Dagur - 17.11.2000, Blaðsíða 1
Töf sem j aðrar við
skemmdarverk
Kristján Fálsson, full-
trúi Sjálfstæðisflokks-
ins í fjárlaganefnd,
segir afstöðu fram-
sóknarmanna í Lands-
símamálinu þrákelki
sem jaðri við skemmd-
arverk.
Eins og fram kom í Degi fyrir
nokkrum dögum er sala Lands-
símans kominn í strand vegna
þess að stjórnarflokkana greinir
á um ýmislegt í málinu og þá
allra frekast hvort ljósleiðarinn
eigi að fylgja með í sölunni eða
ekki. Framsóknarmenn vilja alls
ekki selja hann með Landssím-
anum nema hægt sé að tryggja
öllum landsmönnum aðgang að
honum og fyrir sama gjald hvar
sem er á landinu. Sjálfstæðis-
menn vilja selja ljósleiðarann
með símanum og segja fyrirtæk-
ið verðh'tið án hans.
Kristján Pálsson þingmaður
Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi
hans í fjárlaganefnd er æfur út í
framsóknarmenn vegna þessa
máls. Hann kallar
afstöðu fram-
sóknarmanna í
málinu þrákelkni
og að þeir séu að
tefja málið vegna
spurningarinnar
um hvort ljósleið-
arinn eigi að
fylgja með í söl-
unni.
Jaðrar við
skemmdarverk
„Að tefja málið
mánuðum saman
jaðrar við að vera
skemmdarverk. Á
meðan málið
dregst lækkar
Landssíminn í verði. Ég held að
flest allir séu sammála um það
að ef ekki á að selja ljósleiðarann
með Landssímanum, þá sé það
eins og að selja vélarlausan bíl.
Það er enginn sem vill kaupa.
Menn verða að tryggja aðgang
Iandsmanna að þessu kerfi en
ljósleiðarinn verði eigi að síður
eign Landssfm-
ans,“ segir Krist-
ján.
Hann segir að
það sé ekki leng-
ur hægt að skýra
afstöðu fram-
sóknarmanna
öðru vísi en þrá-
kelkni, að ná
fram sínum sjón-
armiðum sem
kannski eigi ekki
við. Það hafi
aldrei komið al-
mennilega fram
hvers vegna ljós-
leiðarinn geti
ekki verið hluti af
sölunni.
Kristján segir að það hafi
aldrei verið staðfest að ekki sé
hægt að finna leiðir til að tryggja
aðgang að ljósleiðaranum án
þess að hann sé í eigu ríkisins.
Varla tíl vtnsælda fallið
„Ef menn á annað borð hafa
áhuga á þvf að selja Landssím-
ann, bæði til að skapa honum
betri stöðu á markaðnum sem
fyrirtæki og eins að skapa ríkinu
tekjur, þá sjá allir að það verður
ekki gert nema selja Landssím-
ann í heilu lagi. Þetta hefur ver-
ið gert í öðrum löndum með góð-
um árangri. Aðrar leiðir gera fyr-
irtækið nærri ósöluhæft og illa
rekstrarhæft. Eg get ekki ímynd-
að mér að nokkur hafi áhuga á
slíku fyrirtæki," segir Kristján.
Hann segir að það sé þjóð-
hagslega hagkvæmt að selja fyr-
irtækið og því sé það undarlegt
að nota það til að styrkja stöðu
sína innan stjórnarsamstarfsins
og tæplega til þess fallið að efla
vinsældir Framsóknarflokksins.
Degi er kunnugt um að margir
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
eru sömu skoðunar og Kristján
og deilan veldur æ meiri núningi
milli stjórnarflokkanna. - S.DÓR
Kristján Pálsson: jaðrar við
skemmdarverk hjá framsókn.
Me&as
fær
Jónas
Söngvaskáldinu Magnúsi Þór
Jónssyni, Megas, voru í gær á
degi íslenskrar tungu afhent
Verðlaun Jónasar Hallgrímsson-
ar árið 2000 fyrir störf f þágu ís-
lenskrar tungu. Það var Björn
Bjarnason menntamálaráðherra
sem afhenti verðlaunin. I
umsögn dómnefndar segir að
Megas hafi auðgað íslenskt mál,
Ijóðmál hans sé frumlegt og
sæki líf sitt í hversdagsleika
borgarinnar, fegurð og ljótleika
mannlífsins og skeikula ásýnd
náttúrunnar. íslenska menningu
skoði Megas með gagnrýnum og
hvössum hætti og veitti þannig
nýja sýn á viðteknar hugmyndir.
Þá hefði hann hvatt ungt fólk til
að kanna möguleika móður-
málsins í stað þess að flýja á
náðir enskunnar. - SBS.
Björn Bjarnason afhendir Megasi Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar i gær, á degi íslenskrar tungu. mynd: ingó.
Eigandi segir umsátursástand
skapast í kringum Venus eftir
klukkan 4 á nóttunni.
Umsátur
um Venus
Bæjarráð Akureyrar hafnaði í
gær erindi Einars Þórs Gunn-
laugssonar, eiganda nektarstað-
arins Venusar, um lengri opnun-
artíma. Bæjarráð telur engin ný
rök hafa komið fram til breyt-
inga á fyrri samþykktum bæjar-
stjórnar en eigandinn er ekki
hrifinn af þeirri afgreiðslu.
„Að sjálfsögðu eru þetta von-
brigði, þetta er bara fáránlegt,"
segir Einar. Hann segir að niður-
staðan komi á óvart, þar sem
hann hafi verið búinn að fá
munnleg vilyrði frá „ákveðnum
fulltrúum í bæjarstjórn" um að
hugsanlega væri hægt að lengja
opnunartímann um einn til tvo
klukkutíma fram eftir nóttu.
Frjáls opnunartími heyrir sög-
unni til á Akureyri eftir eins árs
tilraun. Nektarstaður lýtur sömu
lögmálum og kaffihús. Lokað
skal klukkað 1 á virkum dögum
en 3 um helgar. Starfsemi
Venusar er hins vegar þess eðlis
að hún verður ekki borin saman
við lífið á kaffihúsunum.
nimögulegt
„Það er illmögulegt að reka
svona stað undir þessum kring-
umstæðum en ég ætla ekki að
gefast upp. Kaffihús hefur
möguleika á að hafa opið á dag-
inn en þessi starfsemi hefur ekki
verið talin fallin til þess. Eg gæti
náttúrlega opnað klukkan 7 á
kvöldin en þá kemur upp vanda-
málið að mér er ekki heimilt að
hafa mitt eigið aldurstakmark
fyrr en eftir klukkan 10. Krakkar
geta labbað inn fram að þeim
tíma og ég v'ar að bjóða bæjarráði
að opna seint en fá að hafa lcng-
ur opið frameftir fyrir vikið."
Einar segir umsátursástand
skapast í kringum Venus eftir
klukkan 4 á nóttunni. „Síminn
logar og fólkið liggur á hurðinni
þannig að markaðurinn er
greinilega fy'rir hendi," segir Ein-
ar og er mjög óhress með að-
stöðumuninn á höfuðborgar-
svæðinu og fyrir norðan. - BÞ
DEH-P3100-B
• 4x45 magnari • RDS
• Stafrænt útvarp FM MW LW
• 24 stöðva minni • BSM • Laus framhlið
• RCA útgangur • Klukka • Þjófavörn
• Loudness þrískiptur
Setjum tækið f bflinn
þér að kostnaðarlausu
Gerir góðan bíl betir
BRÆÐURNIR
Lágmúla 8 • Sími 530 2800
www.ormsson '
00 I
is J