Dagur - 17.11.2000, Síða 2
2 - FÖSTVDAGVR 17. NÓVEMBER 2000
rD^m-
FRÉTTIR
L
Guðna var ekki
stætt á að neita
Neitun íun norska
fósturvísa brot á
j afnr éttislögum.
Kúabændur voru
tilbúnir að fara í hart
hefði þeim verið
neitað.
Guðni Agústsson landbúnaðar-
ráðherra hefur orðið fvrir aðkasti
frá æði mörgum fyrir það að
leyfa tilraunir með fósturvísa úr
norskum kúm. Lögfróðir menn
segja aftur á móti að Guðna hafi
ekki verið stætt á öðru en að
leyfa þetta vegna þess fordaemis
sem orðið er í íslenskum land-
húnaði. Neitun hefði verið brot á
jafnréttislögum.
Hænsnabændum hefur verið
leyft að flytja inn erlend hænsna-
kyn, loðdýrabændur fengu að
flytja inn minka og refi, svína-
bændum hefur verið leyft að
kynhæta sinn svínastofn og síð-
ast en ekld síst eru nautgripa-
bændur nú loks að verða sam-
keppnishæfir á kjötmarkaði
Sturla Böðvarsson fær óblíða
sendlngu frá reykvískum fram-
sóknarmönnum.
Gagmýna
Sturlu
Framsóknarfélögin í Reykjavík
hafa sent frá sér sameiginlega
ályktun vegna frestunar vegafram-
kvæmda á höfuðborgarsvæðinu. 1
ályktuninni er það harmað að
frestun framkvæmda virðist eiga
að bitna harðast á höfuðborgarbú-
um. Segja framsóknarmenn að
vissulega sé nauðsynlegt að draga
úr opinberum framkvæmdum á
þenslutímum en jafnframt er þeir-
ri skoðun lýst að sú ákvörðun
Sturlu Böðvarssonar samgöngu-
ráðherra að fresta vegafram-
kvæmdum sem raun ber vitni í
Reykjavík sé algerlega óviðunandi.
Orðrétt segir í ályktuninni: „
Framkvæmdir hér í Reykjavík eins
og mislæg gatnamót Víkurvegar
og Vesturlandsvegar eru fram-
kvæmdir sem þola alls enga bið.
Við skorum á samgönguráðherra
að.hafa í forgangi umferðaröryggi
þorra landsmanna þegar ákvarð-
anir um frestun framkvæmda er
teknar. Mannslíf eru í húfi“
fósturvísa. 1 lefði því aftur verið
neitað voru þeir tilbúnir til að
fara í mál við landbúnaðarráð-
herra. Og þau málaferli hefðu
ekki getað endað með öðru en
sigri bænda vegna jafnréttislaga.
Guðmundur Þorsteinsson,
bóndi á Skálpastöðum í Lundar-
reykjadal, staðfesti að kúabænd-
ur hefðu vcrið tilbúnir til að stof-
na ræktunarfélagið. Hann vildi
hins vegar ekkert ræða um hvort
ákveðið hefði verið að kæra land-
búnaðarráðherra ef bann befði
neitað um tilraunina með fóstur-
vísana.
Guðni Agústsson landbúnað-
arráðherra sagði að hann hefði
af þessu hejTt og að sennilega
væri það alveg rétt að kúabænd-
ur hefðu unnið mál gegn sér ef
bann hcfði neitað þeim um til-
raunina. En alveg burt séð frá
því þá hefði sér verið ómögulegt
að neita kúabændum urn þessa
tilraun tiú bara vegna jafnréttis-
ins. Það stæðist ekki að leyfa
öðrum greinum landbúnaðarins
að kynbæta hjá sér með inn-
flutningi erlendra stofna en
neita svo kúabændum að gera
tilraun mcð það sama. — S.DÓR
Guðnl tllkynnlr ákvörðun sína / fjósinu á Stóra - Ármóti í Flóa.
vegna þess að leyfður var inn- Bændur VÍlílu berjast
flutningur á erlendum naut- , Samkvæmt heimildum Dags
gripastofnum af Aberdeen Argiis I voru kúabændur tilbúnir til að
og Limosin-kyni. stofna ræktunarfélag og sækja
aftur um heimild til að flytja inn
Banaði Einari
með höfuðhöggi
Atli Helgason leiddur inn í Héraðsdóm Reykjaness í gær.
Jónas Jóhannsson héraðsdómari
kvað upp þann úrskurð síðdegis í
gær að Atli Helgason héraðs-
dómslögmaður skuli sæta gæslu-
varðhaldi til 15. desember, en
aðfaranótt fimmtudags játaði
Atli Ioks að hafa orðið Einari
Erni Birgissyni viðskiptafélaga
sínum að bana. Samfara játning-
unni vfsaði Atli á stað þann sem
lík Einars var falið og fannst lík-
ið í kjölfarið í hraunsprungu um
600 metrum vestan við Grindar-
víkurafleggjara, skammt frá
Keflavíkurvegin u m.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er nú talið að frekari rann-
sókn málsins kunni að leiða til
handtöku fleiri manna vegna
málsins, enda er talið ólíklegt að
Atli hafi staðið einn að annars
vegar meintum innflutningi á
fíkniefnum með vörubirgðum
Gaps Collection verslunar þeirra
félaga og hins vegar að sjálfu
manndrápinu og frágangi líksins.
Eru sérstaklega tveir nafngreind-
ir góðkunningjar lögreglunnar
nefndir í þessu sambandi, menn
sem um árabil hafa staðið í fíkni-
efnamisferli. Þessi þáttur máls-
ins er þó enn skammt á veg kom-
inn og lítur fyrst og fremst að
meintum fíkniefnainnflutningi.
Samkvæmt heimildum blaðs-
ins réð Atli Einari bana með öfl-
ugu höfuðhöggi. Lík Einars var
af þeim sökum afar illa útleikið
þegar það fannst. Sérfróðir
menn telja út frá líkamsburðum
viðskiptafélaganna að Atli hljóti
að hafa komið Einari mjög á
óvart með árásinni. — FÞG
Ríkið hraut á kvikmyndamöimuni
Hæstiréttur hefur dæmt ríkið til
að greiða Þorsteini Jónssyni, Þór-
halli Sigurðssyni og Ornólfi Arna-
syni 1,6 milljón króna vegna
óleyfilegra sýninga á kvikmyndum
sem félag þcirra, Oðinn, fram-
leiddi. Þremenningarnir vildu
hins vegar fá 1 5,2 milljónir.
Óðinn framleiddi tvær kvik-
mvndir á árunum 1981 og 1983,
en varð gjaldþrota 1986. Mynd-
irnar voru þá seldar Þorsteini á
nauðungaruppboði, með öllum
þeim réttindum sem tilheyrðu
framleiðanda. I janúar 1988
gerðu hann og menntamálaráðu-
neytið með sér tvo samninga um
rétt til sýninga kvikmyndanna í
skólum og öðrum fræðslustofn-
unum í eigin þágu þessara stofn-
ana á Islandi í fimm ár. Gerði
Þorsteinn samninginn fyrir hönd
þremenninganna. Þótt árin 5 Iiðu
var haldið áfram að sýna mynd-
irnar í skólum í 14 mánuði eftir
það, en frekari greiðslum hafnað.
Hæstiréttur taldi ríkið ekki hafa
hrakið fullyrðingar þremenning-
anna um að þeir ættu höfundar-
rétt að kvikmyndunum. Því væri
um að ræða saknæmt brot á höf-
undarrétti þeirra. — FÞG
Sex á dag hjá Blönduóslöggimni
1336 ökumenn voru í íyrra teknir fyrir hraðakstur á löggæslusvæði
lögreglunnar á Blönduósj. Til samanburðar við höfuðborgarsvæðið
má geta þess áð það er rúmur þriðjungur þess fjölda sem kærður var
í Reykjavík á sama tíma. Alls voru 4105 ökumenn kærðir fyrir of
hraðan akstur í borginni árið 1999 en umferðareftirlit ríkislögreglu-
stjóra kærði á tímabilinu 216 ökumenn eftir hraðamælingu með rat-
sjá.
Aðgerðir hafa enn verið hertar hjá Blönduóslöggunni, því að á
fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa 1648 manns verið kærðir f'yrir of
hraðan akstur í sýslunni eða um sex ökumenn að jafnaði á dag. Þess-
ar upplýsingar koma fram í nóvemberhefti tímarits Vátryggingafélags
íslands en VlS telur framlag lögreglunnar á Blönduósi í baráttunni
gegn hraðakstri mikilvægt til að forða umferðarslysum. — BÞ
Sekt fyrir fíkniefni
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt tvítugan karlmann til
25.000 króna sektar vegna fíkniefnabrots. Brotíð átti sér stað aðfara-
nótt föstudagsins 7. apríl 2000 í kjallaraíbúð á Akureyri.
Þrír sækja um Dómkirkjuprest
Umsóknarfrestur um embætti
Dómkirkjuprests í Reykjavík
rann út á miðvikudag. Umsækj-
endur eru þrír, sr. Hjálmar JÖns-
son alþingismaður og fyrrum
sóknarprestur á Sauðárkróki, sr.
Jón Aðalsteinn Baldvinsson,
sendiráðsprestur í London og
sr. Sigurður Arni Þórðarson,
sem hefur verið verkefnisstjóri
við safnaðaruppbyggingu á
Biskupsstofu síðan 1995. Sr.
Sigurður hefur m.a. verið
starfsmaður í Þjóðgarðinum á
Þingvöllum, rektor Skálholts-
skóla og sóknarprestur í Staðar-
fellsprestakalli í Þingeyjarsýslu,
en því prestembætti þjónaði sr.
Jón Aðalsteinn einnig um tíma.
Sr. Sigurður þjónaði einnig Ásprestakalli i Skaftártungum.
Víglubiskup Skálholtsstiftis, sr. Sigurður Sigurðarson, mun kalla
valnefnd Dómkirkjunnar saman, og það gerist vamtanlcga á næstu
dögum. Embætti Dómkirkjuprests veitist frá 1. febrúar 2001. - gg