Dagur


Dagur - 10.11.2000, Qupperneq 12

Dagur - 10.11.2000, Qupperneq 12
12- FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 á Toluverðar væntingar eru til 39. þings ASÍsem haldið verður dagana 13.-16. nóvember n.k. Helsta mál þingsins eru brey bandsins. - mynd: hþg FRE TTASKYRING ASI GUÐ- MIJNDIIR RUNAR fw -■*- r HEIÐARS- SON Æm SKRIFAR Átakaþing framimdan hjá ASÍ. SMpulags- breytingar. Forsetahjör og ný miðstjóm. Um- ræða um aðild að ESB. Byggðamál. I næstu viku ræðst hvort aðildarfé- lögum ASI tekst að sameinast um nýtt skipulag og starfshætti sam- bandsins, helstu áherslur, verkefni og forustu eða ekki. Það er jafnvel talið að það geti ráðist á næstu dög- um fyrir þingið og eða á fyrsta degi þess hvort það verði yfirhöfuð eitt- hvert þinghald. Guðmundur Gunn- arsson formaður Rafiðnaðarsam- hands Islands segist gruna Starfs- greinasambandið um að ætla að neyta aflsmunar á þinginu. Ef það gerist mun RSI segja sig úr ASI. Hann telur því að næstu dagar séu þeir mest spennandi í sögu sam- bandsins. Framtíð ASI verður í höndum rúmlega 500 fulltrúa um 100 aðild- arfélaga Alþýðusamhands Islands á 39. þingi sambandsins sem haldið verður í íþróttahúsinu í Digranesi í Kópavogi. Þátttökurétt hafa um 540 fulltrúar frá 111 aðildarfélög- um en ekki er húist við að fámenn- ustu félögin sendi fulltrúa á þingið fremur cn venjulega. Aætlaður kostnaður ASÍ við þingið er um 11 milljónir króna að viðbættum kostnaði aðíldarfélaga vegna gist- ingu þingfulltrúa, dagpeninga og þess háttar. Þingkostnaður ASÍ í ár verður um einni milljón minni en var fyrir fjórum árum. Þá var af- mælisár sambandsins auk þess sem þinghaldið í ár stendur yfir í fjóra daga í stað fimm áður. Fjöldi er- lendra gesta mun sækja þingið og m.a. Bill Jordan framkvæmdastjóri Alþjóðasamtaka frjálsra verkalýðs- félaga, ICFTU. „Nýtt all - Nýir tímar“ Yfirskrift þingsins að þessu sinni er „Nýtt a(I - Nýir tímar“. Það er í samræmi við frumvarp til nýrra laga fyrir ASI sem Iiggur fyrir þing- inu. Það felur í sér margsvíslegar hreytingar á skipulagi og starfshátt- um sambandsins. Verði frumvarpið samþykkt verður þetta þing hið síð- asta af hinum stórum þingum ASI. I stað þinga á fjögurra ára fresti er lagt til að haldnir verði ársfundir með þáttttöku um 270 þingfull- trúa. Þá liggur fyrir þinginu tillaga miðstjórnar að helstu áherslum og verkefnum ASI á næstu misserum. Strikamerktir þingfulltrúar A þinginu verður brvddað upp á nokkrum nýmælum og m.a. verða þar haldnar nokkrar málstofur um hin ýmsu efni sem varða verkalýös- hreyfinguna. Af einstökum nýjung- um sem mun setja svip sinn á þing- ið má nefna rafrænt kosningakerfi í stað handauppréttinga. Þetta er í fyrsta sinn sem slíkt kerfi er notað hérlendis en það er smíðað og hannað af starfsmönnum ESJ og hefur hlotið nafnið Kjarval. Notkun þess kostar ASI um 700 þúsund krónur auk virðisaukaskatts. Mildar væntingar er bundnar við þetta kerfi, enda sagt mjög einfall í notk- un þar sem niðurstaða kosninga á að liggja strax fyrir. Hins vegar kem- ur nýja kerfið í veg fyrir að formenn einstakra aðildarfélaga geti fylgst með því hvernig einstakir fulltrúar greiða atkvæði eins og var áður þeg- ar menn fylltu út atkvæðaseðla eða réttu upp hönd. í þingsal verða settir upp tugir kjörklefa með tölvu- skjám þar sem kosning fer fram. Þingfulltrúar munu bera strika- merki, sem verður á barmmerki þeirra að rafrænum lesara í kjör- klefanum. Þar athugar kerfið hvort viðkomandi hafi kosið áður, færir í kjörskrá og birtir kjörseðil á skján- um með réttu vægi atkvæða. Stefnir í hörð átök Þótt efnahags- og kjaramál, byggða- mál og afstaðan til Evrópusam- bandsins muni seta svip sinn á þingið auk skipulags -og starfshátta er viðbúið að forustumál og sam- skipti einstakra aðildarfélaga muni verða í brennidepli. Miklar væring- ar hafa verið með einstökum aðild- arfélögum og landssamböndum á síðustu árum og hefur farið mikil orka og tími í að reyna að setja þær deilur niður. Þessar deilur hafa á tíðum verið svo heitar að um tíma leit út fyrir að samhandið mundi ldofna. Enda er það svo að stóru fé- lögin og samböndin, cins og t.d. Rafiðnaðarsamband íslands, Sam- iðn, Starfsgrcinasambandið og Verslunarmannafélag Rcykjavíkur hafa alla burði til að halda út sinni starfsemi án þess að þurfa nokkuð á ASI að halda. Með sameiningu VMSÍ, Landssambands iðnaðar- manna og Þjónustusambands ís- lands í Starfsgreinasambandið er það orðið svo öflugt innan ASI að ef það neytir aflsmunar getur það ráð- ið því sem það vill ráða. Hins vegar er talið ólíklegt að það muni nýta þessa yfirburði sína á þinginu, þótt ekki sé hægt að útiloka það. Þá má búast við hörðum átökum á bak við tjöldin í kjörnefndinni um tilnefningar manna í forustu sam- bandsins og miðstjórn. Vitað er að ekki er einhugur um Grétar Þor- sleinsson forseta ASI og ekki held- ur um Ara Skúlason framkvæmda- stjóra ASÍ sem nefndur hefur verið hugsanlegur eftirmaður Grétars. I umræðum manna hcfur Edda Rós Karlsdóttir fyrrverandi hagfræðing- ur ASI verið nefnd til sögunnar sem h'ldegt forsetaefni. Fyrirfram er þó ekki búist við að hún hafi mikla möguleika sökum reynsluleysis. Þótt andstæðingar Grétars telji Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsambands íslands: Hótar úrsögn úrASÍ ef Starfsgreinasam- bandið neytir aflsmunar á þinginu. hann ckki vera þann sterka mann sem verkalýðshreyfingin þarf á að halda er Ara talið það helst til vansa að hafa að bera í of miklum mæli þá eiginieika sem Grétar er sagður skorta. Þessi staða lýsir kannski betur en margt annað þeim for- ustuvanda sem verkalýðshreyfingin á við að etja. Það yrði hins vegar saga til næsta bæjar ef hreyfingin hefði kjark og þor til þcss að hefja nýjan og nær óþekktan mann til æðstu metorða. 1 það minnsta bcndir fátt til þess miðað við þá niðurstöðu sem varð í formannsvali hjá Starfsgreinasam- bandinu þegar Halldór Björnsson var kjörinn formaður þess. Enda er það svo að innan verkalýðshreyfing- arinnar kalla menn nýja sambandið „Starfslokasambandið" og vfsa lil starfsloka Björns Grétars og þess að formaður þess er á áttræðisaldri og hafði fyrr árinu látið af störfum hjá Elfingu sökum aldurs. RSÍ hefur j hótunum Guðmundur Gunnarsson formaður Rafiðnaðarsamband Islands segir að staðan innan ASI sé þannig að það muni ráðast á næstu dögum fram að þingi og á fyrsta degi þess hvort það verði eitthvert þing eða ekki. Hann segir að það velti á því hvort menn geta sameinast um til- lögur til breytinga á skipulagi og starfsháttum ASI og fulltrúa í 15 manna miðstjórn, forseta og vara- forseta sem eiga að stjórna sam- bandinu. Hann bendir á að í mið- stjómina skiptir máli að þar verði kosnir menn sem hafa eitthvað að .scgja" svo að hún njóti meiri virð- ingar og vægi en verið hefur innan « Aðalsteinn A. Baldursson formaður Alþýðusambands Norðurlands: Áhersla á sátt og samlyndi. Óskar Stefánsson formaður Bif- reiðastjórafélagsins Sleipnis: Sam- ingsfrelsi litlu félagana er ekki nógu mikið. verkalýöshreyfi ngari n nar. Hann telur einsýnt að ASl sé búið að vera ef svo skyldi fara að Starfsgreinasambandið mundi nevta aflsmunar á þinginu, bæði í sambandi \ið kjör manna og brevt- ingartillögur á frumvarpi til nýrra laga um skipulag og starfshætti sambandins. Ef það verður uppá teningnum sem hann segist gruna þá um, þá telur Guðmundur ein- sýnt að fulltrúar RSl muni einvörð- ungu kjósa fulltrúa Starfsgreina- samhandsins í miðstjórnina. Það mundi jafnframt leiða til þess stjórn RSÍ mundi kalla saman sína sambandstjórn eftir ASI-þingið og segja sig úr ASI. Ef það næst hins- vegar samstaða um menn í mið- stjórnina, þá mun RSÍ taka þátl í því án þess að skilvrða það við ein- hver nöfn. Hann áréttar þó að RSÍ hafi ekki áhuga á því að þurfa að sitja undir „fáránlegum" umræðum á veltvangi ASÍ sem snýst meira og minna um gagnrýni í garð rafiðnað- armanna og „útúrsnúning" á því sem þeir eiga hafa sagt og gerl. Hins vegar séu rafiðnaðarmenn mjög sáttir með þær tillögur sem liggja fyrir þinginu um breytingar á skipulagi og starfsháttum ASI. TillajJa ti in Eddu Rós Sjálfur telur formaður RSÍ að nú sé lag til að skipta alveg um skipstjóra í brúnni hjá ASI. I þeim efnum hef- ur hann viðrað hugmvnd um Eddu Rós Karlsdóttir fyrrverandi hag- fræðing hjáASI. Hann segirað hún hafi staðið sig alveg „frábærlcga"

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.