Dagur - 17.11.2000, Page 5
FÖSTUVAGUR 17. NÓVEMBER 2000 - S
FRÉTTIR
Dómsmálaráðherra
biður fjármálaráð-
herra um meira fé til
að efla lögregluua. Á
síðustu 3 árum hefur
241 einstaldingur
verið í gæsluvarð-
haldi og þar af 76 í
einaugnm í meira en
3 vikur samfellt.
Margrét Frímannsdóttir hóF um-
ræður utan dagskrár á Alþingi í
gær vegna þess að gæsiuvarð-
haldsföngum er haidið vikum
saman í haldi án þess að vera yf-
irheyrðir vegna fjárskorts fíkni-
efnaiögreglunnar. Rannsókn
mála dragist úr hófi fram vegna
þess að yfirvinnukvóti fíkniefna-
iögreglunnar sé búinn. Hún vís-
aði í ummæli Sveins Andra
Sveinssonar lögmanns í þessu
sambandi.
Margrét sagði að langvarandi
gæsluvarðhald og einangrun
væri hættuieg geðheilsu fólks. I
því sambandi vísaði hún í um-
inæii lækna, þar á meðal Olafs
Ölafssonar fyrrum landlæknis.
Hún spurði hve margir væru nú
í gæsluvarðhaldi og einangrun?
Hve margir hefðu setið í 3 vikur
eða meira í varðhaidi sl. 3 ár.
Hún spurði líka hvort rannsókn
mála þeirra sem dvelja í gæslu-
varðhaldi hafi dregist verulega
vegna fjárskorts lögreglunnar og
yfirvinnubanns og hvort dóms-
málaráðherra ætlaði að setja
reglur um hámark þess tíma sem
einstaklingur er vistaður í ein-
angrun?
Viðurkendi fjárskortinn
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra varð fyrir svörum og tók
því afar illa að menn skyldu vera
að spyrja að þcssu á sama tíma
og lögreglan væri að leysa fjölda
fíkniefnamála. Hún talaði síðan
lcngi um mál sem komu spurn-
ingum málshefjanda ekkert við.
Sagði rangt að yfirvinnubann
eða fjárskortur drægi úr rann-
sókn mála hjá lögreglunni og
kallaði umræðuna moldxdðri.
Hún upplýsti að nú væru 24 í
gæsluvarðhaldi, þar af 6 í ein-
angrun. A síðustu 3 árum hafi
241 einstaklingur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald, þar af hafa
76 verið í einangrun í meira en
3 vikur samfellt.
En undir lok ræðu sinnar sagði
dómsmálaráðherra hins vegar að
hún hefði lagt fram tillögur til
fjármálaráðherra um verulega
aukningu fjárframlaga til þcssa
málaflokks. Tillögur sem miða
að fjölgun lögreglumanna og
fíkniefnaleitarhunda. Sömuleið-
is sagðist hún ætla að stofna sjóð
til að kosta umfangsmiklar rann-
sóknir sem ekki rúmast innan
venjubundins reksturs lögregl-
unnar. Að undirbúningi þessara
tillagna verði unnið í ríldsstjórn
á næstunni. Þingmenn bentu á
að þar með hefði hún viðurkennt
fjárskort Iögreglunnar og að efla
þyrfti fíkniefnadeildina.
Skj aldmeyj arnar
Það vakti athygli að annan dag-
inn í röð komu samflokksystur
dómsmálaráðherra, þær Þor-
gerður K. Gunnarsdóttir og Asta
Möller henni til aðstoðar í orða-
glímu á Alþingi. Þær komu báð-
ar með skrifaðar ræður og hældu
dómsmálaráðherra á hvert reipi
fyrir vel unnin störf.
Steingrímur J. Sigfússon kall-
aði þær skaldmeyjar dómsmála-
ráðherra og hvað sem þær segðu
um ágæti dómsmálaráðherra og
að allt væri í Iagi í þeim mála-
flokki hefði Sólveig Pétursdóttir
sjálf bent á að ekki væri allt sem
skyldi með því að sækja um auk-
ið fjármagn til fjármálaráðherra
til að efla fíkniefnadeild lögregl-
unnar. I sama streng tók Lúðvík
Bergvinsson, sem sagði dóms-
málaráðherra kveinka sér undan
þessari umræðu. - S.DÓR
Strætisvagnabílstjóra hafa verið
dæmdar bætur fyrir ólögmæta
uppsögn.
Ólögmæt
uppsögn
Hæstiréttur hefur dæmt SVR og
borgina til að greiða strætis-
vagnabílstjóranum Pétri Hraun-
fjörð 900 þúsund króna bætur
vegna ólögmætrar uppsagnar.
Hæstiréttur hækkar bæturnar
verulega, en þær voru 275 þús-
und í undirrétti.
Vagnstjóranum var sagt upp
störfum með þriggja mánaða
uppsagnarfresti í ágúst 1997.
Hæstiréttur taldi að Pétur hefði
ekki verið opinber starfsmaður í
skilningi þágildandi sveitar-
stjórnarlaga. Hins vegar var talið
að forstöðumönnum SVR hefði
borið að fara að reglum stjórn-
sýslulaga við ákvörðun um að
segja Pétri upp störfum og hefði
ákvörðunin orðið að byggjast á
málefnalegum sjónarmiðum. 1
uppsagnarbréfi Péturs var ekki
getið ástæðna uppsagnarinnar,
en að beiðni hans var gerð grein
fy'rir þeim í bréfi SVR í septem-
ber 1997. Rétturinn telur að
brotið hafi verið gegn rann-
sóknarreglu og andmælarétti
stjórnsýslulaga og hefði upp-
sögnin því verið ólögmæt. - FÞG
Verkfallsvarsla
Baldurs lögleg
Hæstiréttur hefur staðfest sýknu-
dóm undirréttar í máli sem Sam-
tök atvinnulífsins höfðuðu gegn
Verkalýðsfélaginu Baldri á Isa-
firði og Aðalheiði Steinsdóttur,
þar sem SA fór fram á skaðabæt-
ur vegna meints tjóns af völdum
ólögmætrar verkfallsvörslu, þegar
félagsmenn úr Baldri undir for-
ystu Aðalheiðar komu í veg fyrir
að fram færi löndun í Reykjavík-
urhöfn úr togara í eigu atvinnu-
rekanda á lsafirði.
Aðgerðir þeirra voru þáttur í
verkfallsvörslu á vegum Baldurs,
sem Iýst hafði yfir verkfalli á fé-
lagssvæði sínu. Ahöfn var hins
vegar óháð verkfallinu, sem ekki
náði til sjómanna. Hæstiréttur
taldi að útgerð togarans og rekst-
ur vinnslustöðvar eigandans á
ísafirði væri samþættur atvinnu-
rekstur, og hefðu fyrirhuguð
áform atvinnurekandans um
löndun í Reykjavík verið ætluð lil
að sneiða hjá áhrifum verkfalls-
ins, sem hefði verið í blóra við
Iög. Var það talið tilheyra verk-
fallsrétti að landslögum að fólki
og félögum í lögmætu verkfalli
væri rétt að verjast þvf með frið-
samlegum aðgerðum, að reynt
væri að draga úr áhrifum verk-
fallsins af hálfu þeirra, sem það
beindist gegn, með því að fá aðra
til að leysa af hendi vinnu að
þeim störfum, sem Iögð hefðu
verið niður. - FÞG
Jórvík án leyfls
Flugfélagið Jórvík hefur verið án
flugrekstrarleyfis síðan á sunnu-
daginn um síðustu helgi, m.a.
vegna þess að félagið er ekki með
neinn gildan viðhaldssamning
vegna flugvéla félagsins. Flugfé-
lagið Jórvík er með leyfi til áætl-
unarflugs til Patreksfjarðar, en
flug hefur legið niðri þangað af
þeim sökum, til mikils óhagræð-
is fyrir íbúa svæðisins. Pétur
Maack, forstöðumaður flugör-
yggissviðs Flugmálastjórnar, seg-
ir flugfélagið Jórvík ekki vera
með gilt flugrekstrarskírteini í
augnablikinu.
„Þeir hafa ekki lagt inn um-
sókn um endurnýjun leyfisins
enda vantar enn ákveðin gögn til
þess að hægt sé að gefa út leyfi
til Jórvíkur. Eg get ekki úttalað
mig um það hvað vantar til þess
að hægt sé að afgreiða málið, en
það er af nokkrum ástæðum. Það
vantar enn gögn til þess að upp-
fylla lagaskyldu þar að lútandi,"
sagði Pétur Maack.
Framkvæmdastjóri Jórvíkur,
Jón Grétar Sigurðsson, var ekki
viðlátinn í gær. Jórvík hefur á
áætlun daglegt llug til Patreks-
fjarðar, en hafi ekki fengist far-
þegar í einstaka flug hefur far-
þegum stundum verið bent á Is-
Iandsflug, sem er með áætlunar-
flug á Bíldudalsflugvöll. Finn-
björn Bjarnason, umboðsmaður
Islandsflugs á Bíldudal, segist
ekki hafa orðið var mikilla breyt-
inga af þessu tilefni, þeir hafi
alltaf haft farþega af öllu svæð-
inu, svo þetta hafi ekki breytt
miklu. Flogið er daglega á Bíldu-
dalsflugvöll, og farþegafjöldi allt
að 600 manns á mánuði, auk
mikils flutnings með vörur og
póst. - GG
Straiunur á Atviimuiniöstöd
„Mikill straumur fólks hefur verið á Atvinnumiðstöð stúdenta nú eft-
ir helgina og virðist sem nemendur séu vonlitlir um að verkfallið leys-
ist á næstu dögum," segir í frétt frá miðstöðinni. Um 80 nemar í at-
vinnuleit höfðu skráð sig hjá miðstöðinni á íyrstu verkfallsviku kenn-
ara. Margir þeirra leita að fullu starfi meðan á verkfalli stendur, en
sumir að vinnu í jólafrxinu. -hei
Dimitrov hittir Halldór
Aleksandar Dimitrov, utanríkisráðherra Makedóníu, kemur í vinnu-
heimsókn til Islands í dag í boði Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráð-
herra. Á samráðsfundi utanríkisráðherranna í Þjóðmcnningarhúsinu
í dag verða samskipti Islands og Makedóníu efst á baugi en ráðherr-
arnir munu jafnframt ræða öryggismál í Evrópu og ástandið á
Balkanskaga auk annarra alþjóðamála. - BÞ
HiartveiMr mótmæla
Félag hjartasjúklinga og Félag eldri borgara á Akureyri mótmæla
harðlega gjaldtöku fyrir eldri borgara í Sundlaug Akureyrar og í Hlíð-
arfjall. Lagt var fram erindi þessu varðandi hjá bæjarráði Akureyrar í
gær en ekki var ályktað um málið. Hugmyndin um gjaldtöku þessa
hóps kemur frá íþrótta- og tómstundaráði Akureyrar. - BÞ
Síminu ódýrari ef...
Síminn hefur sent frá sér útreikninga til að sýna fram á að í yfirlýs-
ingum sínum hagstæðara verð á innanlandssímtölum hafi íslands-
síma Iáðst að líta á heildarmyndina. Íslandssíma hafi ekki getið þess
að allir viðskiptavinir Símans fái 1 50 kr. afslátt á mánuði með notk-
un sem innifalin sé í fastagjaldinu, 820 krónum, sem viðskiptavinir
Islandssíma greiði að fullu. I dæmi Si'mans um rúmlega 4.000 kr.
símareikning sem skiptist í fastagjald, innanlandssímtöl, sem er um
1.300 kr., farsíma, sem eru um 1.700 kr. og upplýsingar sem er 320
kr. verður niðurstaðan sú, að Síminn sé 22 kr. ódýrari og 63 kr. sé
reiknað ineð afsláttarforminu Vinir og vandamenn - HF.l