Dagur - 17.11.2000, Qupperneq 20
20- FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBF.R 2 000
■ OMýír
Gítar-og flaututónar
«y ^ Gítar- og
/v flautu-
r’^^ón-
'leikar verða
haldnir í Lista-
safni Sigurjóns í
Laugarnesi
sunnudaginn
19.11. kl. 20.00.
Þar leika þau
Guðrún Birgis-
dóttir og Martial
Nardeau ó flaut-
ur og Pétur Jón-
asson á gítar. Á
efnisskránni eru
m.a. verk eftir
Elínu Gunn-
laugsdóttur,
HugaGuð-
mundsson,
Hjálmar H. Ragnarsson, Atla Heimi Sveinsson og nýtt verk
eftir Karólínu Eiríksdóttur.
Tónleikarnir eru liður í þriðja og síðasta hluta hátíðar Tón-
skáldafélagsins sem hófst 18. október og lýkur 21. nóvem-
ber. Hátíðin er tileinkuð tónsmíðum frá 1985 til aldarloka.
Sálumessa Faurés
Dómkórinn flytur hina undurfögru sálumessu Gabriels Fauré
laugardaginn 18. nóvemberkl. 17.00 í Dómkirkjunni og eru
tónleikarnir liður í Tónlistardögum kirkjunnar sem staðið hafa
undanfarnar þrjár vikur. Einsöngvarar með kórnum eru Margrét
Bóasdóttir og Bergþór Pálsson og Anna Guðný Guðmunds-
dóttir leikur undir á píanó. Á tónleikunum syngur kórinn einnig
lög eftir Grieg, Bruckner og Saint Saéns. Stjórnandi Dómkórs-
ins er Marteinn H. Friðriksson.
Afrísk list
Sýning A.r.e.á (Art Region End of Africa) verður opnuð á Kjarvalsstöðum á morg-
un, 18. nóvember. Þar er sjónum beint að samtímalist ungu kynslóðarinnar í lýð-
veldinu Suður-Afríku og getur að líta verk ólíkra miðla, málverk, höggmyndir, inn-
setningar og videoverk. Listamenn sem verk eiga á sýningunni hafa verið valdir af
Gavin Young, prófessor við Listadeild Háskólans í Cape Town í Suður-Afríku og
Eiríki Þorlákssyni forstöðumanni Listasafns Reykjavíkur. í tilefni af opnun sýningar-
innar er Gavin Young kominn hingað til lands, ásamt fimm ungum listakonum frá
Suður-Afríku. Sýningin stendur til 7. janúar 2001.
ÞAÐ ER KOMIN HELGI
Hvað
ætlarþúað
gera?
Heim í Hörgárdal
„Á laugardag verð ég að vinna hér á safninu,“
segir Erla Árnadóttir, bókasafnsfræðingur á
Amtsbókasafninu á Ákureyri. „Eg verð þennan
daginn í upplvsingaþjónustu safnsins sem er
hér uppi á annarri hæð, en í því starfi felst að
greiða úr spurningum fólks sem hingað kemur
og vantar svör um hin aðskiljanlegustu og ótrú-
legustu efni. Þetta er mjög íjölbreytt starf. Á
sunnudaginn ætla ég svo að vera eitthvað með
fjölskyldunni minni á heimaslóðir mínar og
sjálfsagt leikum við okkur eitthvað úti í snjón-
um og förum í fjós. Mér finnst alltaf gaman að
skreppa heim öðru hverju og í raun bráðnauð-
synlegt."
Þórólfur Hall-
dórsson.
Spjallað við bændur
„Allan föstudaginn verð ég í Reykjahólasveit,
en þar er ég að jafnaði einu sinni í mánuði og
þar geta íbúarnir þá fengið alla þá almennu
þjónustu sem sýslumannsembættið veitir. Já,
við getum alveg kallað þetta að ég sé að spjalla
við bændur,“ segir Þórólfur Halldórsson, sýslu-
maður á Patreksfirði. ,A föstudagskvöldið ætla
ég að keyra suður til Reykjavíkur því snemma á
laugardagsmorguninn verð ég að vera á fundi
þar sem við nokkrir féiagar ætlum að undirbúa
árshátíð Stangveiðifélags Reykjavíkur sem
haldin verður á næstunni. Þegar líða tekur á
morguninn þarf ég svo að keyra vestur aftur,
verð eftir hádegið við jarðarför í Reykhólasveit
og væntanlega verð ég komin heim á Patreks-
fjörð um kvöldið. Ætli þá verði ekki gott að fara
að slappa af - og eiga sunnudaginn frían.“
Einar Már
Sigurðsson.
Fjórir fundir
„Allan föstudaginn mun ég sitja norður á Akur-
eyri á ráðstefnu um fiskeldismál. Síðdegis mun
ég svo keyra um nýju Háreksstaðaleiðina, heim
í Neskaupstað," segir Einar Már Sigurðarson.
„Eins og oft er um helgina verð ég á fundum
með kjósendum úti í kjördæminu, á Iaugardag
á Reyðarfirði og Fáskrúðsfirði og á sunnudag-
inn í Neskaupstað. Einhvers staðar inni á milli
verður síðan komið fundi í blaðstjórn Austur-
lands, sem er blað okkar Samfylkingarfólks
eystra. En þessir staðir sem ég nefndi hér að
framan eru skemmtilegir hver á sinn hátt; á Fá-
skrúðsfirði bjó ég, á Reyðarfirði hef ég starfað
en Seyðisfjörður er mér nýr og framandi og því
líklega mestur Iærdómur að koma þangað."
■ HVAD ER Á SEYDI?
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Listmunauppboð á Hótel Sögu
Gallerí Fold heldur listmunauppboð í
Súlnasal Hótels Sögu sunnudagskvöld-
ið 19. nóvember n.k. og hefst það kl.
20.00. Boðin verða upp 99 verk, þar á
meðal fjölmörg verk gömlu meistar-
anna. Verkin eru til sýnis í Galleríi
Fold, Rauðarárstíg 14, föstudag kl.
10.00 til 18.00. laugardag 10.00 til
17.00 og sunnudag 12.00 til 17.00.
Hægt er að nálgast sýningarskrána á
heimasíðu Gallerís Foldar á netinu, en
netfangið er: \vw\v.myndlist.is.
Samfylkingardagurinn í Hafnar-
firði
Samfylkingin í Hafnarfirði verður með
sérstakan Samfylkingardag á morgun
laugardaginn 18. nóvember nk. Dagur-
inn verður haldinn í Alfafelli, íþrótta-
húsinu Strandgötu. Dagskráin hefst kl.
14.00 og verður fram haldið fram eftir
degi. Starfræktir verða málefnahópar,
staðið fyrir bæjarmálaumræðu, aðal-
fundur félagsins verður haldin og
klukkan 19.00 hefst kvöldskemmtun
með borðhaldi. Samfylkingin hvetur
Hafnfirðinga til að taka þátt í degin-
um og líta við. Allir eru velkomnir.
Föstudagsbræðingur Hins Húss-
ins
í kvöld, föstudagskvöld frá kl:21:00.-
23:00. spila hljómsveitirnar: Duffel,
Stillborn, og Drifter rokk af ýmsum
toga á Geysi Kakóbar, Hinu Húsinu
við Ingólfstorg. Allir 16 ára og eldri
velkomnir. Frítt inn og ekkert rugl.
Menningardagskrá í Digranes-
kirkju
Bókaútgáfan Orlagið efnir til menn-
ingardagskrár í safnaðarsal Digranes-
kirkju í Kópavogí næstkomandi sunnu-
dag, 19. nóv., undir titlinum Laun
hcimsins. Tilefnið er útgáfa sam-
nefndrar bókar Kjartans Amasonar er
hefur að geyina safn örleikrita hans en
mörg þeirra hafa komið út í smáritum
á undanfömum árum.
A dagskránni ætla m.a. Anton Flelgi
Jónsson, Lillý Guðbjörnsdóttir og
Þórður Helgason að flytja ljóð eftir
Kjartan og leikararnir Arnar Jónsson,
Guðný Helgadóttir og Halldóra Geir-
harðsdóttir leiklesa örleikrit skáldsins.
Þá mun Sigurður Skúlason lesa kafla
úr skáldsögu Kjartans, Draumur þinn
rætist tvisvar og Jóhann Hjálmarsson
kynnir stuttlega feril skáldsins. Loks
mun Hildur Guðný Þórhallsdóttir
söngkona og hljómveit hennar, sem
skipuð er valinkunnum FIH-félögum,
flytja söngdagskrá.
Ball í Hreyfilshúsi
Flaldnir hafa verið fjörugir dansleikir
Hreyfilshúsinu við Grensásveg á þriðju
hæð. Núna í kvöld, föstudagskvöldið
17. nóv kl 22.30 verður funheitt í kol-
unum við Grensásveg. Hljómsveit
Hjördísar Geirs sér um fjörið fram á
nótt. Dansleikurinn er opinn öllum
þeim sem vilja skemmta sér án áfengis
og miðaverð er 1000 krónur.
Hláturgas á Landspítala
Farandsýningin Hláturgas verður sett
upp á tíu sjúkrahúsum \iðsvegar um
landið á árinu 2000 í boði lyfjafyrir-
tækisins Glaxo Wellcome á Islandi. Tí-
undi og síðasti áfangi sýningarinnar
verður opnaður á Landspítala Háskóla-
sjúkrahúsi í Fossvogi föstudaginn 17.
nóvember kl. 15. Af þessu tilefni mun
háðfuglinn Flosi Olafsson skemmta
gestum og gangandi, en Magnús Pét-
ursson, forstjóri Ríkisspítala, oþnar
sýninguna. Það er Islenska menningar-
samsteypan ART.IS sem stendur áð
þessari farandsýningu, en áður hefur
sýningin farið til Landspílalans,
Sjúkrahúss Akraness, Sjúkrahúss Isa-
fjarðar, Heilbrigðisstofnunarinnar á
Sauðárkróki, Heilbrigðisstofnunar Eg-
ilsstaða, Fjórðungssjúkrahúss Akureyr-
ar, Heilbrigðisstofnunar Þingeyinga,
Húsavík, Heilbrigðisstofnunarinnar á
Selfossi og Hcilbrigðisstofnunar Suð-
urnesja.
Stofnfundur ungliðasamtaka VG
Stofnfundur samtaka ungs fólks í
Vinstrihreyfingunni - grænu framboði
hefur verið boðaður laugardaginn 18.
nóvember. Fundurinn verður haldinn á
Hótel Lind, Rauðarárstíg 18, og hefst
klukkan 14.
Opið hús á Vífilsstöðum Opið hús
verður á Vífilsstöðum föstudaginn 1 7.
nóvember frá kl. 14:00 til 18:00 í til-
efni af 90 ára afmæli staðarins. Kynnt
verður starfsemi sem er núna á Vífils-
stöðum og til sýnis verða Ijósmyndir og
munir síðan Vífilsstaðir voru heilsu-
hæli fyrir berklasjúklinga. Sumar
myndanna hafa ekki sést áður opin-
berlega. Auk þess verður sýnd stutt
kvikmynd sem var tekin á fjórða ára-
tugnum á Vífilsstöðum.
Jazz í Múlanum
Sunnudagskvöldið 19. nóvember verð-
ur Kristjana Stefánsdóttir djasssöng-
kona á Múlanum en djassklúbburinn
Múlinn er til húsa á efri hæð Kaffi
Reykjavíkur. Kristjana Stefánsdóttir
hefur getið sér gott orð fyrir góðan
söng og líflegt „skatt“ en það er sú list
að syngja af fingrum fram. Að þessu
sinni munu Kristjana og félagar leika
og syngja standarda og ballöður í bland
og að eigin sögn verður Ijóðrænan í
fyrirrúmi. Prógrammið er aðgengilegt
og notalegt og ætti að hæfa flestum,
líka þeim sem ekki eru vanir því að
hlusta á djass. Asamt Kristjönu leika
Birkir Freyr Mattíasson á trompet/-
Flugelhorn, Gunnar Gunnarsson á
píanó og Tómas R. Einarsson á kontra-
bassa.
Tólamerki Thorvaldsens
' í tiléfni af 1^5 ára afmæli Thor\'ald-
sensfélagsins opnar það sýningu í Ráð-
húsi Reykjavíkur á morgun, 19. nóv-
ember á jólamerkjum sínum sem kom-
ið hafa út árlega frá 1913. Við gerð
merkjanna hefur félagið notið aðstoðar
margra helstu listamanna þjóðarinnar
og á félagið margar frummyndir er
verða til sýnis. Sýningin stendur til
27.11.
ínúk - ævintýrið
Dagskrá helguð Inúk-hópnum svokall-
aða verður flutt 20. nóvember á vegum
Listaklúbbs Leikhússkjallarans. Þar
verður saga Inúks ævintýrsins rakin í
máli og myndum en nú eru 26 ár síðan
leikritið Inúk-maðurinn var frumsýnt.
Sýningin var sýnd í 19 löndum í Evr-
ópu og Suður-og Mið-Amerkíku á
fimm ára tímabili eftir að hún hafði
verið sýnd í skólum hér á landi og á
leiklistarhátíð í Frakklandi. I Leikhús-
kjallaranum verður sýnd heimildar-
mynd um gerð undirbúningsvinnu
hópsins á Grænlandi og í myndinni er
bútur úr sýningunni sjálfri. A eftir
munu þátttakendur í ævintýrinu svara
fyrirspurnum, auk þess sem ýmsir leik-
munir og búningar verða til sýnis.
Húsið opnar kl. 19.30 og dagskráin
hefst kl. 20.30.
Síðustu forvöð
Síðustu sýningar verða sunnudaginn
19.11. á barnaleikritinu Stormi og
Ormi og skemmtidagskránni Hratt og
bítandi (sem er fyrir sælkera) í Kaffi-
leikhúsinu í Hlaðvarpanum.Stormur
og Ormur er sýnt kl. 15.00 og Hratt
og bítandi kl. 19.30. Háaloft verður
sýnt í kvöld Id. 21. og aukasýning er á
Kvenna hvað á morgun 18. nóv. kl.
20.30.
A ferð í Rússlandi
Flutt verður frásögn í tali og myndum
af ferð íslenskra sagnfræðinema til
Rússlands sl. vor í félagsheimili MIR,
Vatnsstíg 10 laugardaginn 18. nóvem-
ber kl. 15.00. Ferðin var farin í júní-
mánuði sl. til landa við Eystrasalt og
Rússlands og tók hún hálfan mánuð.
Aðgangur er öllum heimill og ókeypis.
Tsjaíkovskí í MÍR
Rússneska kvikmyndin Tsjaíkovskí frá
árinu 1970 verður sýnd í bíósal MIR,
Vatnsstíg 10 19. nóvember kl. 15.00.
Leikstjóri er Igor Talankin en titilhlut-
verkið leikur Innókentí Smoktúnovskí.
í myndinni eru raktir ýmsir þættir úr
ævisögu hins rússneska tónskálds og
hluti myndarinnar fjallar um vináttu
tónskáldsins og barónessunnar von
Mech sem var mikill aðdáandi hans.