Dagur - 17.11.2000, Blaðsíða 8
8- FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000
ÍÞRÓTTIR
SMÁTT OG STÓRT
UMSJÓN:
SIGURDÓR
SIGURDÓRSSON
sigurdor@ff.is
Ættarveldi Stephensena
lngibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri hefur tilkynnt að embætti staðarhald-
ara í Viðey verði lagt niður um áramótin þegar Þórir Stephcnsen lætur af störf-
um f\TÍr aldurs sakir. Þar með hverfa síðustu leifar ættarveldis Stephensena í
Viðey. í tilefni þessa orti Ingvar Gíslason, fyrrum menntamálaráðherra:
Áður fyrr urn alda bil
entist kraftur gena.
Eygir sinnar auðnu skil
ættin Stephensena.
Ingvar Gíslason frv.
menntamálaráðherra.
Óx í Viðey virðing stór,
veldisljóminn glæsti.
Séra Þórir síðust fór,
Sólrún hringnum læsti.
„Menn verða að
þola það að
afstaða sé tekin
til hugmynda
þeirra,“
Gunnlaugur Sævar
Gunnlaugsson, for-
maður útvarpsráðs
í \iðtali við Mbl.
Kjamgresi og arfi
Séra Sigmundur er skáldanafn landskunns hagyrðings. Eftir hann birtust oft
vísur í Alþýðublaðinu meðan það var og hét fyrr á árum. I tilefni átaka um for-
setastólinn á ASI þingi orti séra Sigmundur:
Verkalýðshreyfingin bráðlega erfyrir bí
efburtu húnfleygir kjamgresi en velur sér arfa.
Það mun gerast kjósi nú ASÍ
Evrópusambandssprautu til forystustarfa.
Kristilegt kaupæði
Hjálmar Freysteinsson, Iseknir á Akureyri, er í hópi bestu
hagyrðinga nú um stundir. Þegar hann heyrði af ákvörð-
un kirkjunnar um að verðlauna bestu auglýsinguna sem
sameinaði kristindóminn og kaupæðið, orti hann:
Svo kaupæðið verði sem kristilegast
kirkjan samþykkti einróma,
að verðlauna þann sem listílegast
leggur nafn guðs við hégóma.
Nálægur Mrkjutum
Hákon Aðalsteinsson orti þegar Hjálmar Jónsson sagði honum að hann væri
að hugsa um láta af þingmennsku og sækja um embætti í Dómkirkjuprests.
Hjálmar er eitthvað heilagari,
hef ég aj þvífengið spurn.
Hann er að breyta hugarfari
og horfir á nálægan kirkjutum.
Hjálmar Freysteinsson.
■ fína og fræga fólkið
Vogue verðlaun
Svonefnd Vogue
verðlaun voru af-
hend í New York á
dögunum en þar
var valið best
klædda fólk ársins.
Leikkonan Chloe
Sevigny var valin
best klædda konan
og leikarinn Jude
Law best klæddi
karlmaðurinn.
Mesta athygli
vakti val á fata-
hönnuði ársins en
það var Stella
McCartney sem
varð fyrir valinu.
Það var David
Bowie sem átti að
afhenda verðlaun-
in og Stella gekk í
átt til hans en þá
stökk óvænt fram
á svið stoltur faðir,
Paul McCartney,
og afhenti dóttur
sinni verðlaunin.
Stella varð mjög
hrærð og að mar-
gra áliti var þetta
hápunktur athafn-
arinnar.
Stella McCartney
með David Bowie,
manninum sem
hún hélt að ætti að
afhenda sér verð-
laun.
: • ■■ ■ :
Ha iikar enn
á sigurbraut
Haukar iiiiiiu í fyrra-
kvöld sinn níirnda sig-
ur í röð í Nissandeild
karla í haudknattleik
þegar þeir lögðu
Gróttu/KR með átta
marka mun á Nesinu.
HK fékk á sama tíma
sín fyrstu stig í deild-
inni, eftir sex marka
sigur á Blikum.
Ekkert lát cr á sigurgöngu Hauka
í Nissandeild karla í handknatt-
leik, því í fyrrakvöld unnu þeir
sinn níunda deildarsigur í röð,
þegar þeir lögðu Gróttu/KR með
átta marka mun, í fyrsta leik 9.
umferðar, sem fram fór á Nesinu.
Jafnræði var með liðunum í upp-
hafi leiks, en fljótlega sýndu
Haukarnir bvers þeir eru megnug-
ir og höfðu þeir mest náð fjögurra
marka forskoti þegar leið á hálf-
leikinn. Leikmönnum Gróttu/KR
tókst þó að minnka muninn í eitt
mark, 16-17, fyrir leikhlé og var
það aðallega fyrir góða markvörslu
Heiðars L. Guðmundssonar,
markvarðar, sem leysti Hlyn
Morthens af f markinu þegar leið
á hálfleikinn.
f seinni hálfleiknum var allur
vindur úr heimaliðinu og tóku
Haukarnir þá öll völd á vellinum
og höfðu mest náð ellefu marka
forskoti þegar langt var liðið á
leikinn. En Grótta/KR átti síðustu
þrú mörkin og tókst að minnka
muninn í átta mörk, þegar Viggó
þjálfari Hauka hafði skipt inná
varaliði sínu í lokin. Þeir Einar
Orn og Halldór Ingólfsson voru
bestir og markahæstir hjá Hauk-
um með átta niörk hvor og einnig
áttu þeir Bjami Frostason og Þor-
varður Tjörvi góðan leik. Þorvarð-
ur nýtti sín færi 100 prósent og
skoraði sex mörk, en Bjarni varði
alls I 5 skot í markinu.
Hjá Gróttu/KR bar mest á skytt-
unum Hilmari Þórlindssyni og AI-
exander Petersons, en Hilmar var
þeirra markahæstur með átta
mörk, á meðan Petersons gerði
sex.
HK fæi sín fyrstu stig
I fyrrakvöld fór einnig fram inn-
byrðis leikur Kópavogsliðanna
Breiðabliks og HK í Smáranum og
vann HK þar öruggan sex marka
sigur á Blikum, 22-28. Leikurinn
var síðasti leikur 8. umferðar og
náði HK þar í sín fyrstu stig í vet-
ur. Blikarnir byrjuðu vel í ieiknum
og höfðu mest náð Ijögurra marka
forskoti í fyrri hálfleik, sem þeir
misstu niður þegar leið á hálfleik-
inn, en staðan í leikhlé var 12-13
fyrir HK. HK-liðið tók síðan öll
völd á vellinum í seinni hálfleikn-
um og skoruðu þá fyrstu sex
mörkin, án þess að Blikum tækist
að svara fyrir sig. Þar munaði
mesti um stórleik Arnars Reynis-
sonar í HK-markinu, en hann lok-
aði langtímum saman á Blikana.
Hinu megin á vellinum átti Rós-
mundur Olafsson einnig mjög
góðan leik f Blikamarldnu og varði
hann alls 22 skot, þar af tvö víta-
köst. Zoltán Belányi átti einnig
ágætan leik hjá Blikum og var
hann markahæstur með sex mörk
ásamt Halldóri Guðjónssyni, en
Halldór skoraði fimm af sex mörk-
um sínum úr vítum.
AukArnars í markinu átti Sverr-
ir Björnsson bestan leik hjá HK,
en Sverrir var markahæstur með
níu mörk, þar af tvö úr vítaköst-
um. Samúel Arnason var næst
markahæstur HK með fjögur
mörk
Staðan:
Haukar 9 9 0 274:212 18
Fram 8 7 1 212:182 14
Valur 8 5 3 204:179 10
ÍBV 8 5 3 216:199 10
Grótta/KR 9 5 4 215:231 10
FH 8 4 4 197:185 8
ÍR 8 4 4 184:183 8
UMFA 8 3 5 217:207 6
KA 8 3 5 198:200 6
Stjarnan 8 3 5 202:208 6
Breiðablik 8 1 7 168:257 2
HK 8 0 8 180:224 0
Næstu Ieikir:
Föstud. 17. nóv.:
Kl. 20.00 ÍR - Stjarnan
Kl. 20.00 HK-Valur
Kl. 20.00 Fram - Breiðablik
Kl. 20.00 FH - KA
Kl. 20.00 UMFA - ÍBV
Dregið í SS-bLkamuin
í fyrradag var dregið í 16-liða úr-
slitum SS-bikars karla í hand-
knattleik og drógust eftirtalin lið
saman:
Selfoss-Valur
Stjarnan-ÍBV
ÍR 2-Haukar
Fjölnir-HK
UMFA-FH
Grótta 1-Grótta 2
ÍR 1-KA
Fram-Víkingur
Leikirnir fara fram 29. nóvem-
ber og á það lið sem fyrr er nefnt
heimaleik.
BLkarkeppni kvenna
Einnig var dregið í 8-liða úrslit-
um bikarkeppni kvenna og þar
drógust eftrtalin lið saman;
IR-Stjarnan
Valur-FH
Haukar-Víkingur
ÍBV-Fram.
Leikirnir fara fram 13. desember.