Dagur - 17.11.2000, Page 21
FÖSTUDAGUR 17. NÓVEMBER 2000- 21
Rúdolf á ísafirði
Söngkvartettinn Rúdolf heldur tónleika í Hömrum, sal Tónlist-
arskóla Isafjarðar laugardaginn 18. nóvember kl. 17.00. Dag-
skráin verður með léttu sniði og er stærsti hluti hennar íslensk
dægurlög sem vinsæl hafa verið í flutningi íslenskra tónlistar-
manna og má nefna lög eftir Sigfús Halldórsson, Magnús Ei-
ríksson, Stuðmenn og fleiri. Erlend lög fljóta líka með og eru
það einkum klassískir jazz-standardar og dægurflugur eftir Ge-
orge og Ira Gerswin og aðrar sígildar perlur.
Söngkvartettinn Rúdolf skipa þau Sigrún Þorgeirdóttir, Soffía
Stefánsdóttir, Skarphéðinn Hjartarson og Þór Ásgeirsson. Tón-
leikarnir eru áskriftartónleikar á vegum Tónlistarfélags ísafjarð-
ar.
Spurningakeppni Baldursbrár
Spurningakeppni Baldursbrár, seinni hluti fyrstu umferðar
fer fram í kvöld, föstudagskvöld kl 20:30 í safnaðarsal
Glerárkirkju. Alls munu 10 lið keppa og þau eru:Eldri borg-
arar, Heilsugæslustöðin, Kjarnafæði, Norðlenska lögreglan,
prestar, Ráðhús, Síðuskóli, Slippurinn, Vélsmiðja Steindórs.
Allur ágóði rennur í söfnun fyrir steindum glugga í Glerár-
kirkju.
Afmælisár Skagfirsku söngsveitarinnar
Skagfirska söngsveitin er nú að hefja sitt 30. starfsór og af þvi tilefni mun kórinn á
haustdögum halda tónleika í Skagafirði og Reykjavík þar sem á efnisskránni verða
skagfirsk Ijóð og sönglög.
Tónleikaröðin hefst nú um þessa helgi í Skagafirði á eftirtöldum stöðum: í Bók-
námshúsi Fjölbrautarskólans á Sauðárkróki föstudaginn 17. nóvember 2000 kl.
20.30
í Miðgarði - laugardaginn 18. nóvember 2000 kl. 21.00
Einsöngvarar með kórnum verða: Kristín R. Sigurðardóttir - sópran; Guðmundur
Sigurðsson - tenór; Óskar Pétursson frá Álftagerði.
Einnig eru sýnd atriði úr óperum og
ballettum tónskáldsins. Myndin er tal-
sett á ensku. Aðgangur óke>pis og öll-
um heimill.
Bókaveisla í Perlunni
Helgina 18.-19. nóvember stendur
EDDA-miðlun og útgáfa l\rir bóka-
veislu í Perlunni. A stáðinu verður fjöl-
breytt skemmlidagskrá báða dagana.
Stúlknakór Bústaðakirkju syngur undir
stjórn Jóhönnu Þórhallsdóttur,
Bangsímon kemur og kætir börnin,
DIS verður kynnt fyrir gestum
Perlunnar, Tómas R. Einarsson og fé-
lagar leika djass, sýnt verður úr sýn-
ingu Möguleikhússins á Völuspá, Jó-
hanna Guðrún syngur og gestir koma
af Söngvaborg, nýja myndbandinu með
Siggu og Maríu. Lesið verður úr nýjum
bókum, bæði fyrir börn og fullorðna.
Meðal þeirra sem lesa fyrir fullorðna
eru:Guðrún Helgadóttir, Gyrðir Elías-
son, Auður Jónsdóttir, Steingrímur
Hermannsson, Arnaldur lndriðason,
Birgir Sigurðsson , Þorsteinn Guð-
mundsson og Pétur Gunnarsson. Með-
al þeirra sem Iesa fyrir börnin eru:
Kristín Helga Gunnarsdóttir, Sigrún
Eldjárn, Olafur Gunnar Guðlaugsson,
Yrsa Sigurðardóttir, Ragnheiður Gests-
dóttir og Brian Pilkington. Einnig
verður á staðnum teiknihorn þar sem
börn geta lært að myndskrevta bækur.
Hátíðin verður opin milli 13 og 18
báða dagana og er aðgangur ókevpis og
öllum heimill.
Þöglu meistararnir og sinfónian
Þrjár stuttmvndir eftir þá Charles
Chaplin, Buster Keaton og I larold LI-
oyd, Innflvtjandinn, Löggurnar og Að
duga eða drepast verða sýndar í Há-
skólabíói 18. nóvember kl. 15.00 við
undirleik Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands.Það eru Kvikmyndasjóður ís-
lands, Kvikmyndasafn íslands og Sin-
fóníuhljómsveit Islands sem standa að
sýningunni.
Móðirin í íslenskum
Ijósmyndum
Nú stendur yfir sýningin Móðirin í ís-
lenskum ljósmyndum á vegum Ljós-
myndasalns Reykjavíkur í Grófarsal,
Trygg'agötu 1 5. Viðfangsefni sýningar-
innar er móðirin í íslenskri Ijósmynda-
sögu, allt frá lokum 19. aldar til dags-
ins í dag. Ljósmyndirnar á sýningunni
koma úr fjölskylduálbúmum, einka-
söfnum og opinberum myndasöfnum.
í tengslum við sýninguna gefur Ljós-
myndasafn Reykjavíkur út \eglega bók
undir sama heiti, prýdda fjölda valinna
Ijósmynda af sýningunni. I bókinni
verður birl grcinin ..Móðurímyndir í
íslenskum Ijósmyndum" eftjr dr.
Önnudís G. Rúdólfsdóttur, félagssál-
fræðing. Einnig \erður birt ágrip af
Ijósmyndasögu eftir Guðbrand Bene-
diktsson, sagnfræðing. Ritstjóri bókar-
innar er Hanna Guðlaug Guðmunds-
dóttir listfræðingur. Verkefnið er fram-
lag Ljósmyndasafns Reykjavíkur til
Menningarborgar 2000. Styrktaraðili
er Pharmaco.
AKUREYRI
Samlagið stækkar
Samlaginu á Akureyri hefur bæst liðs-
auki. 4 myndlistarkonur hafa bæst í
hópinn en þæreru Hrefna Harðardótt-
ir, Jónborg Sigurðardóttir ( Jonna ),
Sigríður Agústsdóttir og Sveinbjörg
Hallgrímsdóttir sem \inna í grafík,
leirlist, mósaik og textil. Sérstök kynn-
ing á verkum þeirra verður í Samlag-
inu á laugardaginn 18 nóv. kl. 15.00 -
17.00. Samlagið er opið alla daga
nema mánudaga frá kl. 14.00 - 18.00.
Hjálpræðisher með Basar
Hjálpræðisherinn HvannavöIIum 10,
Akureyri verður með basar og kaffi-
sölu, laugardaginn 18. nóvember kl.
15.00. Það sem boðið er uppá er laufa-
brauðsbasar, vöfflukaffi og happdrætti.
Allir eru velkomnir.
Kynning á Mígrenisamtökunum
Opið hús hjá Mígrensamtökunum á
Akureyri verður húsnæði Krabba-
meinsfélagsins að Glerárgötu 24, Ak-
ureyri. Anna Sjöfn Sigurðardóttir, for-
maður, kynnir samtökin og stýrir um-
ræðum ásamt Þorbjörgu Ingvadóttur.
Sýnt verður myndband Mígrenisam-
takanna Mígrenisamtökin verða með
opið hús laugardaginn 18. nóvember
kl. 14:00 í „Mígreni - meira en höfuð-
verkur" og ýmislegt kynnt varðandi
mígreni. Fréttabréf og bæklingar verða
á staðnum, svo og bók samtakanna,
Mígrenibyltingin, um mígreni og
mataræði. Mígrensamtökin eru aðili að
alþjóðasamtökum mígrenisamtaka
World Headache Alliance sem hefur
heimasíðuna: www.w-h-a.org. Allir eru
velkomnir á opna húsið.
Hvað er á seyði?
Tónleikar, sýningar,
fyrirlestrar o.s.frv...
Sendu okkur upplýsingar á netfangi, í símbrófi eðe hringdu.
ritstjori@dagur.is / fax 460 6171 / sími 460 6100
Auglýsingar
eru
aldarspegill
Afvopnandi
einlægni
-segir Dagur Eggertsson #•?;.
ævisöguritari Steingríms
Hermannssonar
Kynlíf, hártíska, bíó, bækur,
Sameinuðu kraftana
Móttaka
óvæntra
gesta
flugupistill og fleira