Dagur


Dagur - 10.11.2000, Qupperneq 19

Dagur - 10.11.2000, Qupperneq 19
LEIKHUS KVIKMYNDIR TONLIST SKEMMTANIR i ;J ii 1-1 Gunnþóra Gunnarsdóttir Valdís Viðars FÖSTVDAGUR 10. NÓVEMBER 2000 - 19 Fordómar læknast með vitneskju Listin cid lifa: „Það sern allt offáir tala um áAk- ureyri. “Ráðstefna Ung- listará Sal Menntaskól- ans áAkureyri, Hólum á morgun. Á morgun er lokadagur Unglistar sem staðið hefur yfír síðustu vik- una með fjölbreyttum og listileg- um uppákomuni Ijölda ungs fólks í landinu. Unglist eða listahátfð unga fólksins, er fýrst og fremst vettvangur lyrir ungt fólk til að koma listsköpun sinni á framfæri, en einnig til að vekja athygli á því jákvæða það hefur fram að færa. Það sem fáir tala mn Listin að lifa: „Það sem allt of fáir tala um á Akureyri," er yfirskrift ráðstefnunnar scm Unglist á Ak- ureyri stendur fyrir laugardaginn 1 ]. nóvember á Sal MA, Hólum. Á ráðstefnuna sem styrkt er af Forvarnarsjóði koma fyrirlesarar frá meðal annars Stígamótum, Samtökunum ‘78, Alnæmissam- tökunum og Nýrri dögun. En hvað er það sem er svona mikið feimnismál og fáir vilja tala um? Dagur leitaði svara hjá Hildu Jönu Gísladóttur, nema í kenn- aradeild Háskólans á Akureyri og formanns stúdentaráðs, en hún hefur verið potturinn og pannan við að undirbúa ráðstefnuna, „Eg held allavega að h'f okkar hér á Akureyri yrði miklu fjölbreyttara og skemmtilegra, ef við mundum halda I þetta fólk sem annars færi burtu, vegna þess að það passaði ekki inn í tilbúna „ normið “ okkar, þar sem allir þurfa að vera eins og þora ekki einu sinni að klæða sig öðruvisi af ótta við fordóma." Listin að Iifa. „Eg hef verið að vinna mikið við forvarnarstarf hér á Akureyri og kynnst mörgu í kringum áfengis- og vímuefnavanda ungs fólks. Mikið hef’ur verið gert til þess að taka á þeim vanda og fólk getur nú leitað sér hjálpar og meðferðar á auðveldan hátt. Við- horf almennings hefur breyst og fólk er ntiklu opnara fýrir vandan- um en áður. I dag þykir það til dæmis ekkert mál að segja opin- berlega „ég er fíkill“ án þess að eiga von á neikvæðu viðmóti. En vímucfni er ekki það eina sem ungt fólk þarf að glíma við í sínu lífi og þetta jákvæða viðmót á því miður ekki við þegar um önnur vandamál er að ræða eins og til dæmis samkynhneigð, sorg, nauðgun eða alnæmi." Úrræði ekki nægileg „Eg hef orðið \átni að svo miklum fordómum í garð þeirra sem eru öðruvísi á einhvern hátt, að mér hefur hreinlega blöskrað yfír þvf hvað fólk getur verið óvægið í orðum og andstyggilegt. Það hef- ur átt mjög erfítt uppdráttar hér á Akurevri fólk sem til dæmis er að koma út úr skápnum, hefur orðið fyrir nauðgun, eða er að ganga í gegnum sorg eða missi, vegna þess að bæði úrræði og viður- kenning fyrir þessum málum virðist alls ekki vera nægileg. I svona litlu samfélagi er Ifka hætta á því að fólk reyni að byrgja sín niál inni, því það er hrætt um að ef það opni sig þá viti allir af því. Þcssu verður að breyta og til þess þarl’ raddir fólksins og einnig þurfa ráðamenn á hverjum stað að koma að málunum." - Hefurðu trú á því, að þetta fólk sem þarf á stuðningi að halda eins og til dæmis Stígamót og Samtökin ‘78 bjóða, mundi haldast við á Akureyri ef það fengi þá hjálp og aðstoð sem það þyrfti á að halda þar? „Eg held allavega að líf okkar hér á Akureyri yrði rniklu fjöl- breyttara og skemmtilegra, ef við mundum reyna að halda í þetta fólk sem annars færi burtu, vegna þess að það passaði ekki inn f þetta tilbúna „norm“ , þar sem allir þurfa að vera eins og þora ekki einu sinni að klæða sig öðru- vísi af ótta við fordóma. Það væri garnan að húa í samfélagi þar sem væri litríkt og (jölskrúðugt mannlíf." En fordóntar læknast með vit- neskju og því ættu allir að fjöl- menna á ráðstefnu Unglistar sem verður eins og áður segir á morg- un á Hólum í MA og hefst kl. 14.00. Tóiilistardraunmr fyrir böra I sýningunni Poy semflutt verðurí Gerðubergi um helgina er lögð sérstök áhersla á sam- skipti við áhorfendur. Sýningin erætluð bömum frá þriggja ára aldri og í henni erallt túlkað með tónlistog látbragði. „Tónlistin er notuð í staðinn fyrir tungumálið og sýningin á sérstakt erindi við börn frá ólík- ustu löndum. Mér er sérstaklega hugsað til nýbúa og erlendra barna sem búa hér á landi sem hafa takmörkuð not af venjulegum sýn- ingunt í leikhúsunum," segir Álfrún G. Guð- rúnardóttir deildarstjóri listadeildar í Gerðu- bergi. Hún bætir því við að auðvitað höfði sýningin ekki síður til íslenskra barna, og þeim komi líka vel að ekkert tal sé í henni því flvlj- endurnir séu norskir. Það er nefnilega norski Jeikliópurinn Opera Omnia sem sýnir Poy. Adgengileg fyrir alla Poy var frumsýnt í Noregi í febrúar á þessu Sýningin Poy á sérstakt erindi við börn frá ólíkustu löndum ári og hefur fengið mjög góðar móttökur. Leikhópurinn er búinn að starfa í tíu ár og hefur unnið mikið með börnum en þetta er í fyrsta sinn sem hann prófar að nota bara tónlistina og látbragðið. Það gerir sýning- una aðgengilega fyrir alla. „Þetta er klukkutíma sýning og hún er rnjög skemmtileg því áhorfendur laka mikinn þátt. I upphafi eru þeir leiddir inn í eins- konar vinnusmiðju nteð leikurunum og í framhaldi af því inn í sýninguna," segir Álfrún. Persónur í sýningunni cru tvær og við biðjum Álfrúnu að segja okkur aðeins nán- ar frá þeim: „Það er Henrietta sem segir söguna og svo er það sellóleikarinn. Þau búa saman og bæði eru að vinna með tón- listina, en á ólíkan hátt. Sellóleikarinn er ofsalega nákvæmur og er alltaf að æfa sig og æfa sig en gengur kannski ekki alveg nógu vel. Henríetta notar hins vegar hljóð á draumkenndan hátt. Áhorfendur ganga að nokkru leyti inn í hennar tónlistar- draum og hjálpa henni að stríða sellóleik- aranurn með hljóðum og Ieik. TaJka börnin með til íslands Tónlistin í Poy er samin af Glenn Erik Haugland og hann kemur hingað til lands ásamt Ieikkonunt sýningarinnar, þeim Hei- di Tronsmo söngvara og tónlistarmanni sem leikur Henríettu og Maju Bugge sem lcikur sellóleikarann. Álfrún segir Iistafólk- ið ætla að taka börn sín með í Islandsferð- ina til að lofa þeim að kynnast frændþjóð- inni Iítillega. Poy er samstarfsverkefni Gerðubergs, Tónskáldafélags lslands og Reykjavíkur Menningarborgar. Sýningarnar í Geröu- bergi verða laugardaginn 11. og sunnudag- inn 12. nóvember og hefjast báða dagana kl. 13.00. GUN. IUM HELGINA Norðurljós 2000 Musica Antiqua Þriðju og síðustu tónleikar Norðurljósa 2000, tónlistarhá- tíðar Musica Antiqua verða haldnir á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 12. nóvember kl. 17:30. Á efnisskránni er verald- leg tónlist frá endurreisnartím- m.a. Hol- anum e °g Norðurljós 2000. ftir horne, Gibbons Arcadelt danshöf- undana Caroso Negri. Tón- listin verður sungin, leikin og dönsuð í flutningi sönghópsins Grímu og hljóðfærahóps Musica Antiqua. Einnig koma fram dansararnir Anna Sigríður Guðnadóttir, Katla Guðmundsdóttir, Guð- mundur Elías Knudsen og Hrafn Stefánsson og sýna nokkra vinsæla dansa endur- reisnartímans. Eftir hlé verður tónleikagestum boðið að stíga út á dansgólfið þar sem þeim gefst tækifæri til að læra dansana Pavan og Branle ásamt sönghópnum og dönsurunum undir leiðsögn Ingibjargar Björnsdóttur, listdanskennara. Sönghópinn Grímu skipa: Erna Kirstín Blöndal sópran, Guðrún Edda Gunnarsdóttir alt, Gísli Maggason tenór, Orn Arnarsson bassi og Eyjólfur Eyjólfsson tenór. I hljóðfærahópi Musica Ant- iqua eru: Camilla Söderberg, Helga Aðalheiður Jónsdóttir og Ragnheiður Haraldsdóttir blokkflautuleikarar, Olöf Sess- elja Oskarsdóttir gömbuleikari, Snorri Örn Snorrason Iútuleik- ari og Eggert Pálsson slagverks- Ieikari. Málþtng uiii Svövu Málþing um Svövu Jakobsdóttur rithöf- und og verk hennar verður í Þjóðarbók- hlöðunni 11. nóv- ember kl. 13.00 í tilefni sjötugsaf- mælis hennar á þessu hausti. Fyrirlesarar verða fímm og flytur hver þeirra stutt erindi en svara síðan athuga- semdum og spurningum úr sal. Ástráður Eysteinsson flytur erindi sem nefnist „I tómarúmi: Staður og steinn í textum Svövu Jakobsdóttur." Þar skyggnist hann eftir framsetn- ingu sjálfsvitundar í textum Svövu. Erindi Birnu Bjarna- dóttur nefnist „Möguleikar skáldskaparins: Um raunveru- Ieika innri reynslu í sögum Svövu Jakobsdóttur." Dagný Kristjánsdóttir fl\tur erindið: „Texti af texta af texta af texta...“ er tjallar um áhrif Svövu á íslenska bókmennta- sögu. I erindi sem kallast „Lokaæfing leigjandans" mun Pétur Már Olafsson ræða um skáldsöguna Leigjandann (1969) og leikritið Lokaæfingu (1983) og Soffía Auður Birgis- dóttir mun fjalla um bók- menntafræðinginn Svö\oi Jak- obsdóttur. Svava Jakobsdóttir.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.