Dagur - 10.11.2000, Side 11
X^íir
FÖSTUDAGUR 10. N Ó V E M B F. R 2000 - 11
Yfirherstjórn demókrata í stríðinu í Fiorida: Warren Christopher, fyrrverandi utanríkisráðherra, William Daley kosn-
ingastjóri Gore, Al Gore varaforseti og Joe Liberman öldungadeildarþingmaður og varaforsetaefni.
Veður öll vá-
lynd í Flórida
Herskarar lögfræð-
inga undir stjóm tveg-
gja fyrrverandi utan-
ríkisráðherra heHa
sér í málarekstur
vegna hrogaðra kosn-
inga.
Kærur dynja nú yíir kjörstjórnina
í Floridafylki þar sem úrslit ráð-
ast um hvor þeirra Bush eða
Gore taka við húsbóndahltuverki
í Hvíta húsinu 20. janúar næst
komandi. Við endurtalningu at-
kvæða í fvlkinu hefur enn dregið
saman með frambjóðendum og
munaði aðeins 900 atkvæðum í
gærdag og hafði Bush þá enn
vinninginn, en hann getur vart
verið naumari. En á landsvísu
hefur Gore fengið 150,000 at-
kvæðum fleira en andstæðingur-
inn en alls kusu um 100 milljón
manns, eða um 53%. En nái
Bush meirihluta í Flórida og fái
alla kjörmennina þar á sitt band
hefur hann fleiri kjörmenn þótt
Gore hafi vinninginn í atkvæða-
fjölda.
En öll kurl eru ekki komin til
grafar enn, því utankjörstaðaat-
kvæði frá útlöndum eru enn í
póstsendinum víða um heim og
endanlegri talningi lýkur ekki
fyrr en þau komast til skila.
Heimildum ber ekki saman um
hvort utankjörfundaratkvæðin
eru 2300 eða allt að 5000, en
þau geta auðveldalega ráðið úr-
slitum um hver verður næsti for-
seti Bandaríkjanna.
Herskari lögfræðinga er kom-
inn til Flórida til að reka málin.
Tveir fyrrverandi utanríkisráð-
herrar eru lyrir þeim fylkingu m.
James Baker stjórnar lögfræð-
ingaliði Bush og Warren
Christopher hefur yfirstjórn
málarekstursins fyrir hönd Gore.
Klögumálin eru margvísleg og
hefur Janct Rcno dómsmálaráð-
herra látið málin til sín taka og
segir að ekki komi annað til
greina en að úrslitin verði sam-
kvæmt vilja bandarísku þjóðar-
innar og að enginn vafi eigi að
leika á hver er réttkjörinn forseti.
Béttindasamtök blökkumanna
hafa kært að í nokkrum kjör-
deildum hafi litað fólk ekki feng-
ið að kjósa og ýmsu borið við, svo
sem að það sýndi ekki rétt skil-
ríki, notaði blýanta í stað penna,
eða væri ekki skráð á kjörskrár.
I einu kosningaumdæmi, Palm
Beach, eru 19,000 atkvæði ógild
vegna þcss að kjörgögn voru vill-
andi. Kjósendur Gore greiddu
Buchanan einnig atkvæði sitt
vegna misskilnings og ógiltu þar
mcð atkvæðin, þ\a' þótt Banda-
ríkjamenn séu stórtækir líðst
kjósanda ekki að kjósa tvo forseta
samtímis.
Þá hafa einhverjir dularfullir
kjörkassar fundist á kjörstöðum
og virðist sem lítil skýring sé gef-
in á hvernig á þeim stendur og
hvort í þeim leynast kjörseðlar.
AHt gerir þetta forsetakosning-
arnar árið 2000 einstæðar, því
önnur eins ósköp hafa ekki áður
dunið yfir í mikilvægum kosning-
um í rúmlega tveggja alda sögu
Bandaríkjanna.
Þar sem svo mjótt er á munun-
um sem raun ber vitni geta liðið
nokkrir dagar þar til endanleg úr-
slit fást um hvernig 6 milljónir
atkvæða á Flórida skiptast og
hver verður forseti. En jafnvel
eftir að þau úrslit liggja fyrir má
húast við kærum og málaferlum
vegna framkvæmda kosninganna
í Floridaíylki. Það kann þvf að
dragast á langinn að endanlega
verði skorið úr um hvort það
verður AI Gore varaforseti eða
George W. Bush ríkisstjóri í
Texas, sem taka við embætti af
Bill Clinton 20. janúar 2001,
sem þá tekur við því hlutverki að
verða maðurinn konunnar sinnar
sem nú er komin á trygga frama-
braut í Washington.
Arafat hjá Clinton, en átök harðna
I gær skaut ísraelski herinn
sprengjuflaug á bifreið sem
var full af yfirmönnum í
palestínska hernum skammt
utan við Betlehem með þeim
afleiðingum að einn þeirra
lést og annar hlaut alvarleg
meiðsl. Að auki særðust sex
manns, en meiðsli þeirra voru
ekki jafnmikil. Þetta atvik átti
sér stað einmitt í sama mund
og Bill Clinton Bandaríkjafor-
seti var að undirbúa fund sinn með Yasser Arafat leiðtoga Palestínu-
manna. Clinton ætlar að hitta Ehud Barak forsætisráðherra Israels
um helgina. Talið er að atvikið verði til þess að herða enn átökin og
búast má við að Palestínumenn svari þessu af fullri hörku.
Réttarhöld hafin eftir sex ára tafir
Réttarhöld hófust í gær í Moskvu yfir fimm fyrrverandi og núverandi
starfsmönnum leyniþjónustu rússneska hersins, en þeir eru sakaðir
um morð á rússneskum blaðamanni árið 1994. Dmitrí Kolodov var
27 ára gamall þegar taska sprakk í höndunum á honum þann 17.
október árið 1994, en hann var þá að rannsaka spillingarmál sem
tengdist leyniþjónustu hersins. Talið er að uppljóstrari hafi látið
hann hafa töskuna, sem reyndist vera með sprengju í. Fjölmiðlar
hafa gagnrýnt þann langa drátt sem orðið hefur á að málið kæmi fyr-
ir rétt, og segja hann lýsandi fyrir vanmátt eða viljaleysi stjórnvalda
gagnvart því að taka á ofbeldisglæpum.
Tvíhuriim að hressast
Litla stúlkan sem liggur á sjúkrahúsi í London eftir að hafa verið að-
skilin frá tvíburasystur sinni með 20 klukkustunda aðgerð á mánu-
daginn er smám saman að ná sér. Henni er ekki lengur haldið á lífi
með tækjabúnaði og er farin að nærast eðlilega, en ástand hennar er
þó enn talið tvísýnt. Systur hennar var fórnað til þess að bjarga lífi
hennar, og spunnust miklar siðferðilegar deilur í kringum þessa að-
gerð og munu þær væntanlega halda áfram lengi.
Stytta af de Gaulle afhiúpuð í París
Um það bil þrjú þúsund bækur hafa verið skrifað-
ar um Charles de GauIIe hershöfðingja og forsæt-
isráðherra, en í gær var fyrsta styttan af honum af-
hjúpuð í París. De Gaulle var mikil þjóðhetja
Frakka í seinni heimsstyrjöldinni og varð tvisvar
forseti Frakldands, en gerði lýðum það ljóst með-
an hann var á Iífi að hann kærði sig ekkert um op-
inbert tilstand með persónu sína, þar á meðal
myndastyttur. Jacques Chirac, núverandi forseti
Frakklands, hélt engu að síður ræðu og afhjúpaði Jacques Chirac.
styttuna með þeim orðum að de Gaulle hafi verið
Frakkland holdi klætt.
Haider hótar kosningum
Jörg Haider, leiðtogi austurríska Frelsisflokksins, hótaði því í gær að
knýja fram kosningar hið fyrsta ef ekki tekst að leysa ágreining milli
stjórnarflokkanna. Rannsókn stendur yfir á því hvort Haidcr hafi
með óeðlilegum hætti komist yfir lögregluskýrslur um andstæðinga
sína.
Bill Clinton. Yasser Arafat.
■ FRÁ DEGI
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER
315. dagur ársins, 51 dagur eftir.
Sólris kl. 9.41, sólarlag kl. 16.42.
Þau fæddust 10. nóv.
• 1483 Marteinn Lúther, þýskur prestur
sem þýddi Nýja Testamentið á þýsku og
stofnaði mótmælendakirkjuna.
• 1668 Francois Couperin, franskt tón-
skáld.
•1710 Adam Gottlob Moltke, danskur
greifi sem hafði mikið áhrif á Friðrik V.
konung.
• 1879 Patrick Henry Pearse, leiðtogi
írskra þjóöernissinna og fyrsti forseti
bráðabirgðastjórnar írska lýðveldisins
sem var stofnað á annan í páskum árið
1916.
• 1883 Olaf Bull, eitt helsta Ijóðskálcl
Norðmanna.
•1913 Karl Shapiro, bandarískt Ijóðskáld
og gagnrýnandi.
• 1925 Einar Pálsson skólastjóri og rithöf-
undur.
• 1946 Gylfi Ægisson, lagasmiður og raul-
ari.
TIL DAGS
Þetta gerðist 10. nóv.
• 1848 var stofnuð sérstök stjórnardeild í
Kaupmannahöfn til að annast málefni
Islands, Færeyja og Grænlands.
• 1928 var steinbogabrúin yfir Hvítá í
Borgarfirði vígð.
• 1928 var Showa Tenno Hirohito krýnd-
ur keisari í Japan.
• 1949 var Þjórsárbrú vígð.
• 1967 voru Strákagöng tekin formlega í
notkun.
• 1970 leyfðu kfnversk stjórnvöld vest-
rænum ferðamönnum að skoða múrinn
mikla í fyrsta sinn.
•1995 var leikritaskáldið og umhverfis-
baráttumaðurinn Ken Saro-Wiwa
hengdur í Nígeríu ásamt átta öðrum
gagnrýnendum stjórnvalda.
Vísa dagsins
Egfcmu cí milluMi fdnna
í felling ú bldsvclli
lój'alága við þúfu
litinn grátitling sýta.
Jónas HaJlgrímsson
Afmælisham dagsins
Breski leikarinn Richard Burton hefði
orðið 75 ára í dag, en hann lést í Sviss
sunnudaginn 5. ágúst árið 1984. Hann
fæddist í bæ sem heitir Pontrhydyfen og
er eins og nafnið bendir til f Wales.
Sjálfur hét hann réttu nafni Richard
Walter Jenkins yngri, en faðir hans var
kolanámumaður. Richard Burton var
frægur fvrir að leika lífsþreytta og kald-
hæðna gáfumenn sem haldnir eru
sjálfseyðingarhvöt, bæði í kvikmyndum
en ekki síður á leiksviði. Svo var hann
ckki síður þekktur fyrir tvö stormasöm
hjónabönd með kvikmyndaleikkonunni
Elizabeth Taylor.
Stjórnmál eru sögð vera næst elsta starfs-
greinin. Eg hef komist að raun um að þeim
svipar mjög til hinnar elstu.
— Ronald Reagan
Heilahrot
Hvað gera allir menn og öll dýr og allii
hlutir sem eru til í þessum heimi?
Lausn á sfðustu gátu: Þegar þeir standa á
haus.
Veffang dagsins
Jafnan eru til ýmis sjónarhorn á fréttir, og
Netið býður upp á ýmsa möguleika til þess
að gera öðrum hliðum þeirra skil en hæst
fara. eins og sjá má fréttavef stjórnleys-
ingja: www.infoshop.org/news.html
^nr-TiirTjr'rtiTin‘]M~n'itirTTWT'imyinriiiTrrriii~imnimiirTWfTffwriwiiir?tTHiffffiafa!