Dagur - 17.11.2000, Qupperneq 11
FÖSTUDAGVR 17. NÓVEMBF.R 2 00 0 - 11
ERLENDAR FRÉTTIR
SMptar skoðanir
um friðarvon
Yasser Arafat hélt í
gær í vonina um að
unnt væri að ná friði
niiíli Palestínumanna
og ísraela á meðan
Ehud Barak forsætis-
ráðherra taldi sig sjá
fyrir langvinn átök
við Palestínumenn.
Eftir að Israelsher hafði gert eld-
flaugaárásir á fimm borgir á
Vesturbakkanum þar sem 17
Palestínumenn létust í fyrrinótt,
héldu sendimenn frá Rússlandi
en þó einkum frá Bandaríkjun-
um í gær áfram tilraunum sínum
til að fá deiluaöila til að semja
um frið.
Ekki útilokað
Arafat sagði í gær að hann hefði
ekki útilokað vonina um að frið-
arsamningar kynnu að nást áður
en Clinton Bandaríkjaforseti yf-
irgefur Hvíta húsið í janúar,
þrátt lyrir átökin og ofbeldið að
undanförnu þar sem 228 manns
hafa misst lífið, þar af eru um
90% fallinna Palestínumenn.
Pegar Arafat var spurður um það
af hlaðamönnum i gær hvort
hann teldi í raun og veru ein-
hverja möguleika á því að knýja
fram samkomulag áður en Clint-
on hættir, svaraði Arafat: „Við
erum að gera okkur vonir um
það, og svo má ekki gleyma því
að Clinton forseti krefst þess í
raun að við skilum einhverjum
árangri áður en hann hættir."
Arafat lét þessi orð falla þar sem
hann var á Gazasvæðinu, sköm-
mu eftir að hafa hitt sérlegan
sendimann Bandaríkjanna í
Austurlöndum nær, Dennis
Ross. Ross hafði auk þess hitt
Barak stuttlega í fyrrakvöld.
Köld vatnsgusa
Barak hins vegar sakar Arafat
um að hafa snúið baki við til-
raunum um að semja um lokaá-
fanga friðarsamkomulags sem
„hefði á endanum leitt til stofn-
unar sjálfstæðs palestínsks ríkis“
en haldið þess í stað yfir á braut
ofbeldis og mótmæla. Og Barak
hellti ísköldu vatni á allar hug-
myndir um að friðarsamningar
væru í burðarliðunum. „Við
erum ekki nálægt því að ná
neinu samkomulagi,“ sagði hann
í gær í viðtali við útvarp hersins.
Fréttaskýrendur sögðu í gær að
þrátt fyrir að ákveðið eggjahljóð
væri nú í leiðtoga Palestínu-
manna og Bandaríkjamönnum
þá væri Ijóst að til að ná samn-
ingum þyrftu báðir aðilar að vilja
semja, og það væri einfaldlega
ekki tilfellið nú. Auk þess væri
alls óvíst hversu mikið væri á
bakvið yfirlýsingar Arafats þegar
allt kæmi til alls. Því eru fæstir
bjartsýnir um að friðarsam-
komulag muni nást, en þó telja
menn það ekki útilokað.
Breyta sálfræðinni
Dennis Ross, sem hefur ákveðið
að hætta áralöngum afskiptum
sínum af málefnum Miðaustur-
landa þegar Clinton lætur af
embætti í jannúar, sagði blaða-
mönnum í gær að markmiö
Bandaríkjamanna væri að end-
urvekja gagnkvæmt traust milli
deiluaðila, traust scm hafi horfið
sem dögg fyrir sólu á þeim sjö
vikum sem liðnar eru síðan hin
blóðugu átök brutust út. „Sárin,
bæði á líkama og sál eru orðin of
djúp. Ef við ætlum að gera okk-
ur vonir um að geta hrint friðar-
ferlinu af stað á ný þá einfald-
Iega verðum við að breyta um-
hverfinu. Við verðum að breyta
sálfræðinni í þessum málum,“
sagði Ross.
Sir Michael Caine
LONDON - Michael Caine,
leikarinn með „cockney „- fram-
burðinn sem hefur Iagt
Hollywood að fótum sér hefur
nú fengið einhverja mestu viður-
kenningu sem Breti getur feng-
ið, hann hefur verið aðlaður. El-
ísabet drottning aðlaði hann í
gær og verður hann héðan í frá
Sir. Caine. Þessi upphefð er at-
hyglisverð í ljósi þess að snem-
ma sl. vor gagnrýndi Caine, sem
er breskur, landa sína íyrir að
hann hafí aldrei verið metinn að
verðleikum í heimalandi sínu og
að öll hans frægð og upphefð hefði komið að utan. „Þetta er nú einn
af þessum hlutum þegar það er ekki viðeigandi að hrópa og kalla af
fögnuði heldur er skynsamlegt að njóta stundarinnar og nota tæki-
færið til að hugleiða hana,“ sagði Michael Caine í viðtali á Sky í gær.
Sir Michael Caine með orðuna.
Kohl með endurmiimiiigar
BERLIN - Hellmut Kohl, sem hafði heitw
því að hann myndi aldrei skrifa bók eftir að
hann hætti í stjórnmálum, ætlar nú að skri-
fa tvær bækur. Fjárvana og hrakinn af
hneykslismálum lýsti kanslarinn fyrrverandi
því yfir á sínum tíma að ef hann ætlaði að
skrifa endurminningar sínar yrði hann að
gera annað tveggja, segja ósatt í þeim eða
eiga á hættu að baka sér gríðarlegar óvin-
sældir hjá öllum þeim sem hann væri að
skrifa um. Því myndi hann ekki skrifa neitt.
En allt er breytingum undirorpið og nú ætl-
ar Kohl semsé að segja frá sinni hlið á
hneykslismálunum sem plagað hafa kristi-
lega demóki-ata upp á sfðkastið. Fyrsta
bindið í sjálfsævisögunni heitir einfaldlega:
„Helmut Kohl, Dagbók mín, 1998-2000“.
Seinna bindi æviminninganna á svo að koma út á næsta ári.
Clinton til Víetnam
HANOI, Víetnam - Bill Clinton, for-
seti Bandaríkjanna kom í gær í heim-
sókn til Víetnam og varð þar með fyrsti
forseti bandaríkjanna til að heimsækja
þetta kommúnistaríki í marga áratugi.
Forsetaþotan bandaríska lenti á Noi
Bai alþjóðaflugvellinum í gærmorgun
og biðu hans þar fjölmargir ráðamenn
Iandsins. Slíkt hefði þótt saga til næsta
bæjar fyrir aldarfjórðungi. Clinton var
dökkklæddur og leiddi dóttur sína
Chelsea niður stigann samhliða þxa að
þjóðsöngvar þessara fyrrum stríðs-
fjenda voru spilaðir. Hillary Clinton,
forsetafrú og öldungardeildarþing-
maður fyrir New York kom síðan ein á
eftir og veifaði til mannfjöldans. Var
haft á orði í hópum fréttamanna að
hún væri forsetaleg í fasi.
Helmut Kohl.
■ FRÁ DEGI TIL DAGS
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER
322. dagur ársins, 44 dagar eftir.
Sólris kl. 10.03, sólarlag kl. 16.21.
Þau fæddust 17. nóv-
ember
• 1924 Karl Kvaran Iistmálari.
• 1935 Bolli Gústavsson vígslubiskup.
•1941 Gene Clark, sem í eina tíð var
söngvari og gítarleikari í hljómsveit sem
hét Byrds.
• 1942 Martin Scorsese, bandarískur
kvikmyndaleikstjóri.
• 1944 Danny DeVito, bandarískur leikari
og leikstjóri.
• 1948 Kristín Jóhannesdóttir kvikmynda-
gerðarmaður.
• 1958 Mary Eli/.abeth Mastrantonio,
ftölsk leikkona.
Þetta gerðist 17. nóv-
ember
• 1558 lést María Englandsdrottning, að-
eins 42 ára gömu, og Elísabet hálfsystir
hennar tók við krúnunni, en hún var þá
25 ára.
• 1800 kom Bandaríkjaþing fyrst saman í
Washingtonborg.
• 1839 var fyrsta ópera Verdis frumsýnd,
en hún heitir Oberto.
• 1869 var Súezskurðurinn opnaður fyrir
umferð. Við það jókst áhuga bæði Breta
og Frakka á Egyptalandi til muna, og fór
svo að Bretar hernámu landið árið
1882.
• 1938 kom Vikan út í fyrsta sinn, en rit-
stjóri þá var Sigurður Benediktsson.
• 1940 var Akureyrarkirkja vígð.
• 1984 var Jón Baldvin Hannibalsson kos-
inn formaður Alþýðuflokksins.
• 1995 hófust umfangsmikil réttarhöld á
Italfu, þar sem 75 hátt settir einstakling-
ar, þar á meðal Bettino Craxi fyrr\'erandi
forsætisráðherra, voru ákærðir fyrir
spillingu.
L. V,Y__________
Afmælisbam dagsins
Bandaríski leikarinn Rock Hudson
hefði orðið 75 ára í dag, en hann lést í
októbermánuði árið 1985 og vóg þá að-
eins 44 kíló. Elskhugi hans fékk skaða-
bætur eftir grimmileg málaferli sem
stóðu í fjögur ár, en Hudson liafði ekki
látið hann vita af þvf að hann var smit-
aður af alnæmisveirunni. Hann naut
mikilla vinsælda sem leikari upp úr
miðri öldinni, þótt leikhæfíleikar hans
hafi greinilega ekki verið upp á marga
fiska. Mcðal þeirra mynda sem hann
lék í var Risinn, sem minnst er fyrir það
að í henni lékjames Dean.
Vísa dagsins
Nií er að verða nóttin lönd,
náða skerðist hlíða,
sálar herðist sóttin ströng,
sín umferðast óttinn göng.
Hjálmar Jónsson frá Bólu
Kvæðin mfn eru kvalartár í kaldri
Iífsins hríð.
Benedikt Gröndal
Heilabrot
Hvað er það sem stækkar þegar höfuðið er
tekið af?
Lausn á síðustu gátu: Svipan
Vefur dagsins
Á Signu í París er gamalt skip, Batofar, sem
notað er sem menningarmiðstöð og nætur-
klúbbur. Þar stendur nú yfir norræn menn-
ingarvika, og þeir sem vilja geta fylgst með
henni á heimasíðu Batofars:
wmv.batolar.ora
n ftt