Dagur - 10.11.2000, Page 17

Dagur - 10.11.2000, Page 17
10. NÓVEMBER 2000 - 17 Oiuýir dJML LANPiHM Jón Ársæll Þóröar- son: Sjónvarpsþátt- um hans um 20. öld- Ina fylgir vegleg bók sem þó er sjálfstætt verk Grískar goðsögur og fyndnir íslendlngar Jakob F. Ásgeirsson segirfrá útgáfu Nýja bókafélagsins þetta árið. „Stærsta verkefnið okkar í ár er bók um 20. öldina, sem er byggð á samnefndri sjón- varpsþáttaröð Stöðvar tvö í umsjón Jóns Ar- sæls Þórðarsonar. Bókin ber sama heiti og þættirnir og kom út um sama leyti og sýning þeirra hófst.“ Jakob segir að þetta sé ný- breytni, „að bókaforlag og sjónvarpsstöð taki saman höndum með þessum hætti. Þetta eru í raun og veru tvö sjálfstæð verk um sama efni, enda þótt efnisval bókarinnar endur- speglist af efnisvali þáttanna. í bókinni er lögð höfuðáhersla á að segja þessa sögu í myndum. Það eru stórar opnumyndir og maður sér söguna með allt öðrum og nýjum hætti með því að skoða þessar myndir. Svo fylgir annáll um helstu viðburði hvers árs. Þetta er auk þess fyrsta verkið sem túlkar sögu íslands á tuttugustu öld í einni heild,“ segir Jakob. „Svo er bók sem nefnist Grískar goðsögur sagðar af Gunnari Dal. Hann opnar þennan gríska ævintýraheim og segir okkur þessar sögur með lifandi hætti. Þetta eru sögur af guðum, gyðjum, hetjum, skrímslum og mennskum mönnum. Grísku goðsögurnar hafa löngum fangað hugi manna og hafa ver- ið um aldir óaðskiljanlegur hluti af menntun og menningu Vesturlandabúa. Þessar sögur urðu ekki til í eitt skipti fyrir öll og grísku skáldin endursögðu þessar sögur og bættu við nýjum og svo komu náttúrulega Róm- verjarnir með sína útgáfu. Gunnar hefur yfir- sýn yfir þennan sagnaheim og reynir að koma honum til skila,“ segir Jakob. Þriðjudagar með Morrie „Nú svo er bók sem heitir Fyndnir íslending- ar eftir Hannes H. Gissurarson. Þar tínir hann til og endursegir þúsund gamansögum af þjóðþekktum og minna þekktum íslending- um.“ „Einnig erum við með merkilega bók sem heitir Þriðjudagar með Morrie, metsölubók eftir bandarískan blaðamann sem komst á snoðir um að gamall kennari hans þjáðist af ólæknandi sjúkdómi og væri að deyja og tók að heimsækja hann um langan veg reglulega á hverjum þriðjudegi. Og þeir röbbuðu um lífið og tilveruna og úr varð þessi bók sem hefur síðan verið í efstu sætum metsölulista erlendis,“ segir Jakob. „Svo er það náttúrulega Trúðurinn eftir Heinrich Böll, frábær skáldsaga eftir einn af mestu höfundum aldarinnar. Hana þýðir Franz Gíslason." „Og loks erum við með barnabók eftir unga myndlistarkonu sem heitir Álfheiður Ólafsdóttir. Þetta er ævintýri sem gerist í undirdjúpunum og er ríkulega myndskreytt af Álflieiði. Það vorður haldin sýning á mynd- unum og bókinni í Gerðubergi á barnadegin- um 25. nóvember, en þá kemur bókin út,“ segir Jakob F. Ásgeirsson. -GB Nóbelskáld og rauðir djöflar Jón Hjaltason skýrir frá því helsta sem bókaútgáfan Hólar sendirfrá sérfyrir jólin. „Við verðum með tíu titla núna fyrir jólin,“ segir Jón Hjaltason hjá bókaútgáfunni Hólum á Akureyri, „og þar er flaggskipið okkar Nær- mynd af Nóbelskáldi, sem eru persónulegar endur- minningar samferðamanna hans um Halldór. Það er eitthvað á þriðja tug manna sem segja þarna frá, meðal annars þrjú af fjórum börn- um hans, þau María, sem er elsta dóttir Halldórs, Ein- ar Laxness og svo Sigríður sem er eldri dóttir þeirra Halldórs og Auðar,“ segir Jón. _________________________________ „I órólegum takti er skáldsaga eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur, og er ákaflega spennandi bók úr nútímanum um konu sem finnur sig ekki alveg í samfélaginu og er að berjast við að fóta sig.“ „í fyrra vorum við með Rauðu djöflana, sögu Manchester United. Núna verðum við með Rauðu djöflana aftur þar sem er fjallað um knattspyrnu- stjörnurnar sem hafa verið hjá félaginu. Afar skemmtileg bók og fróðleg. Einnig verðum við með bók um Stoke City í máli og myndum. Þar er meðal annars viðtal við Guðjón Þórðarson um svona nútíð og framtíð.“ Halldór Laxness: Fjölmargir samferöamanna hans segja frá minningum sínum um skáldiö. Undir bláhimni „Undir bláhimni heitir svo ljóðabók þar sem hefur verið safnað í úrvali skagfirskra ljóða og vísna,“ segir Jón og bætir því við að þetta sé mikil bók og þykk. „Svo eru Minningar úr Menntaskóla þar sem um það bil íjörutíu og fimm nemendur Menntaskóla Akureyrar segja frá veru sinni þar. Afar skemmti- leg bók og persónuleg. Það hefur tekist mjög vel til með þá sem skrifa í hana, þeim hefur gengið þetta afar vel þannig að óg er mjög ánægður með útkomuna,“ segir Jón Hjaltason. „Og ekki má gleyma því að við verðum með Búkollu, þetta gamla sígilda ævintýri, og höfum fengið hann Kristin G. Jóhannsson til þess að mála myndir. Þetta er afar falleg bók og textinn vitaskuld alkunnur.“ Að sögn Jóns hefur bókaútgáfan Hólar verið til í nokkur ár. „Ætli þetta sé ekki sjötta samfellda árið sem við gefum út, en eitthvað vorum við búnir að gefa út áður með hléum á milli. Þetta er sami titlaijöldi hjá okkur og var í fyrra, en þar á undan vorum við með færri. IJöfum verið svona aðeins að þenja okkur.“ -gb Persónuleynd? Skoðanakannanir eru eitt þeh'ra fyrirbrigða sem eru hvað mest í tisku um þessar mundir. Allir virðast vera að kanna skoðanir þjóða eða þjóðfélagshópa á öllu mögulegu. Niðurstöðurnar reynast mis- jafnar eins og vænta má. Það á til dæmis við um þær kannanir sem kallast útgönguspár og áttu sinn þátt í því að rugla alla í ríminu á kosninganóttinni í Bandaríkjun- um. Sérfræðingar stóru banda- rísku sjónvarpsstöðvanna létu talnaspeki kannananna fara illa með sig og kynntu röng úrslit í kjördæm- um eins og Florida. Fyrst átti Gore að hafa umiið það ríki, þá Bush, svo var allt dregið til baka og því lýst yfir að úrslitin væru óráðin. Sem vonandi kennir talna- spekhrgum og svokölluðum sérfræðingum hér sem annars staðar þá þörfu lexíu að fara varlegar í fullyrðingaflóði súiu næst. Hver er maðurinn? Mjög er vinsælt að spyrja tiltekna þjóðfélagshópa spjörunum úr um einkalíf, viðhorf og athafnir. Allt er þetta gert með loforðum um að algjörri persónuleynd sé viðhöfð; að það sé vonlaust að rekja svörm til ákveðins einstakhngs. Þetta á til dæmis við um könn- un sem gerð hefur verið annað slagið meðal nemenda í fram- haldsskólum á Islandi. Þeir nem- endur sem lenda í úrtakinu fá þykka bók (tæplega fimmtíu blað- síður) með hátt á annað hundrað spurningar um skoðanir, lífshætti og per- sónulega reynslu. Þegar sett eru saman í einn pakka svörin við þessum spurningum öllum þá er Ijóst að þeir sem aðgang hafa að gögn- unum vita afar mikið um hvern og einn einstakling. Ilvaða persónuupplýsingar lætur Jón MEIUNINGAR VAKTIN Elías Snæland Jónsson skrifar Hvenær duga uppýs- ingarnar til aö benda á einstaklinginn? Jónsson í té ef hann svarar öllum spurn- ingunum af samviskusemi? Jú, fyrst gi'unnupplýsingar eins og kyn, fæðingarár, hæð og þyngd. Ilvenær hann útskrifaðist úr grunnskóla. Mennt- un föður og móður, hvort þau vinna utan heimilis eða eru á eftirlaunum, öryrkjar eða atvinnulaus. Hvort hann býr einn, með öðru foreldri eða báðum, eða sé í sambúð, og hvort hann býr á höfuðborg- arsvæðinu, í öðru þéttbýli, í sjávarplássi eða sveit. Ilvort hann hafi börn á fram- færi. Hversu langt hann er kominn í framhaldsnáminu. llvernig einkunnir hann hefur fengið í ýmsum grcinum og á hvaða braut hann er í skólanum. Hvað hann gerir á sumrin. Hvaða tekjur haim hefur. IJvort hann hefur bflpróf. Þetta eru aðeins nokkur dæmi af handahófi en þau sýna að með því að svara spurningum þessarar kannanar gefur Jón Jónsson harla nákvæmar upp- lýsingar um sjálfan sig. Kannski alltof núklar?

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.