Dagur


Dagur - 10.11.2000, Qupperneq 16

Dagur - 10.11.2000, Qupperneq 16
16- FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBF.R 2000 wnpinh Htn næigöngula náttúra Birgir Sigurðsson rithöfundur: „Við búum til þjóðfélög þar sem tilfinningar eru ekki nema fárra fiska virði. Það er einn mesti þverbresturinn í tilveru okkar og leikur okkur oft illa.“ Birgir Sigurðsson hef- ursentfrá sér nýja skáldsögu, Ljósið í vatninu. Þetta erönn- urskáldsaga Birgis, sem þekktari erfyrir leikritagerð sína. í nýju bókinni segir frá ungum manni sem stendur á tímamót- um í lífl sínu eftir skilnað og erfiða krabbameinsmeðferð. Síðan fara að blása aðrir og betri vindar. Sjálfur segist Birgir hafa kynnst þeirri erfiðu reynslu að fá krabbamein. „Ég bekki þær tilfinningar og hugsanir sem þessum sjúk- dómi fylgja. En þessi bók er engin sjúkdómsraunasaga. Langt því frá. Ég held að ég megi segja að það sé heilmikil birta í bókinni eins og heiti hennar bendir til. Engu að síð- ur hefur þessi reynsla djúp áhrif á þennan unga mann, sem heitir Arnar, og leiðir hann til endurmats á sjálfum sér, svona í samspili við ann- að. Návlst og tilfiiiniiigar - Maður finnur fyrir milcilli lík- amlegri nálœgð í bókinni. „Ég vona að það sé rétt hjá þér. Ég lít svo á að fólk í skáld- skap þurfi að hafa sömu ein- kenni og fólk í lífinu. Það þarf að hafa návist. Og við þurfum að finna að það sé lifandi. Þessi veruleiki sem við köllum líf er að sjálfsögðu ein tegund skáldskapar. Við erum þær til- finningar og hugsanir sem við sköpum innra með okkur. Gegnum þann skáldskap skynjum við okkur sjálf og aðra. Þar er í rauninni ekkert sem sýnist; við sýnum eina hlið okkar, felum aðra, jafnvel svo vandlega að við vitum ekki af henni sjálf, og það sema gera aðrir. Þess vegna er svona dásamlega spennandi að vera til. Tilbrigðin eru ótæmandi.“ - / kynningu Forlagsins er talað um nýjan Ijóðrœnan tón í þessari bók. Er það eitthvað meðvitað af þinni hálfu? „Ég veit það nú ekki. Það má kannski segja að hvert við- fangsefni skapi sér sinn eigin tjáningarblæ. Þessi bók fjallar mikið um tilfinningar og kennd- ir. Það gerir hana ljóðræna á köflum en þetta er jafnframt átakasaga. Ég er þannig höf- undur að tilfinningalíf fólks skiptir mig miklu máli. Menn setja upp alls konar fronta til þess að verja sjálfa sig, og sjálf- sagt er það h'fsnauðsynlegt í þessum villidýraskógi sem við lifum í. En við göngum miklu lengra en það. Við búum til þjóðfélög þar sem tilfinningar eru ekki nema fárra fiska virði. Það er einn mesti þverbrestur- inn í tilveru okkar og leikur okkur oft illa,“ segir Birgir. Hrein nýting og óhrein Náttúran leikur stórt hlutverk í bókinni að sögn Birgis. „Og þá á ég ekki bara við hina „fögru“ náttúru heldur líka hina hráu og nærgöngulu nátt- úru. Hún samtvinnast sögu- þræðinum og hefur mikil áhrif á persónurnar, aðallega tvær þeirra, með afdrifaríkum hætti," segir hann. Náttúru- verndarmál ber einnig nokkuð á góma, þótt með óbeinum hætti sé, en sjálfur hefur Birg- ir verið virkur þátttakandi í umhverfisverndarbaráttunni. Hann er spurður hvert honum sýnist stefna í þeim málum. „Ef við hefðum ekki þessa mikilfenglegu og enn tiltölu- lega óspilltu náttúru væri líf okkar á þessum útnára ekki annað en óbærileg galeiða. Það er náttúran sem gerir það fýsilegt að búa hérna. En nú er þessari mikilsverðu og óvenjulegu náttúru ógnað og þar með tilfinningalegri vel- ferð okkar og afkomenda okk- ar. Margir stjórnmálamenn okkar tíma sjá ekki nema rétt fram fyrir tærnar á sér í þess- um málum og varla einu sinni það. Þar leiðir blindur blindan á blindgötu. Viðhorf þeirra og ákvarðanir taka fyrst og fremst mið af sjálfhverfum pólitískum hagsmunum. Nýjasta dæmið er ákvörðun- umhverfisráðherra um kísil- gúrnámið í Mývatni. - Sumum finnst ekki rétt að reikna náttúruperlur í pening- um? Er ekki verið að ganga svolítið í lið með andstœðing- unum með því að leggja þann mœlikvarða á qildi náttúrunn- ar? „Sérstæð og lítt snortin náttúrusvæði um allan heim hafa fengið miklu meira íjár- hagslegt gildi en áður var. Ferðamennsku er hægt að stjórna og vernda þannig við- kvæm svæði. Það er hrein nýt- ing. En leiði nýting fallvatna til tortímingar náttúruperlna og stófelldrar umturnunar nátt- úrunnar á borð við það sem nú er fyrirhugað vegna Kára- hnúkavirkjunar er sú nýting ekki hrein. Hún er óhrein nýt- ing hreinnar orku. Við verðum að læra að „fórna“ skamm- tímahagnaði fyrir langtíma- hagnað, fórna innan gæsalappa vegna þess að slíkt er í raun ekki fórn heldur hyggindi, hyggindi sem íslend- ingar hafa átt mjög erfitt með að tileinka sér. Neyddist til að faraútíþetta Birgir hefur komið víða við á rithöfundarferli sínum. Byrjaði sem ljóðskáld en sneri sér fljótlega að leikritagerð. Á síð- ustu árum hefur hann bæði sent frá sér leikrit, þýðingar, smásögur og skáldsögur. Hann er spurður hvort hann ætli að taka stefnuna meira á skáld- sagnagerð framvegis? „Ég nota það form sem efn- ið kallar á. Þetta efni var alltaf þannig að það hlaut að verða skáldsaga. Leikritið Óska- stjarnan var sýnt í Þjóðleik- húsinu 1998 en ég var byrjað- ur að skrifa Ljósið í vatninu áður. Þegar ég lauk við leikrit- ið tók ég aftur til við skáldsög- una. Það er oft margt í gangi hjá mér í einu. Það er eins og sagt var um Skallagrím; bú hans stóð mörgum fóturn," segir Birgir. - Hvað með Ijóðin, ertu eitt- hvað að yrkja líka? „Nei. Ég yrki stöku sinnum ljóð til konunnar minnar. Þau eru bara fyrir hana. Ég geri ekki ráð fyrir því að ég eigi eftir að gefa út ljóðabók. Ann- ars getur allt gerst. Ég skrifaði fyrsta leikrit mitt 34 ára gam- all. Ef einhver hefði sagt við mig tveimur árum fyrr að ég ætti eftir að verða leikskáld, hefði ég hlegið að honum. Það var mér alveg framandi hugs- un að skrifa leikrit þótt ég hefði alltaf haft mikla ást á leiklist," segir Birgir. - Hvað varð þá til þess að þú fórst að skrifa leikrit? „Ég get bara alls ekki svar- að því. Ég veit það ekki. Jú, ég var einhvern tímann að setja upp leikþátt austur í Gnúp- verjahreppi þar sem ég var skólastjóri. Þegar ég var að leikstýra þessu skynjaði ég mjög sterkt að ég mundi geta skrifað leikritið. Og það sem meira var; mig langaði til þess. Ég var kominn í strand í yrkingum en þarna fann ég nýjan farveg. Þetta fyrsta leik- rit mitt var Pótur og Rúna sem fékk fyrstu verðlaun í Leikrita- samkeppni Leikfélags Reykja- víkur ásamt Kertalogi eftir Jökul heitinn Jakobsson. Þar með var ballið byrjað. Raunar segist Birgir ekki hafa ætlað að verða skáld. Það hafi gerst mjög snögglega. „Ég orti að vísu innan við tvítugt, birti þrjú, íjögur ljóð og lang- aði til að geta skrifað almenni- lega. En ég þrælbældi þá löng- un, sneri mér að söngnámi í nokkur ár og fór síðan til Hollands í framhaldsnám. Ég ætlaði að verða ljóðasöngvari. Þar steyptust yrkingarnar yfir mig mér fullkomlega að óvör- um. Ég fór á þriggja daga ör- væntingarfyllerí og skildi ekk- ert hvað var að gerast. Eftir það gat ég ekki sungið tón, missti það niður sem ég hafði lært í söng og hélt áfram að skrifa. Það er sem sagt alveg öruggt að ég neyddist til að fara út í þetta. Ég gerði það ekki af ásetningi. Nema það hafi verið dulinn ásetningur minn allan tímann. Hver veit?“ -GB

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.