uð sem við ræðum og komum okkur
saman um, en það er þeirra starf að
koma þessu á koppinn. Eg reikna fylli-
Iega með góðu samkomulagi um þessa
hluti.“
- Þtí vilt ekki nefna einhver óskanöfn
í aðalhlutverkið og leikstjóra?
„Nei, það er of snemmt að segja
nokkuð um það. Þau útbúa lista með
vanalegum hætti um þá sem koma til
greina og þær eru ýmsar sem gætu
komið veí út í aðalhlutverkinu."
- Hvenær á myndin síðan að hirtast
almenningi?
„Það hef ég ekki hugmynd um.
Svona ferill getur tekið langan tíma og
ræðst gjarnan af öðrum verkefnum
framleiðendanna. Sigurjón og Anne-
Marie ætla að ganga í forvinnuna strax
og svo er að sjá hvernig gengur eftir
það.“ - FÞG
í gærkvöldi komu nokkr-
ir núverandi og fyrrver-
andi þungavigtarmenn
sainan í Riígbrauðsgerð-
inni og tóku í spil. Þeirra á
meðal voru Ragnar Halldórsson,
fyrruin forstjóri ísal, Halldór
Blöndal þingforseti, Georg Ólafs-
son verðlagsstjóri og sr. Baldur
Kristjánsson sóknarprestur. Þess-
ir menn eru sagðir eiga ást á
bridgeí])róttinni sameiginlega og
fengu þeir að spreyta sig gcgn ein-
vala hópi íslenskra bridgespilara og þar á meðal
uokkrum fyrrverandi heimsmeisturum. Enguin
sögum fer af úrslitum en Ragnar og sr. Baldur eru
báðir fyrrverandi keppnisspilarar. Minna hefur
hins vegar farið fyrir opinberum bridgeafrekuin
Halldórs Blöndal en útspil hans í pólitíkinni eru
hins vegar landsfræg...
Halldór
Blöndal.
Ungur og róttækur strákur tuldraði í pottinum í
gær uin alla gamlingjana sem stjórnuðu verka-
lýðshreyfingunni og benti á það máli sínu til
sönnunar að þegar Starfsgreinasamband íslands
var stofnað á rústum gamla Verkamannasam-
bandsins þá hafi þurft að leita til ellilífeyrisþega
um að taka að sér formcnnskuna - eftir að gerður
hafði verið leynilegur starfslokasamningur við
fráfarandi formann Vcrkamannasambandsins.
Loks hreytti pilturinn út úr sér: „Ég held þeir
hefðu frekar átt að kalla nýja sambandið Starfs-
lokasamband íslands!“
Pottveijar hafa mikið rætt vandræðaganginn í
Flórída þar sem forsetakosningunum bandarísku
var klúðrað svo rækilega að reikna má með mála-
ferlum vegna fáránlegrar uppsetningar á kjör-
stöðum, auk þess sem kvartað er undan því að
blökkumenn hafi sums staðar í ríkinu verið
liindraðir í að kjósa og jafnvel að kjörkassar hafi
„týnst.“ Kuimasti samsærissmiðurinn í pottin-
um var ekki lengi að skýra þessa uppákomur með
því að ríkisstjóri Flórída, Jeff Bush, væri að tryg-
gja bróður sínum forsetaembættió með góöu eða
illu. Hér sannist enn einu sinni að „ber er hver að
baki nema sér
V_____________
Sigurgeir
Hreinsson
bóttdi á Hríshóli ogformaður
Búnaöarsambands Eyjafjaröar
Bændaklúbbsfundur á vegum
Búnaðarsambands Eyjafjarðar
fjallaði um sauðfjárrækt, nð
urstöður sýninga í haust,
skipulag sauðfjársæðinga í vet-
ur og kynningu á hrútum
Hellingur af sæði
- Hvemig gengur sauðfjóirnekliu í dag?
“Það hefur gert ræktunina bæði auðveld-
ari, markvissari og skemmtilegri eftir að far-
ið var að ómskoða sem gefur bændum tæki-
færi til að skoða kjötþykkt á gripum meðan
þeir eru ennþá lifandi. Það er helst þar sem
menn eru að ná árangri í dag, þ.e. fá meira
kjötmagn af hverjum grip. Vandamálið er að
allt of lítill hluti af þessum árangri kemur
inn sem tekjur þó menn nái mjög góðri
flokkun og séu með góðar skepnur. Við
bændur trúum Jivf að við séum að framleiða
betra kjöt fyrir markaðinn en áður, meira
aðlaðandi með hóflegri fitu og þykkari vöðv-
um.“
- Skipulag sauðfjársæðinga og kynningar
á hrútum var rætt áfundinum. Er verið að
horfa til heildarskipulags fyrir landið á
þessu sviði?
“Fyrirkomulagið er nokkuð öðruvísi í
sauðfjárrækt en f nautgriparæktinni er starf-
rækt ein nautastöð fyrir allt landið þar sem
sæðið er djúpfryst. Þannig er hægt að taka
inn ung naut, taka úr Jieim helling af sæði
og lóga sfðan. Síðan þegar reynsla er fengin
á nautinu er haldið áfram að nota úr honum
sæði, annars er sæðinu hent. Það hefur ekki
tekist að djúpfrysta sæði úr hrútum m.a.
vegna þess hversu erfitt er að þýða það upp.
Því eru þrjár sæðingastöðvar á landinu en
samstarf hefur verið milli Borgarness og
Möðruvalla um að sætt er sitt hvort árið frá
þeim. Þannig er sæðið tekið að morgni og
farið með Jrað til bænda, en það þarf að ger-
ast samdægurs en áður þarf að vera búið að
stilla gangmál hjá ánum, t.d. með hormóna-
svampi. A fundinum var einnig tilkynnt nýtt
skipulag við það að velja hrúta inn á sæð-
ing; töðvarnar. Þannig var t.d. álitlegustu
hrútunum í Norður-Þingeyjarsýslu safnað
saman að Holti og að Melum í Strandasýslu
safnað saman á einn bæ í rannsókn og síð-
an voru tveir þeir bestu sendir á sæðinga-
stöð. Það er ekki heimilt að taka hrúta inn á
sæðingastöðvar nema af landssvæðum sem
eru hrein af riðu. A haustsýningu hjá okkur
varð hrúturinn Bætir 99202 undan Bjarti
93800, eign Arnars Sverrissonar á Neðri-
Vindheimum, efstur með 86,5 stig en alls
fengu fjórir hrútar 86 stig. það voru 219
hrútar skoðaðir."
- Hefur einhver aukning verið í því að
framleiða lambakjöt á horð landsmanna
um páska og á sumrin á grillin?
“Það hefur verið fremur rólegt. Þar er
ekki áhugaleysi bænda einum um að kenna,
áhugaleysi neytenda á þar sinn þátt. Þó við
séu hvattir til að vera með ferskt kjöt á ýms-
um tímum hefur eftirspurnin ekki fylgt því
eftir þó eitthvað hafi salan aukist. Þetta er
ágætis viðbót en skiptir ekki sköpum, áhugi
neytenda þarf að aukast meira. Svo er fram-
Ieiðslukostnaður hærri en Jiegar fé er á
sumarbeit og því þarf að fást hærra verð fýr-
ir kjötið en menn hafa Jró fengið greitt álag.“
- GG